Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 19
Ávarp Bjarnfríðar Leósdóttur
varaformanns Verkalýðsfélags Akraness
áútifundiáLækjartorgi sl. þriðjudag:
Fimmtudagur 7. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
ÉG ER
HRÆDD
Ég er hrædd. - Já ég er hrædd. -
Ég er svo hrædd, að ég varð að
hugsa mig um andartak áður en ég
tók ákvörðun um að taka til máls á
fundi sem þessum. Ég hugsaði um
það, hvort ekki væri best að loka
augum og eyrum, og heyra hvorki
né sjá hörmungar meðbræðra
sinna, hvort þeir væru í E1 Salvador
eða annars staðar á þessari jörð.
Ég hugsaði um það, hvort maður
ætti að þora, já hvort maður ætti að
þora að láta varaforseta Bandaríkj-
anna, sem nú gerir sér það ómak að
koma við á íslandi í ferð sinni um
Evrópu, þora að láta hann vita um
það að ennþá er til hópur íslend-
inga sem vill ekki ljá land sitt undir
vígvélar og vopnaburð. Vill ekki
vera í Nató. Viíl ekki vera samsek-
ur helstefnu Bandaríkjastjórnar.
Ég er hrædd, - vegna þess að rödd
hrópandans er svo víða kæfð í blóði
og augun blinduð af tárum.
Ég er hrædd vegna þess að ég veit
ekki hvort sú stund nálgast að sveit-
um lögreglu og hers verði beitt
gegn okkur. Gegn börnum okkar,
og barnabörnum.
Ég er hrædd þegar ég heyri aðvör-
unarflaut Almannavarna, sem
ennþá eru aðeins æfingar. Hvenær
verður það alvara? Hvenær til-
kynnir þetta flaut okkur, að nú
skulum við öll deyja?Hvenær?
Ég er hrædd vegna þess að ég er
engin hetja. -
En einmitt þessvegna stend ég hér.
- Það er vegna óttans. Það er vegna
óttans og samvisku okkar að við
stöndum hér í dag, um hásumarið.
í miðjum gróandanum og mótmæl-
um helstefnu Bandaríkjastjórnar.
Neitum að hún sé leidd yfir okkur
og börn okkar. Mótmælum þeirri
kúgun og ofbeldi sem hún styður
víðsvegar um heiminn og ekki síst
núna í Suður Ameríku.
Við stöndum hér í dag vegna þess
að við viljum sýna samstöðu og
skilning með því hetjulega fólki í E1
Salvador og víðar, sem er ákveðið í
því að öðlast frelsi, hvað sem það
kostar, fólki sem veit að það er þús-
und sinnum betra að deyja í
átökum fyrir réttinn til lífs, vinnu
og heilsu, en að halda áfram að
deyja úr hungri og fátækt.
Það er þetta ástand, sem gefur fólki
það hugrekki og þann járnvilja sem
með þarf, til að vinna sigur.
Það ætti öllum valdhöfum að vera
ljóst, að þar sem alþýðan stendur
saman þar sigrar hún og brýtur á
bak aftur ofbeldi kúgarans.
Þess vegna er það eina von mann-
kynsins að allur almenningur ég og
þú, taki höndum saman í órofa
friðarkeðju um lönd okkar, um alla
jörðina, og bægja með því hel-
stefnu stórveldanna frá.
Víða um lönd eru uppi raddir innan
verkalýðshreyfingarinnar um að
Bjarnfríður Leósdóttir flytur ávarp sitt á Lækjartorgi.
Björk Gísladóttur frá E1 Salvador nefndinni og Pétri Þórarinssyni frá
Samtökum herstöðvaandstæðinga var hleypt inn fyrir lögreglukeðjuna til
þess að afhenda fulltrúa bandaríska sendiráðsins samþykkt útifundarins
að viðstöddum Bjarka Elíassyni yfirlögregluþjóni.
Lögreglukeðja lokaði leið göngumanna að bandaríska sendiráðinu við hornið á Skálholtsstíg og Laufásveg.
þeim verksmiðjum og vinnustöð-
um sem framleiðavopnskulibreytt
til að framleiða nytsamlega hluti
sem tilheyra lífinu, en ekki
dauðanum.
Þær raddir verða æ háværari sem
kveða upp úr um það, hversu stór
glæpur það sé við mannkynið, að
ausa öllum þeim fjármunum, hug-
viti og verkviti og mannafla í þágu
hernaðar, eins og gert er í dag, í
stað þess að nota þetta afl í þágu
mannkynsins til að koma á efna-
hags og félagslegu réttlæti.
Þess vegna viljum við láta kröfuna
um efnahags og félagsleg réttindi
öllum til handa hljóma í dag og alla
daga, minnug þess að réttlæti er
forsenda friðar, og friður er for-
senda réttlætis:
„Réttan skerf sinn og skammt á
hvert skaparans barn, allt frá
vöggu að gröf“.
Píslarsaga 1983
Einhverntíma
þegar pálmablöðin bærast
í kvöldkyrrðinni
og góðlynd nóttin
kemur með frið og öryggi
verður þín minnst.
Einhverntíma
þegar jörðin grær upp
af blóði þínu
og ungir draumar svífa
inn í nýja veröld
verður þín minnst.
Einhverntíma
segir gömul kona
sögu um unga stúlku
sem lét lífið
í von þess
að lítil börn
mættu vaxa
til frelsis
Þá verður þín minnst
Maríanella García-Villas.
Maríanella García-Villas var myrt í
heimalandi sínu E1 Salvador 13.
mars 1983.
Ljóð eftir Ingólf Sveinsson.
,Jlétt’ upp hend’ sem eruð í Víkingasveitinni“, sagði einhver sem lögreglan horfðist í augu við
,4)AUÐANN“.