Þjóðviljinn - 07.07.1983, Qupperneq 23
Fimmtúdagur 7. júM 1983 WÓÐVILJINN - SÍÐA 23
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Brynjar Guðmundsson markvörður Vals hefur gómað boltann af tánum á Sveinbirni Skagamanni Hákonar-
syni. Þorgrímur Þráinsson Valsmaður er við öllu búinn. Mynd: - eik.
Vantaðl skotskó
Dregið í Evrópumótunum
AKRANES
MÆTIR
ABERDEEN!
Hina margfrægu skotskó vantaði
illilega þegar Valsmenn og Akur-
nesingar léku í 16-liða úrslitum
bikarkeppninnar í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikið var á
Valbjarnarvellinum í Laugardal og
tókst hvorugu liði að skora mark,
þótt leikið væri í heila tvo tíma, þ.e.
venjulegan leiktíma og framleng-
ingu. Liðin verða því að mætast að
Frestað
v/þoku
Tindastóll og Keflavík gátu ekki
leikið á Sauðárkróki í gærkvöldi í
16-liða úrslitum í bikarkeppninni í
knattspyrnu þar sem þoka iagðist
yfir Skagafjörðinn í gær og gerði
flug ókleift. Leikurinn hefur verið
settur á í kvöld.
nýju á Akranesi, í næstu viku senni-
lega.
Leikurinn einkenndist lengi vel
af baráttu og taugaspennu leik-
manna í fyrri hálfleik og talsvert
fram í þann síðari skeði lítið upp
við mörkin. Skagamenn tóku síðan
leikinn í sínar hendur síðari hluta
síðari hálfleiks og fengu þá nokkur
stórhættuleg færi. Sveinbjörn Há-
konarson komst í gegn eftir fallega
útfærða aukaspyrnu Sigurðar Jóns-
sonar en skaut í hliðarnet og tíu
mínútur fyrir leikslok var Sigurður
snöggur að taka aukaspyrnu á
miðjum velli, sendi á Sveinbjörn,
hann innfyrir á Sigþór Ómarsson
en Brynjar Valsmarkvörður bjarg-
aði með úthlaupi. Bergþór Magn-
ússon fékk síðan dauðafæri hinum
megin á 89. mínútu eftir auka-
spyrnu en Bjarni Sigurðsson bjarg-
aði ÍA með meistaralegri mark-
vörslu.
Valsmenn byrjuðu með látum í
framlengingu, Þorgrímur Þráins-
son þrumaði í þverslá Skagamarks-
ins, en leikurinn datt niður aftur og
jafnaðist. _y§
Það er ekki hægt að segja annað
en Akurncsingar hafi dottið í hinn
margfræga lukkupott í gær þegar
dregið var um það í Sviss hvaða
félög skyldu mætast í 1. umferð
Evrópumótanna í knattspyrnu.
Þeir leika gegn sjálfum Evrópubik-
armeisturunum, Aberdeen frá
Skotlandi, einhverju allra
skemmtilegasta liði Evrópu um
þessar mundir.
-Víkingar og Vestmannaeyingar
voru ekki eins heppnir, Víkingar
mæta ungversku meisturunum
Vasas í Evrópukeppni meistaraliða
og Eyjamenn lenda austur fyrir
járntjald eina ferðina enn, leika
gegn Carl Zeiss Jena frá Austur-
Þýskalandi.
Helstu leikir í keppnunum þrem-
ur eru eftirtaldir:
Evrópukeppni meistaraliða:
Víkingur - Vasas
AS Roma - Gautaborg
Ajax - Olympiakos Pireus
Liverpool - Ódense
Dundee United -Hamrun Spartans
I.infield - Benfica
Grasshoppers - Dinamo Minsk
Nantes - Rapid Vienna
Lech Poznan - Atletico Bilbao
Liverpool sem sagt gegn dönsku
meisturunum og Dundee United
gegn Maltverjum. Evrópumeistar-
ar Hamburger sitja hjá.
Evrópukeppni bikarhafa:
Akranes - Aberdeen
Juventus - Gdansk
Dukla Prag - Manch. United
Barcelona - Swansea/Magdeburg
Innsbruck - Köln
UEFA-bikarinn:
ÍBV - Jena
Watford - Kaiserslautern
Aston Villa - Guimares (Port)
Tottenham - Drogheda (írlandi)
Nottm. For. - Vorwárts (A. Þýsk)
St. Mirren - Feyenoord
Celtic - Aarhus
Fyrri leikirnir eiga að fara fram
14. september, þeir síðari þann 28.
september. - VS.
Páll bjarg-
aði Þrótti
Oddur og Óskar áfram
Oddur Sigurðsson og Óskar Jakobsson áttu ekki í vandræðum með að
komast í úrslitakeppnina í sínum greinum, Oddur í 400 m hlaupi og Óskar í
kúluvarpi, á heimsleikum stúdenta í Edmonton í Kanada í fyrrinótt.
Oddur varð þriðji í sínum riðli og fékk áttunda besta tímann í hlaupinu,
46,96 sekúndur. Óskar kastaði kúlunni 18,54 metra, þurfti aðeins eitt kast
því lágmarkið fyrir úrslitakeppnina var 18 metrar. Kast Óskars var það
fjórða besta í forkeppninni.
Úrslitin í þessum greinum fóru fram nú í nótt, eða öllu heldur snemma í
morgun, og því ógerlegt að greina frá þeim í blaðinu í dag.
Páll Ólafsson tryggði Þrótturum
úr Reykjavík annan leik gégh ÍBV í
16-liða úrslitum bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gærkvöldi þegar
hann jafnaði, 2-2, beint úr auka-
spyrnu tveimur mínútum áður en
framlengingu skyldi Ijúka í leik
liðanna í Eyjum. Páll skaut af 30 m
færi, vel til hliðar, og knötturinn
sigldi yfir nafna hans Pálmason í
Eyjamarkinu.
Eyjamenn fengu óskabyrjun,
Kári Þorleifsson fékk sendingu frá
Hlyni Stefánssyni strax á 3. mínútu,
lagði knöttinn vel fyrir sig með
hendinni áður en hann sendi hann í
netið, 1-0 fyrir ÍBV. Þrótturum
tókst að jafna á 72. mínútu. Páll
Ólafsson sendi fyrir Eyjamarkið og
Júlíus Júlíusson skoraði með
skalla, 1-1.
Framlengt - á áttundu mínútu
þar lyfti Ómar Jóhannsson inní víta-
teig Þróttar og Jóhann Georgsson
skallaði snyrtilega yfir Guðmund
Erlingsson markvörð, 2-1. Svo
kom jöfnunarmark Páls og liðin
mætast aftur í Reykjavík.
Leikurinn einkenndist af baráttu
og lítið var til að gleðja augað á
rennblautum vellinum. Jafnteflið
var sanngjörn niðurstaða, Þróttur
átti skilið sigur ef eitthvað var.
Eyjamenn fengu fleiri færi en
Þróttur sótti meira, einkum eftir
því sem á leið leikinn. Páll, Guð-
mundur Erlingsson markvörður og
bakvörðurinn Kristján Jónsson
voru bestir í liði Þróttar. Hjá Eyja-
mönnum bar mest á þeim Valþóri
Sigþórssyni, Kára og Sveini
Sveinssyni.
- JR/Eyjum.
Víkverji
hrelldi
Blikana
4. deildarlið Víkverja setti
mikinn skrekk í 1. deildarlið
Breiðabliks í 16-liða úrslitum
bikarkeppninnar á Melavell-
inum í gærkvöldi. Víkverji
leiddi í hálfleik, 1-0, með
marki Alberts Jónssonar úr
vítaspyrnu en Breiðablik
skoraði síðan tvívegis í síðari
hálfleik. Fyrst Sigurður Grét-
arsson, síðan Jón Gunnar
Bergs. Halldór Þórarinsson
sýndi snilldartilþrif í marki
Víkverja.
Þórsurum rúllað
upp í Kaplakrika!
Fjölbreytt á Sumarhátíð
Vinsælasti og viðamesti viðburðurinn á íþrótta-
sviðinu á Austurlandi ár hvert er án efa Sumarhátíð
Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands. Nú er
komið að henni, hún hefst að Eiðum á morgun,
föstudag, og lýkur á sunnudaginn. Reiknað er með
miklum mannfjölda að vanda en þúsundir koma við
eða gista á hátíðasvæðinu ár hvert.
Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, megin-
uppistaðan viðamikil frjálsíþróttakeppni. Sund
verður í fyrsta skipti á dagskrá og góðir gestir sækja
Austfirðinga heim, kvennalandsliðið í knattspyrnu
mætir til leiks og spiiar gegn kvennaúrvali Austur-
lands.
Þótt íþróttir séu það sem allt snýst um, verður
kryddað með ýmsu öðru og óvenju margir þekktir
skemmtikraftar koma fram á þessari sumarhátíð.
Þar ber mikið á tónlistarfólki, Bubbi Morthens
tekur lagið, svo og Magnús Sigmundsson, Ingunn
Gylfadóttir og fleiri. Jörundur og Laddi koma einn-
ig fram. Heiðursgestir verða Helgi Seljan alþingis-
maður og Ingimundur Ingimundarson frjálsíþrótta-
þjálfari ásamt konum sínum.
í tenglsum við hátíðina verða haldnir dansleikir í
Valaskjálf og Félagslundi, Reyðarfirði, þar sem A-
þena og SKLF leika fyrir dansi. Það verður fjör á
Sumarhátíð UIA, það bregst aldrei.
Fyrstudcildarliði Þórs á Akur-
eyri var hreinlega rúllað upp á
Kaplakrikavcllinum í gærkvöldi
þegar það lenti þar í klónum á 2.
deilarliði FH í 16-liða úrslitum
bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Eftir að Þórsarar höfðu leitt í hálf-
leik, 0-1, skoraði Hafnarfjarðar-
liðið fimm sinnum í síðari hálfleik
og sigraði 5-1.
Þór var betri aðilinn í fyrri hálf-
leik og þá skoraði Helgi Bentsson.
Ólafur Danivalsson jafnaði fljót-
lega eftir hlé fyrir FH, Pálmi Jóns-
son skoraði, 2-1, Jón Erling Ragn-
arsson 3-1, Pálmi aftur og loks
landsliðsbakvörðurinn Viðar Hall-
dórsson, 5-1, FH hefur því skorað
ellefu mörk í síðustu tveimur
leikjum sínum, skoraði sex í Sand-
gerði í 2. deildinni um helgina.
-VS
KR
KR þurfti framlengingu austur á
Vopnafirði til að knýja þar fram
sigur á Einherja, 1-0, í bikarkeppn-
inni í knattspyrnu, 16-liða úrslit-
um, í gærkvöldi. í fyrri hluta fram-
lengingarinnar náði Björn Rafns-
son að skora sigurmarkið. Einherj-
ar sóttu allan síðari hlutann en
náðu ekki að jafna.
fram sigur
KR var betri aðilinn mestan part
leiksins sem var mjög harður og
bikarstemmningin á Vopnafirði
var gífurleg. Sæbjörn Guðmunds-
son og Elías Guðmundsson voru
bestir KR-inga en Birkir Kristins-
son átti stórleik í Einherjamarkinu
og þá lék vörnin mjög vel.
-JS/VS.