Þjóðviljinn - 07.07.1983, Qupperneq 24
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 7. júlí 1983
ALÞYDUBANDALAGID
Alþýðubandalagið
Kópavogi
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn föstudaginn 8. júlí kl. 17.30 í Þinghóli.
Dagskrá: Tómstundastarfið. - Stjórnin.
Sumarmót AB -
Norðurlandskjördæmi eystra
jSumarmót AB í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrísey dagana
8.-10. júlí. Gist verður í tjöldum. Fólk hafi með sér grilltól. Fastar ferðir frá
Árskógsströnd föstudag og laugardag. Dagskráin í stórum dráttum: Útsýnis-
ferð um eyjuna, kvöldvaka á laugardag með tónlistaleikverki (musikteater)
„Aðeins eitt skref" með Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara og Jóhönnu Þórhalls-
dóttur söngkonu. Fleira verður sér til gamans gjört. Varðeldur og fjöldasöngur
með mararorganundirspili. Upplýsingar gefa Steinar í 21740, Erlingur í 25520
og Hilmir í 22264.
Áætlun Hríseyjarferjunnar: Alla daga frá Hrísey kl. 9.00-13.00-17.30. Frá
Árskógssandi kl. 9.30-13.30-18.00.
Miðnæturferðir þriðjudaga-föstudaga-sunnudaga frá Hrísey kl. 23.30 og
frá Litla Árskógssandi kl. 24.00. í athugun er að láta ferjuna fara aukaferðir
m.a. til Grenivíkur á föstudag. - Nefndin Norðurlandi eystra.
Sumarferðalag Alþýðubandalagsins á
Vesturlandi
Farið verður um Verslunarmannahelgina. Lagt af stað laugardaginn 30. júlí og
farið um Húnavatnssýslur og fyrir Skaga, um Skagafjörö til Siglufjarðar. Nánar
auglýst síðar. Kjördæmisráð.
Úr Hornvík - maður á eintaii við náttúruna
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Vestfjörðum 8.-10. júlí
Farið verður á Hornstrandir
Hin árlega sumarferð Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum verður að þessu
sinni farin norður í Hornvík í Sléttuhreppi. Lagt verður af stað með Djúp-
bátnum Fagranesinu frá ísafirði, föstudaginn 8. júlí klukkan 2 eftir hádegi og
komið til baka á sunnudagskvöld, 10. júlí. Farið veröur á Hornbjarg og í
gönguferðir um nágrennið undir leiðsögn kunnugra manna. Dvalíð verður í
tjöldum, og þurfa menn að leggja sór til allan viðleguútbúnað og nesti.
Munið að vera vel klædd.
Kvöldvaka og kynning á Hornströndum.
Verð fyrir fullorðna kr. 980.: hálft gjald fyrir 12 til 15 ára unglinga og frítt fyrir
börn innan 12 ára aldurs. í verðinu er innifalin ferö til ísafjarðar frá öllum
þorpum á Vestfjörðum og heim aftur.
Öllum heimil þátttaka.
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst einhverjum eftirtalinna manna:
ísafjörður: Þuríður Pétursdóttir, sími 4082, Hallur Páll sími 3920, Elín
Magnfreðsdóttir, sími 3938.
Bolungarvík: Kristinn H. Gunnarsson, sími 7437.
Inndjúpshreppar: Elínborg Baldvinsdóttir, Múla Nauteyrarhreppi.
Súðavík: Ingibjörg Björnsdóttir, sími 6957.
Súgandafjörður: Þóra Þórðardóttir, sími 6167.
Önundarfjörður: Jón Guðjónsson, frá Veðrará, sími 7764.
Dýrafjörður: Davíð H. Kristjánsson, Þingeyri, sími 8117.
Arnaiífjörður: Halldór Jónsson, Bíldudal, sími 2212.
Tálknafjörður: Steindór Halldórsson, sími 2586.
Patreksfjörður: Bolli Ólafsson, sími 1433.
Austur-Barðastrandarsýsla: Gisela Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhóla-
sveit, sími 4745.
Strandasýsla: Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Pálmi Sig-
urðsson, Klúku, Bjarnarfirði, SigmundurSigurðarson, Steinadal, Kollafirði,
sími 3343, Höröur Ásgeirsson, Hólmavík, sími 3123.
Reykjavík: Guðrún Guðvarðardóttir, símar 81333 og 20679.
Sumarfrí 4. júlí-5. ágúst
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður lokuð vegna sumarleyfa frá
4. júlí til 5. ágúst.
Skrifstofa flokksins verður opin þennan sama tíma daglega kl. 8-16.
Stjórn ABR
Húsavík - Almennur
stjórnmálafundur
Almennur stjórnmálafundur verður
haldinn í félagsheimili Húsavíkur,
mánudaginn 11. júlí kl. 21.00. Á fund-
inn mæta Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins og Steingrímur
J. Sigfússon alþingismaður.
Allir
velkomnir.
Alþýðubandalagið
Svavar Steingrímur
ítölsk flugsveit kom til Reykjavíkurflugvallar í fyrrakvöld í minningu þess að fimmtíu ár eru síðan Balbo
kom hingað með leiðangur sinn - svo sem eftirminnilegt er frímerkjasöfnurum og bókmenntavinum.
(Ljósm.: Leifur).
Islenska kjötíð feU>
ur Fiimum í geð
Úrbætur í
kyn-
fræðslu-
málum
í gær gengu á fund menntamála-
ráðherra og heiibrigðisráðherra
þær Katrín Fjeldsted, læknir, Vil-
helmína Haraldsdóttir læknir og
Hildur Jónsdóttir skrifstofumaður
og afhentu ráðherrunum bréf með
kröfum um úrbætur í kynfræðslu-
málum.
Lagt er til í bréfinu að farin verði
sérstök fræðsluherferð sem beinist
aðallega að unglingum 15 -19 ára.
Tilefni þessa framtaks kvenn-
anna er m.a. sú umræða sem orðið
hefur í kjölfar frumvarps Þorvaldar
Garðars og félaga á alþingi um
fóstureyðingar.
Það eru 57 konur úr öllum
stjórnmálasamtökum sem undir-
rita þessa áskorun til ráðherranna.
Flestar þessara kvenna hafa starfs
síns vegna mikið haft af þessum
málum að segja.
___________________-óg.
Samtök gegn asma
og ofnæmi:
Sumarferð
um
Suðurland
A sunnudaginn næsta efna
Samtök gegn asma og ofnæmi til
sumarferðar um Suðurland.
Samtökin eru nú á 10. ári, en
helsta verkefni þeirra er að halda
uppi fræðslu fyrir þá mörgu sem
þjást af þessum sjúkdómum og að
berjast fyrir réttindamálum þeirra.
Asma- og ofnæmissjúklingar eru
velkomnir í ferðina, sem og aðrir
þeir sem tengjast málefnum félags-
ins. Upplýsingar um sumarferðina
fást á skrifstofu samtakanna (s.
22153) og hjá Guðrúnu, s. 72495.
Þegar sá ágæti, fínnski forseti
Mauno Koivisto, kom hingað til
lands í opinbera heimsókn síðla árs
1982, var samið um sölu á 100 tonn-
um af frystu dilkakjöti til Finn-
lands. Fékkst fyrir það allgott verð
miðað við aðra dilkakjötsmarkaði
Búvörudeildar.
íslenska dilkakjötið hefur fengið
mjög lofsamlega dóma í Finnlandi,
talið fitulítið og bragðið milt, að
sögn finnska blaðsins Helsingin
Sanomat. Blaðið telur einnig að ís-
Hinn 30. júní sl. fór brunamála
stjóri, Þórir Hilmarsson ásamt
þeim Guðmundi Haraldssyni og
Trausta Þorlákssyni, starfsmönn-
um stofnunarinnar austur að
Eyrarbakka til að afhenda þar nýj-
an slökkvibfl af Bedford gerð, -
með tilheyrandi búnaði og dælum.
Fylgdu og varahlutir, sem sérpant-
aðir voru fyrir þessi tæki.
Bíll, dælur og slöngur voru próf-
aðar og slökkviæfing haldin í því
skyni. Tækin reyndust mjög vel og
dælan kraftmikil. Aksturseigin-
leikar bifreiðarinnar eru mun betri
lenska dilkakjötið sé mjög vel sam-
keppnisfært við finnskt dilkakjöt
bæði um verð og gæði.
Árleg dilkakjötsneysla Finna er
talin vera um 200 gr. á mann á ári.
Gæði kjötsins hafa aukist en neysla
ekki að sama skapi því framboð á
fersku kjöti er ekki nóg á þeim
tíma, sem eftirspurnin er mest.
Þessu er þó hægt að breyta, að áliti
blaðsins, með því að leggja áherslu
á sölu frysts kjöts og dreifingu um
landið allt.
en hjá þeim bflum af þessari gerð,
sem áður hafa verið fluttir inn.
Töluverð viðhöfn var á Eyrar-
bakka í tilefni af þessari gesta-
komu. Kom gamli slökkvibfllinn til
móts við þann nýja, ásamt slökkvi-
liði og sveitarstjóra, Magnúsi Kar-
el Hannessyni, fólk stóð á götum
úti er ekið var um bæinn og í lokin
voru kaffiveitingar.
Umboðssali fyrir bílinn er Jón
H. Þorbergsson, bflaverkstæði, en
inn erhann fluttur á vegum Eyrar-
bakkahrepps. Slökkviliðsstjóri er
Gísli Sigurðsson. - mhg.
Eyrbekkingar fá
nýjan slökkvibíl