Þjóðviljinn - 07.07.1983, Síða 27
Fimmtudagur 7. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
RUV0
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar Þulur velur og kynnir 7.25
Leikfimi Tónleikar
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur
Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Ðagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð. Bryndis Viglundsdóttir
talar. Tónleikar
8.30 Mylsna. Þáttur fyrir morgunhressa
krakka. Stjórnendur: Ása Helga Ragn-
arsdóttir og Þorsteinn Marelsson.
8.40Tónbilið
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Stroku-
drengurinn" eftir Astrid Lindgren Þýð-
andi: Jónina Steinþórsdóttir. Gréta
Ólafsdóttir les (f 9).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar.
fO.OO Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagbl. (útdr.).
f 0.35 Verslun og viðskipti Umsjónarmað-
ur: Ingvi Hrafn Jónsson
10.50 Áfram hærra. Þáttur um kristileg
málefni. Umsjón: Gunnar H. Ingimundar-
son og Ólafur Jóhannsson.
11.05 Vinsæl dægurlög sungin og leikin
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.05 „Refurinn í hænsnakofanum" eftir
Ephraim Kishon i þýðingu Ingibjargar
Bergþórsdóttur. Róbert Arnfinnsson les
0)
14.30 Miðdegistónleikar „The Academy
Music" hljómsveitin leikur Forleik nr. 3 í
G-dúr eftir Thomas Augustin Asrne;
Christopher Hogwood stj. / Steven Staryk
og „National Arts Centre" hljómsveitin
leika þátt úr Fiðlukonsert nr. 5 i A-dúr k.
219 eftir Wolfgang Amadeus Mozart;
Mario Bernardi stj.
14.45 Popphólfið - Pétur Steinn Guð-
mundsson.
15.20 Andartak Umsjón: Sigmar B. Hauks-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Melos-kvartett-
inn í Stuttgarf leikur Andante, scherzó,
capriccio og fúgu eftir Felix Mendelssohn
/ Pinchs Zukerman og Daniel Barenboim
leika á víólu og píanó Sónötu í Es-dúr
* i
Um verðlaun forseta íslands
Fáránleg umræða
í fjölmiðlum
Jóhannes Nordal seðlabanka-
stjóri: hann er ekki að biðja
handhafa framkvæmdavaldsins
um leyfi þótt hann bjóði nokkrum
útlendingum í lax....
Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra: hún er ekki að
hafa áhyggjur þótt Jóhannes Nor-
dal bjóði útlendingum í lax...
op. 120 nr. 2 eftir Johannes Brahms.
17.05 Dropar Síðdegisþáttur i umsjá Arn-
þrúðar Karlsdóttur. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Gunnvör Braga heldur
áfram að segja börnunum sögu fyrir
svefninn.
20.00 Bé einn Þáttur í umsjá Auðar Haralds
og Valdísar Óskarsdóttur.
20.45 Leikrit: „Hermann, Milla og Mikki“
eftir Howard Barker Þýðandi: Sverrir
Hólmarsson. Leikstjóri: Bríet Héðinsdótt-
ir. Leikendur: Karl Ágúst Úlfsson, Ragn-
heiður Tryggvadóttir, Gísli Rúnar Jóns-
son og Randver Þorláksson.
21.25 Einsögur í útvarpssal: Margrét Bo-
asdóttir syngur lög eftir Edvard Grieg,
Franz Schubert og Eric Satie. Þóra Friða
Sæmundsdóttir leikur á píanó.
21.55 „Sérstakt tilefni", smásaga eftir
Anders Hansen Ragnheiður Arnardóttir
les.
22.05 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins
22.35 Fimmtudagsumræðan - Staða
efnahagsmála Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson,
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Ég get ekki orða bundist vegna
sífeildra árása á forsetann okkar,
Vigdísi Finnbogadóttur, vegna
bókmenntaverðlaunanna sem
hún ákvað að stofna til í minningu
Jóns Sigurðsonar forseta. í öllum
borgaralegu blöðunum er fjarg-
viðrast fram og aftur um forms-
atriði sem ekki hafi verið í lagi.
Engu þeirra hefur dottið í hug að
upplýsa okkur um hvað raun-
verulega er hér á ferð. Eða hafa
menn almennt áttað sig á því að
hér er um það að ræða að út-
hlutað er sem svarar launum eins
kennara á ári? Það eru öll
ósköpin.
Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra lætur hafa
við sig viðtal á baksíðu Morgun-
blaðsins og býsnast þar yfir því að
hún hafi ekki verið látin vita um
þessi verðlaun áður en þau voru
gerð lýðum ljós. Mér er spurn:
Hvað kemur menntamálaráð-
herra það við? Má hann ekki vera
ánægður ef einhver, í þessu tilfelli
fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson, úthlutar fjármagni til
menntamála, framhjá mennta-
málaráðuneytinu? Er ekki þeim
sem ber menntir og menningar-
mál fyrir brjósti, akkur í því ef
fjárveitingavaldið eykur framlög
til þeirra mála?
Annar flötur er á þessu máli og
hann ekki ómerkari en það sem
fram hefur komið í fjölmiðlum.
Menn eru að æsa sig yfir því þótt
veitt sé smáfjármagni í minningu
Jóns Sigurðssonar forseta. Talað
er af vandlætingu um að þessi út-
deiling úr okkar sameiginlega sjóði
hafi átt að koma fyrir alþingi áður
en hún var ákveðin. En hvað
segja menn þá um laxveiðiferðir
Seðlabankastjóra með tugi er-
lendra „gesta'1 mörgum sinnum á
ári? Hvers vegna skyldi hinn op-
inberi starfsmaður Jóhannes
Nordal, hafa rýmri heimild til að
nota almannafé í því skyni en for-
seti lýðveldisins, fjármálaráð-
herra og forsætisráðherra saman-
lagt í títtnefndu verðiaunamáli?
Alveg er ég viss um að það fé sem
notað er á ári til risnu fyrir erlenda
peningamenn í Iaxveiðiám lands-
ins nemur sem svarar tugum bók-
menntaverðlauna forseta íslands
á hverju einasta ári. Og enginn
segir neitt við því. Já, það er ekki
sama hver á í hlut.
Halldór Bergmundsson.
„Ef lesið er.... “
Það var eitthvað verið að tala um hneykslismál í Hvíta húsinu þarna
fyrir vestan og af því tilefni fengum vér sent eftirfarandi vísukorn:
Ef lesið er lengst í kjölinn
og lífsstefna Nixons gleymd.
Var Reagan þá skyggn á skjölin
í skápnum hjá Carter geymd.
Útvarp kl. 20.45
Hermann,
Milla
og Mikki
Dœmisögur
ívans Kríloffs
I kvöld fimmtudaginn 7. júlí
verður flutt útvarpsleikritið
,dlermann, Milla og Mikki“ eftir
breska leikritahöfundinn How-
ard Barker. Þýðinguna gerði
Sverrir Hólmarsson en leikstjóri
er Bríet Héðinsdóttir.
Leikendur eru: Karl Ágúst
Úlfsson, Ragnheiður Tryggva-
dóttir, Gísli Rúnar Jónsson og
Randver Þorláksson.
Hermann er atvinnulaus og
hefur takmarkaðan áhuga á að
bæta úr því þrátt fyrir hvatningu
Millu sambýliskonu sinnar sem
gerir örvæntingarfullar tilraunir
til að koma honum út á vinnu-
markaðinn. Hermann er undir
sterku áhrifavaldi Mikka vinar
síns sem vill heldur að hann eyði
tíma sínum í að spila billjard með
sér. Þegar Millu tekst að lokum
að fá Hermann til að vinna, kem-
ur í ljós að Mikki er ekki allur þar
sem hann er séður.
Asninn
sem var
heiðraður
Maður nökkur átti asna sem virtist svo
blíður, góður og prúður í hegðun að hann
gat ekki hrósað honurn nógsamlega. „Þetta
dýr ber af öllum öðrum ösnurn,11 sagði hús-
bóndinn. „Ég ætla að hengja bjöllu utan um
hálsinn á honum svo að ég tapi honum
aldrei.11
Fyrst í stað var asninn geysilega hreykinn
yfir þessum virðingarvotti. Hann sperrti sig
allan, naut þess að heyra hljóminn í bjöll-
unni og hugsaði í sífellu um hvað hann væri
mikið fyrirmyndardýr.
En áður en asninn fékk heiðursmerkið
hafði hann satt að segja verið vanur að gera
sig heimakominn í görðuni nágrannanna og
fá sér dálítinn rúg eða hafra. Hann teygði
sig gegnumhlið eða rifur á girðingunni þeg-
ar enginn sá til, át eins og hann lysti og
laumaðist svo burt aftur.
En nú horfði rnálið öðru vísi við. Þegar
asninn ætlaði að laumast inn í garð til að fá
sér aukabita, heyrði eigandi garðsins
hljóminn í bjöllunni, hljóp út og barði asn-
ann hraustlega. Ef hann stóðst ekki mátið
og læddist inn á akur nágrannans kom
bjölluhljómurinn þegar í stað upp um hann
og einhver kom hlaupandi og lumbraði á
honum með lurk.
Hvert sem hann fór, inn á rúgakurinn, í
hafraskemmuna eða inn í aldingarð heyrði
einhver bjölluhljóminn og barði asnann uns
hann varð blár og marinn, stirður og aumur
í öllum iiðum.
Þegar sumarið var liðið var asninn með
heiðursmerkið ekki orðinn annað en
skinnið og beinin.
Bóndinn
og bjarndýrið
Bóndi nokkur og þjónn hans voru að
ganga heim til sín að kvöldiagi. Leið
þeirra lá gegnum skóg. Skyndilega
réðst bjarndýr á bóndann og greip
hann heljartökum og leit í kringum sig
til að finna skemmtilegan stað til að
njóta kvöldverðar síns.
Veslings bóndinn var að dauða kom-
inn. Hann kallaði til þjóns síns ámát-
legri röddu: „Bjargaðu mér, kæri vin-
ur. Hjálpaðu mér bróðir minn.“
Þjóninn tók á öllu sem hann átti til.
Hann sveiflaði öxinni sinni og klauf
höfuð bjarndýrsins og réðst síðan á það
með heykvísl. Dýrið vældi, valt um koll
og var örent.
Þegar hættan var liðin hjá sneri
bóndinn sér að þjóninum og tók til að
skamma hann allt hvað af tók.
„Hvað er þetta? Hvað hef ég gert af
mér?“ spurði þjónninn hissa.
„Hvað hefurðu gert, heimskinginn
þinn og fíflið þitt! Þú hefur drepið þetta
dýr á þann hátt, að feldurinn af því er
gereyðilagður. Ég get hreint ekkert
gert við skinnið11.