Þjóðviljinn - 07.07.1983, Blaðsíða 28
VOÐVIUINN
Fimmtudagur 7. júlí 1983
Sigurður
Guðgeirsson
látinn
Sigurður Guðgeirsson
starfsmaður Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar lést í
Landsspítalanum í gær, 57
ára að aldri.
Sigurður fæddist 26. maí
1926. Hann var prentari að
mennt og starfaði sem vélsetj-
ari í Prentsmiðju Þjóðviljans
’49 til ’57 og ’59 til ’62. Hann
réðst til Alþýðusambands ís-
lands árið 1962 og til Dags-
brúnar ári seinna, og hafði
starfað á skrifstofu þess sam-
fleytt í 20 ár er hann lést. Sig-
urður var virkur félagi í
Góðtemplarareglunni, átti
sæti í miðstjórn Sósíalista-
flokksins og stjórn Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík um
skeið og gegndi mörgum trún-
aðarstörfum innan Prentara-
félagsins og á vegum verka-
lýðshreyfingarinnar. Sigurðar
verður minnst síðar í blaðinu.
- ekh.
Hort sigraði
í V-Berlín
Guðmundur varð
í 5.—10. sæti
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag tll föstudags. Utan þess tima er
hægt að ná í blaðamenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er
hægt að ná í afgreiöslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348
og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
l'elgarsími
1663
Lánasjóður námsmanna:
182 millj. vantar
Lánasjóð ísi. námsmanna vantar
nú 182 milljónir til að geta staðið
við skuldbindingar sínar þetta ár.
Fyrst og fremst mun því um að
kenna að hækkanir á verðlagi og
gengi eru miklu meiri en sjóðnum
var leyft að reikna með í áætlun
sinni. Fjárveiting til sjóðsins var
mjög knöpp á síðasta þingi, og var
þá þegar sýnt að hlaupa yrði undir
bagga með haustinu.
Stjórn sjóðsins átti í gær fund
með menntamálaráðherra um
þennan vanda sjóðsins, en það fé
sem LlN hefur nú yfir að ráða verð-
ur uppurið í októberbyrjun. Áður
hafði sjóðsstjórn rætt við fjármál-
aráðherra. Ragnhildur Helgadóttir
menntamálaráðherra sagði í sam-
tali við Þjv. í gær að þennan vanda
yrði að leysa, þó ekki væri enn ljóst
með hvaða hætti.
Emil Bóasson, fulltrúi náms-
manna erlendis í stjórn LÍN, sagði í
gær að stjóðstjórnarmenn væru
Stúdenta-
leikhúsið
með nýja
dagskrá
Það er sami krafturinn á Stúd-
entaleikhúsinu og ný dagskrá er
þar frumsýnd vikulega. Nú um
helgina verður frumsýnd ný-
stárleg dagskrá sem nefnist
„Reykjavíkurblús“ - það er
tónlist, texti, leikatriði og ýms-
ar uppákomur í hæfílegri
blöndu. Magnea Matthíasdóttir
og Benóný Ægisson hafa tekið
efnið saman, frumsamið eða
valið, en mikið af því er eftir
ýmsa unga höfunda. Tónlistin
er ekki þýðingarminnst í dag-
skránni, en Kjartan Ólafsson og
Benóný Ægisson hafa haft veg
og vanda af henni. Pétur Ein-
arsson leikstýrir dagskránni.
„Við erum sex sem komum
fram, en alls hafa 22 lagt hönd á
plóginn", sagði Ari Matthíasson,
einn hinna ungu flytjenda, þegar
hann leit við hj á okkur á dögunum.
„Þetta er óskaplega skemmti-
legt. Við höfum verið að reyna
ýmsar leiðir, spunnið og skáldað og
smátt og smátt hefur þetta tekið á
sig form. Það verða ýmsar óvæntar
uppákomur sagði Ari. Það er
laugardaginn 9. júlí sem Reykja-
víkurblúsinn verður frumsýndur og
síðan verða nokkrar sýningar þar
til næsta dagskrá tekur við. - þs.
vongóðir um viðunandi lausn eftir
fundina með ráðherrunum. Hins-
vegar þyrfti að hafa hraðar hendur,
sjóðsstjórnin yrði að geta áætlað
fjármagn sitt til áramóta, og náms-
menn eru auðvitað óþreyjufullir,
enda flestir búnir að skuldbinda sig
til skólavistar og fjárútláta næsta
vetur, heima og erlendis. „Sjóð-
stjórnin ersammála um að náms-
menn hafi ekkert svigrúm", sagði
Emil, „niðurskurður kemurekki til
greina. Lán til námsmanna nú eru
það lág, að þeir rétt hanga ofanvið
hungurmörkin margir hverjir."
-áþj/m
Reykjavíkurblús
Samningarnir við Alusuisse
Ekki undir 17—18 mills
Höfum ekki efni á að selja raforku undir því verði sagði forsætisráðherra
- Að mínu mati höfum við ekki
efni á því að selja raforku mikið
undir 17 - 18 mills, sem er þrefalt
það verð sem Alusuisse greiðir,
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra í sjónvarpsþætti á
föstudagskvöldið, þegar hann var
spurður um markmið ríkisstjórn-
arinnar í samningunum við AIu-
suisse.
Steingrímur sagði að erlend stór-
iðja yrði mun minni en margir spá
undir þessari ríkisstjórn og að er-
lend auðfyrirtæki stæðu ekki við
dyrnar. Kvaðst hann vera hlynntur
stækkun álversins í Straumsvík ef
við fengjum viðunandi verð fyrir
raforkuna. - En það verð ég hins
vegar að segja að það raforkuverð
(17 - 18 mills) lofar ekki góðu um
mikla stóriðju.
Um þau ummæli iðnaðarráð-
herra Sverris Hermannssonar að
íslendingar ættu alls ekki að eiga í
stóriðjufyrirtækjum sagði forsætis-
ráðherra að Sverrir hefði ekki túlk-
að skoðun ríkisstjórnarinnar held-
ur aðeins persónulega skoðun sína.
- Mín stefna er sú að við eigum að
fara ákaflega varlega í það að láta
erlenda aðila ná undirtökunum í
atvinnulífinu. Allsstaðar ætti að
ganga svo frá málum, að íslending-
ar gætu eignast fyrirtækin, sagði
Steingrímur.
-óg.
Tékkneski stórmeistarinn Vla-
stimil Hort sigraði á hinu sterka
opna skákmóti í Berlín. Mótinu
lauk um síðustu helgi og var Guð-
mundur Sigurjónsson stórmeistari
meðal 300 þátttakenda. Tefldar
voru 9 umferðir eftir svissneska
kerfinu og hlaut Hort 8V2 vinning. I
2. - 4. sæti komu Ákeson Svíþjóð,
Gutman ísrael og Austurríkis-
maðurinn Hertzog allir með 7 V2
vinning.
Guðmundur Sigurjónsson hafn-
aði í 5. - 10. sæti ásamt Suba frá
Rúmeníu, Murej ísrael, Ghinda
Rúmeníu, Trepp Sviss og Mednis
Bandaríkjunum. Þeir hlutu allir 7
vinninga. Neðar á listanum komu
þekktir stórmeistarar eins og
Bandaríkjamaðurinn Yasser
Seirawan og Rúmeninn Florin
Gheorghiu. Þeir hlutu 6V2 vinning
eða jafnmikið og sænska stúlkan
Pia Cramling, sem er önnur stiga-
hæsta skákkona heims á eftir
heimsmeistara kvenna, sovésku
skákkonunni Maju Chiburdan-
idze.
Mótið fór fram í vestari hluta
Berlínar-borgar og var aðstaða að
sögn Guðmundar Sigurjónssonar
öll hin besta.
Hjaltlendingar harðir við eggjaþjófa:
1000 £ fyrir spóaeggið
Eggjaþjófnaður er víðast
hvar í heiminum talin með al-
varlegri brotum, þótt við ís-
lendingar höfum lengi vel
tekið fremur vægt á slíku
„hnupli“. En þeir á Hjalt-
landseyjum eru strangir þegar
eggjaþjófnaður er annars veg-
ar og hafa „verðlista“ yfir
sektir við töku á hinum ýmsu
fuglaeggjum.
í blaði þeirra „The Shetland
Times“ frá því 10. júní er skýrt frá eggjum. Þeir munu hafa stolið 14
þvíaðtveirmennhafi veriðhand- lómseggjum og 11 spóaeggjum,
teknir og dregnir til yfirheyrslu í en fyrir hvert egg verða þeir að
Lerwick fyrir að stela alls um 80 greiða 1000 £. Auk þess stálu þeir
55 eggjum úr kríuhreiðrum, fíls- ing Ólafsson fuglafræðingur hjá
hreiðrum, svartbakshreiðrum, Náttúrufræðistofnuninni að eng-
hettumáfshreiðrum, skúms- in slík „verðskrá" væri til
hreiðrum og stormsvöluhreiðr- hliðstæð þeirri sem þeir á Hjalt-
um, en fyrir hvert egg er há- iandseyjum hafa. Þeir sem
markssektin 200 £. Verði þessir dæmdir hafa verið fyrir eggja-
menn dæmdir samkvæmt þessum þjófnað hér á landi, samkvæmt
lögum til hámarkssektar verða hinum nýju lögum, munu hafa
þeir aö greiða um 36.000 pund, fengið frá 10 - 20 þús. kr. sekt.
sem er um ein og hálf miljón ís- Fálkaungastuldur, sem líklega
lenskra króna. myndi teljast til grófustu brota á
En hvað skyldum við íslend- fuglafriðunarlögum og gæti því
ingar gera við eggjaþjófa? í fyrra fallið undir hámarkssektina, er
voru sett ný lög um fuglafriðun og hins vegar meðal gróðavænleg-
er hámarkssekt fyrir alvarlegustu ustu afbrotanna, því þjófarnir fá
brot á þeim ein miljón króna. Að um hálfa miljón fyrir hvern unga
öðm leyti rneta dómarar sektar- erlendis.
greiðslur fyrir brot og sagöi Erl- - þs.