Þjóðviljinn - 13.07.1983, Síða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN MiðVikudagur 13. júlí 1983
Skák
Karpov að tafli - 167
T aflmennska Karpovs fyrri part árs 1977
einkenndist af því hversu eldfljótur hann
var aö leika í einföldum endatöflum. Gott
dæmi er aö finna í skák hans við Spánverj-
ann Debarnot í 3. umferð mótsins:
Karpov - Debarnot
66. cS! He5
67. Be4 Rd7
68. Ha6+ He6
69. Hxe6+! Kxe6
70. Bf5+ Ke7
71. c6!
- Svartur gafst upp. Hann verður að láta
riddarann fyrir frelsingja hvíts á c-línunni.
Tímamismunurinn var athyglisverður: Hv.:
1.52 Sv: 3.50!
Bridge
Sveitakeppni, allir á hættu og suður spilar
þrjú grönd:
Norður
S A2
H 762
T A72
L AG532
Suður
S K73
H AD4
T K853
L K84
Suður fékk út spaða-drottningu, sem hann
gaf. Áframhaldið var spaðaás. Sagnhafi
fór nú í laufið, lítið á kóng og.
Hefðir þú leikið eins og sagnhafi við
borðið? Hver er besta spilaáætlunin,
mundu að um sveitakeppni er að ræða.
Rétt, það er þarflaust, reyndar hættulegt
að gefa fyrsta slag. Best er að drepa heima
á kóng strax, spila laufi á ásinn og meira
laufi úr borði. Ef austur lætur lítið lauf,
látum við áttuna duga, því fjórir slagir á lauf
er vitanlega það sem við erum að slægjast
eftir.
Allt spilið var svona:
Norður S A2 H 762 T A72 L AG532
Vestur Austur
S DG1064 S 985
H K10853 H G9
TG9 TD1064
L 9 Suður S K73 H AD4 T K853 L K84 L D1076
Það var nauðsynlegt, að lauf einspil
vesturs væri nía, tía eða drottning. Svo var.
Og þú sérð hvað skeður ef þú gefur
fyrsta glag.
Bílbelti
Af hverju
notar þú
það ekki
ujar
yæ
FERÐAR
„Fimm nefndir
hafa fjallað
um væntanlegt
náttúrugripa-
safn”
— en engar framkvæmdir ákveðnar,
segir Árni Guðmundsson,
formaður Náttúruverndarfélags
Suðvesturlands
„Það er að sjálfsögðu afleitt að
ekkert skuli enn vera ákveðið um
byggingu náttúrugripasafns, þótt
einar Rmm stjórnskipaðar nefnd-
ir hafí fundað um málið árum
saman. Það vantar ekki viljann,
en fjármagnið. Það er alltaf
eitthvað annað sem þarf að hafa
forgang. Fyrir þjóð eins og
íslendinga er það til skammar að
ekki skuli vera til almenniiegt
náttúrugripasafn sem hægt er að
sýna jafnt okkar eigin börnum,
sem erlendum ferðamönnum.
Náttúra íslands er um margt svo
sérstæð að slíkt safn gæti haft
mikið aðdráttarafl fyrir erlcnda
ferðamenn og vakið áhuga lands-
manna á eigin náttúru.“
Þessi orð eru höfð eftir Árna
Guðmundssyni, formanni Nátt-
úruverndarfélags Suðvestur-
lands, en sá félagsskapur gengst
fyrir vikulegum skoðunarferðum
um nágrenni Reykjavíkur í sum-
ar. Ferðirnar kallar Náttúru-
Erum of sinnulaus um náttúru
landsins“ segir Árni. Ljósm. -eik
verndarfélagið „Náttúrugripa-
safn undir beru lofti“ og má það
tíl sanns vegar færa, enda á nátt-
úrugripasafnið sem fyrr segir eng-
an fastan samastað, en er í bráða-
birgðahúsnæði á tveimur stöðum
og mjög að því þrengt.
„Frá okkar sjónarhóli ætti nátt-
úrugripasafn að hafa forystu um
ýmiss konar fræðslu til almenn-
ings og skóla líkt og bókasöfn.
Hér vantar gífurlega mikið á að
almenningur sé vakandi fyrir ís-
lenskri náttúru, en með áhuga-
verðri fræðslu fer fólk smátt og
smátt að líta á það sem sjálf-
sagðan hlut að umgangast nátt-
úruna af skilningi. Síðan er hægt
að setja upp sýningar um ákveðin
efni eftir árstímum og þegar
eitthvað sérstakt kemur fram,
sem ástæða er til að fræða fólk
um. Það getur verið fuglategund,
skordýrategund, blóm eða hvað
sem er.“
„Erum við íslendingar sinnu-
lausir um náttúru landsins?“
„Við erum of sinnulausir, já.
Það sést m.a. á því hversu vægt
við tökum á brotum á náttúru-
verndarlögum og fuglafriðunar-
lögum. Til skamms tíma voru
ungaræningjar hér meðhöndlaðir
eins og fínir menn og enn þann
dag í dag eru viðurlögin allt of
lág, miðað við þann gífurlega
fjárhagslega ávinning sem er að
eggja- og ungastuldi. Það er varla
nokkur áhætta fyrir menn að
stela hér ungum. Hér á Suðvest-
urlandi eru t.d. einu varpstaðir
óðinshanans í allri Evrópu og
eggin gífurlega verðmæt. Á
strandlengjunni milli Þorláks-
hafnar og Eyrarbakka eru nú
aðeins 1-2 hreiður eftir í stað 30
áður. Þetta segir sína sögu. Það
er áreiðanlega miklu meira um
eggja- og ungaþjófnað hér en
menn halda,“ sagði Árni enn-
fremur.
Allir eru velkomnir í ferðir
Náttúruverndarfélags Suðvestur-
lands í sumar, en farið er frá Nor-
ræna húsinu.
þs
Ferðir
á vegum
Náttúru-
verndar-
félags
Suð-
vestur-
lands
í sumar:
Hluti af hópnum sem fór að skoða fískeldið á Reykjanesi. Fararstjóri var Eyjólfur Friðgeirsson, en það var
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands sem stóð fyrir ferðinni.
Eldmessan
— 200 ár
20. júlí 1983 eru 200 ár liðin
síðan séra Jón Steingrímssón
söng sína frægu eldmessu í kirkj-
unni á Kirkjubæjarklaustri, þeg-
ar Skaftáreldar voru í al-
gleymingi og hraunstraumurinn
ógnaði mannlífí og byggð. Undir
messunni stöðvaðist hraunið rétt
vestan Systrastapa og má þar
ennn líta Eldmessutanga.
N.k. sunnudag verður þessa
merka atburðar minnst með
kirkjuhátíð í Prestbakkakirkju á
Síðu og Kirkjubæjarklaustri.
Hátíðarguðsþjónusta hefst kl.
14.00 og predikar þá biskupinn
yfir íslandi, herra Pétur Sigurg-
eirsson, sóknarprestar úr Vestur-
Skaftafellssýslu þjóna fyrir altari
og kirkjukóra sýslunnar syngja.
Eftir messuna verður hátíðar-
samkoma við hina fornu .kirkju-
tótt á Kirkjubæjarklaustri.
Boðið er til kaffidrykkju eftir
athöfnina ða Kirkjuhvoli og gefst
fólki kostur á að sjá sýningarnar
um Skaftárelda.
Syngjum dátt og dönsum.
Ferð 3. 16. júlí 1983.
Blóm- og graslendisgróður.
Leiðsögumaður Eyþór Einars-
’son, grasafræðingur.
Farið verður í Esjuhlíðar fyrir of-
an Kollafjörð.
Ferð 4. 23. júlí 1983.
Lágplöntur. Leiðsögumaður
Hörður Kristinsson, grasafræð-
ingur.
Farið verður í skoðunarferð á
höfuðborgarsvæðinu.
Ferð 5. 6. ágúst 1983.
Skordýr. Leiðsögumaður Erling
Ólafsson, dýrafræðingur.
Settar verða upp skordýragildrur
á höfuðborgarsvæðinu og skor-
dýrafána skoðuð.
Ferð 6. 13. ágúst 1983.
Skordýr og garðgróður. Leiðsög-
umaður Jón Gunnar Ottósson,
náttúrufræðingur.
Skoðað verður samspil skordýra
og gróðurs.
Ferð 7. 20. ágúst 1983.
Jarðfræði höfuðborgarsvæðisins.
Leiðsögumaður Haukur Jóhann-
esson, jarðfræðingur.
Farið verður á nokkra jarðfræði-
lega séð, sögulega staði á höfuö-
borgarsvæðinu.
Ferð 8. 3. september 1983.
Þörungar og fjörugróður.
Leiðsögumaður Karl Gunnars-
son, þörungafræðingur.
Farið verður um nágrenni
Reykjavíkur.