Þjóðviljinn - 14.07.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. júlí 1983
Skák
Bridge
Vörnin er sennilega erfiðasti þáttur
úrspilsins og spilið í dag er örlítill vott-
ur þess:
Suður spilar 4 spaða. Útspil hjarta-
Norður
S 75
H K5
T KD1074
L AD94
Austur(þú)
S AD
H AD82
T 8632
L K83
Sagnir voru fábrotnar. Suður vakti
á fjórum, á hagstæðum hættum, eins
og þú getur ímyndað þér. Pass hring-
inn. (Heppinn með blindan, þessi
gaur). Nú, þá er það vörnin. Sagnhafi
biður um kóng úr borði. Þú átt slaginn
og næsta leik. Hver er vænlegasta
vörnin?
(Vel á minnst, félagi þinn spilar 3.
og 5. gegn lit) Vestur á sem sé þrjú
eða fjögur hjörtu, líklega fjögur og þar
með gosann, ella hefði suður beðið
um smátt hjarta úr blindum.
Jæja, ertu búinn að finna vænleg-
asta áframhaldið? Fundu puttarnir
ekki dömuna?.... ..........svörtu
dömuna!
Góð, en þó sæmilega greið fundin
vörn ef vel er að gáð, því ekki dugar
að missa valdið á trompinu. Allt spilið:
Norður
S 75
H K5
T KD1074
L AD94
Vestur Austur
S 32 S AD
H G963 H AD82
T G9 T 8632
L G10652 L K83
Suður
S KG109864
H 1074
T A3
L 7
Einhverra hluta vegna er vörn sem
þessi téttari, ef við eigum Ax í trompi í
stað AD eins og í spilinu.
Karpov að tafli - 168
Spænski stórmeistarinn Pomar hefur
aldrei náð því að komast í fremstu röð.
Nafn hans er yfirleitt að finna meðal þeirra
neðstu í þeim mótum sem hann tekur þátt í.
Hann mætti Karpov í 5. umferð á mótinu í
Las Palmas og átti aldrei möguleika. I
stöðunni að neðan tekst heimsmeistaran-
um að þvinga fram vinning á lærdómsríkan
hátt:
Karpov - Pomar
21. g5! Rg7
22. d5! exd5
23. exd5 Dc8
24. Bxg7 Kxg7
25. Hde2!
(Nær yfirráðum eftir e - línunni)
25. ... Kf8
26. Da1!
(Til aö koma í veg fyrir að svartur nái upp-
skiptum með 26. - Hxe2 og 27. - He8).
26. ... Kg8
27. Db2 Rf8
28. Df6! Rd7
(Að öðrum kosti leikur hvitur 29. He7 og
vinnur).
29. Dxd6 Re5
30. Hxe5!
- Svartur gafst upp. Eftir 5 umferðir var
Karpov með fullt hús vinninga.
1952. Tvær rosknar stríðskemp- 1972. Einn, tveir - einn, tveir....
ur standa heiðursvörð.
1974. Stolist úr röðinni.
1953. Allir leggja sitt af mörkum...
Haldið upp á Bastilludaginn
í dag, 14. júlí,
er
þjóðarhátíðar-
dagur Frakka
og 206 ár síðan
BastillaníParís
vartekin.
Frakkar halda
upp á daginn á
margvíslegan
hátt eins og sjá
má á þessum
myndum sem
teknar eru á
þessum
merkisdegi 1945' Str,ðslok- Haldlð upp á daginn í frjálsu Frakklandi.