Þjóðviljinn - 14.07.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.07.1983, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 14. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Gjöf frá Bretlandi til Kjarvalsstaða: Kjarvals- málverk Kjarvalsstöðum barst nýlega frá Bretlandi olíumálverk eftir Jó- hannes S. Kjarval sem nefnist Júní- nótt á Þingvöllum. Málverkið gaf Leslie Tunks til minningar um Þórunni Dagmar Sigurðardóttur sem lést í vetur. Júnínótt á Þingvöllum eftir Kjarval. Heim eftir 48 ára útlegð. Mynd þessi er 64x37 sm að stærð og var máluð 1935. Það ár eignaðist Þórunn málverkið og flutti það með sér til Bretlands þar sem það hefur verið síðan.Því hefur veriðkomið til sýnir á sýn- ingu Kjarvalsstaða Kjarval á Þingvöllum. Hún er opin daglega Atvinnustefna stjórnarinnar: Herinn og Alusuisse í röskan áratug hafa allar ríkis- stjórnir leitast við að efla íslenska atvinnuvegi. Þótt áherslurnar hafi verið mismunandi var viður- kennt, að framfaraspor á þessu sviði væri afdrifaríkur mælik- varði á ágæti stjórnarstefnunnar. I upphafí síðasta áratugs beitti vinstri stjórnin sér fyrir útfærslu landhelginnar, endurnýjun veiðiflotans og öflugri atvinnust- efnu í öllum landshlutum. Þegar rfldsstjórn Geirs Hallgrímssonar tók við, hófst að vísu nokkurt daður við erlenda stóriðju, en út- færsla landhelginnar í 200 mflur var engu að síður risaskref í þágu sjávarútvegs og íslenskrar atvinnuuppbyggingar. Á síðustu árum hefur vöxtur íslensks iðnaðar svo verið megin viðfangs- efni stjórnvalda. Áætlanir um ís- lenskan verksmiðjurekstur á fjölmörgum sviðum og eflingu út- flutningsgreina, sem lúta íslensku forræði, eru ávöxtur hins mikla starfs. Efnahagslegt sjálfstæði grund- vallast fyrst og fremst á öflugum atvinnugreinum landsmanna sjálfra. Flestir stjórnmálamenn hafa á liðnum árum viðurkennt þennan sannleika bæði í orði og á borði. Nú hefur hins vegar orðið breyting. Ríkisstjórn, sem með lögþ- vingunum hefur skert kjör al- mennings um röskan fjórðung í því skyni að „bjarga efnahags- legu sjálfstæði íslendinga", hefur Ólafur Ragnar Grímsson skrifar hafnað íslenskri atvinnustefnu á afdrifaríkan hátt. Hún hefur sýnt á fáeinum mánuðum að vaxta- broddurinn verður í hennar tíð alfarið í höndum útlendinga. Þáttaskil. Hér hafa orðið afdrifarík þátt- skil. Áhrifa þeirra mun lengi gæta í sögu íslendinga. Ráðherrarnir hafa ákveðið að gera stórauknar hernaðarframkvæmdir og aukin umsvif Alusuisse að mikilvægasta vaxtarsviði atvinnumála á næstu árum. Sóknarkraftur í íslenskum iðnaði, sjávarútvegi og tækni- greinum er nú hvergi finnanlegur í boðskap ríkisstjórnarinnar. í staðinn eru komnar ítarlegar áætlanir um margvíslegar stór- framkvæmdir bandaríska hersins á íslandi og víðtækir samningar við Alusuisse um stórefld ítök fyrir tækisins í íslensku efnahags- lífi. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins er sú fyrsta í áraraðir, sem á blygðun- arlausan og óskammfeilinn hátt, gerir risavaxin umsvif útlendinga að burðarási í hérlendu atvinnu- lífi. 10 miljarða hern- aðarframkvæmdir. Á fáeinum vikum hefur Geir Hallgrímsson lagt grundvöll að slíkri aukningu á framkvæmda- umsvifum bandaríska hersins, að annað eins hefur ekki þekkst í 30 ár. Þó er greinilegt, að ekki eru öll kurl komin til grafar í góðvild Geirs. Sé reynt að greina þær framkvæmdaáætlanir, sem þegar hafa verið samþykktar formlega, ásamt þeim sem ráðherrann hef- ur lýst stuðningi við, má áætla að á næstu 4 árum muni framvæmdir Bandaríkjahers á íslandi geta numið rúmlega 300 miljónum dollara eða í kringum 10 miljörð- um íslenskra króna. Flugstöðvar- byggingin, risaframkvæmdirnar í Helguvík, sprengjuheldu flug- skýlin, radarstöðvar í öllum landshlutum og fjölmargt annað hefur nú ýmist hlotið formlega af- greiðslu eða verið fest í sessi á framkvæmdaskrá. Stærðargráða framkvæmda- aukningarinnar er slík, að al- menningur á sjálfsagt erfitt með að átta sig á þeim veruleika, sem framundan er. Til skýringar skal þess getið, að þessar fram- kvæmdir Bandaríkjanna á næstu árum eru næstum tvisvar sinnum stærri en virkjunaráform íslend- inga til aldamóta!! Efling Alusuisse. Hin tröllauknu svif risaveldisins eru þó aðeins hluti breytinganna, Framrás út- lendinga í atvinnulífinu verður enn stærri. Sest hefur verið að samningaborði með fulltrúum Alusuisse. Yfirlýstur tilgangur þeirra viðræðna er að stækka ál- verið í Staumsvík um helming. í- tök Alusuisse eru greinilega að dómi ráðherrana ekki nægileg á íslandi. Þau skulu gerð enn öflugri. í samanburði við stækkunará- form Alusuisse og aukin hernað- arumsvif verða hugmyndir ís- lenskra atvinnufyrirtækja nánast eins og aumingjaleg peð á stóru skákborði hinna erlendu um- svifa. Risavaxin umsvif útlend- inga í efnahagslífi íslands eru ásamt kjaraskerðingunni þegar orðin merkimiði þessarar ríkis- stjórnar. Hún hefur á þessum tveimur sviðum skapað afdrifarík þáttaskil. Engin ríkisstjórn á Vesturlöndum hefur lögþvingað á einu bretti slíka kjaraskerðingu hjá almennu launafólki. Aldrei fyrr hafa íslenskir ráðherrar jafn blygðunarlaust þjónað hagsmun- um útlendinga á sviði hernaðar- umsvifa og stóriðju. Atak gegn krabba Fyrirtæki gela stórfé Einkafyrirtæki og samvinnufyr- irtæki hafa á undanförnum mánðum safnað fé til aukinnar bar- áttu gegn krabbameini. Söfnun þessi er í óbeinu framhaldi af lands- söfnun meðal einstaklinga, en hún fór fram í lok október sl. undir kjörorðinu „Þjóðarátak gegn krabbamcini“, eins og kunnugt er. Fé það sem safnaðist í fyritækj- asöfnuninni var afhent Krabbam- einsfélaginu föstudaginn 8. júlí við athöfn í húsi því sem félagið hefur keypt við Reykjanesbraut 8. Sigurður Helgason forstjór Flug- leiða afhenti dr. Gunnlaugi Snædal formanni Krabbameinsfélags ís- lands söfnunarfé frá 240 einkafyri- tækjum. Benedikt Sigurðsson fjár- málastjóri Samvinnutrygginga af- hennti Gunlaugi síðan framlag frá Sambandi ísl. samvinnufélaga og samvinnufyritækjum. Heildarupp- hæðin er 6,7 milljónir króna. Það kom fram hjá talsmönnum gefenda að fyrirtæki landsins gera sér fulla grein fyrir því hve brýnt er að berjast gegn þessum skjúkdómi sem enn tekur stóran toll hjá fólki á besta aldri. Dr. GunnlaugurSnædal þakkaði fyrir þessar höfðinglegu gjafir til Krabbameinsfélagsins og saðgi að þær kæmu sér svo sannarlega vel nú þegar ætti að inrétta hið nýja hús félagsins. Þessi stuðningur get- ur ráðið úrslitum um það að unnt verði að flytja inn í húsið í byrjun næsta árs og að félagið geti aukið starfsemi sína eins og stefnt hefur verið að. Þess má geta að nú stendur yfir söfnun meðal stéttarfélaga og er búist við að henni ljúki í haust. ENSKUNÁM í ENGLANDI Vikulega - næst 24. júlí. Lágmarksdvöl 3 vikur. 20 - 26 - 32 tímar á viku fyrir fólk á öllum aldri. Sérherbergi á einka- heimilum - fæði innifalið. Verð frá 25.000 kr. Örfá sæti laus. Bæklingar sendir. FERÐASKRIFSTOFA KJARTANS Gnoðarvogur 44 sími 91-86255

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.