Þjóðviljinn - 14.07.1983, Page 7
og Sigurður Guðgeirsson var, sé
horfinn.
Það er kannski svolítið eigin-
gjarnt fyrir okkur sem með honum
störfuðum að trega Sigurð svona
mikið en það sýnir aðeins að við
kunnum að meta hann, mannkosti
hans og góðvild og eins þá þægilegu
umgengni sem ávallt einkenndi
hann.
Sigurður Guðgeirsson hóf störf
hjá Dagsbrún 1963, ég kom hins-
vegar inn í stjórn Dagsbrúnar í
kringum 1960 og kynni okkar hóf-
ust eftir að hann hóf störf hj á Dags-
brún. Sérstaklega tókst góður vin-
skapur með okkur, þegar ég sjálfur
kom til starfa hjá Dagsbrún 1969,
og milli okkar tókst þá strax mjög
gott og náið samstarf.
Þessi vinátta og samstarf hélst
alla tíð og ræddum við mörg vanda-
mál bæði innan félagsins og utan.
Við áttum einnig góðar stundir
saman utan vinnu með eiginkonum
okkar og nokkrum vinum, við
höfðum þann sið undanfarin ár að
gera okkur dagamun einu sinni á
ári og það voru miklar ánægju-
stundir.
Þegar hann sagði mér að hann
væri að hugsa um að skipta um starf
og taka að sér starf sem hafði losn-
að við fráfall vinar hans, Guð-
mundar Vigfússonar, þá sagði ég
við hann: „Æ, gerðu þetta nú ekki
Sigurður minavið höfum ekki efni
á að missa þig“, þá svaraði hann
eins og hans var vani. „Hvað ætlið
þið að gera ef ég félli frá?“Maður
svarar ekki þegar svona er spurt en
hlær bara, en að svo skammt væri
til þeirrar stundar að ég þurfti að
standa yfir kistu hans, hefði mig
aldrei grunað.
Sigurður var sérstaklega farsæll
maður í öllu sínu starfi og ég held
að það hafi verið alveg sama hvaða
starf hann tók að sér og með hverj-
um hann vann; öllum þótti vænt
um Sigurð. Hann átti aldrei í
neinum erfiðleikum í samskiptum
sínum við aðra menn.
Sigurður hafði ávallt með að
gera styrktarsjóð félagsins frá upp-
hafi og kynntist þá mörgum mann-
legum erfiðleikum, sem hann leysti
á sinn ljúfmannlega og þægilega
hátt. Einnig hafði hann með
atvinnuleysisbætur félagsins að
gera og ég man eftir því, þegar ég
byrjaði hjá félaginu þá reið yfir
mikið atvinnuleysi og þá sátum við
saman hálfu og heilu dagana og
skrifuðum út ávísanir á atvinnu-
leysisbætur til félagsmanna Dags-
brúnar.
En ávallt hafði Sigurður einhver
þægileg orð til að segja við menn,
til að létta þeim róðurinn og til að
birta yfir tilveru þeirra sem lentu í
þessum erfiðleikum.
Það er mikil sorg í röðum okkar
Dagsbrúnarmanna og sérstaklega
á skrifstofu félagsins þessa dagana
því ekki hefði mig órað fyrir því að
svo skammt yrði á milli tveggja svo
ágætra félaga minna Sigurðar
Guðgeirssonar og Eðvarðs Sig-
urðssonar, eins og komið hefur í
ljós. Á mánudag var ég viðstaddur
komu kistu með líki Eðvarðs Sig-
urðssonar frá Egilsstöðum, þar
sem hann hafði látist skyndilega,
og klukkutíma síðar stóð ég yfir
kistu Sigurðar Guðgeirssonar þeg-
ar hann var kistulagður.
Slíkum tilvikum sem þessum eru
menn ávallt óviðbúnir og reikna
ekki með þurfa að standa frammi
fyrir.
Ég neita því ekki að á þeim degi
fannst mér sem ég hefði haldið á
þungum lóðum allan daginn.
En þó söknuður okkar til þess-
ara góðu félaga sé mikill þá er
auðvitað söknuður ástvina þeirra
enn meiri.
Sigurður Guðgeirsson var mjög
heppinn maður í einkalífi sínu.
Hann var giftur mikilli ágætiskonu
og ég held að mér sé óhætt að segja
eins og er að hann hafi borið mikla
umhyggju fyrir heimili sínu. Við
vorum að vissu leyti ekki heima-
gangar á hvors annars heimili en
vissum vel hvor af öðrum og ég veit
að ef eitthvað bjátaði á hjá mér þá
var hann fyrsti maður til að hafa
áhyggjur af því og hafa samband
við mína fjölskyldu.
Ef einhver gleðistund var í minni
fjölskyldu þá fékk ég ávallt send-
ingu frá honum til þess að minna
Fimmtudagur 14. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
mig á að ég ætti þarna traustan og
góðan vin.
Það voru mörg hádegin sem við
Sigurður fórum út saman, okkur til
hressingar og göngu og fengum
okkur einhversstaðar matarbita.
Og hann hringdi oft og sagði „Jæja,
Halldór minn hvert eigum við að
skreppa í dag, eigum við ekki
aðeins að lyfta okkur upp“. Þannig
var Sigurður Guðgeirsson ávallt,
alltaf hinn glaði og jákvæði félagi
og þegar ég hafði á orði „ég er nú
bara alveg að gefast upp á þessu“,
„það þýðir ekkert“, svaraði hann,
„það lagar ekki neitt.“
Þannig var Sigurður Guðgeirs-
son í starfi og hvar sem hann var,
ávallt jákvæður og ávallt tilbúinn
til að takast á við vandann, ávallt
hinn heiðarlegi, trausti og góði fé-
lagi.
Ég veit að það verða aðrir til að
rekja æviferil Sigurðar Guðgeirs-
sonar nákvæmar heldur en ég hef
hugsað mér. Hér eru aðeins nokk-
ur orð um félaga sem ég var svo
heppinn að kynnast.þó þau ár sem
við unnum saman væru alltof fá.
Og ég veit að Sigurður Guðgeirs-
son hefði getað náð mikið lengra
bæði á félagslegu og pólitísku sviði,
hefði hann kært sig um. Á sinni
stuttu ævi var honum trúað fyrir
mörgum ábyrgðarstörfum. Hann
var hinsvegar maður sem ekki vildi
trana sér fram og vildi ávallt vera
svona frekar til hliðar, vildi sinna
starfi sínu á þann hátt, sem honum
fannst best.
Ég mun hinsvegar að lokum vilja
segja það, að af þeim mönnum sem
ég hef kynnst um ævina og unnið
með, var Sigurður einn sá
heilsteyptasti og besti drengur sem
ég hef kynnst. Hann hafði ávallt
eitthvað til málanna að leggja,
skildi hlutina og gerði gott úr öllu.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
okkar allra sem með honum störf-
uðu og segja að við munum öll
sakna Sigurðar Guðgeirssonar. Þó
að söknuður sé mikill og sorg sé í
húsinu hjá okkur þá er sorgin enn
meiri og söknuðurinn mestur hjá
fjölskyldu hans. Guðrún mín, ég
færi þér mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur, og votta þér og son-
um þínum þremur samúð mína og
konu minnar, sem einnig kynntist
Sigurði Guðgeirssyni mjög vel.
Einnig færi ég öldruðum foreldr-
um hans, systkinum og öðrum
skyldmennum mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
En ég veit eins og ég sjálfur ylja
mér við minninguna um góðan
dreng sem allt of fljótt var burt
kallaður þá munið þið öll eiga einn-
ig minninguna um hann til að létta
ykkur söknuðinn.
Það er svo einkennilegt þetta líf
að þeir sem manni finnst að eigi að
lifa lengur, þeir sem manni finnst
gera heiminn auðugri og lífvæn-
legri, þeir eru fyrst burt kallaðir.
Farðu í friði góði vinur og ég
vona að sú stund sem tók þig að
skila þessu lífi, sem að við öll
verðum að skila, hafi ekki verið þér
sár, heldur hafi hún liðið frá sárs-
aukalaust.
Halldór Björnsson.
Fallinn er í valinn Sigurður
Guðgeirsson, fyrrum prentari,
starfsmaður Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar. Hann lést 6. júlí s.l.,
57 ára að aldri og verður jarðsettur
í dag. Fráfall hans bar snöggt að og
óvænt og hann deyr langt um aldur
fram með fangið fullt af verkefn-
um. Fáein kveðju- og þakkarorð
verða hér skrifuð.
Þótt við Sigurður ættum báðir
Björgu frá Kirkjubóli á Miðnesi
fyrir langömmu, kynntumst við
ekki fyrr en í pólitísku starfi á veg-
um Æskulýðsfylkingarinnar og Sósí-
alistaflokksins upp úr 1942. Tókst
þá þegar með okkur hin besta vin-
átta, sem styrktist eftir því sem árin
liðu, enda þótt verkefni lífsins biðu
okkar á ólíkum starfssviðum.
Úr foreldrahúsum kom Sigurður
ungur sem fullþroska og einarður
verkalýðssinni, sem vildi allt á sig
leggja í þágu verkalýðshreyfingar-
innar, og einlæg hollusta hans við
málstað lítilmagnans í þjóðfélaginu
skipaði honum þegar í forustusveit
ungra sósíalista. í öllu pólitísku
starfi sínu var Sigurður raunsær og
víðsýnn og hafnaði jafnan hleypi-
dómum og kreddum, en var fastur
fyrir í skoðunum sínum, þótt ævin-
lega virti hann skoðanir annarra. í
einni sögufrægri nefnd hreyfingar-
innar sátum við Sigurður og vorum
ekki alveg sammála, en ekki
skyggði það á vináttu okkar og
gagnkvæmt traust, því að báðir
fundum við, að við vorum í sama
báti.
Með Sigurði er fallinn í valinn
sannur liðsmaður verkalýðs-
hreyfingarinnar og stórt skarð er
fyrir skildi í röðum íslenskra sósíal-
ista við fráfall hans.
Sigurður kaus snemma að helga
starfskrafta sína verkalýðshreyf-
ingunni og gerðist hann starfs-
maður ASI, Dagsbrúnar og Lands-
sambands vörubifreiðastjóra. í ár-
atuga starfi á þessum vettvangi,
ávann hann sér traust fyrir einstaka
samviskusemi, lipurð og fórnfýsi.
Allir, sem unnu með Sigurði eða
þurftu til hans að sækja, gátu ávallt
treyst hlutlægni hans, starfshæfni
og velvilja. Sömu eiginleikar Sig-
urðar nutu sín einnig í öðrum fé-
lagslegum störfum hans, sem voru
fjölmörg, og ég ætla ekki upp að
telja í þessum fáu kveðjuorðum.
Sigurður var mannkostamaður
mikill, hógvær í öllum háttum og
prúður svo af bar. Hann átti einkar
gott skap, var góðgjarn og
viðmótsþýður. Eitt var það þó sér-
staklega í fari Sigurðar, sem ekki
fór fram hjá neinum sem þekkti
hann, og það var umburðarlyndi
hans. Hann vildi gera og gat gert
gott úr öllu. Hann ýtti til hliðar því,
sem tvístraði og særði, en laðaði
fram hið góða og jákvæða hjá
þeim, sem hann umgekkst.
Þegar leiðir nú skilja, óvænt og
snöggt, ber mér að þakka vináttu
hans, djúpstæða og heilbrigða, svo
og þær samverustundir, sem við
áttum einir eða í hópi vina og fjöl-
skyldna og er hér margs að minn-
ast. Sérstaklega þakka ég Sigurði
ræktarsemi hans og umhyggju fyrir
móður minni.Hún dvaldist á Hrafn-
istu í rúman áratug. Á hverjum jól-
um kom hann til hennar með kon-
fektkassa og oft kom hann endra-
nær og einnig, þegar hún átti af-
mæli. Þetta lýsir Sigurði vel þótt í
litlu sé, en ég man enn hversu glöð
Hann varð undarlegur þessi júlí-
dagur Vala, er við komum í heim-
sókn til þín og hinna vinanna okkar
í Firðinum. Þú varst í eldhúsinu
þegar við komum, eitthvað rellin í
fyrstu og vildir hvergi vera nema á
hnjánum á mömmu og pabba. Ef
til vill varstu bara að gefa þér tíma
til að átta þig á þessum nýkomnu
gestum, sem þú mundir ekki í svip-
inn hvar þú hittir síðast. Líklega,
því áður en um langt leið varstu
farin að leika þér í húsinu þínu með
honum Pálma en stærri börnin þot-
in út í leit að ævintýrum. Ég gat
ekki betur séð en þú værir talsvert
upp með þér er þú leist út um
gluggann á nýja húsinu þínu sem
var einmitt fyrir þá sem eru stuttir í
annan endann. Þetta var raunveru-
legt ríkidæmi sem hinir fullorðnu
komust ekki inn í á sínum löngu
leggjum.
Eftir leik og skraf kom að því
eins og gengur að segja bless á
meðan. Við vorum auðvitað jafn
grandalaus og þú fyrir því, Vala
litla, að svo stutt liði þar til við
segðum við þig annað og stærra
bless.
móðir man varð við hverja heim-
sókn hans og hvernig þetta vinar-
þel Sigurðar snart hana.
Sigurður átti með konu sinni,
Guðrúnu Einarsdóttur og þremur
sonum, elskulegt og ástríkt heimili,
þar sem snyrtimennskan og sam-
lyndið sátu í fyrirrúmi. Þungur
harmur er nú kveðinn að fjölskyld-
unnien það er huggun harmi gegn
hjá Guðrúnu, að eiga sér við hlið 3
stóra og mannvænlega stráka. For-
eldrar Sigurðar, Guðgeir Jónsson
og Guðrún Sigurðardóttir, eru
bæði á lífi og í hárri elli og syrgja nú
hinn góða son.Öllum þeim vottum
við.ég og Ragna.dýpstu samúð.
Ingi R. Helgason.
Með nokkrum kveðjuorðum vil
ég þakka áratuga samstarf og sam-
vinnu í félagsmálastarfi með Sig-
urði Guðgeirssyni. Sigurður hafði
staðgóða þekkingu á félagsmáium
almennt, en þó einkum á málefn-
um verkalýðshreyfingarinnar. Mér
var það fljótt ljóst hvaða áhuga-
máli Sigurður helgaði öðru fremur
krafta sína. Það fór ekki fram hjá
neinum sem til þekktu að það voru
ætíð þeir sem minnst máttu sín,
þeir sem berskjaldaðir stóðu í lífs-
baráttunni og þar af leiðandi áttu
allt undir aðstoð manna sem höfðu
til að bera hjálpsemi og þekkingu.
Höfuðeinkenni Sigurðar
Guðgeirssonar hvar sem hann fór
og við hvaða störf sem hann vann,
var háttvísi og meðfædd prúð-
mennska. Þessir eðliskostir eru
dýrmætir fyrir hvern félagsmála-
mann, og hljóta að gera honum
starfið auðveldara, en því fylgir aft-
ur að fang slíkra manna yfirfyllist af
verkefnum. Þannig varð raunin á
með Sigurð.
Innan fjölmennrar félagsmála-
hreyfingar eins og Sigurður átti
fyrir sinn aðalstarfsvettvang,
hlýtur af og til að koma upp álit-
amál sem niðurstöður þurfa að fást
í. Mér er kunnugt að Sigurður var
æði oft fenginn til að vinna að lausn
slíkra viðfangsefna, og mér hefur
skilist að það hafi verið farsæll ár-
angur, enda fór saman haldgóð
þekking á hinum óskyldustu mál-
efnum ásamt góðri greind.
Þú áttir enn eitthvað ósagt við
heiminn þennan dag og lagðir því
af stað til þess að bæta svolítið úr
því. Ég hugsa að þú hafir ætlað að
segja dálítið meira við hann en dag-
inn áður eins og gerist .með okkur
öll. Þú ætlaðir að færa þig ögn nær
því sem þú óttaðist en þú hafðir
áður gert. Það er jú það sem lífið
ætlast til af okkur. En heimurinn
Vala er svo stór og lífsreyndur og
tekur öllum áskorunum okkar.
Heimurinn bar virðingu fyrir þinni
áskorun litla stúlka, þótt hann á
endanum reyndist þér of sterkur.
Þú lifðir stutt Völustelpa og við
verðum að kveðja þig núna. Þú
náðir að kenna okkur margt og
ljósið sem þú barst mun lifa með
okkur. Vertu sæl.
Þórir Ólafsson.
Þegar dauðinn skilur okkur eftir
höggdofa og sorgbitin, verður okk-
ur á að hugsa um tilgang lífsins, um
grimmd tilviljunarinnareða forlag-
anna. Líf barns hefur flögrað hjá
Persónulega þakka ég Sigurði
áratuga samstarf að málefnum
Landssambands vörubifreiða-
stjóra.
Ég og kona mín vottum fjöl-
skyldu hans dýpstu samúð.
E.Ö.
Þegar starfsfólk Húsnæðisstofn-
unar ríkisins kom til starfa að
morgni mánudagsins 6. júlí sl.
spurðist skjótt, að Sigurður Guð-
geirsson, nýráðinn forstöðumaður
Byggingarsjóðs verkamanna, hefði
veikst alvarlega þá um helgina.
Mönnum brá að vonum illa í brún.
Hann kvaddi okkur glaður í bragði
síðdegis á föstudag og öll reiknuð-
um við með því, að hittast kát og
reif á mánudagsmorgun. En í
þetta skipti, eins og stundum áður,
urðum við vitni að því, að skammt
er milli fjörs og feigðar. Því sjáum
við nú á bak góðum dreng og ein-
stöku ljúfmenni, sem við höfðum
hlakkað til að mega starfa með um
mörg ókomin ár. En í þá tauma
hafa örlögin nú gripið.
Þegar við Sigurður Guðgeirsson
hittumst fyrsta sinni vorið 1972
hafði ég margt um manninn heyrt.
Mér var t.d. kunnugt um það, að
hann var sonur öðlingshjónanna
Guðgeirs Jónssonar bókbindara og
konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur,
er nú lifa þennan son sinn í hárri
heiðurselli. Og sem áhugamaður
um málefni vinnandi fólks og al-
þýðuhreyfingarinnar, allt frá ungl-
ingsárum, hafði ég snemma veitt
því athygli, að hann var ungur val-
inn til margvíslegra forystustarfa í
þeim félagsmálasamtökum, sem
hann hneigðist helst að. Sem ungur
prentnemi var hann kjörinn til for-
ystu í félagi þeirra og síðan hlóðust
á hann mörg og margvísleg trún-
aðarstörf í hinum gömlu og merku
samtökum prentara. Jafnframt gaf
hann sig nokkuð að stjórnmálum,
fyrst í Sósíalistaflokknum og síðar í
Alþýðubandalaginu. Allt þetta
sýndi, að hér var á ferðinni
greindur og félagslyndur maður
með einlæga stéttarvitund, sem
sýnilega átti gott með að laða að sér
fólk. Loks var mér vel kunnugt um
Framhald á slðu 15.
eins og mynd á tjaldi, örstutt og gaf
fyrirheit um fegurð og reisn. Við
bjuggum okkur undir að fylgjast
með Völu í æskublóma og taka út
þroska. En lífið kemur okkur æ á
óvart og við skiljum víst seint og
sættum okkur aldrei við, að sér-
hvert mannsbarn, hver blaktandi
önd er ævinlega í nábýli við
dauðann.
í lífi hverrar manneskju gerast
þeir tveir atburðir, sem enginn er
til frásagnar um: Fæðingin og
dauðinn. Um allt sem gerist frá
vöggu til grafar, hafa menn skrifað
margar og þykkar bækur, en um þá
tvo atburði sem mestu skipta, get-
um við ekki fræðst, eigum ekkert
minni og varla hæfileika til að
ímynda okkur hvað gerist. Þess
vegna stöndum við höggdofa í sorg
þegar vinkona okkar er hrifin yfir
þröskuldinn með válegum hætti.
Við lítum í uppgjöf hvert á annað,
og lofum því kannski í hljóði, að í
minningu hennar skulum við eftir-
leiðis leggja okkur fram, vanda
okkur við að lifa.
G.
Kveðja til Yölu
Sigurðardóttur
Fœdd 22. júlí 1981
Dáin 7. júlí 1983