Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 1
DJOÐVIUINN
Er Alþýðublaðið
frímerki á
Þjóðviljann?
Sjá 4
júlí 1983
föstudagur
156. tölublað
48. árgangur
Alþýðubandalagið birtir spurningar til utanríkisráðherra
Krafist upplýsinga
um ný herstöðvaáform
Utanríkisráðuneytið birtir fréttatilkynningu fyrir helgina
Á fundi utanríkismálanefndar í
byrjun viku lagði Ragnar Arnalds
formaður þingflokks Alþýðu-
bandalagsins fram fimm spurning-
ar til utanríkisráðherra vegna um-
mæla hans og forsætisráðherra um
nýjar ratsjárstöðvar Bandaríkja-
hers á jslandi. Alþýðubandalagið
hefur nú sent spurningarnar til
fjölmiðla og samkvæmt upplýsing-
um utanríkisráðuneytisins mun
Geir Hallgrímsson gefa út frétta-
tilkynningu um málið fyrir helgina.
Helgi Ágústsson forstöðumaður
varnarmáladeildar sagði í gær að
ráðherrann hefði gefíð munnleg
svör á fundi utanríkismálanefndar
11. þ.m. og ætlað að svara spurn-
ingum Ragnars Arnalds skriflega á
næsta fundi, 8. ágúst n.k. í Ijósi
þess að spurningarnar hefðu nú
verið birtar myndi ráðuneytið gefa
út fréttatilkynningu.
Spurningarnar eru þessar:
1. Hvenær lögðu stjórnvöld í
Bandaríkjunum fram greinar-
gerðir og skýrsiur um eðli og
tilgang þeirra ratsjárstöðva sem
ætiunin er að reisa? Er ríkis-
stjórnin reiðubúin að leggja
þessar skýrslur fram í utanríkis-
málanefnd?
2. Hvers eðlis eru ratsjárstöðvarn-
ar, hve margar þeirra vilja
Bandaríkjamenn reisa hér á
næstu árum og hvar eiga þær að
rísa?
3. Hvert er hlutverk hinna nýju
ratsjárstöðva í a) hernaðarkerfi
NATO, b) hernaðarkerfi
Bandaríkjanna?
4. Hvert skila ratsjárstöðvar þær
sem Bandaríkjastjórn vill reisa
á íslandi þeim upplýsingum sem
þær safna?.
5. Hvenær hyggst ríkisstjórnin af-
greiða ósk Bandaríkjastjórnar
unr nýjar ratsjárstöðvar?
Fram kemur í formála að spurn-
ingarnar séu bornar upp vegna um-
mæla forsætisráðherra um að ósk
Bandaríkjastjórnar um nýjar her-
stöðvar með ratsjárbúnaði væru á
umræðustigi innan ríkisstjórnar-
innar og milli íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda. Þá hafi utanrík-
isráðherra í ræðu 2. júlí sl. sagt að
sjálfsagt væri að verða við ósk um
byggingu radarstöðva.
- ekh
„Við byrjuðum að slá fyrir viku“, sagði Stefán Snæbjörnsson á Nolli í
Grýtubakkahreppi Þjóðviljamönnum á ferð fyrir norðan. „Þetta er mjög
svipað og í fyrra, cn er þó ívið fyrr á ferðinni í ár. Sprettan er mjög sæmileg
hér, en norðar, útundir Grenivík, eru fúain sumhver ansi Ijót. Jörðin
hefur vcrið blaut og það er lítið gras á mýrartúnunum. Nei, það er ekkert
kal hér og hefur ekki verið síðan 1979, eina kalárið í Eyjafirði.“
Eyfírðingar og Skagfírðingar eru flestir byrjaðir að bera Ijá í gras, en
sláttur er vart hafínn í Þingeyjarþingi, þarsem tún hefur kalið illa; í Kinn
er til dæmis víða einsog yfir eyðimörk að líta, en ekki búskaparíand.
« - m.
Ljósm.: Leifur
Álviðræður í næstu viku
Mistökin mega ekki
endurtaka sig núna
- segir ritstjóri Tímans
Á fimmtudag og föstudag í
næstu viku eru ákveðnar
formlegar viðræður milli fulltrúa
íslands og Alusuisse um
endurskoðunálsamninganna. í
forystugrein blaðsins í dag
segirm.a. aðundirbúningurað
þessum viðræðufundi lofi ekki
góðu. í staðupplýsingatil
almennings um kröfur
íslendinga og samningsstöðu
ríki nú leynd og þögn um allan
málatilbúnað, og málin séu
lokuð inní nefnd, þar sem sitja
samningamenn frá 1975 og
1966. Bein mötun frá Alusuisse
sé og greinilega hafin á ný.
í þessu samhengi eru rifjuö upp
áhyggjufull ummæli ritstjóra
Tímans sl. sunnudag, þar sem hann
segir m.a.:
„Mistök fyrri viðræðna mega
ekki endurtaka sig. Þessvegna mun
þjóðin fylgjast vel með þessum
viðræðum og gera kröfur til, að
hún fái fyllstu upplýsingar um gang
þeirra.“
Sjá 4
Aukablað um
matarœði fylgir
blaðinu i dag. Þar
er fjallað um ýmsar
matarvenj ur fólks
og rætt við menn
sem telja rétt
mataræði
mikilvægt til að
auka vellíðan.
7
t Eftir Kókaínstjórn
M - í slcndingur á ferð
0 íBólivíu.
Fjármálaráðherrann
ómyrkur í máli
Hagsýn
húsmóöir
Þegar fyrirvinnan er
lasin og barnahóp-
urinn kröfuharður
• Fyrirvinnanerlasin,
barnahópurinn kröfuharöur
og því þurfum viö aö taka
hina hagsýnu húsmóðurtil
fyrirmyndar, segir Albert
Guðmundsson
fjármálaráöherra í viðtali á
blaösíöu þrjú í blaðinu í dag,
þar sem verið er aö fjalla um
málefni Lánasjóös íslenskra
námsmanna.
• „Fjáraustur" í menningarstofn-
anir einsog Þjóðleikhús og Sinfóní-
uhljómsveit Islands? Albert Guð-
mundsson er tilbúinn til að láta fara
fram þjóðaratkvæðagreiðslu um
þennan „fjáraustur". í blaðinu í
dag er leitað álits Gísla Alfreðs-
sonar og Sigurðar Björnssonar á
ummælum ráðherrans á blaðsíðu
fimm.
• „Ég er búinn að gera miklu
stærri hiuti fyrir kaupfélög og sam-
vinnuhreyfinguna síðan ég kom
hingað", segir Albert í Tímanum í
gær. Erlendur Einarsson forstjóri
og Valur Arnþórsson kaupfélags-
stjóri kannast ekkert við það sem
Albert er að segja og Albert vill
ekki tjá sig frekar um málið á þessu
stigi.
• Var afnám söluskatts á leiktækj-
um Tívolísins fyrir eigendur fyrir-
tækisins eða börnin í borginni?
Þessu svarar Albert á blaðsíðu
fimm í dag.
-óg
Sjá 3, 5 og 24