Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 19
Föstudagur 15. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Kári Þorleifsson í baráttu með boltann við Ársæl Kristjánsson í leiknum í gær. Kári skoraði öll mörk ÍBV og
var nálægt því að bæta fleiri mörkum við. Ljósmynd: - eik.
ÍBV áfram í bikarnum eftir 3:0 sigur yfir Þrótti:
Kári skoraði öll
mörk eyjamanna
Eyjamenn halda áfram í 8-liða
úrslit í bikarkeppni KSÍ eftir næsta
auðveldan sigur yfir Þrótti í seinni
leik liðanna í 16-liða úrslitunum.
Eyjamenn skoruðu þrívegis í
lciknum án þess að Þróttarar næðu
að svara fyrir sig og það var Kári
Þorleifsson sem skoraði öll mörkin
þrjú, það fyrsta á 10. mínútu fyrri
hálfleiks eftir laglega fyrirgjöf frá
Ómari Jóhannessyni og hin tvö
mörkin í síðari hálfleik, bæði eftir
frábæran undirbúning besta
manns IBV, Tómasar Pálssonar. í
seinni hálfleik léku Eyjamenn eftir
vindinum og ráðu þá lögum og
lofum á vellinum.
1. deild:
2 leikir
í kvöld
Fyrstu leikirnirí 11. umferð
íslandsmósins í knattspyrnu,
1. deild, verða leiknir í kvöld.
Á Laugardalsvelli kl. 20 mæt-
ast Víkingur og ÍA og á Akur-
eyrarvelli leika Þórsarar við
KR. Sá leikur hefst einnig kl.
20. Þá verður einn leikur í 2.
deild í kvöld. Á Húsavíkur-
velli leika Völsungar við FH
og í 3. deild eru tveir leikir á
dagskrá. Ólafsfjarðar Víking-
ar leika við Skallagrím í Ólaf-
svík og Selfoss mætir Ár-
manni á Selfossi. Þá er einn
leikur í 4. deild á dagskrá. Á
Melavellinum leika Óðinn og
Afturelding. Fjölmargir leikir
eru á dagskrá í deildunum fjó-
rum um helgina, en þeirra er
getið annarsstaðar á síðunni.
Staðan að loknum 10 um-
ferðum í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu, (að sleppt-
um frestuðum leik Víkings og
ÍBK, er nú þessi:
Vcstm.............10 4 4 2 19-11 12
Breiðablik........10 4 4 2 10-5 12
Akranes...........10 5 14 17-7 11
KR................10 2 7 1 10-11 11
Keflavík.......... 9 4 14 12-14 9
Þór................0 2 5 3 10-12 9
Ísafjörður........10 2 5 3 11-14 9
Valur.............10 3 3 4 14-18 9
Víkingur.......... 9 1 6 2 6-8 8
Þróttur...........10 2 4 4 9-18 8
Eyjamenn sýndu afbragðsgóða
knattspyrnu á fyrstu mínútum fyrri
hálfleiks, boltinn láta ganga mann
frá manni, skiptingar 5 til 6 sem
telja má allt að því helmingi meira
en gerist venjulega hér heima.
Eftir að Kári skoraði fyrsta markið
einbeittu Eyjamenn sér að því að
halda fengnum hlut og gáfu þá dá-
lítið eftir á miðju vallarins. Með
vindinn í fangið var þetta skynsam-
lega ráðið og þegar flautað var til
leikhlés var ljóst að róðurinn yrði
þungur fyrirÞrótt með mark undir
og á móti snörpum vindinum.
Annað mark ÍBV var stórfallegt
í alla staði. Tómas braust upp vin-
stra megin, gaf laglega fyrir markið
og þar kom Kári og renndi boltan-
umínetið. Þriðja markið var keim-
líkt, nema hvað nú var Tómas sjálf-
ur í góðu færi en var óeigingjarn og
lagði á Kára sem skoraði örugg-
lega.
Bikarkcppni Frjálsíþróttasam-
bands íslands í 1. og 2. deild verður
haldin nú um helgina. Fer keppnin
fram á tveim stöðum. 1. deildin fer
fram á Laugardalsvelli laugardag
og sunnudag og hefst kl. 16.30 báða
dagana og 2. deild fer fram á Kópa-
vogsvelli laugardag og sunnudag og
hefst kl. 14 báða dagana. Eins og að
líkum lætur þá tekur margt af okk-
ar besta frjálsíþróttafólki þátt í
keppninni, og má þar m.a. nefna
Odd Sigurðsson og Einar Vil-
hjálmsson.
í 1. deild tekur þátt frjálsíþrótta-
fólk frá eftirfarandi félögum: ÍR,
KR, HSK, ÚÍA, UMSEA og FH
í 2. deild tekur þátt frjálsíþrótta-
fólk frá Ármanni, UMSB, HSH,
USAH, UMSK og UMSV. Það
vekur athygli að Einar Vilhjálms-
son UMSB, keppir í 2. deild og er
það eitt fárra skipta sem hann
tekur þátt í frjálsíþróttakeppni hér
Eyjamenn eru með heilsteypt lið
um þessar mundir. Tómas Pálsson
og Valþór Sigþórsson voru að
þessu sinni bestu menn liðsins og
athygli vöktu frábærar sendingar
Ómars Jóhannessonar sem þó virk-
aði kærulaus seinni part síðari hálf-
leiks.
Þróttarar náðu sér aldrei á strik
og næstu leikir þeirra í íslandsmót-
inu hljóta að ráða úrslitum hvort
liðinu tekst að halda sér uppi. Eftir
érfitt gengi að undanförnu verða
þeir að taka sig verulega á. Eini
maðurinn sem eitthvað sýndi var
Ásgeir Elíasson.
Góður dómari þessa leiks var
Sævar Sigurðsson sem þó virðist
hafa smitast af því „spjaldafári"
sem nú gengur í röðum knattspyrn-
udómara okkar. Gult spjald á
Valþór Sigþórsson var dæmigerð
smámunasemi sem alltof mikið
hefur sést til í sumar.
á landi í ár. Einar setti sem kunnugt
er nýtt og glæsilegt íslandsmet á
dögunum, þegar hann kastaði
spjóti 89,98 metra. Hann mun
e.t.v. fá keppni á mótinu þar sem
keppinautar. hans verða Sigurður
Einarsson Ármanni sem hefur
kastað spjótinu 75,38 metra og
Hreinn Jónasson UMSK sem á
best 65,02. Þá keppir Norðmaður-
inn Harald Sörensen, sonur norsku
sendiherrahjónanna á íslandi, á
mótinu sem gestur en hann á best
84,62 metra.
Fyrirkomulag keppninnar er
með þeim hætti að tvö neðstu liðin í
1. deild falla í 2. deild og 2 efstu
liðin í 2. deild fara upp í 1. deild.
Það sama gildir um tvö neðstu liðin
í 2. deild, þau falla í 3. deild og tvö
efstu koma up í 2. deild. Að þess-
um forsendum gefnum má búast
við harðri keppni í bikarkeppni
FRÍ um helgina.
Bikarkeppni FRÍ verður haldin um
helgina:
Einar og Oddur
meðal keppenda
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Bikarkeppni kvenna:
Blikar og ÍA
í úrslitin
Undanúrslitaleikirnir í
bikarkeppni kvenna fóru fram í
gærkvöldi. Akranes og Valur
léku á Skipaskaga og Blikar
léku við KR í Kópavogsvellin-
um.
Laufey Sigurðardóttir fylgdi vel á
eftir og skoraði.
Valsstúlkurnar áttu meira í síð-
ari hálfleik en þeim tókst ekki að
nýta færin. Eftir marklausan fyrri
hluta framlengingar skoraði Ragn-
heiður Jónasdóttir sigurmark ÍA.
Akranes - Valur 2:1
Sannkallaður bikarleikur á
Skaganum. Eftir venjulegan
leiktíma var staðan 1:1 og þurfti
framlengingu. ' Skagastúlkurnar
komu Valsstúlkunum yfir í fyrri
með hreinu og kláru sjálfsmarki,
þegar 5 mínútur voru liðnar af fyrri
hálfleik. Fimmtán mínútum síðar
náði ÍA að jafna metin.
Eftir gott upphlaup skaut Ragn-
heiður Jónasdóttir föstu skoti að
marki Vals, markvörðurinn náði
að verja, en hélt ekki boltanum og
Breiðablik - KR 4:0
Blikar unnu KR í annað sinn í
vikunni. Rétt eins og í fyrri
leiknum höfðu Blikastúlkurnar
mikla yfirburði. Bryndís Einars-
dóttir kom þeim yfir í fyrri hálfleik
með fallegu marki og í síðari hálf-
leik bættu þær við mörkum Erla
Pétursdóttir með skalla, Ásta
Reynisdóttir og Bryndís aftur. 4:0
urðu lokatölur, en sigur Blika var
helst til stór miðað við gang
leiksins.
MHM
Leikir um helgina
I hinum fjórum deildum íslandsmóts karla fara eftirfarandi leikir fram um helgina og á mánudaginn:
Laugardagur 16. júlí
1. dcild Laugardalsvöllur- Þróttur-ÍBÍ kl. 14.00
1. dcild Vestmannaeyjavöllur- ÍBV-ÍBK kl. 14.00
2. dcild Garðsvöilur - Víðir-Einhcrji kl. 14.00
2. dcild Siglufjaröarvöllur- KS-Fram kl. 14.00
3. dcild A Akrancsvöllur- HV-Grindavík kl. 14.00
3. deild A Stykkishólmsvöllur-Snæfcll-ÍK kl. 14.00
3. deild B Grcniv. - Magni-Austri kl. 14.00
3. deild B Hornafj.völlur - Sindri-Huginn kl. 14.00
3. dcildB Rcyðarfj.völlur-Valur-HSÞ kl. 14.00
4. deild A Bolv.v. - Bolungarv.-Haukar kl. 14.00
4. dcild A Patr.fj.v. -Hr. Flóki-RcynirHn. kl. 14.00
4. deild B Kcflav.v. - Hafnir-Gr.fjöröur kl. 14.00
4. deild B Mclavöllur- ÍR-Stjarnan kl. 14.00
4. dcild B Mclavöllur- Lcttir-Grótta kl. 16.00
4. dcild D Blönduósvöllur- Hvöt-HSS kl. 14.00
4. deild D Vallarb. -Glóöaf.-Skytturnar kl. 14.00
4. deild E KA-Völlur- Vaskur-Lciftur kl. 14.00
4. dcild E Breiðdalsv. - Hrafnkcll-Umf. B kl. 14.00
4. dcild F Egilsstaöavöllur- Höttur-Súlan kl. 14.00
4. deild F Fáskr.fj .v. - Lciknir-Egill rauöi kl. 14.00
Sunnudagur 17. júlí
1. dcild Kópavogsvöllur- UBK-Valur kl. 20.00
2. dcild- Laugardalsvöllur - Fylkir-KA kl. 20.00
2. deild Sandg.völlur- Rcynir-Njarövík kl. 20.00
4. dcild C Mclavöllur- Árvakur-Drangur kl. 14.00
4. deild E Ársk.str.v. - Rcynir-Svarfdælir kl. 14.00
Mánudagur 18. júlí
4. dcild C Stokkseyrarv. - Stokkscyri-Þór kl. 20.00
4. deild E Laugarl.v. - Árroöinn-Vorboöinn kl. 20.00
Oddur Sigurðsson verður meðal keppcnda í bikarkcppni FRÍ.
íslandsmót
Hjólreiðafélag Reykjavíkur
heldur íslandsmcistaramót í hjói-
reiðum laugardaginn 16.7. Keppt
verður í tveim flokkum, 13-16 ára
og 17 ára og eldri. Keppnin hefst
við Kaplakrikavöll kl. 10 f.h.
Keppendur mæti stundvíslega kl.
3:30 til skráningar. Vegalengdin
í hjólreiðum
sem hjólað verður er um það bil
100 km. Hjólað verður frá Kapla-
krikavelli um Kcflavík, gegnum
Sandgerði, um Garð, til Kefla-
víkur aftur og svo endað við
Kaplakrikavöll. Þátttökugjöld
fyrir félagsmenn 150 kr. og 200
kr. fyrir aðra.