Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. júlí 1983
Á sunnudag sátu landsþing-
skonur aðra stórveislu, er bæjar-
stjórn Akureyrar bauð til hádegi-
sverðar í Sjallanum. Þótti mörgum
gaman að koma á þennan fræga
stað, enda er Sjallinn glæsilegt hús.
Helgi Bergs, bæjarstjóri, tók á
móti hópnum ásamt nokkrum
bæjarstjórnarfulltrúum. 5 konur úr
bæjarstjórn voru í móttökunefn-
dinni, og fögnuðum við því að hitta
þær svona magar á þeim vettvangi.
Við vékum vaxandi áhyggjum af
holdafari okkar til hliðar og nutum
þess góðgætis, sem fram var reitt.
Vigdís forseti flutti ávarp, en
hún var nú á förum suður. Hún
hvað hafa verið athyglisvert og
gaman að sitja þingið. Hún sagði
hugmyndir hafa fæðst hjá sér, eina
eftir aðra, og lofaði okkur að heyra
nokkrar snjallar. Hún talaði um
Forseti íslands. Vigdís Finnbogadóttir heiðraði landsþingið með nærveru
sinni. A vinstri hönd situr Hjörtur Eldjárn, Valur Arnþórsson, á hægri
hönd og við hlið hans María Pétursdóttir formaður K.I.
/
Frá 25. landsþingi K.I. Seinni hluti
i
Alltaf bj artsýnar!
gildi þess að vera jákvæður og
bjartsýnn, og við vorum áreiðan-
lega allar orðnar bjartsýnni, þegar
við stóðum upp frá borðinu.
Kvöldvaka
Á sunnudagskvöldið buðu eyfir-
sku samböndin, þ.e. Samb. eyfir-
skra kvenna, hópnum á kvöldvöku
í félagsheimilinu Laugaborg.
Margar kvenfélagskonur úr hér-
aðinu voru þarna einnig og munu
kvöldvökugestir hafa verið á þriöja
hundrað. Margt var til skemmtun-
ar, og hvert atriðið öðru betra.
Kórsöngur kvenfél. í Svarfaðar-
dal, þjóðdansaflokkur frá Dalvík,
aimennur söngur, og Ló Ló mín
lappa og mjaltakonan úr þjóðsög-
unni birtust þarna ljóslifandi við
mikinn fögnuð. Á eftir var drukkið
veislukaffi og fluttur skemmtilegur
bragur eftir einn þingfulltrúann,
Vigdísi Einarsdóttur.
Viðlagið:
Ef við verðum
ef við bara verðum
alltaf bjartsýnar,
var auðlært, og kvennaskarinn tók
undir það af lífi og sál. Þetta var
alveg frábær samkoma.
Ályktanir
25. landsþings K.í.
Á mánudagsmorgun voru til-
lögur ræddar og afgreiddar. Mikið
var rætt um bágan fjárhag K.f. og
ráð til úrbóta, enda er það fyrir
neðan allar hellur að samtök, sem
þurfa að sinna um 23 þúsund fé-
lagsmönnum sínum og ennfremur
landsmönnum öllum (Leiðbeining-
astöðin), skuli ekki einu sinni fá
nægilegt fé til ráðstöfunar til að
launa einn starfsmann. Þó að hinn
ágæti „hálfi" starfskraftur, Sigríður
Kristjánsdóttir, komi eflaust eins
miklu í verk og margur myndi gera
á heilum vinnudegi, eru þó tak-
mörk fyrir því, hvað hún kemst
yfir. Ekki er hægt að hafa
Leiðbeiningastöðina opna nema 2
klst. á dag sem hefur sýnt sig að er
alls ófullnægjandi. Enginn kostur
að fara með fræðslustarfsemi út á
land.
En við ætlum að vera bjartsýnar
og trúa því, að skilningsleysi fjár-
veitingavaldsins hljóti að fara að
minnka. Landsþingið samþykkti
að ítreka áskorun 23. landsþings
K.í. frá 1979 um að menntamála-
ráðherra og fjármálaráðherra beiti
sér fyrir því, að fé fáist á fjárlögum
ríkisins til að forstöðumaður
Leiðbeiningastöðvar húsmæðra
verði framvegis á launaskrá ríkisins
og njóti allra sömu réttinda og
jíkisstarfsmenn.
Landsþingið tekur undir þakkir
15. formannafundar K.í. 1982 til
Ragnhildar Helgadóttur og Vigdís-
ar Jónsdóttur fyrir vel unnar til-
lögur um framtíðarverkefni K.í. Á
grundvelli þessar tillagna sam-
þykkir landsþingið að stefnt skuli
að því, að K.f. hafi í framtíðinni
starfslið, sem svari til 2-3 stöðug-
ilda. Landsþingið felur stjórn K.I.
að sækja um fjárveitingu fyrir þess-
um stöðugildum til hæstvirts A1 -
þingis.
Landsþingið fagnar stofnun
Friðarhreyfingar íslenskra kvenna,
og beinir því til aðildarfélaga sinna,
að þau taki friðarmál á dagskrá hjá
sér og stuðli að stofnun sérstakra
friðarhópða vítt og breitt um
landið, og vinni markvisst að því að
komandi kynslóðir geti lifað í
heimi friðar og frelsis. Slíkir hópar,
einstaklingar og félagasamtök
innan K.I. verði aðilar að Friðar-
hreyfingu íslenskra kvenna, Hall-
veigarstöðum, Reykjavík. Sam-
þykkt var að beina þeim eindregnu
tilmælum til Ríkisútvarpsins að
það taki til flutnings í útvarp erindi
Sigríðar Thorlaíus um friðarmál,
sem flutt var á þinginu.
Landsþingið skorar á ríkisstjórn
fslands að hraða undirbúningi sam-
fellds lífeyriskerfis fyrir alla lands-
menn, þannig að lífeyriskerfið
tryggi öllu fólki sömu réttindi.
Þingið hvetur aðildarfélög K.í. til
að leita samstarfs við jafnréttis -
nefndir í heimabyggð sinni, ef það
hefur ekki þegar verið gert.
Landsþingið lýsir ánægju sinni
yfir því, hvað konum á Alþingi og í
bæjar- og sveitarstjórnum hefur
fjölgað, og vonar að áframhald
verði á þeirri þróun.
Þingið lýsir stuðningi sínum við
samtök um Kvennaathvarfið, sem
hefur tekið til starfa í Reykjavík og
er opið konum og börnum þeirra
allsstaðað af landinu.
Þeim eindrægnu tilmælum var
beint til yfirvalda að auka á skipu-
legan hátt fræðslu í skólum og ríkis-
fjölmiðlum um skaðsemi áfengis
og fíkniefna, og það álit látið í ljós,
að opinberir aðilar gæfu gott for -
dæmi með því að veita ekki áfenga
drykki í veislum og móttökum á
þeirra vegum.
Skorað var á Alþingi að veita
samstarfsnefnd um íslenska þjóð-
búninga árlegan fjárstyrk til starf-
rækslu Leiðbeiningarstöðvar um
gerð þjóðbúninga.
Landsþingið þakkar gagnlegar
áminningar í sjónvarpi og
hljóðvarpi varðandi umferðarslys
og varúðarráðstafanir, og væntir
þess að enn verði aukin fræðsla til
almennings í fjölmiðlum um ann-
ars konar hættur, t.d. slys í heima-
húsum o.fl. Einnig var skorað á
Sjónvarpið að flytja fræðsluþætti
um matjurta- og skrúðgarðarækt,
og að halda áfram með fræðslu-
þætti um matargerð og heimilis-
hald.
Ýmsar fleiri tillögur voru sam-
þykktar en hér hefur verið sagt frá.
Stjórnarkjör
María Pétursdóttir formaður
K.í. átti að ganga úr stjorn, en var
einróma endurkjörin með lófataki.
Sigurveig Sigurðardóttir varafor-
maður var búin að sitj a í st j órn K. í.
í 12 ár samfleytt, og samkvæmt
lögum K.í. mátti ekki endurkjósa
hana. María Pétursdóttir þakkaði
henni frábær störf í þágu K.f. og
afhenti henni kínverskan vasa að
gjöf frá fundarkonum. Stefanía
María Pétursdóttir úr Kópavogi
var kosin í stjórn í stað Sigurveigar.
Þriðja konan í stjórn K.f. er Sól-
veig Alda Pétursdóttir. í stað Sig-
urhönnu Gunnarsdóttur, sem ekki
gaf lengur kost á sér í varastjórn,
var kosin Unnur Ágústsdóttir1
Schram, Reykjavík. Helga Guð-
mundsdóttir og Þórunn Eiríksdótt-
ir voru endurkosnar í varastjórn.
Sigríður Thorlacíus gaf ekki lengur
kost á að vera ritstjóri Hús-
freyjunnar og var Sigríður Ingi -
mundardóttir kosin í hennar stað
Meðritstjóri Húsfreyjunnar er Ing-
ibjörg Bergsveinsdóttir. Sigríður
Thorlacíus verður áfram í ritnefnd.
Pakkir
til Eyfirðinga
Formaður K.í. og fleiri konur
fluttu þakkarræður við ýmis tæki-
færi. Við höfum svo margt að
þakka. Þakka forseta íslands, sem
með nærveru sinni hafði varpað
Ijóma á fundinn og vakið athygli á
K.í. Þakka konunum sem staðið
hafa í fararbroddi og unnið svo
mikil ólaunuð sjálfboðastörf, og
öllum hinum sem minna ber á, en
vinna engu síður vel.
Þakka móttökurnar í Hrafnagils-
skóla, sem voru með glæsibrag.
Eyfirsku konurnar höfðu meira að
segja sett upp Iistsýningu í skóla-
num, okkur til yndisauka. Þar var
sýning á munum úr undurfallegum
íslenskum steinum, sem Ágúst
Jónsson á Akureyri hafði unnið,
sýning á textilverkum Guðnýjar
Marinósdóttur, mjög athyglisverð,
og sýnishorn af námskeiðavinnu
eyfirskra kvenfélagskvenna,
leðurvinna, rósamálun o.fl.
Þakka frábærar móttökur hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga, Akur-
eyrarbæ, sr. Bjartmar Kristjáns-
syni sem við áttum indæla kvöld-
stund með í Grundarkirkju, og sér-
staklega eyfirsku kvenfélagasam -
böndunum þremur, sem settu
Eyjafjörð á annan endann til þess
að taka sem allra best á móti
okkur.
Þakka ógleymanlegar samver-
ustundir á Hrafnagili, ekki aðeins á
fundinum heldur einnig á kvöldin
og næturnar, þegar við tímdum
ekki að sofa, en nutum samvist-
anna hver við aðra í ríkum mæli.
Eða þá allt fjörið í rútunni suður,
okkur fannst við vera orðnar ungar
stelpur á ný. Ég má til að þakka
henni Jónu Þórðardóttur á Felli
sérstaklega fyrir skemmtunina þá.
Ý msar fundarkonur reyndust vel
hagmæltar og fluttu jafnvel ræður í
bundnu máli. Ég enda þessa frá-
sögn á tveim stökum eftir Sigríði
Ingimarsdóttur, sem orðaði mjög
vel það sem við vildum sagt hafa:
Hæstur drottinn hér á jörð,
heyrðu okkar bœnargjörð,
sendu yl í svalan svörð,
sendu vor í Eyjafjörð.
Við þökkum ykkur allt sem var,
Eyjarfjarðarsólirnar,
viðtökur og veitingar,
verið þið allar blessaðar.
Þórunn Eiríksdóttir.
Síðbúin
sjötugs-
heilsan
til Aðalsteins
Gíslasonar kennara
Það var svo sem Aðalsteini líkt,
að gera mér það til bölvunar, að
eiga sjötugsafmæli, meðan ég lá
sjúkur á spítala, svo hann slyppi við
heimsókn mína. Sennilega óttast
að ég drykki hann sjálfan undir
borð.
f hart nær tuttugu ár varð ég að
láta mig hafa það, að búa við
hliðina á honum, auðvitað okkur
báðum til mikillar ánægju.
Þegar ég lít til baka, yfir næsta
brösótta samveru á sama stigapalli
á Ásbraut 3, verður mér ljóst, að
frá því tímabili sakna ég, þrátt fyrir
allt, Aðalsteins mest.
Lífið hefir farið á miklum kost-
um, síðan við Aðalsteinn, ungir
menn ólumst upp á Austurlandi,
þó dreymir okkur ennþá þangað.
Og báðir vildum við bera fánann í
skrúðgöngu ungra manna, til feg-
urra og betra lífs, og það er ekki
okkur að kenna, þótt jörðin sé að
verða vitlausraspítali alheimsins.
Aðalsteinn Gíslason er fæddur
16. júní 1913 að Krossgerði í Ber-
uneshreppi í S-Múlasýslu. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1935. Lauk
síðan kennaraprófi og stundaði
kennarastörf víða á Austurlandi,
Snæfellsnesi og í Þingeyjarsýslu, þá
í Keflavík, en síðustu árin í Kópa-
vogi, eða þar til hann lauk kennslu-
störfum fyrir nokkrum árum.
Aðalsteinn tók þátt í Ungmenn-
afélagshreyfingunni og skrifaði
greinar um kennslu barna, en barn-
afræðsla hefur verið hans ævistarf.
Það má segja að líf hans hafi verið
ein löng kennslustund.
Lengst af, síðan Aðalsteinn lauk
kennslustörfum, hefir hann unnið
hjá trésmiðjunni Víði í Kópavogi.
Þar mun hann ekki hafa reynst
neinn svikahlekkur.
Aðalsteinn á gott bókasafn og
vel um gengið, les mikið, enda
fróður um menn og málefni. Mað-
urinn ersterkurpersónuleiki. Yndi
mikið hefir hann af að tefla og
iðkar mikið þá íþrótt. Þá iðkar
hann mikið öndvegis list sína kveð-
skapinn og á hann marga bragi í
fórum sínum. „Þetta var að fæðast
núna“ segir hann jafnan, þegar
hann hefir lokið kvæði.
Hann á þrjú öndvegisbörn,
Kristínu, Vilborgu og Tryggva.
Mér dytti aldrei í hug að segja, að
Aðalsteinn vinur minn væri galla-
laus, en gallar hæfa aðeins
mönnum sem kunna að bera þá.
Og hafðu það eins og ég, horfðu
mót sólu, þá sérðu ekki skuggana.
Halldór Þorsteinsson.
„Einfaldleik-
inn er eilífur”
Timburverslunin Völundur hefur
innflutning á dönskum eldhús-
mnrettingum
Nýr sýningarsalur var nýlega
opnaður í húsakynnum Timbur-
verslunarinnar Völundar að Skcif-
unni 19 Reykjavik.
Þar getur að líta nýjasta innflutn-
ing fyrirtækisins, eldhús- og skápa-
innréttingar frá danska fyrirtækinu
Uno form. Þetta eru ákaflega stíl-
hreinar og staðlaðar innréttingar
(byggja á 60x60 cm. grunneining-
um). Einkunnarorð Uno form eru:
„Det enkle gár aldrig af mode“ sem
útleggst: Einfaldleikinn er eilífur.
Húsbyggjendum gefst kostur á
að kynna sér þessa framleiðslu og
fá þeir aðstoð við skipulagningu
eldhúsa sinna og ráðleggingar í því
sambandi. Að hausti komanda
stendur til að ráða innanhússarki-
tekt til fyrirtækisins viðskiptavin-
um til halds og trausts. Gerð verða
verðtilboð í innréttingar ásamt
teikningum.
f dag framleiðir Völundur m.a.
innihurðir, útihurðir, hlýhurðir,
bílskúrshurðir og verksmiðju-
hurðir. Sérstök athygli skal vakin á
hlýhurðunum, sem er ný fram-
leiðsla, þar sem megináhersla er
lögð á góða einangrun hurðanna.
Auk eigin framleiðslu flytur Völ-
undur einnig inn ýmsar vöruteg-
undir fyrir byggingariðnaðinn má
þar m.a. nefna parkett frá Junck-
ers, Werzalit-sólbekki og vegg
klæðningar og hina vinsælu Velux-
þakglugga.
Fyrirtækið Timburverslunin
Völundur h.f. var stofnað 1904 og
verður því 80 ára á næsta ári. Mark-
mið þess hefur alla tíð verið að
veita byggingariðnaðinum sem
besta þjónustu. Það hefur verið
gert með því að hafa ávallt fyrir-
liggjandi allar venjulegar tegundir
af timbri allt frá mótavið upp í
besta ofnþurrkaðan smíðavið og á
síðustu árum einnig gagnvarinn
við, sem um það bil fjórfaldar endi-
ngu viðarins.