Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 13
BLAÐAUKI
Föstudagur 15. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Mat-
stofa
með
jurta-
fæði
Aðeins ein matstofa sem eingöngu selurjurtafæði,
errekin íReykjavík. Það erMatstofa Náttúrulækn-
ingafélags Islands, Laugavegi20b. Matstofan var
fyrst til húsa í Næpunni á Skálholtsstíg og tók til
starfa skömmu eftirað Náttúrulækningafélagið var
stofnað 1942. Tilgangurfélagsinseraðstuðlaað
möguleikum á hollu lífi og erþað gert með útgáfu-
starfsemi, fræðslustarfsemiofl. Félagiðhefurí
fjölda ára rekið Heilsuhæli í Hveragerði.
Við litum inn á Matstofuna á
dögunum og smökkuðum á hádeg-
ismatnum þann daginn. Það var
baunabuff úr linsubaunum með
grænmeti, kartöflum og sellerís-
ósu, ljómandigott. Einnigvarhægt
að fá brauðsúpu sem einn viðskipt-
avinur sem við hittum, sagði vera
þá bestu í bænum.
Náttúrulækningafélag íslands
gefur út blaðið Heilsuvernd og hef-
ur gert í 38 ár. Félagið rekur einnig
skrifstofu að Laugavegi 20b og fást
þar allar upplýsingar um félagið.
EÞ
Þær vinna á Matstofu NLFÍ, f.v.
Friðbjörg Magnúsdóttir,
Guðríður Bjarnadóttir og Arna
M. Gunnarsdóttir. Á diskinum er
m.a. baunabuff úr linsubaunum.
Ljósm.eik.