Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 17
Föstudagur 15. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
BLAÐAUKI
Jurtaæta á landsbyggdinni:
STÓRMARKAÐSVERÐ
Afgrekkjm
plastaStór- ;*#
Reykjavikurc^al
svœó*ó frn VH
mánudegi
fóstudags.
Afhendum j
vöruna á wBi
byggingarst*
vióskipta fmm
mönnum að ©í'
kostnaóar
lausu. ^
Hagkvœmt veró
og greiósluskil
málar vió flestra
hœfi.i
einanorunar
Aörar wm m
Aörar
framknöskívörur
pípueinangrun
skrúf butar
lorgarplait h f
kvötd 09 hclSTilml 93 7355
blémcniKril
Sigtúni 40
sími 86340
Maður verður
að bera sig
eftir því
segir Aðalheiður Magnúsdóttir
Er hægt aö vera jurtaæta ef
maðurbýrútiálandi?
Þjóðviljinn leitaði álits á því hjá
Aðalheiði Magnúsdótturá
Fáskrúðsfirði sem reynirað
halda sig við jurtafæði þegar
húngetur.
- Já, já það er vel hægt, sagði
Aðalheiður ef maður leggur sig
eftir því. Hér er hægt að fá ferskt
grænmeti t.d. hvítkál og gulrætur,
allan ársins hring og tómatar og
gúrkur fást hér þegar það er á
markaðnum. Að vísu eru ekki til
baunir og annað hráefni í búðum
hér, ég kaupi það bara þegar ég er
fyrir sunnan eða læt ættingja senda
mér.
Þetta er mun auðveldara nú en
var áður og þakka ég það bættum
samgöngum. Grænmetið er sent
með flugvélum svo það er alltaf í
góðu ástandi.
- Hverjir finnst þér helstu kost-
irnir við jurtafæðið?
- Þetta fæði er mun ódýrara t.d.
núna þegar kjötvörur eru orðnar
svona dýrar. Mér finnst þessi
matur líka mjög góður og gæti
hugsað mér að borða hann ein-
göngu en ég verð að taka tillit til
hinna í fjölskyldunni. Mér finnst
sojakjötið sérstaklega gott, alveg
sambærilegt við góðar steikur ef
gott meðlæti er haft með. Það er
líka svo fljótlegt í matreiðslu.
Ég veit um nokkrar konur hér á
staðnum sem farnar eru að prófa
þetta og finnst bara gott. Það er
líka til nóg af uppskriftum svo hægt
er að hafa þetta fjölbreytt en jafn-
framt ódýrt, sagði Aðalheiður á
Fáskrúðsfirði.
EÞ
Bókasafn um
hollustufæði
Þeir sem vilja lesa sér til um næringarfræði og ýmsar kenningar
vísindamanna um hollustu mataræði ættu að kíkja við í
Kornmarkaðinum Skólavörðustíg 21 a í Reykjavík, sími 16590, því
þar er bókasafn með um 50 titlum, allt bækur um þessi efni,
skrifaðar af fræðimönnum. Flestar bækumar eru á ensku.
Að sögn Sigmars Arnórssonar,
eins aðstandenda Kornmarkaðar-
ins, eru þessar bækur lánaðar
endurgjaldslaust. Einnig er hægt
að panta bækur um þessi efni er-
lendis frá, í gegnum Kornmark-
aðinn.
í Kornmarkaðinum eru seld ým-
is hráefni fyrir jurtaætur, grænmeti
og gúrkur, tómatar og paprika frá
bónda sem notar lífrænan áburð.
Aðstandendur Kornmarkaðar-
ins, en það er m.a. Ananda Marga
hreyfingin á íslandi, hafa einnig
gefið út matreiðslubók sem nefnist
Jurtafæði og fæst hún í fleiri heilsu-
vörubúðum í Reykjavík. f bókinni
eru uppskriftir af morgunverði,
salötum, aðalréttum, súpum og
sósum, eftirréttum, bakstri og
drykkjum.
EÞ.
Opið alla daga kl. 9-21
Gerið verðsamanburð
Lífrænt ræktað
Við skilgreinum LÍFRÆNA RÆKTUN þannig, að við ræktunina
séu hvorki notuð skordýra- eða illgresiseitur, né kemisk áburðar-
efni.
Höfum á boðstólum LIFRÆNT RÆKTAÐ:
Tómata, agúrkur, paprikur, gulrótarsafa, rauðrófusafa, rúsínur,
döðlur, gráfíkjur, hrísgrjón, bygggrjón, heila hafra, haframjöl, heil-
hveiti, valsað korn, íslenskar te- og kryddjurtir og sérbökuð brauð
úr lífrænt ræktuðu korni.
LÍFRÆN RÆKTUN - KORNMflRKflÐURINN
HOLLARI - BRAGÐBETRI SKÓLAVÖRÐUSTÍG 21aSÍM116590
Heilsuvörur
Natur ris, Avori ris, Boghvetegrjón, Maísgrjón
Brúnar baunir, hvítar baunir, linsubaunir
Grænar sojabaunir, sojaprótein
Musli, fiber musli og barna musli - Krúska
25 - 30 tegundir af hrökkbrauði
B-, C- og E-vítamín, kalktöflur
Lúðulýsi, ufsalýsi, þorskalýsi og ávaxtalýsi
Ávaxtasafar án aukaefna, fjölbreytt úrval.
Án sykurs: Niðursoðnir ávextir, perur, blandaðir ávextir,
ferskjur, aprikósur og ananas.
Rauðkál, Appelsinumarmelaði
Jarðarberjasulta, aprikósusulta.
Ný-
grillaðir
kjúklingar
alla .
föstudaga
Allt í ferðanestið. Opið til kl. 22 fösiudaga.
STÓRMARKAÐURINN
Skemmuvegi 4A Kópavogi