Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 3
FÖstudagur 15. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fjármálaráðherra um fjárþörf Lánasjóðs námsmanna
Fyrirvinnan er lasin
og barnahópurinn er kröfuharður, segir Albert Guðmundsson
- Við verðum að taka upp kjör-
orð Kvennalistans og haga okkur
eins og hagsýn húsmóðir, sagði Al-
bert Guðmundson fjármálaráð-
herra í viðtali við Þjóðviljann í
gær. „Við crum með hagsýna
húsmóður, en fyrirvinnu sem er
lasin í augnablikinu og barnahóp
sem er kröfuharður“, sagði ráð-
herrann þegar Þjóðviljinn ræddi
við hann um málefni Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna í gær.
- Ég hef spurt talsmenn lánasjóðs
námsmanna hvort þeir vildu að al-
þingi samþykkti til þeirra fjárupp-
hæðir, peninga sem ekki væru til.
Vill fólkið í landinu það?
Þá var Albert spurður hvort
námsmenn greiddu ekki lán sín til
baka, en hann kvað það engu
breyta við þessar aðstæður. Það
væru ekki til peningar í landinu
fyrir þessum lánum.
- Villfólkiðílandinuaðtekinséu
erlend lán til þess að útvega
sjóðnum fjármagn? Slíkt er alveg
ótækt, sagði fjármálaráðherrann.
En telur þú menntun vera arð-
bæra fjárfestingu?
- Menntun er alltaf arðbær fjár-
festing. Hins vegar er spurning
hvort og hvenær hún er arðbær
fyrir þjóðfélagið í heild, þó hún sé
það alltaf fyrir einstaklinginn. í
okkar lýðræðisþjóðfélagi er ekki
hægt að stýra því hversu margir eru
í námi.
En ert þú ekki að stýra því i gegn-
um lánasjóðinn?
- Ég ræð því ekki, heldur alþingi.
Við erum nú að tala um aukafjár-
veitingu, en ekki það sem ákveðið
var á fjárlögum. Hver þarf ekki
meiri peninga? Það verða allir að
kunna sitt magamál og við verðum
að haga okkur eins og hagsýn
húsmóðir, ' sagði Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra. -óg
Albert Guðmundsson.
Niðurskurður á
fjármagni til
Lánasjóðs
námsmanna
Fjöldi
manns
hættir
námi
segir Mörður
r
Arnason
formaður SÍNE
„Niðurskurður á fjárframlögum
til Lánasjóðs getur ekki þýtt annað
en að fjöldi manns hætti námi“,
sagði Mörður Arnason, formaður
SÍNE, Sambands íslenskra náms-
manna erlendis, í samtali við Þjv. í
gær.
„Albert virðist hafa talað áður en
hann hugsaði. Hann er ekki bara
að vega að námsmönnum og fjöl-
skyldum þeirra heldur líka að
undirstöðum velmegunar í
landinu, almennri menntun. Lán-
asjóðurinn er ekkert einkamál ein-
Sjónvarpið í kvöld
Mörður Árnason.
hverra langskólamanna; hann
styður líka við bakið á trésmiðum,
fisktæknum, fóstrum, vélstjórum
og svo frgmvegis. Sæmilegt jafn-
rétti til náms hefur verið einn af
höfuðkostum þessa samfélags síð-
asta áratuginn; stórfelldar
skerðingar á námslánum mundu
breyta því og gera einungis börnum
efnamanna kost á menntun."
Mörður sagði ennfremur að ein-
kennilegt væri að heyra ráðherra
höfða til fólksins í landinu sem
andstæðinga „fjárausturs" til
námslána. „Það eru sennilega um
5000 lánþegar nú hjá LÍN. Heldur
Albert að þetta fólk sé eitt í
heiminum? Þjóðaratkvæða-
greiðsla er góð hugmynd hjá Al-
berti. Við mundum vinna.“
-gat
r
Varnir Islands
I sjónvarpsþættinum um „varnir
íslands“ sem sýndur verður í sjón-
varpi kl. 21.10 verður rætt við
Gunnar Gunnarsson starfsmann
Öryggisnefndar, þá verður rætt við
Vigfús Geirdal og Geir Haarde.
Að afloknum viðtölum við þessa
menn verða umræður í sjónvarps-
sal sem Ólafur Sigurðsson stýrir.
Þátttakendur verða Geir Hall-
grímsson, Svavar Gestsson og
Kjartan Jóhannsson. _óg
Fjöldatakmarkanir að Háskólanum
~7
Akvörðun frestað
í gær var haldinn fundur í Há-
skólaráði, en þar lá fyrir tillaga frá
Birni Þ. Guðmundssyni um fjölda-
takmarkanir að skólanum.
í samtali við Þjóðviljann sagði
Guðmundur Magnússon háskóla-
rektor, að frestað hafi verið að taka
ákvörðun í þessu máli, að hans til-
lögu, þar til svokölluð þróunar-
nefnd hefði lokið störfum, en hún
vinnur að allsherjar úttekt á stöðu
allra deilda. Aðspurður sagði rekt-
or að hann vænti þess að nefndin
lyki störfum í árslok, og þá má sem
sé búast við ákvörðun Háskólaráðs
um fjöldatakmarkanir.
-gat
Spegílsmálið
í Hæstarétt
Sakadómur Reykjavíkur hefur ritsins Spegilsins upptækt.
úrskurðað, að saksóknari ríkisins Aðstandendur Spegilsins hafa
hafi farið að réttum lögum þegar ákveðið að áfrýja þessum úrskurði
hann gerði annað tölublað tíma- til Hæstaréttar.
Hljótum að bregðast
harkalega við þessu
segir Aðalsteinn Steinþórsson formaður Stúdentaráðs H.í.
„Ég verð að segja að þetta er dá-
lítið einkennilegt viðtal og það
hvarflar að manni að hér gæti verið
um einhvers konar grín Tímans að
ræða, því neðar á síðunni er viðtal
út af greiðasemi Alberts við nokkra
fjármálaspekúlanta og Tívolíhald-
ara hér í bæ“, sagði Aðalsteinn
Steinþórsson formaður Stúdentar-
áðs m.a. í samtali við Þjóðviljann
vegna viðtals Tímans við Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra,
þar sem fram kcmur að ráðherr-
ann hafi í hyggju að skerða stórlega
framlög til LIN.
„Albert boðar stórfelldan niður-
skurð á framlögum til alls kyns
menningarmála og námsfólks á
sama tíma og verið er að undirbúa
gífurlegan fjáraustur í flugstöð í
Keflavík," sagði Aðalsteinn enn-
fremur, „en ekki virðist hvarfla að
honum að hafa þjóðaratkvæða-
greiðslu um það mál, þótt hann tali
unt hana í sambandi við Lána-
sjóðinn, Sinfóníuna og Þjóðleik-
húsið.
Sá niðurskurður sem Albert
boðar getur haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir afkomu fjölda
námsmanna; það má búast við því
að magir flosni upp frá námi og við
getum átt von á fleiri hundruð
manns út á vinnumarkaðinn á einu
bretti.
Þessi lán eru að fullu verðtryggð
og hreint engin ölrnusa," sagði
Aðalsteinn að lokum, „og ef þess-
um fyrirætlunum ráðherrans verð-
ur hrint í framkvæmd, munu náms-
ntenn að sjálfsögðu bregðast við
nteð ákveðnum hætti.“
-gat
BUNflÐARBflNKDMN
VESTURBÆ
Áðtir Vestuigötu 52
Nú Vesturgötu 54
ENNLEND - ERLEND VIÐSKIPTI
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI