Þjóðviljinn - 16.07.1983, Síða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. júlí -1983
—mhg á Austurlandi
Að glæða almennan
áhuga fyrir tónlist
Að kvöldi mánudagsins 4. júlí
sl. voru þrír heiðursmenn á ferð
í bíl austur í Hróarstungu.
Þessirþremenningarvoru:
Vigfús Eiríksson og Magnús
Magnússon tónskólastjóri,
báöir búsettir í
Egilsstaðakauptúni og
undirritaður blaðamaður frá
Þjóðviljanum. Við höfðum
skroppið út í Hróarstungu að
aflíðandi hádegi, okkurtil
gagns og skemmtunar, og
vorumnúáleiðtil
Egilsstaðakauptúns. Þávar
það, sem blaðamanni datt í hug
að nota tímann til þes að
forvitnastofurlítið um
Tónskólann, því vart mundi
annars gefast tóm til þess.
ísleifur minn Gíslason á
Sauöárkróki sagði einu sinni:
„Ekki er hægt að yrkja í bíl,
allt er á reiðiskjálfi".
Ef ekki er hægt að yrkja í bíl, vegna
ókyrrleika umhverfisins þá er enn
síður liægt að skrifa í bíl, þó að
vegir séu raunar sumsstaðar verri
en í Hróarstungunni. Því er það,
sem hér verður tínt til, meira byggt
á minni en skriflegum heimildum.
Vonandi verður þó útkoman ekki
mikið lakari en hjá manninum,
sem var að selja rjúpurnar.
Kaupandinn kvartaði yfir því, að í
þær væri kominn ýlduvottur. Þá
svaraði rjúpnaskyttan:
„Jú, það kann nú að vera rétt en
það eru þó partar í þeim“.
Og hefst nú yfirheyrslan og við
byrjum á því að spyrja um tónlist-
arferil Magnúsar.
Þýskaland - Ólafs-
fjöröur - Egilsstaða-
kauptún
- Ég kom frá Þýskalandi árið
1965. Hafði verið þar við almennt
tónlistarnám um nokkurt skeið.
Leið mín lá fyrst til Ólafsfjarðar en
þar átti ég nokkurn þátt í stofnun
tónlistarskóla og stjórnaði honum
þar til ég flutti hingað austur í Eg-
ilsstaðakauptún.
- Hvenær var skólinn þar stofn-
aður?
- Tónskóli Fljótsdalshéraðs var
stofnaður árið 1971 og er rekinn af
Egilsstaða- og Fellahreppum.
- Hvernig hefur aðsóknin verið?
- Hún hefur verið góð. Síðast-
liðinn vetur stunduðu t.d. 105 nem-
endur nám við skólann, úr þessum
tveimur sveitarfélögum. Ég held
að slíkt verði að teljast mjög góð
aðsókn.
- Og á ýmsum aldri?
- Já, svo sannarlega eru þeir það
eða allt frá 7 ára aldri og upp úr.
- Hvernig er kennsluhúsnæðið?
- Við erum nú ekki við eina fjöl-
ina felldir með það. Kennslan fer
m.a. fram í Grunnskólanum, kirkj-
unni, og í heimahúsi. Um 30 nem-
endur eru í hópvinnu en um 70 í
einkatímum.
Fjölþætt kennsla
- Og eruð þið með allar tegundir
hljóðfæra í takinu?
- Ekki veit ég hvort hægt er nú
að segja það en við kennum á alls-
konar hljóðfæri og má þar til nefna
orgel, píanó, gítar, blásturs-
hljóðfæri og svo strengjahljóðfæri,
en kennsla á þau byrjaði aðallega í
fyrrahaust. Jú, ég held að segja
megi að fjölbreytnin sé orðin tölu-
verð.
- Nú skilst mér að misjafnlega
hafi gengið að fá kennslukrafta að
tónlistarskólum út um land, hvern-
ig hefur ykkur gengið það?
- Það hefur nú gengið alveg
sæmilega. Við höfum ekki þurft að
Egilsstaðakau pt ún.
mhg
Mt
rœðir
Mt
a§nús
viö
Tt
skólt
a§nús,
'son.
Egik
astjóra
, °n^ólans f
SStaö°kauptúm
kvarta svo mjög yfir skorti á þeim.
Auk skólastjóra eru hjá okkur
tveir fastir kennarar og tveir
stundakennarar og það hefur nægt
okkur nokkurn veginn, en þeir
hafa líka nóg að gera.
- Og þið haldið auðvitað tón-
leika öðru hvoru?
- Já, við reynum það nú. Við
höldum ævinlega jólatónleika, svo
eru tónleikar við skólaslit og próf,
auk þess sem nemendur skólans
koma fram við ýmis tækifæri
önnur.
Alþýðutónlistarskóli
- Vigfús ekur all greitt og innan
stundar verðum við í Egilsstaðak-
auptúni. Ég fel nafna mínum að slá
botninn í þetta skyndiviðtal okkar
og hann segir:
- Þessi skóli okkar er fyrst og
fremst alþýðutónlistarskóli, sem
leitast við að veita sem besta undir-
stöðumenntun í ýmiss konar
hljóðfæraleik og því, sem að hon-
um lýtur. Þeir, sem skara fram úr,
geta svo haldið áfram námi ef vilji
og aðrar ástæður eru fyrir hendi.
Um þörfina fyrir svona starfsemi
þarf ekki að efast, aðsóknin sannar
hana. En tilgangurinn með þessum
skóla okkar hér er fyrst og síðast
sá, að glæða almennan tónlistará-
huga og tónlistarlíf og ég vona að
það áform hafi náðst að einhverju
verulegu leyti að minnsta kosti.
- mhg
Gaman að sj á börnin
vitkast og þroskast
mhg
/*erSM,
Aradt
r&ðir
ru
°ttur
V/
stajfsstúlku
Paghei>
1 Neskau
við
'milið
'Pstað
Mér fyndist það ekkert óeðli-
legt þótt cg væri ekki meira cn svo
vel séður gestur hér á ráðstefnunni.
Ég er nefnilega alltaf að trulla fólk
og tefja frá störfum, sem það er
komið til að vinna, margt um
langan veg. En Austfirðingar eru
kurteist fólk og þyki þeim nóg um
ágcngnina þá láta þeir a.m.k. ekk-
ert á því bera. Það hjálpar blaða-
manni til þess að telja sér trú um að
hann sé bara frekar velkoininn
gestur.
Ég tel mig vera jafnréttismann
eins og Gunnar Ingvarsson, sem ég
var að spjalla við áðan. Og nú er ég
búinn að ræða hér við tvo karl-
menn en ekki nema eina konu. Það
er því farið að hallast á hrossinu.
Þann áhalla verður að laga og
reyna nú næst að ná sér í kven-
mann. En það er eins og fyrri dag-
inn að sá á kvölina sem á völina.
Víða er hægt að bera niður en ég
ákvað að leysa vandamálið - (ég er
fyrir löngu orðinn leiður á því að
heyra og sjá talað og skrifað um að
,Jeysa vandann“) - með því að láta
kylfu ráða kasti og drep hendi á öxl
þeirrar konu, sem fyrst verður á
vegi mínum og spyr, hvort hún sé
fáanleg til að koma með mér afsíðis
ofurlitla stund? Hún lítur upp, dá-
lítið undrandi á svipinn, sýnist mér,
- var það líka furða, - brosir síðan,
út í annað munnvikið a.m.k., og
spyr, eðlilega, um tilganginn. Og
þegar það upplýsist, að hann getur
vart meinlausari verið fellst stúlkan
á viðtal, nreð því skilyrði þó, að
það verði stutt. Að því skilyrði er
gengið og Bergþóra Aradóttirer þá
fyrst að því spurð hvað hún starfi
þar í Neskaupstað.
- Ég starfa við dagheimiliö í
Neskaupstað, svarar Bergþóra. -
Er búin að vinna þar síðan í haust.
- Ertu kannski fóstra?
- Nei, það er ég nú ekki. Við
skulum bara segja að ég sé starfs
stúlka þarna við heimilið.
Tvíþœttur rekstur
- Viltu segja mér eitthvað nán-
ar frá dagheimilinu?
- Já, en þú manst að þetta átti að
vera stutt. Það er bærinn, sem rek-
ur þetta heimili. Og það má kann-
ski orða það svo, að sú starfsemi,
sem þarna er rekin, sé tvíþætt. I
fyrsta lagi er það dagvistardeild,
þar sem börnin eru allan daginn og
svo eru þarna einnig fjórar
leikskóladeildir. í tveimur þeirra
dvelja börnin fyrir hádegi og í
tveimur eftir hádegi. Það kemur
sér vel fyrir konur, sem vinna úti
hálfan daginn. Dagvistardeildin
sér aftur á móti fremur um börn
þeirra kvenna, sem vinna allan
daginn úti. f Neskaupstað er mikið
athafnalíf og því mikið að gera. Og
voru þeir ekki að tala um það við
þig nú nýlega, Ólafur Gunnarsson
og Þorsteinn Þorsteinsson, að þá
vantaði kvenfólk? Samt vinna kon-
ur í Neskaupstað eins mikið úti og
þeirn er unnt, held ég mér sé óhætt
að segja, og fyrir þær er dagheimil-
ið ómissandi stofnun.
Bjartsýnismenn
- Og það fullnægir þörfinni?
- Já,.svo má a.m.k. heita. Það
voru miklir bjartsýnismenn, sem
byggðu þetta heimili í öndverðu.
Kannski hefur það verið vel við
vöxt í byrjun en það var horft til
framtíðarinnar. Forgöngumenn-
irnir trúðu því, að bærinn þeirra
ætti fyrir sér blómlega framtíð, at-
hafnalíf vxi og íbúum fjölgaði. Og
þeirn hefur orðið að þeirri trú. En
einmitt af því hvað heimilið er reist
af miklum myndarskap og stórhug
hefur það reynst nokkurn veginn
fullnægjandi fram á þennan dag,
þannig að ekki hefur þurft að vera
á því teljandi bið að börn kæmust
hér að.
Lifandi og
skemmtilegt starf
- Og þér fellur þessi vinna vel?
- Já, mjög vel. Þetta er ákaflega
skemmtileg vinna og lifandi. Það er
svo undur gaman að fylgjast með
bömunum vitkast og þroskast svo
að segja frá degi til dags. Manni
finnst maður eiga eitthvað í þessum
krökkum, sem maður umgengst og
lifir með daglega, og þeir eiga á
hinn bóginn eitthvað í okkur.
Bergþóra Aradóttir: Það voru
miklir bjartsýnismenn, sem
byggðu þetta heimili í öndverðu.
- Er þetta starf sæmilega
launað?
- Já, það er nú það. Ég held að
það sé rétt að launa svona störf
nokkuð vel. Þau eru býsna
ábyrgðarmikil. En við fengum sér-
kjarasamning í haust og það var til
talsverðra bóta. Nú, og ef við
verðum svo að vinna sjálfstætt, það
er að segja án þess að fóstrur séu
með í störfum, þá fáum við ofur-
litla launauppbót.
Þarf tíma til þess
að hristast saman
- Ráðstefnan?
- Já, þú vilt náttúrlega víkja að
pólitíkinni og ég hef auðvitað ekk-
ert á móti því, enþú lofaðir að hafa
þetta ekki langt.
- Rétt, en við erum líka alveg að
ljúka þessu. Ein eða tvær mínútur
enn og svo steinhættum við.
- Mér finnst þessi ráðstefna á
margan hátt ágæt og gildi svona
samfunda verður ekki dregið í efa.
Um þá hlið málsins þarf ekki að
ræða. En við þurfum á hinn bóginn
að vara okkur á því að ætla að gera
of mikið í einu. Ég held að heppi-
legra væri að taka aðeins fyrir tvö
til þrjú megin mál hverju sinni og
ræða þau þá í botn, ef svo má segja.
Og ráðstefnan stendur nú ekki
nema tvo daga. Fulltrúarnir eru
dreifðir um víðlent kjördæmi.
Hafa ekki mörg tækifæri til að finn-
ast og sumir eru sjálfsagt að hittast
hér í fyrst sinn. Þeir þurfa að fá
tíma til þess að kynnast og ræðast
við, eigum við ekki bara að segja
að þeir þurfi að fá tíma til þess að
hristast saman.
- mhg