Þjóðviljinn - 16.07.1983, Blaðsíða 5
Helgin 16.-17. júlí 1983 þjóðVILJINN - SÍÐA 5
'ttinvw
Sognhátíð
fjöl-
skyldu-
hátíð
Helgina 22.-24. júlí næst-
komandi verður haldin að
Sogni í Ölfusi 3ja Sognhátíðin.
Að þessu sinni verður minnst
merks áfanga þ.e. fimm ára af-
mælis eftirmeðferðarheimilis-
ins.
Margt verður til skemnitunar á
hátíðinni. Hljómsveitin Kaktus,
Pálmi Gunnarsson, Bergþóra
Árnadóttir og Tryggvi Húbner sjá
um dansmúsik og tónleikahald auk
annarra skemmtikrafta.
Haldnar verða kvöldvökur bæði
föstudags- og laugardagskvöld, í-
þróttamót fyrir börnin, flugelda-
sýning, sameiginlegt grill o.m.fl.
Hátíðin veröur sett föstudaginn
22. júlí kl. 20.00og slitið seinnipart
sunnudagsins 24.
Eins og áður segir er þetta þriðja
fjölskylduhátíðin sem haldin hefur
verið að Sogni og er víst að þetta
verður árviss atburður í fram-
tíðinni, svo vel hefur tekist hingað
til-Nánari upplýsingar veita Gunn-
ar Kvaran (s. 66308) og Gunnar
Elísson (s. 46919).
IWTT CDG XANDAÐ
FERÐATILBCO
SÆUUVIKUR f
Við efnum til óvenju glæsílegra pakkaferða til
Sviss dagana 14. og 21. ágúst. Nu færðu vandaða
ferð með heilmiklu meðlæti og kynnist um leið heill-
andi landi og vingjarnlegri þjóð.
Flogið er í áætlunarflugi Arnarflugs til Zurich
og þaðan haldið til hins einstaklega fallega
ADELBODEN-svæðis, gróðursæls og hrífandi dals
sem liggur við fjallsrætur svissnesku Alpanna í allri
sinm tign og fegurð.
Stúdentaleikhúsið
frumsýnir:
í þessari ferð gengurðu á vit svissneskrar náttúru
eins og hún gerist fegurst og kyrdátust í senn.
Gönguferðir um nálæga staði, utsýnisferðir með
fjallakláfum upp á fjallstinda, bátsferðir á nálægum
vötnum, skógarferðir og ótal margt annaðer
á meðal ómissandi verkefna og þegar kvöldót taka
annalaðir veitingastaðir og eldfjörugir skemmtistað-
ir við.
„Klárinn
blakkur,
tunglið
rautt”
Hópurinn sem stendur að Lorcakvöldinu ásamt Baltasar sem lánaði klárinn blakka til myndatöku.
Sunnudaginn 17. júlí, daginn
sem borgarastyrjöldin braust út
á Spáni fyrir 47 árum verður
Lorcakvöld frumsýnt hjá
Stúdentaleikhúsinu, en þetta er
dagskrá úr tveimur þekktustu
leikritum hans, Ijóð og söngvar,
auk þess sem sungnir eru
spánskiralþýðu-og
andspyrnusöngvar. Leikin
verða af bandi lög úr
borgarastyrjöldinni fyrir
sýningu og önnur spönsk
tónlist.
Lorca var sem kunnugt er myrt-
ur af fasistum síðla sumars 1936, en
hann er talinn með fremstu leikrit-
ahöfundum aldarinnar.
Aðeins fimm sýningar verða á
Lorcakvöldinu, en leikstjóri er
Þórunn Sigurðardóttir og umsjón
með tónlist hefur Valgeir Skag-
fjörð. Þýðingar eru eftir Hannes
Sigfússon, Karl Guðmundsson,
Helga Hálfdanarson, Karl Ágúst
Úlfsson og Þórarin Hjartarson.
Leikendur eru Aldís Baldvins-
dóttir, Andrés Sigurvinsson, Hans
Gústavsson, Harpa Arnardóttir,
Kristín Á. Ólafsdóttir, Kristján
Franklín Magnús og Ragnheiður
Arnardóttir. Valgeir Skagfjörð,
Arnaldur Arnarsson og Gunnþóra
Halldórsson leika á gítara og fiðlu.
í Adelboden er gist á Hótel Bristol, vingjarnlegu
og dæmigerðu svissnesku fjallahóteli. Öll herbergi
eru búin baði og/eða steypibaði, síma, sjónvarpi,
útvarpi og „mini-bar". Hálft fæði er innifalið í verði
ferðarinnar.
Unnt er að velja á milli eins eða 2ja vikna dvalar
og sé ferðin 2ja vikna löng er t. d. upplagt að not-
færa sér hina hagstæðu bílaleigusamninga Arnar-
flugs og skipta Sviss-heimsókninni á milli Adelbo-
den og ökuferðar vítt og breitt um nálæg eða fjar-
lægari héruð.
Brottfaradagar: 14. eða 21. ágúst.
Verð 1 vika í Adelboden kr. 18.966.
2 vikur í Adelboden kr. 24.197.
miðað við gistingu ( 2ja manna herbergi
Innifalid: Flug, akstur til og frá flugvelli erlendis,
gisting með 1/2 fæði, gönguferðir (fylgd innlendra
og þaulkunnugra fararstjóra, aðgangur að Adelbo-
den-sundlauginni, ókeypis og ótakmarkaður að-
gangur að Alpine-járnbrautarkerfinu og öll aðstoð ís- Leitlð 1,1 sölljsk"fs*ofu Arnarflugs |
lenskra starfsmanna Arnarflugs i Zurich og Adel-
boden.
Barnaafsláttur 2ja—11 ára kr. 5.996.
Bílaleigubíll fyrir tvo í eina viku, A-flokkur, kr. 3314,
fyrir hvorn ejnstakling. Trygging og skattur innifalinn.