Þjóðviljinn - 16.07.1983, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.07.1983, Qupperneq 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. júlí 1983 Verður tölvuríkið einnig Á þessum misserum er mest skrifað um eldflaugar og tölv- ur í blöð heimsins. Eldflauga- tíðindin eru nær alltaf heldur dapurleg, svo það er kannski ekki nema von að sumir menn reyni að finna sér efni í bjart- sýni í tölvunum góðu, sem eigaaðleysaallanupplýsinga- vanda, geraminniðsemog stritið óþarft. Aðrir láta svo tölvuþróunina verða sér að hrollvekju við hliðina á eld- flaugunum. Staðreynda- skrímslið t.ii eru Bandaríkjamenn og Japanir í harðri keppni um að búa til risatölvu af nýrri kynslóð sem á að verða lOOOsinnum hraðvirkari en stærstu tölvur eru nú. Og risar slíkir leiða svo hugann að hinni „endaniegu tölvu“, staðreynda- skrímsli skelfilegu, þar sem geymt væri allt sem hægt er að vita um alla - efnahag, fjölskylduaðstæður, trúar- skoðanir hvers einstaklings, tekj- ur og gjöld, skuldastöðu, pólit- ískar skoðanir. áfengisneyslu, kynlífshegun. geöheilsu og aðra sjúkrasögu, drauma hans kann- ski og vonir. Er slík framtíðarsýn óþörf og ólíkleg? Um þau mál fjallar Da- vid Burnham í nýlegri bók sem ber nafnið „The Rise of Comput- cr State“ (útg. Random House) - og fær bókin allmikið lof í um- sögn í Guardian sem hér er stuðst við. Burnham minnir meðal ann- ars á það, að í stjórnartíð John- sons Bandaríkjaforseta voru uppi ráðagerðir hjá áhrifamiklum embættismönnum um að koma upp „Upplýsingamiðstöð ríkis- ins“: „Miðstöð þessi, segir í bóki- nni, átti að safna inn á eina tölvu öllum þeim hagskýrslu- upplýsingum sem hinar ýmsu stofnanir í Bandaríkjunum höfðu um alla Bandaríkjamenn". Upp kom kurr meðal almennings við þessi tíöindi og var horfið frá þessum áformum. En Burnham heldur því fram, að þau verði tekin upp aftur. ískyggilegt „Tölvan, segir hann, höfðar til eðlislægrar forvitni mannsins um hvaðeina". Og þeir sem boða stærri og betri tölvur, sem hlaðnar eru fleiri upplýsingum um okkur öll, eru blíðmálgir og lokkandi í málflutningi sínum gegn þeim sem óttast þessa þró- un. Þeir benda á, að upplýsing- arnar séu þegar til einhversstað- ar. Þeim sé dreift hér og þar hjá ríkisstofnunum og einkafyrir- tækjum, og það sé ekki nema til að gera allt virkara að koma öllu á eina hendi. En - segir David Wise, sem skrifar um bókina í Guardian - menn mega ekki gleyma því, að heildin er annað og meira en einstakir hlutar upp- lýsingakerfanna saman lagðir. Þegar þeir sem stjórna hafa skjótan og greiðan aðgang að öll- um fáanlegum upplýsingum um þegnana, þá hefur eitthvað nýtt orðið til og skuggalegt. „Menn eiga sér ekki einu sinni skjól lengur í „venjulegunt stirðbusa- hætti skriffinnskunnar, hvergi er smuga, við getum hvergi falið okkur.“ Ekki frekar en Jósef K., hetja í frægri sögu eftir Kafka, sem nú á aldarafmæli, ekki gat hann falið sig fyrir dómstólnum sem átti sér útibú í hverri kytru og gerði menn seka - án þess að þeir vissu um hvað. Furðulegustu möguleikar Að sjálfsögðu er David Burn- ham ekki blindur á ýmsa ágæta kosti tölvunnar - hún eykur af- köst stofnana og fyrirtækja sem þurfa að afgreiða fjölda manns eða leysa flókin tæknileg mál. En um leið er mikið um það fjallað í bók hans, hvernig þessi sama tölva getur gert okkur varnarlaus gagnvart hverjum þeim sem hef- ur aðgang að persónulegum gögnum um okkur. Möguleikar tölvanna á að safna gögnum um okkar einka- hagi eru raktir í bókinni og eru einatt hinir furðulegustu. Tölvur í sumum bílum geta í raun og veru njósnað um eigendur sína - tölv- an sem General Motors segir að eigi barasta að „auðvelda viðhald bí!a“ getur skýrt frá þvf, hve oft eigandinn hefur farið yfir há- markshraða. Bankarnir vita upp á mínútu hvenær þú lagðir inn peninga. Tölvur vita í mörgum kerfum hvenær menn kveikja á sjónvarpi. Símafélagið veit hve- nær þú hringir og í hvern. Og svo mætti lengi rekja dæmi - sum sak- leysisleg en önnur ekki. Villur Því má heldur ekki gleynta, að tölvan hefur oft rangt fyrir sér. Hvað skyldu þeir vera margir, sem hafa eytt löngum tíma í að leiðrétta einhverja tölvuvitleysu úr banka eða verslun? Ekki alls • fyrir löngu, segir Burnham, var póstmaður á eftirlaunum, Leonard Smith, handtekinn í Los Angeles, fyrir drykkjuskap á almannafæri. Honum var haldið í fangelsi í sex daga vegna þess að tölvan sýndi, að alnafi hans ein- hver Leonard Smith, væri eftir- lýstur fyrir að hafa brotið gegn skilorðsbundnum dómi fyrir 27 árum (sá náungi hafði falsað 10 dollara ávísun). Og það fylgir sögunni að Smith karlinn sé að- eins einn af þúsundum íbúa Los Angeles, sem hafa í misgáningi verið teknir í varðhald á hverju ári vegna ruglanda í tölvum. Upp í loft Burnham sér það fyrir sér, að allskonar ótti - ótti við glæpi heimafyrir, ótti við kommúnista erlendis - að viðbættri sífelldri söfnun gagna teymi Bandaríkin út í tölvuríkið, sem verði með nokkrum hætti lögregluríki. Hann býst eins við því, að slíkt þjóðfélag verði rækilega stétt- skipt, þar sem hinir ríku starfa við tölvur og umgangast um tölvur - meðan þeir sem blankari eru og hafa ekki tölvuþekkingu byggja einskonar allsherjarslömm. Efþá tölvuvillur verða ekki til að heimurinn springi í loft upp: Burnham minnir á að tvívegis ár- ið 1980 hafi tölvur í Colorado Springs gefið röng merki um að Sovétríkin hefðu byrjað mikla eldflaugaárás á Bandaríkin. Þessi mistök voru síðan rakin til smá- hluta í raeindabúnaði sem kostar 15 krónur - og munaði litlu að sú litla þúfa velti stóru hlassi, heimsbyggðinni allri. ÁB. tók saman. Filmuórar um Njálsbrennur Það er mikið af kynlegum greinum í íslenskum blöðum - fáar komast þó til jafns viö greinaflokksem kvikmynda- rýnir Morgunblaðsins Ólafur M. Jóhannesson hefurskrifað í blað sitt og nefnist „Staða íslenskrar kvikmyndagerðar 1983“. Lauk þessum flokki í blaðinu sl. laugardag. Er þar skemmst frá að segja, að Ólafur hefur fundið lausn á vanda listar þessarar og er hún að sjálfsögðu í anda vinda sem nú blása. Olafur telur það brýnast að hætta því sem hann kallar „menningarsnobb" í stuðningi við íslenska kvikmyndalist. í framhaldi af því er hann svo elskulegur að segja, að ekki hefði átt að styðja „dauðadæmt kvik- myndaævintýri" eins og „A hjara veraldar" með fé úr kvikmynda- sjóði, heldur púkka þess meira upp á „Húsið", sem hefði getað sópað saman peningum erlendis (skiptir þá ekki máli að Óiafur plampar sjálfur ofan í það „menningarsnobb" að telja „Á hjara veraldar" miklu merkilegri mynd en Húsið). Að skáka Hollywood Nú. Næst er að taka kvik- myndagerð undan menntamála- ráðuneyti og setja undir Sverri í iðnaðarráöuneytinu, enda sé um eitthvað það að ræða sem er skylt við ál og kísilgúr. Þessu næst á að slá Albert Guðmundsson um fé, enda muni hann laus við menn- ingarsnobbið en kunna þeim mun betur á „gróðamöguleika í réttri markaðsstýringu" eins og kvik- myndarýnirinn segir, nýfrelsaður til markaðstrúar. Auk þess á að freista Norðurlanda til að vera með í púkkinu, því það þarf mik- ið fé til að slá Hollywood út með Stjörnustríðin og ET. Lesendan- um skilst helst að fyrirmyndina að væntanlegri sigurgöngu ís- lenskra kvikmynda sé.að finna í fyrirtæki einu í llong Kong, sem er duglegt við að framleiða og selja slagsmálamyndir. Hin nor- ræna samsteypa á að lifa á efni- viði fslendingasagna og þá vænt- anlega koma upp með „réttri markaðsstýringu" eftirspurn eftir hasarmyndum sem mætti kalla „norðra“ (sbr ,,vestra“). Það stóð í Mogganum Það er að vísu allsendis óvíst, hvort nokkur sá finnist sem hrífst af þessum hugmyndum. En það verður samt ekki fram hjá svona skrifum gengið vegna þess að þau breiða úr sér með þeim þunga sem Morgunblaðið hefur. Óg svo eru þau í ætt við þá markaðs- hyggjustrauma tímans, sem hafa stundum áður brotist fram t.d. í fúkyrðum um sinfóníuhljómsveit eða ráðleggingum um að Þjóðleikhúsið ætti ekki að sýna neitt annað en það sem gæti safn- að gróða á Broadway. Hugmyndirnar eru náttúrulega fáránlegar og vita gagnslausar. Það getur enginn yfirboðið Hollywood með ofvöxnum ævintýrum né heldur skákað Hong Kong í færibandafram- leiðslu á vélrænni æsingu. Allra síst á þeirri myndbandatíð sem stórfækkar gestum í kvikmyndahúsum víðast hvar. Gunnar Héðinn og Njáll munu heldur ekki bjarga íslenskri kvik- myndagerð - eins þótt Albert setti allan þjóðarauðinn í að búa til meiriháttar Njálsbrennu. Það getur því miður ekkert bjargað íslenskri kvikmyndagerð annað en vönduð vinnubrögð.Það er að vísu blygðunarefni að þurfa að taka slíkt fram - en það er kann- ski ögn skárra en að þegja yfir hinum furðulegu kenningum úr Morgunblaðinu. Vitanlega er þörf á því að íslenskar kvikmyndir komist á er- lendan markað, þó nú væri. Og það gæti vel verið skynsamlegt að reyna samstarf við aðra smærri kvikmyndaframleiðendur um dreifingarmál. Hitt er víst að sá róður verður þungur - nægir um það að vísa til þeirra erfiðleika sem kvikmyndastórveldi á borð við Frakka og ítala hafa átt í. Kannski verður að tengja vonir manna á þessu sviði við þann möguleika að æ fleiri gerist þreyttir á Stjörnustríðafargani en þeim fjölgi að sama skapi, sem hafa nennu til að fylgjast með því sem sérstætt er og um Ieið unnið af því vandaða hugarfari, þeirri afstöðu til verksins sem ein getur rofið þann vítahring markaðslög- mála sem sleginn er utan um kvikmyndaframleiðslu smárra þjóöa.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.