Þjóðviljinn - 16.07.1983, Side 21
iiKi 'r f - M/jj iyjfjfv-} .- -*r^ (
Helgin 16.-17. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Sextugur:
Karl G. Sigurbergsson
Dag nokkurn fyrir mörgum
árum mætti ég tveimur mér ókunn-
um mönnum á götu í Keflavík. Það
var að vísu ekkert óvenjulegt í
þessari verstöð, en þessir menn
skáru sig allmjög úr fjöldanum sak-
ir vaxtar og vænleika. Þeir voru
nokkuð áþekkir á stærð, báðir voru
þeir Ijósir yfirlitum og voru í
niðurbrettum sjóstígvélum, sem
benti til að þeir væru aðkomusjó-
menn. Þó að menn þessir létu ekki
mikið yfir sér og færu spaklega þá
duldist mér ekki að hér mundu
engir meðalmenn fara, og spurðist
því fyrir um hverjir þeir væru. Mér
var tjáð að þeir væru af bát, sem
komið hafði til Keflavíkur ein-
hverra erinda. Héti annar Jónas
Árnason og var þá þegar orðinn
nokkuð þekktur maður þó ekki
væri það fyrir sjómennsku, en hinn
væri austfirskur sjómaður og héti
Karl G. Sigurbergsson.
Seinna átti ég eftir að kynnast
þessum mönnum báðum og
staðfestist þá sá grunur minn að þar
væri um eftirtektaverða persónu-
leika að ræða. Karl settist að í Kefl-
avík og bættist þar í hóp hinna dug-
miklu skipstjóra við Faxaflóa.
Ekki liðu mörg ár þar til leiðir okk-
ar lágu saman í félags- og stjórn-
málavafstri hér í bæ.
Tveir eru þeir þættir í skapgerð
Karls, sem mér hefur alltaf fundist
áberandi - og eiga þeir ef til vill
ekki sérlega vel saman. Annar er sá
að honum er mjög óljúft að sækjast
eftir forystuhlutverki og þeirri í-
mynduðu eða raunverulegu upp-
hefð, sem því fylgir. Sá er hinn að
það er honum víðsfjarri að standa
utan við átök í hagsmuna og rétt-
indabaráttu sinnar stéttar og hirða
svo á þurru það, sem áunnist hefur
fyrir annarra tilverknað. Ég hefi
aldrei heyrt hann nota orðatiltæki
eins og: Ég held að „þeir“ geti gert
þetta eða hitt, eða: Af hverju hafa
„þeir“ ekki gert þetta eða hitt, sem
allt of víða heyrist þar, sem um fé-
lagsstarfssemi er að ræða. Það eru
einmitt þessir eiginleikar, ásamt
góðum gáfum, sem hafa gert hann
að þeim forustu og baráttumanni,
sem hann er.
Starfsbræður hans fundu þetta
og fljótlega eftir að hann kom til
Keflavíkur kusu þeir hann til for-
manns í stéttafélagi sínu, Skip-
stjóra og stýrimannafél. Vísi. Því
starfi gegndi hann í hart nær 20 ár,
og var jafnan fulltrúi félagsins við
allar samningagerðir. Sú staða
kom upp að skipstjórum þótti
brotnir á sér samningar og ákváðu
að leita réttar sín fyrir dómstóiun-
um. Karl tók að sér að fara í próf-
mál og vann það fyrir sig og sína
stétt.
Fljótlega kvisaðist um Keflavík
að Karl væri einlægur herstöðva-
andstæðingur, og róttækur í skoð-
unum. Við, sem höfðum verið að
puða í vinstri pólitík í þessu íhalds-
bæli - að vísu með heldur litlum
árangri og aldrei komið manni í
bæjarstjórn eygðum þarna þann
foringja, sem okkur vantaði. En
Karl hafði ekki löngun til slíkra
hluta. Það var ekki fyrr en hann sá
að svona mátti ekki lengur til ganga
að hann lét til leiðast að verða efsti
maður á lista Alþýðubandalagsins
við bæjarstjórnarkosningar. Þá
kom í ljós að hann var prýðilega
máli farinn og vel ritfær, sérstak-
lega samdi hann afburða vel skrif-
aðar ræður.
Karl náði kjöri í þessum fyrstu
kosningum, sem hann tók þátt í og
sýndi það sig þá að hann átti fylgi
langt út fyrir hinar pólitísku flokks-
raðir, og þá einkum meðal sjó-
manna, sem til hans þekktu. Sæti
sínu í bæjarstjórn hélt hann í þrjú
kjörtímabil, en þá gaf hann ekki
lengur kost á sér. Hann var búinn
að ryðja brautina og nú gátu aðrir
tekið við.
Það er ekki létt verk að vera full-
trúi Alþýðubandalagsins í bæjar-
stjórn Keflavíkur. Svo náin er sam-
staða hinna þriggja íhaldsflokka,
Alþýðuflokksins, Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
að ég held að jafnvel hið gleggsta
gestsauga gæti ekki séð þar nokk-
urn mun. Og vandlega gæta þeir
þess að fulltrúi Alþýðubandalags-
ins fái ekki að sitja bæjarráðsfundi,
sem áheyrnarfulltrúi og er það eftir
því sem ég hef heyrt einsdæmi nú til
dags að minnihluti, sem ekki á
kjörinn fulltrúa í bæjarráði fái ekki
að hafa þar áheyrnarfulltrúa.
Það er geysilegt starf að vera
fulltrúi flokks, sem ekki á nema
einn fulltrúa í bæjarstjórn og verða
að setja sig inn í öll bæjarmál og
vinna fullan vinnudag. Hjá þeim
flokkum sem fleiri hafa fulltrúana
geta þeir skipt með sér verkum. En
Karl lét það ekki á sig fá, ekki kom
til greina að slá slöku við, þá var
bara að sofa minna. Og þannig hef-
ur hann verið í félagsstarfinu, ævin-
lega tilbúinn að taka að sér hvert
það starf, sem vinna þarf; og það
starf, sem Karl tekur að sér er ör-
uggt að verður leyst.
Auk forustustarfa í sinni heima-
byggð hefur Karl gegnt mörgum
trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
bandalagið. Verið í kjördæmis-
ráði, flokksráði og miðstjórn.
Einnig setið á Alþingi fyrir
Reykjaneskjördæmi sem varamað-
ur og segir það sína sögu um það
traust er hann nýtur.
En það var ekki meiningin að
fara að rita hér ævisögu eða afreka-
skrá, því það vel þekki ég minn
mann að ég veit að honum er ekki
mikið um það gefið. Ég held að ég
hefði tæplega þorað að láta hann
njóta sannmælis í þessum afmælis-
línurn ef hann væri ekki erlendis og
lítil líkindi að þær komi honum
fyrir augu. En fyrir hönd Alþýðu-
bandalags Keflavíkur vil ég færa
honum innilegar þakkir fyrir það
mikla starf, sem hann hefur fyrir
það unnið og vona að enn um mörg
ókomin ár megum við njóta
starfskrafta hans. Og sjálfur óska
ég þessum vini mínum og samherja
innilega til hamingju með sextugs-
afmælið og þakka honum og konu
hans Valgerði Bjarnadóttur fyrir
samveruna á liðnum árum.
Sig. N. Brynjólfsson.
Stuðmenn gefa út plötu:
Grái fiðrmgurmn
Stuðmenn hafa nýlega gefið út hljómplötu og þeir eru einnig að leggja upp í
Þann 20. þessa mánaðar kemur
út ný hljómplata með Stuð-
mönnum sem þeir nefna Gráa
fiðringinn. Er hér um sex laga
plötu að ræða eða svokallaða Mini-
LP. Stuðmenn munu stíga á stokk
að nýju í Atlavík um Verslunar-
mannahelgina en það er í fyrsta
sinn sem hljómsveitin kemur fram
síðan um áramót.
í Atlavík munu Grýlurnar einnig
koma frain en þær Ragnhildur
Gísladóttir og Linda Heiðarsdóttir
aðstoðuðu Stuðmenn við söng á
Gráa fiðringnum. Stuðmenn munu
síðan leika á hverju landshorni
fyrir sig það sem eftir er ágústmán-
aðar, og mun vera ætlunin að taka
upp „live“ plötu á þeim tíma sem
koma mun út í lok ársins. Þá hefur
heyrst að Stuðmenn séu með bók í
bígerð fyrir jólin þar sem verða
nótur að öllum lögum hljóm-
sveitarinnar, mataruppskriftir,
Ijóð, myndir og brandarar, svo
eitthvað sé nefnt. Eftir áramót
munu Stuðmenn síðan hefja undir-
búning næstu kvikmyndar sem
verður jólamyndin’84. —v
■
ALVAR
AALTO
artek
FráArtek, Finnlandi,
hönnun AlvarAaito.
Eldhúsborð og stólar,
margar stæröir, íitaval.
Hentar einnig i kaffistofur
og mötuneyti.
Borgartúni 29
Simi 20640