Þjóðviljinn - 16.07.1983, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 16.07.1983, Qupperneq 22
22 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 16.-17. júlí 1983 um helgina Talað efni er flutt af Kristínu Magnús leikkonu. Ferðaleikhúsið í fullu fjöri Torfi Harðarson við þrjár mynda sinna. Torfl Harðarson með sýningu á Flúðum Fimmtudaginn 14. júlí opnaði Torfi Harðarson myndlistarsýningu í félagsheimili Hrunamanna, Flúðum. Á sýningunni eru 23 myndir og eru flestar þeirra unnar með litkrít. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 - 23.00, og lýkur henni 18. júlí. Þetta er 3. sýning Torfa. Ferðaleikhúsið er nú byrjað sýningar á Light Nights sem hefur verið fastur liður í leikhúslífi borgarinnar s.l. fjórtán sumur. Sýningin er í kvöldvökuformi fyrir erlenda ferðamenn á íslandi en einnig hefur leikhúsið farið með sýningar erlendis, til Banda- ríkjanna, Skotiands og Englands. Uppfærslan í ár er nokkuð breytt frá því sem áður hefur ver- ið og leikmyndin er nú tvískipt, annars vegar baðstofa frá síðustu Ljós- mynda- sýning í Stúdenta kjallar- anum aldamótum og hins vegar víking- askáli. Sýningarnar í ár eru í Tjarnarbíói á fimmtudags-, föstudags- og sunnudagskvöldum og hefjast kl. 21. Efnið sem ætlað er til skemmtunar og fróðleiks er allt íslenskt en flutt á ensku að undanskildum þjóðlagatextum og kveðnum lausavísum. Á milli atriða eru sýndar skyggnur af verkum þekktra listamanna og fluttar upptökur af íslenskri tlon- list. Allt talað efni er flutt af Kristínu G. Magnús leikkonu. Jane Reéd frá Boston í Banda- ríkjunum heldur Ijósmyndasýn- ingu í Stúdentakjallaranum. Sýn- ingin verður opnuð kl. 18.00 á þriðjudaginn og stendur til júlí- loka. Jane Reed er ljósmyndari og hefur tekið myndir víða um heim, í Indónesíu, San Francisco og New York. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í sam- ■sýningum víða og getið sér gott orð í listinni. Myndirnar á sýning- unni er úr ýmsum áttum, þ.á.m. eru danshreyfingar. Jane Reed stundaði nám við San Francisco Art Institute og lauk námi 1971. Ólafsvík Málverka- sýning Hauks Halldórs- sonar Haukur Halldórsson, listmál- ari, opnar málverkasýningu í sal grunnskólans í Ólafsvík á morg- un. Sýnir Haukur þar um fimmtíu verk sem unnin eru í kol, krít, túss og með silkilitum. Haukur nefnir sýningu sína „Undir Jökli ’83“, og verður hún opin alla daga frá kl. 14.00 - 20.00 fram til 24. júlí. Gönguferð um Elliðaárdal Árbæjarsafn er opið um helg- ina frá kl. 13.30-18.00 og verða kaffiveitingar í Eimreiðar- skemmu. Á sunnudag kl. 16.00 leikur blásarakvartett Guðna Franssonar úti, ef veður leyfir sama dag, kl. 14.00 hefst göngu- ferð um Elliðaárdal frá safninu. Aðgangseyrir er kr. 40 fyrir fullorðna og kr. 20 fyrir unglinga 12-16 ára. Kjartan Guðjónsson er einn þeirra sem sýnir á yfirlitssýningu Listmálarafélagsins á Kjarvals- stöðum. Henni lýkur annað kvöld eftir framlengingu. Listmálaraféla gið. Framlengir sýningu sína Sýning Listmálarafélagsins á Kjalvarsstöðum hefur verið framlengd til sunnudagskvölds vegna fjölda áskorana. Þar sýna 22 hinna svokölluðu „akademík- ara“ verk sín. Listmálarafélagið er samtök málara sem efla vilja framgang myndlistar í landinu á lýðræðis- legan hátt og stuðla að auknum áhuga almennings á myndlist, eins og segir í inngangsorðum Guðna Þórðarsonar í sýningar- skrá. Gler í Bergvík á Kjalarnesi Áhugafólk um glergerð getur brugðið undir sig betri fætinum um helgina og heimsótt glerblást- ursverkstæði Sigrúnar og Sörens við Vesturlandsveg, rétt vestan við Kléberg. Þar er opið milli kl. 10-12 og 13.30-17 og gefst fólki kostur á að sjá þau blása gler og skapa alls kyns fallega glerhluti sem eru til sölu. myndlist Norræna húsið: Listaverk eftir Aka Höogh og Ivar Silis, grafíkmyndir og Ijósmyndir. Sýningin kemur hingaö frá Færeyjum. Listasafn Einars Jónssonar: Safniö er opiö daglega nema mánudaga frá kl. 13.30-16. Nýlistasafnið: Björn Roth, Daði Guöbjörnsson og Egg- ert Einarsson meö sýningu sem stendur til 17. júlí. Gallerí Lækjartorg: Smáljóö heitir sýning sem Jóhann G. Jóhannsson gengst fyrir. Safnahúsið Sauðárkróki: Vfirlitssýning á þætti Islands i Norrænu menningarkynningunni. Fer næst til Isa- fjarðar. Grunnskólinn Ólafsvík: Haukur Halldórsson með myndlistars- ýningu í Ólafsvík frá því í dag til 24. júlí. Fimmtíu verk í kol, krít, tússi og silkilitum. Flúðir: Torfi Harðarson opnar myndlistarsýn- ingu í félagsheimili Hrunamanna, Flúö- um. 23 myndir til sýnis. Sýningin opin daglega frá 14-23. Lykur 18. júlí. Kjarvalsstaðir: Vegna fjölda áskorana veröur sýning Listmálarafélagsins framlengd til sunnu- dagskvölds, 17. júlí. 22 fremstu málarar þjóðarinnar sýna þar verk sin. ferðalög Útivist: Farið á morgun, sunnudag kl. 8.00 í einsdagsferð i Þórsmörk og kl. 13.30 verður farið annars vegar að Tröllafossi og hins vegar á hátind Esju. Farið frá Bensínsölu BSl. Ferðafélag íslands: Ökuferð í dag, laugardag um Mýrar. Ek- ið niður að sjó og um Hltardal á eftir. Verð kr. 400,- Á morgun, sunnudag verður farið i tvær ferðir. Kl. 8 að Baulu og kl. 13 í Botnsdal. Bauluferð kostar kr. 400,- kr og í Botnsdal 200.- kr. tónlist Norræna húsið: Á morgun, sunnudag, kl. 20.30 verður flutt færeyska tónverkið Hrafnaþing eftir Kristian Blak í Norræna húsinu. Það er jass með þjóðlagaívafi sem höfundur flytur (píanó) ásamt Ernst Dalsgarð (flauta). Jafnframt flutningum verður varpað á veggi Ijósmyndum eftir Frakk- ann Philippe Carré. Norræna húsið: Yggdrasill, hljómsveit frá Færeyjum leikur i Norræna húsinu á sunnudags- kvöld kl. 20.30. Dómkirkjan: Orgeltónleikar verða i Dómkirkjunni á sunnudag, 17. júlí. Leikur Marteinn H. Friðriksson á orgel og hefjast tónleikarn- ir kl. 17.00. Allir velkomnir og er að- gangur ókeypis. Tjarnarbíó: Ferðaleikhúsið starfar nú í Tjarnarbíó og eru sýningar á hverju kvöldi frá fimmtu- degi til sunnudags kl. 21. Þar er flutt íslenskt efni, Light Nights, á ensku í kvöldvökuformi fyrir erlenda ferðamenn. Talað efni er flutt af Kristínu G. Magnús leikkonu en einnig er flutt ísiensk tónlist og skyggnum af verkum þekktra ís- lenskra listamanna varpað á tjald milli atriða. Islenska óperan: Kvöldvaka í kvöld. Fjölbreytt alíslensk dagskrá. Islensk þjóðlög, íslenskir ein- söngvarar, myndlistarsýning, kaffisala og kvikmyndasýning. Flugdagur á Sauðárkróki: I dag verður haldinn flugdagur á Sauðárkróki og með honum hefst Sælu- vika Skagfirðinga. Hefst dagskráin kl. 13.30. Samkoman verður á Kirkjutorgi. Árbæjarsafn: Opið í dag frá 13.30-18.00. Kaffiveiting- ar í Eimreiðarskemmu. Blásarakvintett Guðna Franssonar leikur á sunnudegin- um utan dyra kl. 16.00 ef veður leyfir. Gönguferð um Elllðaárdal á sunnudag og farið frá safninu kl. 14.00.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.