Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 22: jú)í'í983
Skák
Karpov að tafli - 172
Það finnst mörgum einkenilegt að
ftalir sem eiga marga af frægustu
bridgespilurum heims skuli aldrei
hafa náð að koma sér upp almenni-
legum skákmönnum. Þeir eignuðust
einn stórmeistara árið 1976, Sergio
Mariotti, en hann hefur þó aldrei talist
í hópi þeirra sterkari. Annar skák-
maður, Tatai hefur einnig teflt tals-
vert, en ekki náð eftirtektarverðum á-
rangri. Hann tefldi í Las Palmas '77
og mætti Karpov í 13. umferö.
abcdefgh
Tatai - Karpov
Karpov hafði fórnað peði fyrir betri
stöðu í byrjun tafls og lætur nú til
skarar skríða:
23. .. Dd3!
24. exd3
(Að sögn Karpovs var betra að leika
24. Dd2.)
24. ..exd3+
25. Kd2 He2+
26. Kxd3 Hd8+
27. Kc4 Hxc2+
28. Kxb4 Hcd2
29. f3 Bf8+!
30. Ka5 Bd7!
-Hvíturerímátneti. Reynihann að
bjarga biskupnum með 31. Re3 kem-
ur 31. - Bc5 og 32. - Ha8 mát. Tatai
gafst því upp.
Bridge
Haft var eftir Guðmundi Péturssyni
fyrirliða íslenska landliðsins, sem nú
keppir í Evrópumótinu þessa dag-
anna, að ekki væri við mennska
menn að eiga, eftir þá útreið sem liðið
okkar hefur hlotið í 5 fyrstu leikjunum.
Er það ekki fullfast kveöiö, Gummi?
En ekki eru þeir allir ómennskir
sem komast í landsliðin ytra, saman-
ber þetta spil frá EM 1970 úr leik is-
lands við Portúgal (sem þá voru gest-
gjafar):
ÁK3
10
D92
DG942
D104
D9532
ÁG7
Á3
G2
G976
G106543
7
í lokaða salnum vann Ásmundur
Pálsson 4 spaða á spilið í A/V og átti
ekki í miklum vandræðum með það. í
opna salnum enduðu heimamenn í 4
hjörtum í A/V. Símon Símonarson
(sem nú keppir ytra á EM) spilaði út
spaðás og kóng og meiri spaða sem
Þorgeir Sigurðsson trompaði. Þorgeir
spilaði svo laufi, sem sagnhafi drap á
kóng, tók hjartaás og kóng og spilaði
síðan laufi að ás. Þorgeir trompaði
laufað, einn niður.
Vinningsleiðin liggur þó Ijós fyrir,
kunni maður aö telja upp að tíu
(nauðsynlegt í bridge). Semsagt,
taka á laufaás, hjartaás og kóng, út
með tígulkóng og yfirtaka með ás,
hreinsa út hjartað, inn á laufakóng og
spaðarnir eru góðir. Auðvelt?
Já, sumir af þessum „stórkörlum"
þarna ytra eru bærilega mennskir,
jafnvel þó þeir séu frá Portúgal...
(sland vann leikinn með 144-46
eða 20 mínus 2 og eftir 8 umferðir á
mótinu, voru íslendingar efstir með
123 stig.
98765
ÁK
K
K10865
„Ég nota mest svart-hvítar
filmur. Mérfinnst það meira
krefjandi en liturinn, — þú
nærð meiri blæbrigðum í
svart/hvítum myndum og
fíngerðari tjáningu. Ég mynda
allt mögulegt-ég hef unnið
mikið við kvikmyndir og ballett
sem Ijósmyndari og tek einnig
myndir fyrir ýmis blöð. Mest
hef ég tekið fyrir City Arts
Magasin, sem er mjög
víðlesið tímarit og á ég sæti í
blaðstjórn þess. Við fjöllum
um listirog menningarmál af
ýmsu tagi og höfum náð mikilli
útbreiðslu", segir Jane Levy
Read, Ijósmyndari frá San
Francisco, en hún er stödd
hér á landi I tilefni af opnun
sýningar á Ijósmyndum
hennarí
Stúdentakjallaranum.
„Ég er hér aðeins í 10 daga og
fer þá til New York. Fegurðin hér
er ótrúleg, jafnvel þótt veðrið
hafi verið heldur þungbúið. Fyrir
Ijósmyndara er ótrúlegt efni hér -
ég sá miðnætursólina um daginn
og ég hef varla séð nokkuð sem
jafnast á við það um ævina. Von-
andi kemst ég hingað aftur til að
taka fleiri myndir. Maðurinn
minn, sem er kvikmyndastjóri,
hefur mikinn áhuga á að koma
hingað og filma,“ sagði Jane.
„San Fransjsco-hvernig er að
búa þar?“
„Það er að mörgu leyti alveg
stórkostlegt. Þar er sannarlega
mikið um að vera. Ég hef unnið
mikið með kvennahreyfingunni
þar og tók m.a. þát í gerð bókar-
innar „Our bodies - ourselves"
(frumútg. af „Kvind kend din
krop“ á ísl. „Nýi kvennafræðar-
inn“), en sú bók varð metsölubók
í Bandaríkjunum.
„Hvað geturðu sagt okkur um
þróun bandarísku kvenna-
hreyfingarinnar?"
„Ég get ekki neitað að ég er í
nokkrum vafa um þær hreyfingar
sem virðast sterkastar núna.
„Aðskilnaðarstefnan" er mjög
ráðandi og það má segja að ein-
angrun kvenna frá umhverfinu og
þá einkum frá karlmönnum sé
orðin vinsælasta leiðin. Sjálf hef
ég alltaf gert það sem ég hef ætlað
„Hrædd um að bandaríska kvennahreyfingin sé komin á villigötur“ segir Jane. Myndina tók ívar Brynj'
ólfsson.
„Stórkostlegt land
fyrir ljósmyndara”
Jane Levy Reed, sem sýnir myndir sínar
segir bandaríski Ijósmyndarinn
í Stúdentakjallaranum
mér og aldrei fundið fyrir erfið-
leikum vegna þess að ég er kona
eða vegna þess að ég er gyðingur.
En auðvitað hafa margar konur
lent í því og kvennahreyfingin var
gífurlega þýðingarmikið afl. En
mér finnst hún vera komin á vill-
igötur. Ég bý sjálf í miðju
hommahverfinu í San Fransico
og það má segja að hliðstæðir
hlutir séu að gerst nú í samtökum
homósexual fólks.
Hommar hafa verið mjög af-
skiptir og niðurlægðir í banda-
rísku þjóðfélagi, en nú er eins og
það sé að verða tíska að vera
hómósexual. Auðvitað er sumum
fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt
að vera hommi, en fyrir aðra
virðist þetta vera tískufyrirbæri
sem stöðugt þarf að auglýsa.
Það væri hægt að segja margt
og mikið um þetta mál, sem ég
hef kynnst mjög vel í San Fran-
sisco. í bandarísku þjóðfélagi
hafa alltaf risið upp hreyfingar af-
skiptra hópa, hreyfingar sem
vilj a bylta öllu. Sj álf var ég dæmi-
gerður bandarískur hippi á sínum
tíma og auðvitað komum við mis-
vel út úr því tímabili. En mér
finnst öfgarnar í þessum hreyf-
ingum í dag vera uggvænlegar og
það er hætt við að það komi ekki
allir niður á báða fætur, þegar
þessi bylgja er gengin yfir. “
Sýning Jane verður opin út
júlímánuð og eru myndimar allar
til sölu. þs
(Ljósmyndir Astrid Bergmann-Sucksdorff, Sweden Now)
Viltu?
Efþú..
og knúsar.