Þjóðviljinn - 22.07.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.07.1983, Blaðsíða 11
Föstudagur 22. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 . bragði, vökumaðurinn hugljúfi sem helgaði allt sitt líf því réttlæti og þeim sannleik sem felst í barátt- unni fyrir málstað allra þeirra sem erfiði og þunga eru hlaðnir, barátt- unni fyrir betra lífi, bjartari fram- tíð. Verkamaðurinn sem frá unga aldri til æviloka lagði nótt með degi þegar mestu varðaði að standa vörð um fjöregg alþýðusamtak- anna, verkalýðshreyfinguna sjálfa sameininguna og hann vék aldrei af þeim verði. Eðvarð var einn þeirra forustu- manna sósíalismans sem svo var vandur að virðingu sinni og mikil- vægi þess starfs sem hann bar á höndum að á hann féll aldrei skuggi í lífi hans eða athöfnum, hanri var sósíalisti af hug og hjarta og svo trúr sinni hugsjón eins og hann var vinafastur. Snemma á árum var hann kjör- inn til forustu í félagsskap róttækra verkamanna og þeirri forustu hélt hann æ síðan og þar naut hann sín best, þar var hann allur vegna skoðanna sinna og hæfileika sem einkenndust af öryggi og festu og sterkri ábyrgðartilfinningu. Þeir sem kynni höfðu af mannkostum hans gjörhygli og viljafestu vita hverju hann áorkaði með sínum við sem oftast, og enn er mér ljós í minni að hafa kynnst skrifstofulíf- inu á Dagsbrún á þeirri einstæðu miðstöð reykvískra verkamanna, og það var mér ímynd þess að koma þar til samfunda sem lærðir menn ræðast við, svo lágu verk- lýðsmálin mönnum létt á tungu, þýðing þeirra fyrir hvern og einn, alþýðu landsins og allt þjóðlífið. Á þessum viðræðufundum á Dags- brúnarskrifstofunni vorið 1947 og síðar skildist mér til fulls hvers- vegna Verkamannafélagið Dags- brún var það afl innan þjóðfélags- ins sem raun bar vitni. Náin sam- staða félaganna innan skrifstof- unnar sem utan og hiklaus fram- ganga út til baráttunnar þegar á reyndi, það var aflvakinn. Verka- mennirnir í stjórn Dagsbrúnar og allir hinir voru vissulega lærðir menn, allir höfðu þeir gengið í skóla harðrar lífsbaráttu og þaðan báru þeir sína lærdóma, auk þess sem skrifstofan var skólastofa, þeirra lærði skóli. Að minnast þessara samfunda og þeirra mörgu verkamanna sem ég hafði kynni af í Dagsbrún og þess menningarríka, frjálsa og hlý- ja félagsanda sem var höfuðstyrkur og einkenni samtakanna, það er að fátæktarinnar sem er veldi auðvaldsins yfir lífsafkomu ís- lensku þjóðarinnar. Á kveðjustund þakka ég af alhug vináttu Eðvarðs og þá alvöru- þrungnu lífsgleði sem frá honum geisllaði á svo mörgum samveru- stundum, það er dýrmæt tilhugsun að hafa unnið með honum svo langan vinnudag að sameiginlegum hugsjóna og framfaramálum, og hafa jafnframt kynnst ást hans til landsins, heiðanna og fjallanna sem hann sótti heim á fáum frí- stundum, og skynja þrá hans til hins óbundna frelsis í faðmi ís- lenskrar náttúru, þar féll honum mikið sólskin í fang. Og hann dó í miklu sólskini á ferð um landið sitt með sinni ástríku eiginkonu sem hann unni svo heitt og virti. Og á kveðjustund minnist ég móður hans heima á Litlu-Brekku og þess ástríkis sem ofið var gullnum þráð- um móðurkærleikans frá móður til sonar og hvílíka umhyggju Eðvarð bar fyrir móður sinni. Með þessum kveðjuorðum til Eðvarðs, verkamannsins hugljúfa, sendi ég ekkju hans Guðrúnu Bjarnadóttur og öðrum aðstand- endum hugheilar samúðarkveðjur. Verði ljósið sem þú gafst honum lás og slá fyrir þá sannfæringu sína. Þrátt fyrir það náði hann því að vera kjörinn á Alþingi fslendinga og sitja þar í áratugi og njóta virðingar allra þeirra sem honum kynntust og vinna þar að mörgum hagsmunamálum íslenskrar al- þýðu. Ég held að enginn sem kemst í forystusveit íslenskrar. verkalýðs- hreyfingar geti óskað sér betri leiðbeinanda en Eðvarðs Sigurðs- sonar, og hafi ég nemandinn ekki numið fræðin er það ekki læri- meistaranum að kenna heldur tor- næmi nemandans. í stjórn eins stórs félags og Dags- brúnar getur ekki einn maður farið með alla samningagerð, því höfum við skipt þeim á milli okkar. Ég neita því ekki að ég sakna þess inni- lega að geta ekki tekið upp símann og spurt vin minn Eðvarð ráða þeg- ar mér hefur fundist ég einn og ráðalaus, nú er þetta samband rofið. Með Eðvarði hef ég misst góðan vin, ég sakna þeirra stunda er ég fór til hans, í næsta herbergi til að ræða málin, bæði þau sem voru félagsleg og eins um lífið og tilveruna, sem við gerðum oft. Ég mun ekki rekja hér lífshlaup Eðvarðs, til þess verða aðrir, en ég óvenju nærgöngull. Á aðeins viku hafði hann hrifið á brott tvo af mín- um bestu vinum og helstu samverk- amönnum allt frá því að við hjónin fluttum til Reykjavíkur haustið 1964. Með Eðvarði Sigurðssyni er horfinn af vettvangi einn af áhrifa- mestu og sterkustu forystu- mönnum, sem samtök verka- manna hafa eignast, forystumaður, sem var hertur í fátækt og miskunn- arleysi kreppuáranna, maður, sem aldrei eitt andartak missti sjónar af því, sem hann taldi verkafólki vera fyrir bestu hverju sinni, maður sem hugsaði eins og verkamaður til hinnar hinstu stundar. Allt frá því að vinstri menn undir forystu þess mæta manns, Sigurðar heitins Guðnasonar unnu sigur í stjórnarkjöri í Verkamannafé- laginu Dagsbrún árið 1942 og til aðalfundar félagsins 1982 átti Eðvarð sæti í stjórn félagsins, fyrri helming tímabilsins sem ritari og síðari heiminginn sem formaður og starfsmaður Dagsbrúnar var hann frá 1944 til æviloka. Allan þennan tíma var hann helsti forystumaður félagsins og raunar ekki aðeins for- ustumaður verkamanna í Reykja- vík heldur og verkafólks á öllu Miðstjórn ASÍ undir forystu Hannibals Valdimarssonar og Eðvarðs Sigurðssonar. Snorri Jónsson, Ásmundur Stefánsson og Eðvarð á ASÍ fundi. hljóðlátu rökfærslum sem var lífs- regla hans og skapgerð. Eðvarði Sigurðssyni kynntist ég fyrst á vordögum 1947 þá nýfluttur til Reykjavíkur, hafði þó séð hann og heyrt áður. Leiðsagnar hans innan verkalýðssamtakanna hafði ég notið til jafns við aðra verka- menn á íslandi þegar baráttan um brauð fátæka mannsins stóð sem hæst á tímum atvinnuleysis og kaupkúgunar og þar af leiðandi harðra stéttaátaka. Frá árinu 1942 höfðu þeir setið í stjórn Dagsbrún- ar Sigurður Guðnason, Hannes M. Stephensen og Eðvarð Sigurðsson, valinn maður í hverju rúmi, menn sem skildu til hlítar sitt hlutverk innan verkalýðshreyfingarinnar og forystuhlutverk Dagsbrúnar. Frá árinu 1944 voru þeir starfs- menn Dagsbrúnar Hannes og Eðvarð, þá var skrifstofa félagsins í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, hvorki var hún víð til veggja né hlaðin dýrum húsgögnum, en þangað inn lögðu margir verka- menn leiðir sínar að loknu dags- verki, rétt til að koma við og skipt- ast á skoðunum, segja fréttir af sín- um vinnustað og spyrja tíðinda og þannig urðu starfsmenn Dagsbrún- ar kunnugir á vinnustöðum borgar- innar. Oft voru margir menn sam- ankomnir í senn á skrifstofunni sinni og þó virtist aldrei vera þröng þar innan dyra enda var engum hurðum læst. Þarna hlustaði ég á samtöl og órðræður manna og naut þess að vera einn af þeim. Oftast snérust umræðurnar um dægurmál samtakanna, vinnuna, aðbúnað á vinnustað, kaup og kjör og horfur í atvinnumálum eða þá væntanlega samninga sem oft voru dagskrár- málin og hvort knýja þyrfti á með verkfalli. Á þessum dögum sá ég hve sam- starfið var náið milli starfsmanna félagsins og verkamannanna sem hópuðust inn á skrifstofuna, það varð mér sönn unun að staldra þar minnast Eðvarðs, svo var hans merka ævistarf samgróið verk- lýðsbaráttunni og lífsafkomu al- þýðuheimilanna í blíðu og stríðu. í tvo áratugi var ég í stjórn Dags- brúnar.og hefi því margs að minn- ast frá samstarfi við Eðvarð og alla þá ágætu félaga sem þar lögðu hönd á plóg, sú minning er mér jafn dýrmæt sjálfri lífsgleðinni, svo mikilsvert að vera þátttakandi í þeim störfum sem gegna því hlut- verki að þoka málefnum alþýðunn- ar fram til menningarríkara mann- lífs. Frá þessum árum er mér sér- staklega minnisstætt hve framlag Eðvarðs var byggt á traustum grunni, skipulega framsett og sann- færandi, hve andlegt atgervi hans féll um djúpan farveg mannvits og mannkærleika. Nú þegar Eðvarð er fallinn og minningarnar hópast að eru mér efst í huga mikilvægustu störfin hans í þágu íslenskrar alþýðu, ís- lensku þjóðarinnar, uppbygging verklýðssamtakanna og stefnu- mörkun baráttunnar sem allt var unnið í anda sósíalískrar lífshyggju og byggt á því bjargi. Það merki stendur og ég hefi þá sannfæringu að það verði borið fram um alla framtíð, borið fram til sigurs, það er að heiðra minningu verka- mannsins Eðvarðs Sigurðssonar, sem á ungum aldri hóf merki verk- lýðssamtakanna til vegs og virðing- ar og bar það í fararbroddi í full fimmtíu ár. Ég sá Eðvarð fyrsta maí síðast- liðinn þar sem hann gekk í öflugri kröfugöngu verklýðssamtakanna undir fána Dagsbrúnar, það var gangan sem hann þreytti allt sitt líf, svo var hann trúr sinni hugsjón. Ég veit að okkur öllum er í mun að heiðra minningu Eðvarðs og standa vörð um lífsafrek hans og hugsjónir, einingu alþýðusamtak- anna í baráttunni fyrir betra lífi, bjartari framtíð, fyrir útrýmingu fátæktar á íslandi og afnámi orsaka Guðrún, ástarstjarnan hans, þér að leiðarljósi. Tryggvi Emilsson. Hinn9. júlí sl. lést Eðvarð Sig- urðsson skyndilega austur á Egils- stöðum, þar sem hann var í sumar- fríi. Þótt við sem þekktum til og störfuðum með Eðvarð vissum um sjúkleika hans, þá datt okkur fæst- um eflaust til hugar að svo brátt bæri andlát hans að. Ég hafði talað við hann nokkrum dögum áður til þess að tilkynna honum andlát vinar okkar og sam- starfsfélaga Sigurðar Guðgeirs- sonar, og ræddi þá við hann um að gera ráðstafanir til þess að hann kæmist til að vera við jarðarför Sig- urðar og fara aftur austur sama dag. En ekki fara allir hlutir eins og maður ætlar, því á sunnudag var mér tilkynnt andlát Eðvarðs. Og á mánudag var ég viðstaddur komu kistu með líki hans og skömmu síð- ar sama dag kistulagningu Sigurðar Guðgeirssonar. Ég kynntist Eðvarð fyrst er ég kom inn í stjórn Dagsbrúnar 1958. Ekki veit ég hvað olli því að ég tók sæti í stjórn félagsins, en ekki er mér grunlaust um að hann hafi átt sinn hlut í þeirri ákvörðun. Á milli okkar tókst strax góð vinátta og skilningur sem hélst alla tíð, eða þar til sá batt enda á, sem öll bönd slítur. Eðvarð Sigurðsson var einstök- um gáfum gæddur og gat tileinkað sér flóknustu mál, sem aðrir þurftu langskólanám til að nema. Hann naut ekki langs skólanáms í æsku, en var þeim mun áhugasamari að fræðast um það sem hann hafði áhuga á. Eðvarð tileinkaði sér strax á unglingsárunum baráttuna fyrir bættum kjörum verkafólks og barðist ótrauður fyrir rétti þess alla tíð. Hann var einn þeirra fáu ís- lendinga sem settur var á bak við verð að segja það að kynni mín af Eðvarði Sigurðssyni hafa auðgað líf mitt. Á stundum fannst mér hann um of íhaldssamur og þröng- sýnn. Ég minnist þeirra stunda þegar ég, sem fannst ég ansi ungur, kom til hans og sagði: „Þetta geng- ur ekki lengur Eðvarð, við verðum að gera eitthvað í málinu". Þá svar- aði hann: „Halldór minn finnst þér þessi mynd á almanakinu ekki fal- leg“. Hvað segja menn þegar svona er svarað, þeir verða orðlausir, og fara að hugsa málið betur. En eitt kenndi Eðvarð mér og það var að gefast ekki upp heldur þrauka, en vera þó tilbúinn að víkja frá ýtrustu kröfum, og þrátt fyrir að ekki væru sett á blað öll þau mál, sem menn urðu sammála um, þá stæði það sem sagt hafði verið. Nú er Eðvarð Sigurðsson allur og við Dagsbrúnarmenn höfum á skömmum tíma séð á bak tveim af okkar ágætustu félögum. Þau eru þung sporin þessa dagana, en hvað um það við söknum og tregum góða félaga, en jafnframt erum við þakklátir fyrir að hafa kynnst slík- um mönnum, og fengið tækifæri til að starfa með þeim. Guðrún mín, ég færi þér og öll- um aðstandendum Eðvarðs inni- legustu samúðarkveðjur mínar og konu minnar. Halldór Björnsson. Mánudaginn 11. þessa mánaðar var ég ásamt fjölskyldu minni staddur í húsi danska Verkamann- asambandsins í Kaupmannahöfn. Vegna andláts vinar míns, Sigurðar Guðgeirssonar, þurfti ég að hafa símasamband við skrifstofu Verka- mannasambands íslands í Reykja- vík. Þegar ég hafði lokið erindi mínu sagði Kolbrún: „Ég segi þér slæmar fréttir, hann Eðvarð er dá- inn“. Tilfinningum mínum á þess- ari stundu reyni ég ekki að lýsa. Maðurinn með ljáinn hafði gerst landinu og launþegahreyfingarinn- ar innan ASÍ en í miðstjórn ASÍ átti hann sæti um langt skeið. Eðvarð átti stærstan hlut í samn- ingum Dagsbrúnar og atvinnurek- enda, en þeir samningar urðu síðar fyrirmynd samninga annarra verkalýðsfélaga og eru meginstofn þess samnings Verkamannasam- bandsins, sem í gildi er í dag. Hæfni Eðvarðs sem samninga- manns launþegasamtakanna var óumdeild jafnt af samherjum sem þeim er „sátu hinum megin við borðið" og þá ekki síður vand- virkni hans og heiðarleiki. Orð hans voru jafngild skriflegum samningi og virðing fyrir þeim samningum, sem gerðir voru, var hafin yfir allan efa. Þegar almennu verkalýðsfélögin tóku þá ákvörðun að stofna Verka- mannasambands íslands árið 1964, var Eðvarð kjörinn fyrsti formaður þess, og gegndi því allt til haustsins 1975, eða sem næst llVi ár. Hann átti því manna mestan þátt í því að móta starf og stefnu sambandsins í upphafi og að þeim grunni mun það lengi búa. Hér verður engin tilraun gerð til þess að rekja störf Eðvarðs, en öll miðuðu þau að því að gera hlut þeirra, sem minnst máttu sín og versta aðstöðu höfðu til þess að koma ár sinni fyrir borð, betri og sem bestan, ég minni aðeins í því sambandi á hlut hans í atvinnuleys- istryggingunum og lífeyrissjóðum, en þeim helgaði hann krafta sína mest síðustu árin. Þó að við Eðvarð Kristinn Sig- urðsson, eins og hann hét fullu nafni, hefðum þekkst um allnokk- urn tíma sem samherjar í verka- lýðsmálum og á pólitísku sviði, tókust ekki með okkur veruleg ná- in kynni fyrr en ég gerðist starfs- maður Verkamannasambands ís- lands haustið 1964. Með Eðvarð var ákaflega gott að vinna, hann var ljúfmenni í umgengni, hjarta-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.