Þjóðviljinn - 22.07.1983, Page 5
Föstudagur 22. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Eigandi Burstafells:
Þjónusta við hverfið
Vill flytja sig um set vegna þrengsla
„Ég viðurkenni að það er ekki
rúmt um þennan rekstur hér enda
var lóðinni úthlutað fyrir 21 ári síð-
an. Þetta er samt engin stórverslun
og umferðin í samræmi við það‘%
sagði Kristinn Breiðfjörð eigandi
Burstafelis, er hann var inntur álits
á þeim staðhæfíngum íbúa við
Hamarsgerði að það stafaði slysa-
hætta af staðsetningu fyrirtækisins
þar. „Kröfurnar um bílastæði og
frágang á lóðum eru allt aðrar í dag
envar fyrir20 árum“,sagði Krist-
inn ennfremur, „og þess vegna er
ég að sækja um nýja lóð við Soga-
veginn fyrir reksturinn".
Lagði Kristinn áherslu á það að
hann vildi vera áfram með verslun-
arrekstur í hverfinu, hann hefði
verið brautryðjandi þar fyrir 20
árum síðan, og hann teldi sig fyrst
og fremst vera að veita þjónustu
við Smáíbúðahverfið og næstu ná-
grannahverfi. Varðandi útivistar-
svæðið neðan Sogavegar og þá
deilu hvort hann ætti að fá að
byggja þar þá benti hann á sem
fordæmi, byggingar sem þegar hafa
risið þar. Hann kvað það ekki rétt
að hann væri búinn að láta teikna
og hanna húsnæði á lóðina, það
eina sem hefði verið gert, að beiðni
skipulagsnefndar, hefði verið að
sýna hvernig hugsanleg bygging
kæmi út í landslagi, en vissulega
hefði hann ákveðnar hugmyndir
um hvernig nýtt húsnæði verslun-
arinnar ætti að líta út ef byggingar-
leyfi fengist við Sogaveginn.
~®þj
Sigrún Stefánsdóttir og Ólafur
Ragnarsson hjá Vöku kynna nýju
heilsuræktarbókina fyrir blaða-
mönnum.
Mynd: -eik.
Frú Unnur Ágústsdóttir formaður Thorvaldsensfélagsins afhendir Sævari
Halldórssyni yfirlækni gjöfína.
Ný heilsuræktarbók
Rausnarleg gjöf
Eitthvað
fyrir
alla
Bókaútgáfan Vaka hefur nú gef-
ið út fyrstu alhliða heilsuræktar-
bókina, sem út kemur á íslensku.
Hún nefnist „I fullu fjöri“ og hefur
Sigrún Stefánsdóttir, fréttamaður
og íþróttakennari tekið hana
saman.
Bókin er við það miðuð, að hún
geti jafnt þjónað ungum sem öldn-
um, konum og körlum, hverjar
sem óskir fólks eða sérþarfir eru í
heilsuræktinni. Af síðum bókar-
innar getur fólk valið sér æfingar
eftir þörfum sínum um þessar
mundir, bætt síðan við öðrum
æfingum, og fikrað sig þannig
áfram skref fyrir skref undir leið-
sögn Sigrúnar. Æfingaþörfin
breytist er aldurinn færist yfir fólk,
ogerfyrirþvíséðíbókinni, þannig
að hún á að nýtast ár eftir ár.
Heilsuræktarbókin „í fullu fjöri“
er í stóru broti, innbundin, með
plasthúðaðri kápu. í henni eru
hundruð teikninga, skýringar-
mynda og ljósmynda, lesendum til
glöggvunar. Ljósmyndirnar tók Jó-
hannes Long, en teikningar eru
unnar af starfsmönnum Diagram
Visual Information Ltd. í Eng-
landi, en það fyrirtæki hefur sér-
hæft sig í gerð myndræns fræðslu-
efnis fyrir bókaútgáfu, fjölmiðla og
skóla. Æfingarnar hafa allar hlotið
viðurkenningu lækna og annarra
sérfræðinga á sviði heilbrigðismála
og heilsuræktar.
Prentvinnsla bókarinnar fór
fram í Prentsmiðjunni Odda hf. og
hjá Prentstofu G. Benediktssonar,
en Bókfell hf. annaðist bókband.
Bókin kostar 968 kr. útúr búð.
-áþj
Bílbelti —
Af hverju
notar þú
þaðekki
||U^FERÐAR
Barnadeild St. Jósefsspítala,
Landakoti barst nýlega höfðingleg
gjöf frá Thorvaldsensfélaginu. Er
hér um 100.000 kr. fjárupphæð að
ræða sem varið skal til endurbóta á
húsnæði deildarinnar.
Endurbæturnar, sem gerðar
verða, eru m.a. að bætt verður
aðstaða fyrir börn, sem þurfa vist-
un á einbýli eða í einangrun, en
jafnframt verður gert ráð fyrir að
foreldri geti dvalist á deildinni með
barni sínu. Thorvaldsensfélagið
Nýtt verslunarhús hjá Kaupfélagi Skagfirðinga
Skagfirðingabúð með nýju sniði
Fyrir skömmu opnaði Kaupfélag
Skagfírðinga nýja verslun á
Sauðárkróki. Ber hún nafnið Skag-
fírðingabúð, eftir tjaldbúð hinni
miklu, sem Skagfírðingar komu sér
upp fyrir Alþingishátíðina á Þing-
völlum 1930, notuðu þar og síðan
við samkomuhald heima í héraði
lengi síðan.
Þessi nýja verslun er með
stórmarkaðs-sniði og með tilkomu
hennar leggur K.S. niður 6 eldri
verslanir á Sauðárkróki og flyst
þjónusta þeirra í hina nýju búð.
Þessar verslanir eru lagersalan á
Eyrinni, Grána, ritfangadeild,
vefnaðardeild, byggingadeild og
kjörbúð við Smáragrund.
Árið 1975 fékk K.S. lóð fyrir
höfuðstöðvar sínar. Ári síðar hóf-
ust byggingarframkvæmdir. Tekur
félagið nú í notkun þann hluta
hússins, sem hýsir verslanir þess.
Flatarmál byggingarinnar er
3.473 ferm. Hluti hússins er á
þreinur hæðum og eru efri hæðirn-
ar 800 ferm. Hafa þær verið
steyptar upp en arkitekt var Gunn-
ar Guðnason. Verkfræðistofa
Eyvindar og Braga gerði burðar-
þolsútreikninga og járnateikningar
en Raftákn hf. á Akureyri vann
stýrirásamyndir fyrir hita- og kæli-
kerfi. Búðarinnréttingar eru frá
Modul Inventar A/S í Danmörku
en um uppsetningu á þeim sá Birgir
ísleifsson, verslunarráðunautur
SÍS. Yfirsmiður var Pétur Péturs-
son, byggingameistari KS og múr-
arameistari Haraldur Hróbjarts-
son. Vélaverkstæði KS sá um raf-
lagnir, hitalagnir og alla vélsmíði
og með fulltingi frystivélaverk-
stæðis Sveins Jónssonar í Reykja-
vík um uppsetningu frysti- og kæli-
lagna með tilheyrandi vélabúnaði.
Flestar verslanir KS á Sauðár-
króki hafa lengi verið í gömlu og
ófullnægjandi húsnæði. Breytist nú
sú aðstaða öll mjög til hins betra,
rekstrarhagkvæmni og vinnu-
aðstaða færist til nútímahorfs og
þjónusta við viðskiptamenn á að
stórbatna. Vöruhússtjóri er
Magnús Sigurjónsson.
Kaupfélagsstjóri KS er Ólafur
Friðriksson en stjórnarformaður
Gunnar Oddsson, Flatatungu.
-mhg
Verslunarmannahelgin:
Bind-
indis-
mót í
Galta-
læk
Bindindismót verður í Galtalæk
um verslunarmannahelgina að
venju og verður þar margt til
skemmtunar. Stendur það frá
föstudegi til mánudags en íslenskir
ungtemplarar og Umdæmisstúka
Suðurlands annast undirbúning og
framkvæmd.
Hljómsveitin Dansbandið og
plötutekið DEVO leika fyrir dansi,
Jörundur og Laddi stjórna barna-
tíma, Þórskabarett verður sýndur
Þúsundir gesta hafa sótt bindindismótið í Galtalæk undanfarnar verslun-
armannahelgar.
og skipulagðir leikir, Tívolítæki,
góðakstur, hljómleikar, varðeldur
og flugeldasýning. Verð aðgöngu-
miða fyrir allan tímann er 450
krónur fyrir fullorðna. Börn 12 ára
og yngri greiða ekki aðgöngueyri.
Á undanförnum árum hefur ver-
ið unnið að uppbyggingu aðstöðu
til mótshaldsins og í sumar verður
reist 240 fermetra funda- og
ráðstefnuhús sem notað verður
fyrir veitingasölu á bindindismót-
um framtíðarinnar. í Galtalæk eru
tjaldstæði skjólgóð og þurr, renn-
andi vatn og vatnssalerni eru á
svæðinu og hreinlætisaðstaða því
góð. Löggæsla og sjúkrahjálp
verða á mótstað. Allir þeir, sem
ekki nota áfengi á þessum stað, eru
velkomnir.
gaf Barnadeildinni kr. 100.000,- á
afmæli spítalans hinn 16. október
s.l. Með því fé og því sem nú var
gefið, mun verða hafist handa nú í
sumar við breytingar á deildinni.
Frú Unnur Ágústsdóttir, for-
maður Thorvaldsensfélagsins af-
henti gjöfina, en yfirlæknir barna-
deildar, Sævar Halldórsson veitti
henni viðtöku. Hann þakkaði
Thorvaldsensfélaginu gjöfina og
margra ára stuðning við Barna-
deildina.
-áþj
Leiðrétting
f fyrsta hluta greinar Steins
Stefánssonar um Þjóðfrelsi ís-
lendinga, sem birtist í blaðinu
á miðvikudag eru nokkrar
prentvillur en tvær þó
meinlegastar. Björn Jónsson,
ráðherra næstur á eftir Hann-
esi Hafstein, er kallaður
Bjarni Jónsson og Hermann
Jónasson, leiðtogi Framsókn-
arflokksins er sagður Jónsson.
Á þessu biðst blaðið vel-
virðingar. Þess skal og getið
að greinin var skrifuð áður en
George Bush varaforseti
heimsótti fsland.
BULGARIA
0RL0FSFERÐIR
Alla mánudaga um Kaup-
mannahöfn og Sofiu til
Varna.
Besta baðströnd Evrópu
sumarhús - hótel-matar-
miðar. 80% uppbót á
gjaldeyri - skoðunarferðir
m.a. til Istanbul með skipi.
Ódýrasta landið í Evrópu.
Verð 3 vikurfrá kr. 37.000
á Grand Hotel Varna en
kr. 28.000- á Shipka Am-
bassador.
Sumarhús kr. 25.000-
örfá sæti laus.
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoðarvogur 44
sími 91-86255