Þjóðviljinn - 22.07.1983, Qupperneq 19
Föstudagur 22. júlí 1983 "ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
RUV0
frá lesendum
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar Þulur velur og kynnir 7.25
Leiklimi Tónleikar.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þátta Árna
Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Örn Bárður Jónsson
talar. Tónleikar
8.30 Ungir pennar Stjórnandi: Dómhildur
Sigurðardóttir (RÚVAK).
8.40 Tónbilið
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Dósa-
strákurinn" eftir Christine Nöstlinger
ValdísÓskarsdóttir les þýðingu sina (5).
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar. Tón-
leikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustu-
gr. dagþl. (útdr.).
10.35 „Það er svo margt að minnast
á“Torfi Jónsson sér um þáttinn.
11.05 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum
árum. Umsjónarmaður: Hermann Ragn-
ar Stefánsson.
11.35 „Sólveig", smásaga eftir Elísabetu
Helgadóttur Höfundur les.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 „Refurinn í hænsnakofanum" eftir
Ephraim Kishon í þýðingu Ingibjargar
Bergþórsdóttur. Róbert Arnfinnsson les
(20),
14.20 A frívaktinni Sigrún Sigurðardóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
17.05 Af stað í fylgd með Ragnheiði Da-
viðsdóttur og Tryggva Jakobssyni.
17.15 Upptaktur - Guðmundur Benedikts-
son. - Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50Við stokkinn Gunnvör Braga heldur
áfram að segja börnunum sögu fyrir
svefninn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Sumarið mitt Þorsteinn Vilhjálms-
son.
21.30 Frá samsöng Karlakórs Reykjavik-
ur í Háskólabfói i nóv. s.l.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Sögur frá Skaftareldi" eftir Jón
Trausta Helgi Þorláksson fyrrv. skóla-
stjóri les (21).
23.00 Náttfari Þáttur i umsjá Gests Einars
Jónssonar (RÚVAK).
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.10 Á næturvaktinni - Ásgeir Tómas-
son.
03.00 Dagskrárlok.
RUV#
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
20.50 Steini og Olli Skopmyndasyrpa með
Stan Laurel og Oliver Hardy.
21.05 „1984“. Fyrir 35 árum dró George
Orwell upp dökka mynd af einræðisriki
framtiðarinnar í skáldsögunni „1984“,
sem selst hefur í milljónum eintaka og
þýdd hefur verið á meira en 30 tungumál,
þar á meðal islensku. I þessari mynd ber
hinn heimskunni fréttamaður, Walter
Cronkite, saman lýsingu skáldsins á
heimi „Stóra bróður'' og þeim veruleika
sem við blasir árið 1984. Þýðandi er Bogi
Ágústsson.
22.00 Dauðinn á skurðstofunni. (Green
for Danger). Bresk sakamálamynd frá
1946. Myndin gerist á sjúkrahúsi i ná-
grenni Lundúnaárið 1944. Tveir sjúkling-
ar látast óvænt á skurðarborðinu. Grunur
vaknar um að ekki sé allt með felldu um
iát þeirra og við þriðja dauðsfallið skerst
lögreglan i leikinn. Þýðandi: Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.35 Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 21,05
,1984‘
Það mun hafa verið árið 1948
sem út kom skáldsagan „1984“
eftir George Orwell. Fjallar
hann þar um mannlífið í ein-
ræðisríki framtíðarinnar og er
það ekki beinlínis heillandi.
Saga Orwells hefur verið
þýdd á meira en 30 tungumál,
þar á meðal íslensku, og selst í
miljónum eintaka.
í kvöld sýnir Sjónvarpið
mynd þar sem Walter Cronkite,
heimskunnur fréttamaður, ber
saman lýsingu Orwells á heimi
„Stóra bróður" og þeim veru-
leika, sem ætla má að við okkur
jarðarbúum blasi á næsta ári,
árinu „1984“. _ mhg.
Haukur Guðmundsson kom að
máli við okkur og sagðist ekki
átta sig á ástæðum fyrir þeim mis-
mun, sem væri á upphæð
tekjutryggingar til sambýliskonu
sinnar, Halldóru Olafsdóttur,
Ljósheimum 8A, og átti þá við
mánuðina júní og júlí. Tók
Haukur það fram, að Halidóra
væri óvinnufær.
Samkvæmt tilkynningum frá
Tryggingarstofnun ríkisins er
tekjutrygging Halldóru kr.
3.310,00 í júnímánuði en hins-
vegar aðeins kr. 1.433,00 í júlí.
Vildi Haukur fá upplýsingar um
hvað ylli þessum mun.
Við höfðum samband við
Tryggingarstofnun ríkisins og
samkvæmt upplýsingum hennar
hlýtur munurinn í tekjutrygging-
unum að ligga í því að tekjur
sambýlismanns Halldóru hafi
hækkað frá síðasta útreikningi,
en tekjur beggja eru lagðar sam-
an og síðan deilt í þær með
tveimur.
„Steinninn“
Steinninn“ ekki „Grjótið
Kristín Guðmundsdóttir
hringdi út af texta á baksíðu Þjóð-
Vísnasending frá Sigurði
Sigurður Guttormsson sendir okkur eftirfarandi stökur:
Ný vísa Gömul heilræðavísa
Grátlegt er að færa fórn Aumra smámenna yfirráð
fyrir sakir heimsku og vanans. aldrei máttu þola.
Alverst þó að öðlast stjórn Trúðu ekki á tudda náð,
úr undirlægjusafni Kanans. taktu í hornin á bola.
viljans, þar sem segir frá Gallerí
Grjóti á Skólavörðustíg.
Þar segir svo að „svo lengi, sem
elstu menn muna“ hafi tugthúsið
þar við götuna verið kallað
„Grjótið“.
Kristín segir að það hafi alltaf
verið talað um „Steininn" við
Skólavörðustíg og „Grjótið" sé
síðar til komið.
Bridgeþættirnir í
Þjóðviljanum:
Melda pass!
Hvernig er þetta með umsjón-
armann bridge-þáttarins, er hann
ekki með fullum sönsum? Það er
ekki nein leið fyrir fólk sem kann
að spila bridge að lesa svona vit-
leysu eins og var í síðasta sunnu-
dagsblaði. Ekki eru nú bridge-
þættirnir í Mogganum uppá
marga fiska en þó eru þeir
skömminni skárri en í Þjóðviljan-
um! Ég melda pass! Hvernig væri
að reyna að bæta eitthvað úr
þessu?
Bridgeáhugamaður
Spurt
og
svarað
Nú skuluð þið ríma. Skrifið rímorðin í auðu reitina.
Hörpuslagarinn
Gauti tók sér hörpu í hönd
gekk hann svo með sjávar.
Gauti sló það fyrsta slag:
, stjarnan fauk í myrkva....
Hann sló kólf úr lási,
fagra kú af.
Hann sló hest af stalli,
fagra hind af.
Hann sló skip af hlunni,
fagra mey frá.
Gauti gekk um hvítan sand,
þar var Magnhild rekin á....
Það var Gauta mikil pín:
dauða kyssti hann Magnhild.
Hann tók hennar bjarta hold,
gróf það ofan í vígða.
Hann tók hennar bjarta hár,
spann sér úr því strengi.
Þessar myndir teknaði Arnaidur Máni, 5 ára, fyrir barna-
hornið.
Krakkar! Verið dugleg að senda okkur teikningar og frásagnir
af skemmtilegum atvikum sem hafa komið fyrir ykkur í sumar.
Utanáskrift: Barnahornið, Þjóðviljanum, Síðumúla 6, 105,
Reykjavík.