Þjóðviljinn - 23.08.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 23.08.1983, Blaðsíða 12
Félag einstœðra foreldra: 16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. ágúst 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Kjördæmisráðstefna Ab á Vestfjörðum verður haldinn að Birkimel í V-Barðastrandarsýslu dagana 10. og 11. september. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins. Dagskrá: LaugardagurrRáðstefnan hefst kl. 13.00. Skýrsla formanns. Forval og forvalsreglur. Framtíð byggðar á Vestfjörðum - lífskjör - atvinnuskilyrði. Stjórnmálaviðhorfið og fleira. Framsögu- maður Svavar Gestsson. Sunnudagur-.Nefndarstörf hefjast kl. 9.00. Kl. 13.00: Skipulag flokksins. Framsögumaður Svavar Gestsson. Afgreiðsla ályktana. Kosning stjórnar og uppstillinganefndar. Áætlað er að ráðstefnunni Ijúki kl. 17.00. Stjórn kjördæmisráðs Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Áríðandi félagsfundir Áríðandi félagsfundir verða í Alþýðubandalagsfélögunum á eftirtöldum stöðum í næstu viku: Daivik miðvikudaginn 24. ágúst kl. 20.30. Ólafsfirði fimmtudaginn 25. ágúst kl. 20.30 í Tjarnarborg. Mývatnssveit föstudaginn 26. ágúst kl. 21.00. Húsavík mánudaginn 29. ágúst kl. 20.30 í Snælandi. Æskulýðssamtök fatlaðra á Norður- löndum stofnuð í lok maí sl. héldu fötluð ungmenni á Norðurlöndum fund í Danmörku til þess að stofna æskulýðssamtök sín á milli. Samtökin nefnast „Fötluð ungmenni á Norðurlöndum" („Funktionshindrade Ungdomarf Norden"), FUN. Á fundinum voru samþykkt lög og stefnuskrá samtakanna. Þar segir meðal annars; að samtökin skuli vinna að samnorrænum áhugamálum fatlaðra ungmenna, samtökin eiga að koma af stað og samhæfa hina ýmsu starfsemi sem fer fram meðal æskulýðssamtaka á Norðurlöndum. Samtökunum er ætlað að vera stefnumótandi í samnorrænum málefnum fatlaðra ungmenna. Eitt fyrsta verkefni FUN verður að undirbúa þátttöku fatlaðra í alþjóðaári æskunnar 1985 og sjá til þess að þetta ár verði einnig alþjóðaár fatlaðrar æsku. FUN mun vinna að því að ekki verði litið á fatlað fólk sem sérstakan hóp, heldur verði það meðhöndlað sem eðlilegur hluti þjóðfélagsheiidarinnar. Tilgangurinn á að vera sá að sú framþróun sem á sér stað í þjóðfélaginu verði ekki fyrir útvalda heldur komi öllum til góða, jafnt fötluðum sem ófötluðum. Áskriftarsími Þjóðviijans er 81333 •, Blikkiðjan Ásgarði 1, Garðabæ onnumst þakrennusmíði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 53468 Eginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ásta Margrét Guðlaugsdóttir, Miklubraut 42 andaðist í Landakotsspítala aðfararnótt 22. ágúst Björgvin Grímsson, Jóhann S. Björgvinsson Klara Sjöfn Kristjánsdóttir. Guðrún E. Björgvinsdóttir Jón Böðvarsson Guðlaugur Björgvinsson Þórunn Hafstein og barnabörn Skelja- hellir tekinn til starfa Félag einstæðra foreldra hefur ,tekið í notkun kjallara hússins við Skeljanes 6. Nefnist kjallarinn SKELJAHELLIR og verður þar í framtíðinni félagsstarf og vonandi menningarmiðstöð fyrir félagið, segir í fréttatilkynningu frá FEF. Þarna verður aðstaða fyrir ýmsar smærri samkomur, barnabingó, spila- og kaffikvöld og í setustofu mun stjórn og starfsnefndir fá aðstöðu. Flúsið að Skeljanesi 6 tók til starfa í apríl 1981. „Við höfum litið á þetta sem tilraun, en óhætt er að segja að sú tilraun hafi gefist mjög vel,“ sagði Jóhanna Kristjónsdótt- ir, formaður FEF, í stuttu spjalli við blaðakonu um húsnæðið. „Hér hefur sjaldan komið til árekstra, en þegar við byrjuðum þessa starf- semi heyrðum við margar svartsýn- israddir, m.a. þær að hér yrði mik- ið sukkað og svona sambýli gæfist aldrei vel. Þær raddir eru nú þagn- aðar.“ 1 húsinu eru 6 íbúðir og 4 her- bergi í risi þar sem einnig er sam- eiginleg setustofa og eldhús. Dval- artími hverrar fjölskyldu eru 6 mánuðir í íbúðunum og 3 mánuðir í herbergjunum. Einstæðir foreldrar í námi hafa möguleika á lengri dvöl. Húsaleigu er mjög stillt í hóf og aðeins einn mánuður greiddur fyrirfram. Húsráðandi er Laufey Waage, en undanfarna mánuði hefur Ragnhildur Vilhjálmsdóttir leyst hana af vegha sumarleyfa. „Aðsóknin í þetta húsnæði hefur verið mjög mikil undanfarna mán- uði og ég tel greinilegt, að fólk á nú í meiri erfiðleikum á leigumark- aðnum en áður,“ sagði Jóhanna Kristjónsdóttir. Eftirlit með arnarstofninum var haft eins og áður í samvinnu við Náttúrufræðistofnun íslands. Með vissu urpu 25 arnarhjón, 22 ungar komust upp hjá 15 hjónum, varp misfórst hjá 10 hjónum. Þar að auki er vitað um tvenn hjón sem ekki urpu. Þetta mun vera í betra lagi. Úr 6 hreiðrum komust upp tveir ungar og er það fremur óvenjulegt. Heildartala arna á landinu liggur ekki fyrir fyrr en um áramót, en tala arnarhjóna er nú um 30. Tvö arnarhræ hafa fundist á þessu ári. (Frá Fuglaverndarfélagi íslands) Amarvarp í betra lagi Anna Stella, GiIIi og Hilmar Páll undu sér vel að Skeljanesi 6 þegar okkur bar þar að garði. (Ljósm. - Leifur) V élhj ólaökumenn: Tíföld hætta í umferöinni Eru ökumenn vélhjóla í tíu sinn- um meiri hættu í umferðinni heldur en ökumenn annarra farartækja? Svo virðist vera ef litið er á þá staðreynd að vélhjólaslys eru um 9% af öllum umferðarslysum, sam- kvæmt skýrslum lögreglunnar, en vélhjól eru innan við 1% af skráðum ökutækjum. Þetta kemur m.a. fram í könnun sem Guðmund- ur H. Einarsson, heilbrigðisfull- trúi, hefur gert að tilhlutan Land- læknisembættisins. Þessi könnun var unnin í kjölfar þingsályktunar, sem Alþingi samþykkti á síðasta vetri, um rannsóknir á vélhjóla- slysum. Könnunin tók til fimmtíu vél- hjólaslysa í Reykjavík árin 1981 og 1982. Áðild að þessum slysum áttu 37 ökumenn léttra bifhjóla (skelli- naðra) og 14 ökumenn bifhjóla (mótorhjóla). Af þessum hópi var fjórði hver réttindalaus, én af þeim sem voru með réttindi höfðu 66% haft þau í minna en eitt ár, þar af 53% innan við hálft ár. Á þessum tveimur árum lenti einn drengur þrisvar í vélhjólaslysum og annar tvisvar. Samkvæmt greiningum á Slysa- deild Borgarspítalans reyndust 49% af ökumönnum léttu bifhjól- anna vera alvarlega slasaðir en ein- ungis 15% ökumanna bifhjólanna. Auk þess slösuðust tveir farþegar á vélhjólum og einn gangandi veg- farandi. Af þessum fimmtíu vélhjóla- slysum urðu flest í ágúst (10) og september (17), og tiltölulega flest á kvöldin. Lang oftast var um að ræða árekstur milli vélhjóls og bif- reiðar, og í 63% þeirra tilvika tald- ist ökumaður vélhjólsins vera „í rétti“. Þegar Guðmundur kynnti þessar niðurstöður á norrænu. umferðarslysaráðstefnunni nefndi hann þá ástæðu fyrir slíkum slysum að ökumenn bifreiðanna sæju ekki vélhjólin nógu tfmanlega. Taldi hann að aukin notkun endurskins- merkja gæti komið að gagni. Varðandi aðgerðir til að draga úr vélhjólaslysum bendir Guðmund- ur H. Einarsson á betri öku- kennslu, lækkun á hámarkshraða léttra bifhjól úr 50 í 30-40 km og hugsanlega hækkun á lágmarksald- ri ökumanna slíkra bifhióla úr 15 í 16 ár. Rauði krossinn: Nýir spilakassar Aðaitekjustofn Rauða krossins, spilakassarnir eru farnir að gefa mun minna af sér en áður. Þeir skila af sér sömu krónutölu og áður en þar sem verðgildi krónunnar hefur rýrnað mjög hefur ráðstöf- unarfé félagsins minnkað stöðugt að raungildi. Frá þessu er skýrt í fréttabréfi Rauða krossins og sagt að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana og beita mikilli aðahaldssemi til að tryggja hag félagsins. Eitt aðalkappsmál félagsins hef- ur verið að fá leyfi yfirvalda til að breyta krónukössunum í fimm- krónukassa og fékkst slíkt leyfi um síðir. Þá hefur stjórn RKÍ tekið á- kvörðun um kaup á nýjum spila- kössum og verða þeir væntanlega komnir á markað hér í haust. Skemmdarverk í Hafnarfirði Fyrir helgi réðust einhverjir firði fer þess á leit við þá sem kynnu gaurarátværjarðýturásorphaug- að hafa orðið varir við grunsam- unum í Hafnarfirði og mölvuðu legar ferðir þarna í námunda, að rúður. þeir hjálpi til við að upplýsa málið. Rannsóknarlögreglan í Hafnar- -gat

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.