Þjóðviljinn - 24.09.1983, Blaðsíða 13
Helgin 24.-25. september K>83 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA '13
Þorsteinn Pálsson. Klofnar flokks-
eigendafélagið í afstöðunni?
Friðrik Sophusson. Óánægju-
deildin getur ráðið úrslitum.
Birgir ísleifur Gunnarsson. Hæg-
indamaður en metnaðargjarn.
steinn mikinn stuðning, Friðrik á
Vestfjörðum þar sem hann hefur
verið í forstjórn frystihúss í Hnífs-
dal.
Vonleysi
og vantrú
Veldi öldunganna hefur farið
mjög fyrir brjóstið á yngri mönnum
í flokknum. Sumir þeirra hafa fyllst
vonleysi en aðrir komist á þá skoð-
un að betra sé að bíða annars stað-
ar eftir því að öldungarnir lini takið
á flokknum.heldur en í námunda
við þá. Þannig hefur Ellert Schram
alþingismaður verið að hugsa um
að vera frekar áfram ritstjóri síð-
degisblaðsins heldur en þingmaður
í skjóli þessara karla. Hann veit
líka sem er, að ritstjóri DV hefur
bæði meiri áhrif í flokknum og
þjóðfélaginu heldur en óbreyttur
þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Hitt vita „ungu mennirnir" líka af
kænsku sinni og brjóstviti að öld-
ungar taka við af öldungum - og
þeir ungu verða gamlir fyrr en var-
ir. Og þá er nú gott að vera óað-
skiljanlegur hluti öldungaveldis-
ins.
Fulltrúar
verkalýðsins
Einsog allir vita er sú sérstaða og
dapurlega staða uppi að fjölmargir
félagar í stéttarfélögum og jafnvel
forystumenn verklýðssamtaka
styðja og eru í Sjálfstæðisflokkn-
um.
Margir hafa velt því fyrir sér
hvað forystumenn í verkalýðs-
hreyfingunni sem þarna eru í
flokki, muni gera í formannskosn-
ingunni. Enginn frambjóðendanna
hefur þótt sýna skilning á lýðrétt-
indum verkalýðshreyfingarinnar
né stöðu þeirra. Allir hafa þeir
stutt afnám samningsréttar og árás-
ir ríkisvalds og atvinnurekenda á
gerða samninga. Þess vegna verður
að telja líklegt (og annað óskiljan-
legt) að þessir forystumenn verka-
lýðsfélaga muni skila auðu.
Davíð sterki
Innanbúðarmenn í flokknum
töldu engan kostinn vera nógu góð-
an og verðugan Sjálfstæðisflokkn-
um. Hins vegar hamast ungu
mennirnir við að sannfæra þá eldri
um að formaður Sjálfstæðisflokks-
ins sé ekki lengur kosinn ævilangt.
Formennska í þessum flokki eigi að
vera eins og hvert annað starf sem
menn gegni eftir nennu og getu.
Gömlu mennirnir þyrftu ekkert að
óttast að sá formaður, sem nú verði
kosinn, muni sitja fram að alda-
mótum. En gömlu mennirnir hafa
enn ekki látið sér segjast. Þeir eru
hins vegar fulltrúar ýmissa
hagsmuna, sem munu veðja á hina
ýmsu kandidata.
Sá sem menn telja sterkastan
innan Sjálfstæðsflokksins í þetta
starf er Davíð Oddsson borgar-
stjóri. „Það sópar ekki að neinum
þessara manna - ég vildi Davíð“,
sagði einn áhrifamaður í flokknum
við undirritaðan.
Hins vegar segja flokkshags-
munir annað. Davíð verður að sitja
fram yfir næstu sveitastjórnarkosn-
ingar - og sigra - áður en hann
kemur til greina. Um það eru flest-
ir sammála.
En velflestir voru samdóma um
það að Davíð Oddsson væri fram-
tíðarmaður flokksins.
Tímabundin lausn
Það styður enn fremur það álit
viðmælenda blaðsins, að for-
mannskjörið nái til skamms tíma.
Verið sé að leita tímabundinnar
lausnar, þar til Davíð hefur skilað
Markúsi Erni eða einhverju slíkum
borginni eftir næstu kosningar
1986.
Þessir voru einnig samdóma um
það, að sá frambjóðandi sem lík-
legastur yrði, fengi stuðning Dav-
íðs Oddssonar. Hann er í smá vand>
ræðum og þarf að gera uppá milli
vina einsog margur í þessum
flokki. Þannig hefur hann verið í
vináttu við þá Þorstein og Friðrik
báða og þó sérstaklega Þorstein.
Þeir voru t.d. saman í Eimreiðar-
klíkunni.
Á hinn bóginn á Davíð borgar-
stjóraembættið Birgi ísleifi að
þakka. Þess vegna getur hann tæp-
ast annað en annað hvort stutt
hann - eða þá engan frambjóðend-
anna. En þar sem flokkseigendafé-
lagið hefur að mestu leyti safnast
um Birgi ísleif er talið líklegt að
Davíð geri það einnig. Birgir þykir
einnig líklegur til að sitja skemur
en hinir, - skemmri bið fyrir Da-
víð.
Lausnin
Davíð Oddsson
varaformaður
Ef flokkseigendafélaginu tækist
að koma sér saman fyrir landsfund
- og þagga niður í helstu andófs-
röddinni, þá myndi þröng klíka
koma sér saman um einhvern einn
þessara frambjóðenda og biðja
Davíð Oddsson að vera varafor-
maður. Sá frambjóðandi myndi
verða svo sigurstranglegur að hinar
klíkurnar og frambjóðendurnir
myndu láta sér segjast.
En þetta ræðst allt saman á næst-
unni - og enginn þarf að gera sér
vonir um að flokkurinn klofni um
þessi mál. Til þess eru sameigin-
legu hagsmunirnir, sem í húfi eru,
of stórir.
Gunnar Thoroddsen
mætir til leiks
Meðal stærstu spurninga fyrir
landsfund er sú hvað gamla eðal-
íhaldið gerir. Fylgismenn Gunnars
Thoroddsen hafa hægt um sig - en
engin ástæða er að útiloka að þeir
muni sameinast um einhvern nýjan
frambjóðanda. Gunnar G. Schram
eða einhvern annan frambærilegan
kandidat. Slíkar ótrúlegar uppá-
komur eru líklegar til að magna
spennuna í forystukreppu Sjálf-
stæðisflokksins um langa hríð enn.
Síðustu daga hef ur þessi hug-
mynd fengið byr undir báða vængi.
Geir er sagður ekkert alltof ánægð-
ur með að sleppa tigninni. Og þá er
komið að hinni dramatisku þver-
sögn, að þeir Gunnar Thoroddsen
og Geir Hallgrímsson stæðu saman
í fyrsta sinn í formannskjöri innan
Sjálfstæðisflokksins á landsfundi
1983.
-óg
T PTP A
LCilUrii
HÚS
Við viljum
vekja athygli
leigjenda og leigusala á því,
að Félagsmálaráðuneytið
gefur út eyðúblöð fyrir
leigusamninga um íbúðarhúsnæði.
Notkun þess tryggir réttindi
beggja aðila.
Leigjendasamtökin
HÚSEIGENDASAMBAND
ÍSIANDS
Hið löggilta eyðublað fyrir leigusamninga
um íbúðarhúsnæði fæst án endurgjalds
hjá bæjar- og sveitarstjórnum
og á skrifstofum okkar.
Önnur samningseyðublöð
eru ekki gild.
1 #>Húsnæðis$tofnun ríkisins
8
Framandi menning
í framandi landi
Ert þú fædd/ur 1966 eöa 1967?
• Viltu búa eitt ár í framandi landi?
• Viltu auka þekkingu þína á umheiminum?
• Viltu kynnast lifnaöarháttum annarra þjóða?
• Viltu verða skiptinemi?
Ef svarið er já, hafðu samband við:
á íslandi
- alþjóðleg fræðsla og samskipti -
Umsóknarfrestur er til 7. okt. Opið daglega milli kl. 14 og 17.
Hverfisgötu 39 - P.O. Box 753 - 121 Reykjavík.
Sími 25450.