Þjóðviljinn - 24.09.1983, Síða 24
24 SÍÐA'— ÞJÓÐVILJINN He|g'n 24.-25. september 1983
bæjarrölt
I miðju hjarta Reykjavíkur
húkir gífurlega stór húshjallur
sem í mörg ár hefur fengið að
grotna og ganga úr sér. í honum
eru óteljandi vistaverur. Samt
býr enginn í honum og atvinnu-
starfsemi er aðeins á neðstu hæð
sem snyr að Aðalstræti, elstu
götu á Islandi. Þetta er sá gamli
köttur Fjalakötturinn.
Þarna hefur hann legið fram á
lappir sínar síðan Reykjavík varð
til. Fyrst var hann eins og lítill
kettlingur á dögum Skúla fógeta
en smá stækkaði svo og breyttist.'
Fullvaxinn varð hann fyrir 90
árum og félck þánúverandi vaxt-
arlag. Hann man tímana tvenna
en undanfarna áratugi hefur
hann verið að deyja hægt og ró-
lega. Margir vilja hann feigan en
kötturinn hefur níu líf eins og allir
vita og kannski á hann mörg ó-
notuð.
Eigandinn vill ekki eiga kött-
inn og Reykjavíkurborg tímir
ekki að lífga hann við. Af hverju
er hann ekki sleginn af?
Það er kannski af því að ég og
mínir líkar sem unna Reykjavík
og sögu hennar þráast við. Þetta
skrýtna hús með sínum ótal vist-
unnar. Að standainn í þessuporti
með þröngar risavaxnar húshlið-
ar, upprunalega glugga, dyr og
gálgastiga upp á aðra hæð er engu
líkt. Þegar ég stóð þar fyrst fyrir 7
árum fannst mér ég vera kominn
inn í kvikmynd frá Tventieth
Century Fox úr villta vestrinu.
Aftasti hluti hússins er gamalt
leikhús. Þar léku Kristján Ó.
Þorgrímsson, Árni Eiríksson,
Indriði Einarsson og Gunnþór-
unn Halldórsdóttiraf hjartans list
um aldamótin og árið 1906 hóf
þar fyrsta bíó í Reykjavík göngu
sína. Það hét Reykjavíkur Bio-
grafthea er(síðar Gamla bíó) og
spilað var undir á píanó meðan
hetjur þöglu myndana liðu um
sviðið. Seinna voru menn endur-
reistir þar í Góðtemplarareglunni
og á árunum 1932-1935 lagði
Kommúnistaflokkur íslands á
ráðin í þessum sal.
í Fjalakettinum eru 40 her-
bergi og þar bjó aragrúi fólks.
Húsið var eins konar stökkpallur
fyrir sveitafólk sem var að flytjast
til bæjarins. Og þarna bjuggu líka
virðulegar rótgrónar Reykjavík-
urfjölskyldur.
Og nú stendur gamli Fjala-
Kötturinn hefur níu líf
arverum, þröngu stigum, dimmu
göngum, pílárum, panel og
sölum ómar allt af löngu liðnum
söng. „Sál mín, þú líkjast svani
skalt þeim hvíta, er syngjandi að
dauðans porti fer“. Þetta var and-
látsvísa Sigurðar Breiðfjörðs.
Hann dó í Fjalakettinum.
í miðjum húskumbaldanum er
skrýtið port sem hefur myndast
þar eins og af tilviljun. Yfir það
var sett glerþak fyrir löngu og
timburklæddar húshliðarnar sem
vísa að því minna á Reykjavík
áður en bárujárnið kom til sög-
kötturinn yfirgefinn og enginn
gerir neitt fyrir hann. Hvenær
verður þessi taug úr hjarta
Reykjavíkur slitin í burtu?
-Guðjón
I
| veistu?
| að barnabækur Jóns Sveinssonar
(Nonna) voru þýddar á yfir 30
tungumál
að fyrstu bækur Kristmanns Guð-
mundssonar rithöfundar voru
samdar á norsku
að Kristján Jónsson Fjallaskáld var
aðeins 27 ára gamall er hann lést
að Wolfgang Amadeus Mozart
tónskáld var aðeins 35 ára gamall
er hann lést og liggur þó meira eftir
hann en flest önnur tónskáld
að Jón Sigurðsson forseti og Ingi-
björg kona hans voru systkinabörn
að fyrsta uppkastið af Sölku Völku
var skrifað sem kvikmyndahandrit
og ætlað fyrir Hollywood.
að Ronald Reagan er elsti forseti
sem nokkurn tíma hefurverið kos-
inn í Bandaríkjunum. Hann er 73
ára.
að yngsti ráðherra sem verið hefur
á íslandi er Eysteinn Jónsson.
Hann var aðeins 27 ára er hann
settist á ráðherrastól.
að Jónas Árnason fv. alþingismað-
ur var fjórði ættliðurinn í sinni ætt
sem sat á þingi. Faðir hans, afi og
langafi voru allir á þingi.
að fyrsti forseti Islands, Sveinn
Björnsson, var aldrei þjóðkjörinn.
Hann var fyrst kosinn af alþingi en
síðan sjálfkjörinn.
að sendiherrar hafa ávallt verið í
framboði í forsetakosningum á fs-
landi: Sveinn Björnsson 1944, Gísli
Sveinsson 1952, Gunnar Thorodd-
sen 1968 og Pétur J. Thorsteinsson
1980.
að Hallgrímskirkja í Reykjavík er
búin að vera yfir 40 ár í byggingu
að það stendur hvergi skýrum stöf-
um í samtímaheimildum að Snorri
Sturluson sé höfundur að
Heimskringlu og Snorra-Eddu
að Steingrímur Hermannsson er 20.
maðurinn sem gegnir forsætisráð-
herraembætti á íslandi á 79 árum
eða frá heimastjórn 1904
að Sovétríkin eru meira en helm-
ingi stærri en Bandaríkin að flatar-
máli
að sr. Jakob Jónsson, faðir Svövu
og Jökuls, er bróðir Eysteins
Jónssonar fyrrv. ráðherra.
sunnudagskrosssátan
/ z 3 2 + S ¥ <£> V~~ 2 8 9 10 /r
IZ 2 /3 (r & 3 /¥ I/ SS~ 2 2 3l 2
n? 3 /3 9 9 2 3 2 13 3 /9 /0 5 zo )S~
17- /o 3 /S' 2/ 2/ 2 V 22 3 /Sm 9 3 /s~ 22
22 2 21) TT 2 17- 23 2* 2 z~ // /É V ZJ M
2 /s 9 l7 23 2</ /1 2 // /0 )? 2/ /O
23 2 3 3 9 5 29 s~ /o 2 'J <2 Z3
S 9 /o 22 2 2 ll 12- 2 & 2? &
/(, s~ 23 I/ 2 22 7 0> b e 77~ 22 2 (,
// 2 )t> T7~ X? /é> 10 7/ 2 23 2 /¥ /5~ // 2
/O 2¥ JO 2 /ii 2/ 2/ 2¥ 10 /1 /6 /S- 2 i9- /D
2 29 h /0 V /5" 2 n? 9 13 19 /S 2/ /}
Z 5~ 2 19 i3 // 2 30 IV /9 z/ 2 3 2/
A Á B D Ð E ÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUClVXYÝÞÆÖ
Nr. 390
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kven-
mannsnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
;< ans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 390“. Skilafrest-
ur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
20 !0 /? / 30 Z // &
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp.
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum. t.d. getur a aldrei komið í stað áog öfugt.
Verðlaunin
ARNIBERGMANN
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
386 hlaut Hulda Nóadóttir,
Hlíðarhvammi 3, Kópavogi.
Þau eru Skeldýrafána Is-
lands eftir Ingimar Óskars-
son.
Verðlaunin að þessu sinni er
skáldsagan Geirfuglarnir
eftir Árna Bergmann.
GEIRFUGLARNIR