Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. október 1983
Þjónustu-
ferð fyrir
málm-
iðnaðinn
Tveir sérfræðingar AS ESAB,
eins stærsta framleiðenda á út-
búnaði til rafsuðu í Evrópu eru
nú í kynningarferð um landið.
Fyrirtækið hefur um áralangt
skeið efnt tii siíkra kynningar-
ferða í samvinnu við umboðsað-
ilann hér á landi, Héðinn hf.
Tveir sérfræðingar, annar ís-
lenskur hinn danskur hafa farið
reglulega og heimsótt fyrirtæki í
málmiðnaði, bæði stór og smá.
Þar leiðbeina þeir við notkun
tækja, kynna nýjungar og skýra
lausnir á þeim vandamálum sem
upp koma í málmsuðuverkum.
Málmiðnaðarmönnum er mikið í
mun að eiga sem bestan aðgang
að yfirgripsmikiili þekkingu á
rafsuðu og öllu sem að henni
lýtur. Því hafa þessar heimsóknir
þótt mjög gagniegar.
Jafnframt gefur ESAB út blað-
ið Svejs, sem fjallar eingöngu um
málmiðnað. A þessu ári hafa
komið út tvær sérútgáfur á ís-
lensku með íslensku efni.
Allar frekari upplýsingar veitir
Gísli Jóhannsson framkvæmda-
stjóri í Héðni, sími 24260.
Snorri
Hjartar á
fœreysku
Út er komin hjá bókarfor-
laginu Orð og lóg í Færeyjum
þýðing Martins Næs á ljóðabók-
inni Hauströkkrið yfir mér eftir
Snorra Hjartarson. Á færeysku
heitir bókin Heystmyrkrið yvir
mær og er gefin út með styrk frá
Norðurlandaráði fyrir þessa bók
árið 1981.
Erfiðara er en ætla má að flytja
ljóð milli svo skyldra mála sem
íslensku og færeysku, en óhætt er
að fullyrða að Martin Næs hefur
unnið starf sitt af næmi og vand-
virkni.
Bókin er 74 bls., prentuð hjá
Einars Prent í Þórhöfn. Hún er til
sölu hjá Bókabúð Máls og menn-
ingar.
Reykjanessvœðið
Sigrún Edda Björnsdóttir og Edda Þórarinsdóttir í Lokaæfingu.
Frumsýning á
Lokaæfingu
Hænsnaræktin
blómstrar
Við höfum nú athugað búfjár-
tölu, heyfeng og uppskeru garð-
ávaxta í kaupstöðumog sýslumá
Reykjanessvæðinu árin 1981 og
1982, hverju byggðarlagi fyrir
sig. En hvar verður útkoman þeg-
ar litið er á svæðið í heild? Við
skulum líta nánar á það.
Árið 1981 voru þar 1076
nautgripir. Árið 1982 voru þeir
1115 og hafði þannig fjölgað um
39. Sauðkindur á svæðinu voru
12.034 1981, 10.799 1982, fækk-
unin nemur 1235 kindum. Árið
1981 voru hrossin 6125 en árið
1982 6361 og fjölgar þeim um
236. Svínin voru 515 1981, 531
1982, óveruleg viðbót, 16 hausar.
En þó að hrossum fjölgi töluvert
eins og að ofan segir, slær þó
gróskan í hænsnastofninum öllu
við. Árið 1981 voru hænsnin á
Reykjanessvæðinu 124.649 en ári
síðar voru þau orðin 140.586 og
fjölgar hvorki meira né minna en
um 15.937. Er það myndarlegt
stökk á einu ári, en vonandi þó
ekki heljarstökk, í neikvæðri
merkingu þess orðs.
Þurrheyið var 67.906 rúmm.
1981 en 70.193 rúmm. 1982. Vot-
heysgerði óx einnig. Hún var
2204 rúmm. 1981 en 2506 rúmm.
1982. Kartöfluuppskeran
minnkar aftur á móti. Hún var
5717 hektókg. 1981 en fór niður í
4451 hektókg.Heitamá aðrófna-
uppskeran standi í stað. Hún var
87 hektókg. 1981 2n 84 hektókg.
1982. Vaxtarbroddurinn í búfjár-
eign á Reykjanessvæðinu eru því
hrossin og þó alveg sérstaklega
hænsnin. -mhg
,,Lokaæfing“ eftir Svövu Jakobs-
dóttur verður frumsýnd í
Þjóðleikhúsinu annaðkvöld. Það
hvílir leynd yfir efni þessa nýja
íslenska verks, og hinir forvitnu
verða að lcggja leið sína á Litla
sviðið á næstunni ætli þeir að
grafast fyrir um hið sanna.
„Um efni leiksins er rétt að
segja sem minnst“, segir ífrétt frá
Þjóðleikhúsinu „en í sem stystu
máli má segja að Lokaæfing fjalli
um ung og vel stæð hjón í Reykja-
vík og mjög ákveðnar og óvenju-
legar áætlanir fyrir óvissa fram-
tíð. Atburðarás leiksins snýst um
það að þau eru að sannprófa áætl-
un sína til að komast að því hvort
allt stenst. Það er semsagt loka-
æfing". Þá vitum við það.
Þjóðleikhúsið hefur þegar sýnt .
þetta verk tvisvar sinnum í Fær- !
eyjum og hlaut sýningin afar |
lofsamlega dóma og þótti mikill .
leikiistarviðburður. Leikstjóri er j
Bríet Héðinsdóttir, ieikmynd og j
búninga gerir Birgir Engilberts, j
en Ásmundur Karlsson annast i
lýsinguna. Edda Þórarinsdóttir, j
Sigurður Karlsson og Sigrún ■
Edda Bjömsdóttir fara með hlut- - j
verkin í Lokaæfingu.
Frumsýning verður annað- f
kvöld, önnur sýning sunnudags- j
kvöldið 9. október og þriðja sýn-
ing þriðjudagskvöldið 11. októ-
ber. Sýningar á Litla sviðinu hefj-
ast kl. 20.30.
Jafnvægi
óttans
Jafnvægi óttans heitir þessi
mynd og er höfundur hennar
Gottfried Helnwein, listamaður í
Vínarborg. Henn sendi myndina
í sumar til Reagans, Andropofs,
Kohls, kanslara Vestur-
Þýskalands og Honeckers, leið-
toga Austur-Þýskalands, með
svofelldum orðum: „Ég gerði
þessa mynd til að lýsa þeirri stöðu
sem við mennirnir nú erum í.
Reynið að muna eftir okkur þeg-
ar þið sitjið við samningaborð..."
Sparisjóður
Reykjavíkur
og nágrennis
Opnar
nýtt
útibú
Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis opnaði sitt fyrsta útibú
á fimmtudaginn, Sparisjóðurinn
Seltjarnarnesi að Austurströnd 3
þar í bæ. Verður útibúið opið á
venjulegum afgreiðslutíma og
veitir alla almenna þjónustu á
borð við útibú annarra
innlánsstofnana.
Sparisjcðui Reykjavíkur og
nágrennis var stofnaður á árinu
1932 fyrir forgöngu iðnaðar-
manna. Meginverkefni sjóðsins
hefur alla tíð verið að lána fé til
einstaklinga vegna íbúðabygg-
inga, íbúðakaupa eða til viðhalds
og endurbóta á íbúðum. Á síðari
Starfsmenn hins nýja útibús ásamt yfirstjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis. -Ljósm. Magnús.
árum hefur starfsemi sjóðsins
aukist mjög að umsvifum í þá átt,
sem gerist almennt hjá viðskipta-
bönkum. Engu að síður er það
meginverkefni sparisjóðsins að
ávaxta sparifé einstaklinga og
veita framar öðru heimilunum
fyrirgreiðslu.
Láta mun nærri að á 50 ára
starfsferli sínum hafi Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis veitt
u.þ.b. helmingi íbúðaeigenda á
starfssvæði sínu veðlán, þar á
o:an bætast mörg þúsund
skammtímalán. Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis hefur
pví átt drjúgan þátt í uppbygg-
ingu húsnæðis og atvinnulífs í
höfuðborginni og nágranna-
byggðum hennar.
Með útibúinu að Austurströnd
3, Seltjarnarnesi, vill sparisjóð-
urinn bæta og auka þjónustu sína
við íbúana í Seltjarnarnes-
kaupstað og vesturhluta Reykja-
víkur.
í útibúinu munu starfa fjórir
menn, en útibússtióri hefur verið
ráðinn Baldvin Omar Magnús-
son.