Þjóðviljinn - 05.10.1983, Blaðsíða 10
l6< SÍB'Al->— ÞJÓÐVIL'JININ ' Miðéikudagur 5. aktðber t98»:
Sjö ára
helvíti
Hjá IÐUNNI er komin út bókin
í víti eiturlyfja eftir Birthe E.
Christensen. Þorvaldur Kristins-
son þýddi. Höfundur er ung dönsk
stúlka sem segir hér á umbúða-
lausan hátt frá ævi sinni, einkum
því skeiði sem hún var ánetjuð
eiturlyfjum, en það voru sjö ár og
hún var fimmtán ára þegar hún hóf
að neyta þeirra.
í kynningu forlags á kápubaki
segir: „Hér leggur hún ævi sína á
borðið. Hvernig hún ienti í eitur-
lyfjunum.Hvernig „sjö ára helvíti
sem djönkari og hóra“ gekk fyrir
sig - og hvernig hún sneri við blað-
inu. - Þessi bók er skrifuð handa
þeim sem ekki þekkja vonleysi
óviðráðanlegrar ffkniefnaneyslu.
Það þarf k j ark til að slíta sig lausan,
Og margt getur fleygt „stelpugæs
eins og mér“ aftur í skítinn... Ég
hélt að ég myndi aldrei sigra... Það
tók mig rúm þrjú ár að skrifa þessa
bók og það var hörð barátta að
ljúka henni... Rís upp kona og
sýndu hvað í þér býr!“
í víti eiturlyfja kom út í Dan-
mörku árið 1981. Hún er gefin út
með styrk úr norræna þýðingar-
sjóðnum. Bókin er í tuttugu og ein-
um kafla, 140 blaðsíður að stærð.
Oddi prentaði.
LAMBAKJÖT
Bókaklúbbur Almenna bóka-
félagsins hefur sent frá sér nýja og
nýstárlega matreiðslubók, þar sem
lýst er í máli og myndum fjölmörg-
um aðferðum við að matbúa
lambakjöt. Bókin er unnin af rit-
stjórum TIME-LIFE bóka á veg-
um Time-Life útgáfunnar, undir
umsjá bandaríska matreiðslu-
mannsins Richard Olney, en þýð-
andi hennar er Sigrún Davíðsdótt-
ir.
Þýðandinn segir í grein um bóki-
na í Fréttabréfi AB: „... Áður fyrr
kunnum við þó vissulega að nota
lambakjötið vel, hver hluti skepn-
unnar var nýttur á skynsamlegan
hátt miðað við efni og aðstæður.
En nú hentar gömul, hefðbundin
matreiðsla á lambakjöti aðeins að
litlu leyti. Það er því ærið forvitni-
legt og lærdómsríkt að huga að því,
hvernig farið er með lambakjöt
annars staðar í heiminum, og er
sannarlega víða leitað fanga í bók-
inni.
í fyrri hluta bókarinnar eru sýnd-
ar myndir af ýmsum handtökum
við matreiðslu á lambakjöti, bæði
hvernig er hægt að meðhöndla
ýmsa hluta kjötsins og eins hvernig
farið er að við matreiðslu á ýmsum
réttum. f síðari hluta bókarinnar
eru svo uppskriftir, sem eru flokk-
aðar eins og leiðbeiningarnar í fyrri
hlutanum. Þar er fjallað um glóð-
arsteikingu og steikingu á pönnu,
ofnsteikingu, soðið kjöt, hvað
hægt er að gera við afganga, og svo
ýmsar aðrar aðferðir. Auk þess er
sérstakur kafli með ýmsum grund-
vallaruppskriftum t.d. að sósum,
fyllingum, grænmeti og fleiru“
Petta er ríkisstjórnin að gera:
Lánskj arav í sitala
út yfir öll mörk
Lánskjaravísitalan heldur
áfram að hækka, eins og lög
gera ráð fyrir. Á þessu ári hefur
sigið mjög á ógæfuhliðina hjá
skuldurum, eins og
meðfylgjandi línurit ber með
sér. Línuritið sýnir hlutfallið milli
lánskjaravísitölunnar og
kauptaxta Dagsbrúnar á þessu
ári.
Ef fullt samræmi ætti að vera
milli kauptaxta og lánskjaravísit-
ölunnar myndi línuritið liggja niðri
við töluna 100. Tölur fyrir neðan
100 sýna, að skuldir minnka miðað
við kauptaxta; tölur fyrir ofan 100
sýna, að skuldir vaxa umfram
kauptaxta. Og það sðarnefnda hef-
ur átt sér stað allt þetta ár, skuld-
irnar hlaða utan á sig en kaupið vex
sama og ekkert. Þetta getur aðeins
endað á einn veg hjá skuldurum:
öruggt gjaldþrot.
Kaupgjald hækkar um 4 prósent
1. október og á línuritinu sést
hvernig hlutfallið milli þess og
lánskjaravísitölunnar mun verða
eftir þá hækkun. Hlutfallið
minnkar eilítið frá septembermán-
uði. En hafa ber í huga, að frekari
kauphækkanir verða ekki leyfðar á
þessu ári, en lánskjaravísitalan
mun halda áfram að hækka.
ast
Línuritið sýnir hlutfallið milli kauptaxta Dagsbrúnar og lánskjaravísitöl-
unnar.Talan 100 sýnir að fullt samræmi sé þarna á milli, þ.e. skuldir vaxi
ekki umfram kauptaxta. Línuritið sýnir hvað er að gerast: skuldirnar
hlaða utan á sig og stórt bil hefur myndast milli lánskjaravísitölu og
kauptaxta. Þetta bil mun halda áfram að vaxa, því lánskjaravísitalan
heldur sínu striki en frekari kauphækkanir á árinu eru ekki Ieyfðar.
pjonustusioa Pjooviijans
Reyking og sala á matvælum
iRO aw:”
ý REYKOFNINN HF.
\J/ Skemmuvegi 14 200 Kópavogi
Hellusteypan
STÉTT
Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211.
I ■.
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjörn G. Hauksson
Pípulagningameistari
Sími46720
Ari Gústavsson
Pipulagningam
Simi 71577
Nýlagnir
Jarölagnir
Viögeröir
Breytingar
Hreinsanir
VELA- OG TÆKJALEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
Sláttuvé/aleiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta,
minni háttar múrverk og smíðar.
BORTÆKNI SF.
Vélaleiga, sími 46980 — 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
STEYPUSÖGUN
vegg- og gólfsögun
V ö K V APRESSA
i múrbrot og fleygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum aö okkur verkefni um allt land. — Fljót og góö
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
BORTÆKNI S/F
Vélaleiga S: 46980 - 72460.
Verkpantanir
Irá kl. 8—23.
TRAKT0RSGR0FUR
L0FTPRESSUR
SPRENGIVINNA
146297
ísskápa- og frystikistuviðgerðir
Önnumst allar viðgerðir á p
kæliskápum, frystikistum,
frystiskápum og kælikistum.
Breytum einnig gömlum
kæliskápum í frysti-
skápa. Góð þjónusta.
SfVBr
'BMÍvmrk
Reykjavikurvegi 25
Hafnarfirði sími 50473.
GEYSIR
Bílaleiga
Car rental
BORGARTÚNI 24 - 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
LIPUR ÞJ0NUSTA
VIÐ LANDSBYGGÐINA
PÖNTUM - PÖKKUM
SENDUM- SÆKJUM
TRYGGJUM
Leyfið okkur að létta ykkur sporin og losa
ykkur við kvabb á vinum og vandamönnum.
• •••
Ekkert er auðveldara en slá á þráðinn
og afla upplýsinga.
• •••
Opið frá kl. 9-19 alla virka daga.
Símsvari opinn allan sólarhringinn.
~~~JLandsþjonustan sJf
Súðavogi 18. S.84490 box 4290
GLUGGAR
0G HURÐIR
|Vönduð vinna á hagstæðu verði\
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9, Hf.
S. 54595.