Þjóðviljinn - 05.10.1983, Side 14

Þjóðviljinn - 05.10.1983, Side 14
14 SÍÐÁ ÞJÓÐVILJINN Mitfvikudagur'S.’óktobe'r 1983 Ályktun Sjálfsbjargar á Akureyri: Mótmælir árás á kjör öryrkja Aðalfundur Sjálfsbjargar á Ak- ureyri, haldinn fimmtudaginn 22. sept. 1983, mótmælir harðlega þeirri árás á kjör öryrkja, sem gerð er með setningu bráðabirgðalaga núverandi ríkisstjórnar frá 27. maí 1983, þar sem vísitölubætur sem áttu að vera hinn 1. júní 22% eru lækkaðar í 10.7%, á örorku- og tekjutryggingu, auk þess sem vísi- talan er svo tekin úr sambandi það sem eftir er ársins og aðeins leyfð 4% hækkun hinn 1. október. Á sama tíma og lífeyrir er þannig stórskertur, virðist ríkisstjórnin hafa sleppt öllu verðlagi lausu, og hefur það hækkað milli 50 og 60% frá 1. febrúar, og hafa opinberar stofnanir ekki verið neinir eftir- bátar í hækkunarskriðunni, því sú þjónusta hefur hækkað um og yfir 50%. Óskertur lífeyrir öryrkja (örork- ulífeyrir + tekjutrygging) var hinn 31. maí kr. 6.095.- og hækkaði um 10.7% eða í kr. 6.747.-. Pað hlýtur öllum að vera ljóst að enginn dreg- ur fram lífið á slíkum tekjum í dag, þær duga alls ekki fyrir nauðþurft- um, sérstaklega þegar það er haft í huga að fjöldi öryrkja á sáralítinn eða engan rétt á greiðslum úr líf- eyrissjóðum og að í reglugerð 351/ ’77 við 19. gr. almannatrygginga- laga er mjög óréttlátt skerðingar- ákvæði á tekjutryggingu, vegna tekna maka. Bráðabirgðalög ríkisstjórnar- innar eru óréttlát og ódrengileg, þar sem skerðingin nær jafnt til nauðþurftartekna sem umfram- tekna. Því hvað segja þessi 2.7% kr. 165.-, sem örorkulífeyrir var hækkaður um umfram hin al- mennu 8%, þegar á móti kemur öll verðhækkunarskriðan? Nei, við krefjumst þess að lögin verði af- numin hvað varðar nauðþurftar- framfærslu og staðið verði við það að vernda hag þeirra sem við lökust kjör búa. Þá skorar aðalfundur Sjálfs- bjargar á Akureyri á öll öryrkjafé- lög að láta til sín heyra og mótmæla þeirri árás á kjör öryrkja sem í bráðabirgðaiögum ríkisstjórnar- innar felast, því þess er vart að vænta að aðrir mótmæli fyrir þá, ef þeir sýna ekki tilburði til þess sjálf- ir. Kvenréttindafélag íslands Efni um jafnréttí vantar á bókasöfn Kvenréttindafélag íslands hélt fund laugardaginn 1. október sl. með formönnum aðildarfélaga sinna, sem eru samtals 43 og dreifð um allt landið. Á fundinum sem um 30 manna sóttu flutti Elín Pálsdóttir Flyger- ing framkvæmdastjóri Jafnréttis- ráðs erindi um stöðuna í jafnréttismálinu, lög, reglugerðir ofl. Erna Indriðadóttir fréttamað- ur fjallaði um kvennabaráttuna og fjölmiðla og Kristín H. Tryggva- dóttir talaði um kvennabaráttu og launþegahreyfinguna. Að loknum erindum voru fyrirspurnir og um- ræður. í hádegishléi las Sigrún Val- bergsdóttir leikar úr fyrstu bók Stefaníu Þorgrímsdóttur sem kem- ur út hjá Iðunni á næstunni og Sig- rún Eðvaldsdóttir lék á fiðlu. Á fundinum var samþykkt áskorun til menntamálaráðuneyt- isins þess efnis að í bókasöfnum og skólabókasöfnum verði efni er snertir jafnréttismál og réttinda- baráttu kvenna á sérstökum að- gengilegum stöðum. Ennfremur var samþykkt að KRFÍ efni til fundar með þeim konum er starfa sem fréttamenn á fjölmiðlum. erlendar bækur Jane Austin: The Penguin Comp- lete Novels of Jane Austin. Penguin Books 1983. Graham Greene: Monsignor Qu- ixote. Penguin Books 1983. Þeir sem töluðu fremur niðrandi um „kerlinga-bókmenntir" hér um árið ættu að tala varlega þegar Jane Austin birtist ásviðinu. Ymsir bestu höfundar Englendinga á 19. öld voru konur og meðal þeirra var Jane Austin. Hún lifði yfirlætis- lausu lífi alla sína tíð og var ein þeirra „sem fordildarlaust deyja“. Humor og innsæi voru aðal henn- ar, mórallinn gegnir lykilhlutverki í skáldsögunum og það var alltaf stutt í komedíuna. Þessvegna er hún lesin af ánægju enn þann dag í dag af þeim sem ennþá halda fullri meðvitund og skoppa ekki eins og soðbollar eftir lækjum og fljótum tilverunnar í leitaðstöðugriafþrey- ingu á markaðstorgum trúðanna. Á þessum 1336 blaðsíðum eru allar þessar ágætu skáldsögur, sem Austin setti saman beggja megin við aldamótin 1800. „Ekkert er gott eða vont, en um- hugsunin móta það svo“. Eftir þessu fer frásögn Greenes af þeim svarabræðrum, kaþólskum presti og fyrrverandi kommúnista- borgarstjóra. Séra Ouixote er gerður að monsignor af biskupi nokkrum, sem er á ferðalagi í sókn séra Quixote og nýtur gestrisni hans. Síðan æxlast málin svo að Zancas fyrrverandi borgarstjóri, sem Ouixote nefnir Sancho eftir skjaldsveini riddarans gamla, og presturinn hefja ferð sína um Spán eins og forfaðir prestsins gerði á sínum tíma og frægt er úr bókum. Þeir félagar birgja sig upp með landvín og góða osta auk brauðs og svo er haldið af stað í Rociante, sem er bíll prestsins, nefndur eftir hesti riddarans fræga. Ferðin gengur hægt, víða stoppað og hinir og aðrir atburðir gerast, sem minna á atburðarásina í bók Servantes. Presturinn og kommúnistinn ræða um pólitík og trúmál, þeir lenda auðvitað í brösum við lögregluna og ýmsa fleiri aðila. Og þeir drekka rauðvínið og borða ostinn, sem á sér fáa líka. Marxismi og kristin- dómur eru nærtæk umræðuefni og niðurstöður beggja eru efinn og trúin. Borgarstjórinn fyrrverandi er afneitari, en afneitararnir eru sumir hverjir kristnari en margur munnkristinn. í lokin slasast Quixote í skothríð lögreglubjána fyrir utan klaustur, þar sem þeim félögum er búin gist- ing. Sagan endar með því að borg- arstjórinn gengur til altaris hjá dauðsjúkum félaga sínum, Quix- ote. leikhús • kvikmyndahús ^ÞJÓÐLEIKHÚSIfl Skvaldur 7. sýn. í kvöld kl. 20. Rauö aðgangskort gilda. 8. sýn. föstudag kl. 20 laugardag kl. 20 sunnudag kl. 20. Litla sviðii Lokaæfing Frumsýning fimmtudag kl. 20.30. Uppselt. 2. sýning sunnudag kl. 20.30. Miðasala 13.15-20 sími 11200. LEIKFELAG ' REYK)AVlKUR Hart í bak í kvöld kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Guðrún föstudag kl. 20.30 Úr lífi ánamaðkanna sunnudag kl. 20.30 Fíar sýningar eftir. Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30 sími 16620. KTiimfvrA l+IKHIJSIH Bond í þýðingu og leikstjórn Hávars Sig- urjónssonar. Fimmtudag 6. okt. kl. 20.30. Siiasta sýning. Af hverju láta börnin svona Dagskrá úr verkum atómskáld- anna. Handrit og leikstjórn Anton Helgi Jónsson og Hlín Agnarsdóttir. Frumsýning 14. október. TURBÆJA Sími11384 Leyndardómur- inn Hörkuspennandi og leyndardóms- full, ný, bandarísk kvikmynd I litum og Panavision, byggðásamnefnd- ri sögu ettir Robin Cook. Myndin er tekin og sýnd í Dolby-Stereo. Að- alhlutv.: Lesley-Anne Down, Frank Langella, John Gielgud. Islenskur texti Bönnuð innan 12 ára. Sýndkl. 5, 7.10, 9.10 og 11.15. Llf og fjör á vertið í Eyjum með grenjandi bónusvíkingum, fyrrver- andi fegurðardrottningum, skip- stjóranum dulræna, Júlla húsverði, Lunda verkstjóra, Sigurði mæjón- es og Westurislendingunum John Reagan - frænda Ronalds. NÝTT LÍF! VANIR MENN! Aðalhlutverk: Eggerl Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson Kvikmyndataka: Ari Kristinsson Framleiðandi: Jón Hermannsson Handrit og stjórn: Þráinn Bertels- son. Sýnd laugardag og mánudag kl. 5, 7 og 9. Sýnd sunnudag kl. 3, 5, 7 og 9. Poltergeist. Frumsýnum þessa heimsfrægu mynd frá M.G.M. i Dolby Stereo og Panavision. Framleiðandinn Steven Spielberg (E.T., Leitin að týndu Orkinni, Ókindin og fl.) segir okkur i þessari mynd aðeins litla og hugljúfa draugasögu. Eng- inn mun horfa á sjónvarpið með sömu augum eftir að hafa séð þessa mynd. Sýnd kl. 11. Bönnuð innan 16 ára. Hækkað verð. SIMI: 1 89 36 Gandhi Islenskur texti. Heimsfræg ensk verðlaunakvik- mynd sem farið hefur sigurför um allan heim og hlotið verðskuldaða athygli. Kvikmynd þessi hlaut átta Óskarsverðlaun i apríl sl. Leikstjóri Richard Attenborough. Aðalhlut- verk Ben Kingsley, Candice Berg- en, lan Charleson o.fl. Sýnd kl. 5 og 9. Sýningum fer fækkandi. _______Salur B_______ Tootsy Sýnd kl. 9.05 Hetjur fjallanna . Spennandi amerísk úvalsmynd í litum með Charlton Heston. Endursýnd kl. 5 og 7.05. Bönnuð börnum innan 16 ára. SÍMI: 2 21 40 Ránið á týndu örkinni Endursýnum þessa afbragðsgóðu kvikmynd sem hlaut 5 óskarsverð- laun 1982. Leikstjóri: Steven Spielberg. Aðalhlutverk: Harrison Ford og Karen Allen. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. Dolby Stereo. Veist þú hverju það getur forðað ÉT uM{ FERÐAR Q 19 OOO Leigumorðing- inn inmyno, um narosviraoan náunga sem ekki lætur segja sór fyrir verk- um, með Jean-Paul Belmondo, Robert Hossein og Jean Desa- illy. Leikstjóri: Georges Lautner. Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýndkl. 3, 5, 7,9 og 11.15. ie$$ Þreföld Oskarsverðlaunamynd. Siðustu sýningar. Sýnd kl. 9.05 Átökin um auðhringinn Afar spennandi og viðburðarík bandarísk litmynd með: Audrey Hepburn, Ben Gazzara, James Mason. Leikstjóri: Terence Yo- ung. Islenskur texti. Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05. Beastmaster Stórkostleg ný bandarísk ævin- týramynd, spennandi og skemmti- leg, um kappann Dar, sem hafði náið samband við dýrin og naut hjálpar þeirra í baráttu við óvini sina. Marc Singer - Tanya Roberts - Rip Torn. Leikstjóri: Don Coscarelli. Myndin er gerð í Dolby stereo. Islenskur texti Bönnuðinnan 12 ára Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15. Annardans Skemmtileg, Ijóðræn og falleg ný sænsk-íslensk kvikmynd, um ævintýralegt ferðalag tveggja kvenna. Myndin þykir afar vel gerð og hefui hlotið frábæra dóma og aðsókn Svíþjóð. Aðalhlutverk: Kim Anderson - Lisa Hugoson - Sigurður Sigur- jónsson - Tommy Johnson. Leikstjóri: Lárus Ýmir Oskars »on. sýnd kl. 7.10 Siðasta sinn. Vein á vein ofan Spennandi og hrollvekjandi bandarísk litmynd, um brjálaðan vísindamann, með Vincent Price, Christopher Lee, Peter Cushing. Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15. Simi 78900 Salur 1 Upp með fjörið (Sneakers) Leikstjóri: Daryl Duke Sýnd kl. 5, 7, 9og 11. Salur 2 Laumuspil (They all laughed) % "r0 . Peter Bogdanovich. Sýnd kl. 5-7,05-9,05 og 11,10. Salur 3 Get Crazy Sýnd kl. 5, 7, 9og 11. Hækkað verð Myndin er tekin i Dolby Sterio og sýnd í 4ra rása Starscope sterio. .Salur 4 Utangarös- drengir Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LAUGARi E“ The Thing Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan 16 ára. Hækkað verð. TÓNABÍÓ SÍMI: 3 11 82 Svarti folinn (The Black Stallion) Stórkostleg mynd framleidd al Fra- ncis Ford Coppola gerð eftir bók sem komið hefur út á fslénsku undir nafninu „Kolskeggur". Erlendir blaðadómar: ***** (fimm stjörnur) Einfaldlega þrumugóð saga, sögð með slíkri spennu, að það sindrar af henni. B.T. Kaupmannahöfn. Óslitin skemmtun sem býreinnig yfir stemningu töfrandi ævintýris. Jyllands Posten Danmörk. Hver einstakur myndrammi er snilldarverk. Fred Yager AP. Kvikmyndasigur. Það er fengur að þessari haustmynd. Information Kaupmannahöfn Aðalhlutverk: Kelly Reno, Mickey Rooney og Terri Garr. Sýnd kl. 5, 7.20 og 9.30.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.