Þjóðviljinn - 14.10.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 14.10.1983, Blaðsíða 3
f-» »f %•»,•!,V*«, 4' •*■ '•' • 1 ,» /M >' »' * «'•( -- A Vl?, r Föstudagur Í4. októbér 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Seldu samvisku sína fyrir 6 ráðherrastóla - Það sem eftir stendur í þessari umræðu, er það að forsætisráðherra og Framsóknarflokkurinn vildu ekki þinghald í sumar - og Sjálfstæðisflokkurinn sem vildi þing, seldi þá sannfæringu sína fyrir sex ráðherrastóla, sagði Svavar Gestsson í lok umræðunnar um þingræðið og lýðræðð utan dagskrár á alþingi í gær. Eiður Guðnason hóf umræðuna utan dagskrár, en Svavar Gestsson, Guðmundur Einarsson og Jón Baldvin Hannibalsson gagnrýndu einnig harðlega ríkisstjórnina fyrir hroka og valdníðslu, kaupskerð- ingar og átróðslu á þingræðinu. Til andsvara voru þeir Ólafur G. Ein- arsson, Sverrir Hermannsson, Eykon, Albert Guðmundsson og - Steingrímur Hermannsson. Sjálfstæðismennirnir héidu því fram, að þeir hefðu viljað þinghald í sumar en þeir hefðu beygt sig undir ákvörðun forsætisráðherra. -óg. Enn ræðst Albert að verkalýðsfor- ingjum í Sjálfstæðisflokki og Al- þýðubandalagi. Stórhækkun í mötuneytum BUR-fólks Hækkar allt nema kaupið segir Ragnar Guðbjartsson „Það væri nær að hækka Iaunin hjá okkur verkafólkinu, heldur en að hækka sífellt nauðþurftir. Við þurfum að lifa eins og aðrir og fá okkar“, sagði Ragnar Guðbjartsson starfs- maður í saltfiskverkun Bæjar- útgerðar Reykjavíkur við Meistaravelli í samtali við Þjóð- viljann. „Það var verið að hækka máltíð- irnar hérna í mötuneytinu. Þessir menn sem standa að þessu ættu að skammast sín. Við eigum varla fyrir matarbita fyrir þau laun sem okkur eru skömmtuð hvað þá að geta kyngt þessum hækkunum. Við lifum ekki af því litla sem við öflum. Þessir herramenn verða að gera sér grein fyrir því. Þetta er alltaf sama sagan. Það hækkar allt nema kaupið. Við fáum ekki nema 60 kr. fyrir dagvinnustundina og það dugir því ekki klukkutíminn til að vinna sér fyrir máltíðinni eftir þessa hækkun. Og ekki á ástandið eftir að batna ef fram heldur sem þessir ráðamenn þjóðarinnar hafa boðað með frekari kjaraskerðingu á næsta ári. Mér finnst nú þegar meira en nóg komið“, sagði Ragn- ar Guðbjartsson. - Ig. Ragnar Guðbjartsson. Ljósm.: Magnús, Enn ræðst fjármála- ráðherrann á verkalýðsfélögin Lætur stjórnast af komm- únista- deildinni „Kommúnistadeildin í Al- þýðubandalaginu er að reyna að stjórna verkalýðssamtöku- num,“ sagði Albert Guðmunds- son fjármálaráðherra á alþingi í gær þegar hann réðst enn einn ganginn á verkalýðsfélögin í landinu. Að lokinni ræðu hvarf ráðherrann úr alþingishúsinu og hlýddi því ekki á andsvör við ræðu sinni. Með um 2000 kr. í vikulaun „Varla fyrir matarbita“ segir Guðný Sigurðardóttir „Það er ekki beðið með að hækka matinn við okkur, en kaupið getur beðið. Ástandið er hálfgerð hörmung“, sagði Guðný Sigurðardóttir, sem hef- ur unnið síðustu 12 ár við salt- fiskverkun hjá BÚR: „Bónusinn á aö bjarga öllu- en við hérna erum á langlægsta bónus sem þekkist í bænum og sjálfsagt víðar. Hann er alls ekki rétt mæld- ur. Kaupið er rétt rúmar 2000 kr. fyrir vikuna eftir 8 stunda vinnu- dag. Þetta dugir varla fyrir matar- bita og nú á að kyngja þessari nýj- ustu stórhækkun á fæðinu í mötu- neytinu hérna. Það var ekki á það bætandi," sagði Guðný Sigurðar- dóttir. - Ig. Fyrirspurnir á þingi Hjartaskurðlœkningar og jafnrétti Svavar Gestsson hefur lagt fram tvær fyrirspurnir á þingi. Hann spyr heilbrigðis- og trygginarráðherra hver séu áform ríkisstjórnarinnar varð- andi stofnun deildar fyrir hjartaskurðlækningar á Landsspítalanum? Svavar spyr og félagsmálaráðherra hvort ríkisstjórnin hyggist leggja fram og fá afgreiðslu á þessu þingi á tillögum um breytingu á jafnréttislögum sem unnar voru í tíð ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens? Nýr Grettir og gœðamál Skúli Alexandersson hefur lagt fram tvær fyrirspurnir til samgönguráð- herra og sjávarútvegsráðherra. Hann spyr þann fyrrnefnda hvort áætlað sé að smíða eða kaupa nýtt dýpkunarskip í stað Grettis og hve há fjárhæð vátrygging Grettis hafi numið. Einnig spyr Skúli hvernig því fé hafi verið ráðstafað. Þá spyr Skúli sjávarútvegsráðherra hverjar séu helstu aðgerðir á vegum sjávarútvegsráðuneytisins sem fyrirhugaðar séu til að koma á bættri með- ferð sjávarafla? Hann spyr og hvernig það fé hafi verið notað sem tekið var af gengismun sjávarafurða 1982 til aðgerða til að bæta meðferð sjávarafla, og hvernig eigi að nota það fé sem tekið hefur verið í sama skyni af gengismun 1983? Hann biður um sundurliðið yfirlit. Nýjar herstöðvar? Steingrímur Sigfússon beinir fyrirspurn til utanríkisráðherra í þremur liðum: 1. Hvers eðlis eru þau mannvirki sem áform eru um að reisa á Norð-Austurlandi og Vestfjörðum á vegum bandaríska hersins? 2. Hafa farið fram einhverjar viðræður um slík mannvirki? 3. Hafa verið gerðar rannsóknir til undirbúnings staðarvali fyrir slík mannvirki, og ef svo er, hefur það þá verið með leyfi utanríkisráðuneytisins? Kostnaður við stórbyggingar Karvel Pálmason spyr viðskiptaráðherra um hvað Seðlabankahúsið hafi kostað til þessa, og menntamálaráðherra um byggingarkostnað Þjóð- arbókhlöðu. Hann spyr þann síðarnefnda einnig um kostnað við Útvarps- húsið. Loks fær landbúnaðarráðherra spurningu frá Karvel um það hvern- ig byggingar Osta- og smjörsölunnar séu fjármagnaðar, og hve miklu fjármagni eigi að verja til þeirra. Bændakostnaður við Blöndu Eiður Guðnason spyr iðnaðarráðherra um virkjunarkostnað við Blöndu. Hann vill fá að vita hverju kostnaður við framkvæmdir sem átt hafa sér stað í tengslum við virkjun Blöndu nemi? Hér er átt við kostnað við framkvæmdir sem „eru í raun fyrir og í þágu bænda og landeigenda á svæðinu?" Eiður vill vita hvaða aðilar hafa fengið greiðslur og hve mikið komið í hlut hvers. Loks spyr hann hvaða aðilar muni fá greiðslur vegna sölu vatnsréttinda. -ekh. Ráðherrann sagði að ekki væru allir jafn slæmir í Alþýðubandaiag- inu. Þannig væri sérstök kommún- istadeild allsráðandi. Hún væri arf- taki Kommúnistaflokks íslands ög meðsömu mönnum (Kommúnista- flokkur íslands var lagður niður árið 1938 innsk. blaðamanns). For- maður kommúnistadeildarinnar væri einnig formaður Alþýðu- bandalagsins (Svavar Gestsson) og þessi deild væri einnig kölluð „menningardeild Alþýðubanda- lagsins". Hins vegar væru verka- menn í Alþýðubandalaginu og hann vonaðist til að þeir sýndu þol- inmæði og létu ekki kommúnista- deildina rugla sig í ríminu. _ óg. 250 hjá Steingrími Aðeins 250 Reykvíkingar sáu ástæðu til að hlýða á kjaraskerð- ingarboðskap Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra á opnum fundi á Hótel Sögu í Reykjavík í gærkvöld. Á fundi Alþýðubandalagsins fyrir nokkr- um dögum á sama stað um kjara- rán ríkisstjórnarinnar mættu yfir 800 borgarbúar. Leiðrétting Lakari gæða- kröfur Merkingu setningar í forsíðuvið- tali við Jóhannes Gunnarsson for- mann Neytendafélags Reykjavíkur var gjörsnúið í gær, þegar orðið „strangari" kom í stað „lakari“. Rétt er setningin þannig: „Gæðakröfur hjá okkur í þessum efnum (kjötvörur) munu þó vera lakari en meðal ýmissa annarra þjóða“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.