Þjóðviljinn - 14.10.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 14.10.1983, Blaðsíða 7
Föstudagur 14. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 19. okt. er dagur verkamanna og bænda. Þennan dag munu einkum friðarhópar sem starfa innan fyrirtækja hafa sig í frammi og einnig þeir hópar sem byggja á hefðbund- inni verkalýðssinnaðri sósíalískri stefnu t.d. D.K.P. Þýski kommúnistaflokkurinn og samtök ungra jafnaðarmanna. Verkalýðssamtökin, D.G.B., lýstu snemma á þessu ári yfir almennum stuðn- ingi við haustaðgerðir friðarhreyfingarinn- ar og hvatti meðlimi sína til að taka þátt í öllum löglegum aðgerðum. Verkalýðshreyfingin mun hins vegar ekki beita skipulagslegum mætti sínum gegn staðsetningu nýrra kjarnorkuvopna. Allt frá upphafi Sambandslýðveldisins hefur pólitískt verkfall verið nánast bannorð í stjórnmálaumræðu. Það er yfirlýst stefna verkalýðssamtakanna að pólitísku verk- falli, þ.e. verkfalli til að skapa þrýsting á ríkisvaldið, t.d. allsherjarverkfalíi verði eingöngu beitt ef stjórnarskráin og tilvera borgaralegs þingræðis er í hættu. Innan ákveðinna hluta verkalýðs- hreyfingarinnar t.d. I.G.Metall, félagi verkamanna í járn og stáliðnaði, hefur átt sér stað umræða um að beita verkfallsvopn- inu, en fyrir þá stefnu hefur ekki fundist meirihluti. Áhrifamenn innan vinstri arms S.P.D. t.d. Oskar Lafontaine, borgarstjóri í Stuttgart, hafa einnig varpað hugmynd- inni um pólitískt verkfall fram í almenna umræðu. Heldur samtökin Rétt er að taka fram í þessu sambandi að D.G.B. eru heildarsamtök eínstakra verka- lýðsfélaga, álíka og ASÍ innan vébanda þeirra er fólk með mjög ólíkar skoðanir og meðlimir margra flokka. Þetta leiðir af sér að erfitt er að ná samstöðu um ákveðnar róttækar pólitískar aðgerðir, þar sem þær væru í andstöðu við hugmyndina um skipu- lagningu einingu allra verkalýðsfélaga. Frá upphafi hefur D.G.B. þó beitt sér með ýmsum hætti fyrir friði og slökunar- stefnu í alþjóðamálum. 1. september á hverju ári skipuleggur D.G.B. mótmæla- göngur og útifundi. Þar hafa gjarnan verið settar frám almennar kröfur og friðaróskir og minnst upphaf seinni heimsstyrjaldar- innar. D.G.B. studdi slökunarstefnu Willy Brandt og hefur jafnan beitt sér fyrir auknum samskiptum við Austurevrópu-ríkin. Afstaða D.G.B. til friðarhreyfingarinnar er vinsamleg, en um leið er haldið ákveðinni fjarlægð, þ.e.a.s., D.G.B. sendir frá sér vinsamlegar yfirlýs- ingar en lætur að öðru leyti ekki mikið að sér kveða - ef til vill vegna þess að ýmsar aðgerðir friðarhreyfingarinnar, sem fara út fyrir hefðbundinn ramma mótmælagangna eru hæpnar í augum verkalýðshreyfingar- innar. Þó er þess að geta að nú þann fimmta október efndi D.G.B. til fimm mínútna verkfalls undir einkunnarorðunum „Klukkuna vantar fimm mínútur í tólf“ - m.ö.o. það eru síðustu forvöð að mótmæla nýjum eldflaugakerfum í Evrópu - bæði í austri og vestri. Skólar og stjórnmálaflokkar 20. okt. er dagur menntastofnana og skóla. Fríðarhópar sem starfa á þessum vettvangi, t.d. nemendur, kennarar, samtök foreldra, stúdentar, o.s.frv. munu láta að sér kveða með ýmsum hætti. Venju- legt skólastarf mun væntanlega falla að verulegu leyti niður þennan dag, en í stað þess mun fara fram umræður og önnur starfsemi innan skólanna. Skólarnir munu einnig beita áhrifum sínum útávið t.d. með því að bjóða stjórnmálamönnum og öðrum frá mönnum til umræðna/kappræðna. 21. okt. er dagur þinga, borgarráða og stjórnmálaflokka. Friðarsinnar sem eru starfandi innan flokkanna t.d. Græningjar eða Jafnaðarmenn munu beita sér fyrir margs konar aðgerðum. Innihaldslega verður aðaláherslan lögð á hugmyndina um kjarnorkuvopnalaus svæði. Mjög víða í Sambandslýðveldinu hafa sveitarfélög, sýslur og einstakar borgir eða borgarhlutar lýst því yfir að þau væru/vildu vera kjarn- orkuvopnalaus svæði. Pólitískt hafa slíkar yfirlýsingar táknrænt gildi, en óljóst er hvert er lagalegt gildi og merking þeirra. 22. október lýkur aðgerðunum með mikl- um útifundum/mótmælafundum sem haldnir verða í Hamborg, Bonn, Stuttgart, Ulm og einnig f Berlín. Má búast við geysimikilli þátttöku í aðgerðum þessa dags. Næstu meiriháttar aðgerðir munu síð- an fara fram í nóvember, en þá verða skipu- lagðar friðarvikur um allt sambandslýð- veldið. Þetta er fjórða árið í röð sem slíkar friðarvikur eru haldnar, en þær eiga upphaf sitt að rekja til Hollands. Þar voru þær fyrst haldnar að frumkvæði kirknanna þar í lok 7. áratugarins. Hvemig verður listaverk til? Leifur Breiðfjörð sýnir í Hallgrímskirkju Til þessa hefur lítill gaumur verið gefínn að skissum og vinnuteikningum Iistamanna, en flest þau listaverk sem við skoðum og dáumst að eiga sér marga forvera og þá oft ólíka. A laugardag verður á vegum Listvinafélags Hallgríms- kirkju opnuð sýning á frum- drögum og vinnuteikningum á nokkrum verkum Leifs Breiðfjörðs, glerlistamanns og má þar sjá hvernig þau urðu til og þróuðust. Ljós- myndir af verkunum fullunn- um, þ.e. steindum gluggum eru einnig sýndar en flestir gluggarnir hafa verið settir upp nú nýverið eða verða sett- ir upp á næstunni. Þetta er fjórða einkasýning Leifs Breiðfjörð, en 8 ár eru síð- an hann hélt einkasýningu í Reykjavík. Á þeim tíma hefur hann unnið mörg verk fyrir opin- berar byggingar, kirkjur og einkaaðila. Forvinna hvers verks gefur oft miklar upplýsingar um vinnu listamannsins og listaverk- in sjálf og sagði Leifur Breiðfjörð að sér fyndist sem of lítil rækt hafi verið lögð við þessa hlið á vinnu listamannsins. Miðnœturskemmtun Listahátíð í léttum Listamaðurinn við fullgerða vinnuteikningu að steindum glugga sem settur var upp í Hússtjórnarskólanum á Akureyri á síðasta ári. Ljósm.- Magnús. Það er sem fyrr segir Listvin- afélag Hallgrímskirkju sem fyrir þessari skemmtilegu nýjung stendur. Sýningin verður opnuð í anddyri Hallgrímskirkju kl. 16 á laugardag af formanni Listvinaf- élagsins, hr. Sigurbirni Ein- arssyni, biskup. Módettukór Hallgrímskirkju syngur og sér einnig um kaffiveitingar í tengs- lum við opnunina. Sýningin verð- ur opin daglega kl. 10-12 nema á mánudögum. Á laugardögum og sunnudögum verður hún opin kl. Leikarar og Sinfónían standa fyrir skemmtuninni fyrir góðan málstað „Listahátíð í léttum dúr“ verður flutt í Háskólabíói í kvöld, föstu- dag, kl. 23.15. „Þarna kcmur fram fjöldinn allur af okkar bestu listamönnum", sagði Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins, við Þjóðvilj- ann í gær. „Hér er um styrktar- hátíð að ræða og verður ágóðan- um varið til að verða þeim að liði sem orðið hafa fyrir slysum eða aðstandendum þeirra". Meðal þeirra sem fram koma á Listahátíð í léttum dúr eru Sin- fóníuhljómsveit íslands ásamt einsöngvurum og kór Þjóðleik- hússins og íslenski dansflokkur- inn sýnir listdans og ntargir leikarar munu skemmta með fjöl- breyttri dagskrá. Það er slysasjóður Félags ís- lenskra leikara og Starfs- mannafélags Sinfóníunnar sem stofnaður var fyrir tíu árurn sem nýtur góðs af þessu framtaki. Uthlutun úr sjóðnum hefur farið fram árlega síðan 1974. Sala aðgöngumiða verður í Bókabúð Lárusar Blöndal á Skólavörðustíg og í Háskólabíói. Sinfóníuhljómsveitin mun leika létt lög á Lækjartorgi kl. 14.00 á föstudaginn til að minna á mið- næturhátíðina og þar munu og leikarar selja aðgöngumiða. -óg „Ljóð lyrir lífi” Ný ljóðabók „Ljóð fyrir lífi“ heitir ljóðabók sem ung skáldkona Berglind Gunnarsdóttir hefur nýgefið út. Ljóðunum er kaflaskipt: Skilnað- arljóð, Úr lögbók mannanna, Tilbrigðin, Til hinna dánu og Eitt þýtt ljóð. Ljóðabók Berglindar fæst í bókabúðunum: Eymunds- son, Máli og menningu og Bók- sölu stúdenta, - og kostar 150 krónur. Áður hafa birst Ijóð eftir Berg- lindi í tímaritum en þetta er henn- ar fyrsta ljóðabók. Forsíðumynd er eftir Megas. Letur fjölritaði. Æskan Septemberhefti Æskunnar er komið út og svo efnismikið að venju að engin tök eru að drepa nema á fátt eitt. Fyrst rekumst við á grein um Abraham Lincoln Bandaríkja- forseta og er hún þýdd og endur- samin af Jóhönnu Bryjólfsdóttur. Þá er litið inn í Iðnskólann í Reykjavík. Eðvarð Ingólfsson spjallar við Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnukappa. Rabbað er við unga bryggjuveiðimenn í Ól- afsfirði. Minnst er 100 ára afmæl- is skólastarfs á Siglufirði. Hólm- fríður Gísladóttir segir frá heim- sókn sænskrar hljómsveitar þroskaheftra, sem hingað kom í sumar. Grein er um Listasafn Einars Jónssonar myndnöggvara en 60 ár eru nú liðin síðan það var opnað almenningi. Þór Jakobs- son kynnir hugmynd þá sem nú er verið að hrinda í framkvæmd, þar sem unglingar eru hvattir til þess að taka eldra fólk tali og skrásetja frásagnir þess, en frá þeirri hug- mynd hefur þegar verið sagt hér í blaðinu. Birt er ávarp forseta ís- lands, Vigdísar Finnbogadóttur, í sambandi við þetta verkefni og fyrsta viðtalið á þessum vett- vangi, en það átti Hrafn Jökuls- son við afa sinn, sr. Jakob Jóns- son. Ótal margt annað er að finna í Æskunni, bæði til fróðleiks og skemmtunar. -mhg Styðjum alþýðu El Salvador og Mið Ameríku Fundur í Gamla bíói laugardag kl. 2 Sigurður Gabríei ngibjörg n Sif Juan Ávarp: Gabríel Lara fulltrúi Þjóðfrelsishreyfingar El Sal- vador. Túlkur er Ingibjörg Haraldsdóttir. Kvikmynd: Avinningar byltingarinnar. Myndin er mjög raunsönn lýsing á ástandinu, m.a. svæðum sem eru undirstjórn Þjóðfrelsisaflanna, daglegu lífi og baráttunni. Islenskur texti. Söngur: Sif Ragnhildardóttir, Ársæll Másson, Juan Diego. Ávarp: Einar Ólafsson. Fundarstjóri: Sigurður A. Magnússon rithöfundur. Einar Tökum þátt í alþjóðlegri samstöðu gegn innrás og til stuðnings sjálfsákvörðunarrétti þjóða Mið Ameríku. El Salvadornefndin á Islandi Alþýðubandaiagið Alþýðuflokkurinn Samband ungra jafnaðarmanna Fylkingin Bandalag jafnaðarmanna Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Kvennaframboðið Stjórn Stúdentaráðs HÍ Stjórn Félags bókagerðarmanna Stjórn Verkamannasambands íslands Stjórn Verkamannafélagsins Dagsbrunar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.