Þjóðviljinn - 14.10.1983, Blaðsíða 16
múmu/m
Föstudagur 14. október 1983
Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Friðrik í sókn - Róðurinn þyngist hjá Þorsteini
Friðrik Sophusson
er í sókn, róðurinn
þyngist hjá Þorsteini
og Birgir ísleifur
stendur lang lakast
að vígi keppinaut-
anna um formennsku
í Sjálfstæðisflokkn-
um samkvæmt nýj-
ustu fréttum í Sjálf-
stæðisflokknum í
gær. Töldu heimildir
blaðsins jafnvel
koma til álita að Birg-
ir hætti við framboð
sitt.
Síðustu daga hefur róðurinn
þyngst verulega hjá Þorsteini
Pálssyni, sérstaklega eftir að ljóst
var að Geir Hallgrímsson hefði
augastað á honum. Enn fremur
þykir óeðlilegt að maður úr lands-
byggðarkjördæmi sé hafinn til
slíkra vegsemda. Síðast en ekki síst
þykir mörgum Sjálfstæðismönnum
það erfið tilhugsun að andlit
Vinnuveitendasambands íslands
útávið í byrjun árs eigi að verða
andlit Sjálfstæðisflokksins í lok árs-
ins. Slíkt sé einum of augljós
eyrnamerking á flokknum, sem
þyrfti á að halda breiðara andliti
útávið. Þá þyki og mörgum alltof
skjótur frami drengsins úr Vinnu-
veitendasambandinu, að komast
inná þing og verða formaður að-
eins örfáum mánuðum síðar.
Birgir
ísleifur
sem nýtur nokkuð almennra vin-
sælda þykir hins vegar ekki jafn vel
til forystu fallinn - og sagt er að það
gusti ekkert af honum. I kosninga-
baráttunni nú hafi sá grunur Sjálfs-
tæðismanna staðfests að hann eigi
Birgir ísleifur
Gunnarsson í sæti sínu á Alþingi
í gær. Ljósm.: Magnús.
litla eða enga möguleika til að ná
hinum tveimur. Fylgi hans hefur
því farið dalandi innan Sjálf-
stæðisflokksins síðustu daga. Birg-
ir þykir seinn til við ákvarðanir og
innanbúðarmenn í Sjálfstæðis-
flokknum sögðu í gær, að ekki
kæmi á óvart þó hann hætti við
framboðið þegar þar að kæmi.
Friðrik
Sophusson
sem nýtur annars lítils stuðnings
höfðingja nema Ragnar í Alusuisse
og Davíð Scheving séu taldir með
þeim, er hins vegar sagður vera að
treysta baklandið síðustu daga.
Bæði þyki hann nú illskárri vegna
jafnaðarmerkisins, sem almenn-
ingur setur á milli Vinnuveitenda-
sambandsins, kjaraskerðingar og
Þorsteins Pálssonar og svo hitt að
nýríkir braskarar styðji Friðrik
frekar. Þegar ár kjaraskerðingar í
anda Vinnuveitendasambandsins
er að líða, nýtur Friðrik Sophusson
þannig kaupránsins.
-óg/ór.
Dæmi úr „aðhaldsfrumvarpi“ Alberts
Skrífstofubáknið
fær að blása út
Auknar fjárfcstingar í kerfisbákninu, skrifstofubyggingar, og embættis-
bústaðir skipa drjúgan sess í heimildaskrá ijármálaráðherra í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir næsta ár. Á sama tíma og skera á stórlega niður félags-
lega þjónustu, menningar og menntamá) og auka enn frekar kjaraskerð-
ingu og skattaáiögur munkerfið fá sinn skammt vel út látinn.
Fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson veitir í frumvarpi sínu,
sjálfum sér heimild til að taka lán
til kaupa á skrifstofuhúsnæði fyrir
Stjórnarráðið, taka lán til kaupa á
húsnæði fyrir varamenn sendiherra
í sendiráðum fslands, láta fara
fram hönnun skrifstofuhúsnæðis,
verkstæðis og birgðastöðvar fyrir
RARIK . byggja skrifstofuhús fyrir
sýslumann og fógeta á Húsavík og
taka lán til þeirra framkvæmda,
kaupa húsnæði og taka lán fyrir
skattstofu Norðurlands eystra, lán
og húsnæði fyrir embættisbústað
fógeta á Siglufirði, embættisbústað
og lán fyrir sýslumann Dalasýslu,
semja við bæjarstjórnir Akraness,
Húsavík og ísafjarðar um hönnun
og byggingu stjórnsýsluhúsa á
þessum stöðum og þannig má lengi
telja upp dæmi um aðhald fjár-
málaráðherra í kerfisbákninu._ (
Sif Ragnhildardóttir og Juan Diego Quesada syngja á baráttufundinum til stuðnings alþýðu El Salvador i
Gamla bíói á morgun. Ljósm. Sdór.
E1 Salvador fund-
urinn á morgun:
Baráttu-
söngvar
frá Mið-
Ameríku
Sif Ragnhildardóttir
og Juan Diego
Quesada flytja
Á baráttufundi til stuðnings al-
þýðu El Salvador sem 12 flokkar og
félög standa að og hefst kl. 14.00 á
morgun í Gamlabíói munu Juan Di-
ego Quesada frá Costa Rica og Sif
Ragnhildardóttir syngja og leika á
gítar baráttusöngva, m.a. lcjg eftir
Violeta de Para. Við hittum þau
Juan óg Sif að máli í gær og Juan
var spurður um dvöl hans hér á
landi.
Ég hef verið hér á landi í 10 mán-
uði og unnið í fiski í Grundarfirði,
eri er að færa mig um þessar mundir
yfir til Ólafsvíkur. Ég er stúdent frá
Costa Rica og kom hingað til þess
að læra málið og valdi þá aðferð að
dveljast innan um fólkið í stað þess
að setjast í skóla, sagði Juan.
Hann sagðist hafa verið meðlim-
ur í söngtríói í sínu heimalandi og
því hefði hann ekki sungið einsöng
fyrr en hann kom hingað til lands.
Hann sagðist hafa gert dálítið af því
að semja lög og ætlar að flytja eitt
þeirra á fundinum á morgun. Það
er lag sem hann tileinkar EI Salva-
dor. Juan sagðist ekki hafa verið í
E1 Salvador, en aftur á móti hefði
hann lesið blöð sem frelsissveitirn-
ar þar gefa út og eins hefði hann
kynnst fólki frá E1 Salvador. Aftur
á móti sagðist hann hafa verið í
Nigaragua og séð með eigin augum
það ævintýri sem þar hefði gerst
eftir að Sandinistar komust til
valda. Hann kvað það mikla
lífsreynslu fyrir mann frá Costa
Rica að koma nú til Nicaragua og
sjá alla þá uppbyggingu sem þar á
sér stað í skóla og félagsmálum
o.fl.
Sif Ragnhildardóttir söng
baráttusöngva 8. mars í fyrra á
baráttufundi Fylkingarinnar. Hún
sagðist aldrei áður hafa sungið með
Juan Diego Quesada, en á morgun
ætluðu þau bæði að syngja saman
og sitt í hvoru lagi.
Húsavík og
Vestmannaeyjar
um helgina
Verslunar-
menn og
verkamenn
Tvö landssambönd verka-
lýðsfélaga halda þing sín um
þessa helgi 11. þing Verka-
mannasambandsins hófst í
Vestmannaeyjum í gær og
stendur fram á sunnudag og í
dag byrjar þing Landssam-
bands íslenskra verslunar-
manna á Húsavík og lýkur því
á sunnudag.
Þing Verkamannasam-
bandsins hófst kl. 17.30 í gær
og eiga þar sæti 139 íulltrúar
53 aðildarfélaga sambandsins,
en í þeim eru nú um 26.100
félagsmenn. Aðalmál þing-
sins verða kjaramálin auk
venjulegra þingstarfa og auk
þess mun flutt sérstök dagskrá
til minningar um Eðvarð Sig-
urðsson. fyrsta formann
VMSÍ, en hann lést í sumar.
Formaður Verkamannasám-
bandsins nú er Guðmundur J.
Guðmundsson en Karl Stein-
ar Guðnason varaformaður.
Þing Landssambands ís-
lenskra verslunarmanna hefst
á Hótel Húsavík í dag kl.
13.30. Þar mun vinnutími
verslunarfólks eflaust verða
efst á baugi og mun Sigfinnur
Sigurðsson hagfræðingur hafa
framsögu um þau mál. Þá ætl-
ar Björn Þórhallsson varafor-
seti ASÍ og formaður Lands-
sambands ísl. verslunar-
manna að ræða skipulagsmál
verslunarmanna, Guðmund-
ur H. Garðarsson ræðir lífeyr-
ismálin og Hannes Þ. Sigurðs-
son tölvumál. Reiknað er með
að rúmlega 100 manns sæki
þingiö á.Húsavík, _y