Þjóðviljinn - 14.10.1983, Qupperneq 5
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Nðfnin á götunum eru sótt í kveðskap Bjarna Thorarensen skálds, dómara
og amtmanns.
Athugasemd
frá Inga Tryggvasyni
og önnur frá blaðamanni
Þjóðviljanum barst í gær athugasemd frá Inga Tryggvasyni for-
manni framleiðsluráðs landbúnaðarins og þar segir:
Blaðamaður spurði hvort kjöt-
mat væri á vegum Sambands ísl.
samvinnufélaga eða Framleiðslur-
áðs landbúnaðarins. Ég tjáði hon-
um, að kjötmat og heilbrigðis-
skoðun kjöts væri hvorki á valdi
framleiðsluaðila né söluaðila,
heldur starfsmanna skipaðra af op-
inberum aðilum.
Þessi orð mín eru heimfærð upp
á allt annað mál, sem er athugun
Heilbrigðiseftirlits Reykjávíkur-
svæðisins á sölu ákveðinna kjöt-
birgða frá fyrra ári, á niðursettu
verði. Þykir mér leitt, að það skuli
henda Þjóðviljann að gera al-
mennar skýringar á uppbyggingu
mats og heilbrigðiseftirlits á fram-
leiðsluvörum bænda, að uppistöðu
í óvandaðri og villandi æsifrétt.
Þá getur Ingi þess að fundur
Framleiðsluráðs í fyrradag hafi
ekki verið lokaður og að þar hafi
ekki verið formlega fjallað um
kjötmálið.
Athugasemd blaðamanns
Ljóst er að Ingi hefur fengið bak-
þanka eftir samtal okkar í fyrra-
dag. Hann sagði í því að það væri
alfarið á ábyrgð heilbrigðisyfir-
valda að segja til um hvort kjöt
væri mannamatur eða ekki og þess
vegna væri það á ábyrgð heilbrigð-
isyfirvalda að þetta kjöt hafi farið á
markað og að ríkið bæri ábyrgð á
heilbrigðismálunum. Og nákvæm-
lega þetta var haft eftir honum.
Raunar staðfestir Ingi þetta í fyrri
klausunni í athugasemd sinni.
í annan stað segir hann fund
Framleiðsluráðs ekki hafa verið
lokaðan, samt var ljósmyndara
Þjóðviljans meinað að mynda
fundarmenn. Hann segir ennfrem-
ur að kjötmálið hafi ekki verið á
dagskrá, samt sagði hann í samta-
linu við undirritaðan í fyrradag að
kjötmlið hafi verið rætt á fundin-
um, enda þar staddir allir þeir sem
málið snertir og þaðan hringdi Ingi
í undirritaðan til þess að ræða mál-
ið og náði síðan í Agnar Tryggva-
son, framkvæmdastjóra Búvöru-
deildar SÍS, sem einnig var á þess-
um fundi, til þess að undirritaður
gæti rætt við hann líka. Þessi at-
hugasemd Inga er því hreint yfir-
klór, líkt og þegar skákmaður fórn-
ar drottningunni í vitleysu, þegar
mát blasir við í næsta leik.
-S.dór
Rautt þríhymt merki
á lyfjaumbúðum
táknar að notkun lyfsins dregur
úr hæfni manna í umferðinni
Greinargerð Þórhalls um götunöfn við Grafarvog:
„Hver ríður svo geyst
á gullinbrúvu...”
„Hið nýja íbúðarhverfi er í
landi jarðanna Gufuness og
Keldna. í Gufunesi bjó Bjarni
Vigfússon Thorarensen skáld
og dómari í landsyfirrétti, síðar
amtmaður, lengst af á árunum
1816-33. I Gufunesi orti Bjarni
sum kunnustu kvæði sín.
Lagt er til, að mið verði tekið
af kveðskap Bjarna, þegar göt-
um í fyrsta íbúðarhverfinu í
landi Gufuness verða gefin
nöfn. Kvæðið Veturinn, sem
Bjarni orti á Gufurtesárum sín-
um, árið 1823, hefst með ljóð-
línunum:
Hver ríður svo geyst
á gullinbrúvu...
Aðalvegurinn upp í Gufunes á
að liggja um nýja brú á Grafar-
vogi, og er lagt til, að brúin og
vegurinn verði nefnd Gullin-
brú. Þvert á þann veg, norðan
íbúðarhverfisins og sunnan
kirkjugarðsins nýja, á að koma
aðalbraut upp á Vesturlands-
iveg, og er stungið upp á, að
hann heiti Vetrarbraut, sbr.
heiti fyrrnefnds kvæðis.
Götunöfn innan hins nýja
íbúðarhverfis, austan Gullin-
brúar og sunnan Vetrar-
brautar, verði valin með hlið-
sjón af tveimur öðrum frægum
kvæðum Bjama: Eldgamla ísa-
fold og ísland (Þú nafnkunna
landið). Meginvegurinn (safn-
brautin) gegnum hverfið heiti
Fjallkonuvegur, en síðari liðir
annarra götunafna í hverfinu
verði -fold (sbr. Eldgamla ísa-
fold, ástkæra fósturmold, fjall-
konan fríð). Fyrri liðir nafn-
anna verði valdir með hliðsjón
af ljóðlínum Bjarna í Þú nafn-
kunna landið:
Fjör kenni’ oss eldurinn,
frostið oss herði,
fjöll sýni torsóttum
gæðum að ná.
En þessi hugsun, að umhverfið
móti mennina, var mjög uppi á
dögum Bjarna, og má rekja
hana til franskra heimspekinga
á 18. öld (Montesquieu). Átta
íbúðargötur fái samkvæmt
þessu nöfnin Funafold, Loga-
fold, Hverafold, Reykjafold,
Fannafold, Frostafold, Jökla-
fold og Fjallafold. Gatan, sem
liggur um viðskipta- og menn-
ingarmiðstöð hverfisins, fái
nafnið Fjörgyn með hliðsjón af
þeirri hugsun í kvæði Bjarna,
að baráttan við náttúruöflin
auki mönnum fjör. Nafnið
Éjörgyn ’jörð‘ kemur fyrir í
kvæði Bjarna, Vetrinum. Það
er kvenkynsorð og beygist eins
og hið kunna norska borgar-
nafn Björgvin eða Björgyn
(eignarfall Fjörgynjar). Sumir
málfræðingar hafa talið nafnið
samstofna no. fjör ’líf, og
a.m.k. minnir nafnið íslend-
inga á líf og fjör.”
/o. trU. /ffy
Mýjimg!
OSTUR’83
14. og 15. okfcóber
Niðurstöður verða kynntar í Osta-og smjörsölunni,
Bitruhálsi 2, föstudaginn 14. október kl. 15—20 og
laugardaginn 15. október kl. 13—18. Þá munu ostameistar-
arnir verða á staðnum og bjóöa gestum að smakka ostana
sína og svara jafnframt öllum spurningum um osta og
ostaframleiðslu. Verðlaunaostarnir verða kynntir og seldir
á kynningarverði og gestum gefinn kostur á að kaupa
sérstaka ostapakka.
Hittumst í Osta- og smjörsölunni 14. og 15. október.
Verið velkomin.
OSTA- 00 SMJÖRSALAN
BITRUHÁLSI2
Dagana 12. og 13. október
koma ostameistarar hinna
ýmsu ostabúa landsins saman
með framleiðslu sína, sem
tekin verður til gæóaprófunar
af íslenskum ostadómurum,
ásamt einum erlendum
ostadómara.