Þjóðviljinn - 14.10.1983, Side 10
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 14. október 1983
Minning ________________
Hjalti Jónsson verkstjóri
Fæddur 6.10. 1912
Dáinn 5.10. 1983
Sumir eru þeirrar skoöunar að
haustið sé árstíða fegurst, og við
sem sáum varla sumar þetta árið,
höfum fengið ríkulega umbun með
dásemdum haustsins. En haustið
minnir okkur líka á gang lífs og
dauða, þegar haustlaufin falla og
jörðin sölnar. Öll viljum við að
laufin og grösin lifi sem lengst, en
við vitum líka að sú barátta tekur
enda. Þegar um vini og vandamenn
okkar er að ræða, þá gengur okkur
erfiðar að sætta okkur við gang lífs-
ins. Hvers vegna einmitt núna?
spyrjum við þegar kallið kemur.
Eitt slíkt kall kom þegar móðir mín
kvaddi vin sinn, Hjalta Jónsson á
Landakotsspítala5. október sl. Ári
fyrr höfðum við lifað hans sjötug-
asta afmælisdag í dýrlegum afmæl-
isfagnaði í glæsilegu, nýreistu fé-
lagsheimili Karlakórs Keflavíkur.
Þá ómaði söngur gleðinnar, í dag
kveðja söngbræður í sorg.
Það var ekkí mulið undir Hjalta
og systkini hans, þegar þau voru að
alast upp austur á Héraði í byrjun
þessarar aldar. Þegar Hjalti var níu
ára og átti heima á Unaósi, féll fað-
ir þeirra, Jón Mikaelsson, frá og
fjölskyldan var flutt til Djúpavogs.
Síðan sundraðist barnahópurinn,
en Hjalti fluttist með móður sinni,
Arnfríði Eðvaldsdóttur, til Norð-
fjarðar. Upp úr fermingu var svo
eini kosturinn að halda á sjóinn og
þau urðu um síðir nærri fjörutíu
árin á sjónum. Síðustu árin var svo
Hjalti verkstjóri hjá Aðalverk-
tökum í Keflavík, en áður hafði
hann lengi átt heima í Sandgerði.
Þessa hörðu lífsbjargarsögu sem
algeng var á fyrri hluta þessarar
. aldar þekkir fæst ungt fólk í dag, en
hún minnir okkur á hve stutt er
síðan örbirgðin stóð við margra dyr
og lítið mátti út af bera, hvað þá ef
fyrirvinnan féll frá.
Og það var ekkert dregið af sér,
hvorki á síld, togara, þorskanetum
eða við beitningu. Hjá einni út-
gerðinni féll ekki úr einn dagur í
heil þrettán ár. Heilsa og þrek er
kannski besta gjöf hvers manns og
þessa naut Hjalti ríkulega, þar til
sjúkdómurinn stórtækasti tók í
taumana.
En lífið er ekki aðeins saltfiskur.
Stundir gáfust Hjalta til að vinna
að félagsmálum sjómanna og
verkafólks, og jafnaðarstefnan
varð honum eðlilegt lífsviðhorf.
Svo kallaði söngnautnin hann í
raðir Karlakórs Keflavíkur, þar
sem þeir feðgar, Hjalti og sonur
hans Óli Þór voru einar traustustu
stoðirnar í starfi kórsins.
Kynni af Hjalta hófust fyrir að-
eins tæpum áratug, þegar leiðir
hans og móður minnar lögðust
saman. í lífi beggja höfðu skin og
skúrir svo vissulega skipst á, en nú
var eins og þau byrjuðu nýtt líf og
yrðuungíannað sinn. Það varfarið
í ferðalög innanlands og utan, oft í
hópi félaga í Karlakór Keflavíkur,
tengsl við vini og ættingja efldust
og heimilið og garðurinn í Karfa-
voginum tóku stakkaskiptum með
hverju ári, því alltaf var hægt að
finna sér ný verkefni sem bæði
unnu að af lífi og sál. Það bar því
oftast eitthvað nýtt fyrir augu, þeg-
ar vesturbæingarnir komu í heim-
sókn í hina skjólsælu Voga. Þessar
heimsóknir voru ekki síst stundir
þess yngsta í fjölskyldunni, það
varð ævintýri barnsins að koma í
gula húsið þeirra ömmu og afa.
Þessi fallegu samveruár þeirra
Önnu og Hjalta verða okkur, ætt-
ingjum þeirra og vinum kær og lær-
dómsrík. Hamingjan verður ekki
mæld í árum, metrum eða krónum,
heldur augnablikum lífsins.
Hvíldu í friði, vinur.
Reynir Ingibjartsson.
Laus staða
Staða fulltrúa á Skattstofu Suðurlandsum-
dæmis, Hellu, er laus til umsóknar. Æskilegt
er að umsækjendur hafi lokið prófi í lögfræði
eða viðskiptafræði. Umsækjendur með hald-
góða bókhaldsþekkingu koma einnig til
greina.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skattstjóra
Suðurlandsumdæmis, Hellu, fyrir 15. nó-
vember n.k.
Fjármálaráðuneytið,
14. október 1983
Þjóðleikhúsið
LAUSAR STÖÐUR
Eftirtaldir starfsmenn verða ráðnir við Þjóðleikhúsið 1.
janúar1984.
HÖFUNDUR: Staða höfundar (rithöfundar, tón-
skálds, danshöfundar) er veitt til 6 mánaða í senn.
Ætlast er til að viðkomnadi leggi fram greinargóða
lýsingu eða handrit að því verki, sem hann hyggst
vinna að.
Æskilegt er að umsækjandi hafi áður skrifað fyrir
leikhús, eða hafi nokkra þekkingu á leikhússtarfi.
SÝNINGARSTJÓRI: Áskilin er alhliða reynsla af
leikhússtarfi, og góð almenn menntun. Æskilegt er að
viðkomandi hafi auk þess hlotið menntun í einhverri
grein, sem tengist leikhússtarfsemi.
STARFSMAÐUR Á SAUMASTOFU (Yfirsauma-
kona): í starfinu felst búningasaumur fyrir konur og
karla, ásamt fleiru. Reynsla í sníðingu og alhliða
saumaskap áskilin.
Umsóknarfrestur er til 4. nóvember 1983. Ráðningar-
kjör eru samkvæmt samningi BSRB og fjármálaráð-
uneytisins.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Þjóðleikhúss-
ins, Hverfisgötu 19, milli'kl. 10 og 12. Sími 11204.
Þjóðleikhússtjóri
Reyking og sala á matvælum
SMra22
[> /UREYKOFNINN HF.
Skemmuvegi 14 200 Kópavogi
Hellusteypan r
STÉTT Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211. XI.#
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjörn G. Hauksson Pípulagningameistari Simi 46720 Ari Gústavsson Pípulagningam Simi 71577 Nýlagnir Jarðlagnir Viðgeröir Breytingar Hreinsanir
VÉLA- OG TÆKJALEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
Sláttuvélaleiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta,
minni háttar múrverk og smíðar.
BORTÆKNI SF.
Vélaleiga, simi 46980 — 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
STEYPUSÖGUN
vegg- og góUsögun
VÖKVAPRESSA
i múrbrot og fleygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum aó okkur verkefni um allt land. — Fljót og góö
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
BORTÆKNI S/F
Vélaleiga S: 46980 - 72460.
Verkpantanir
frá kl. 8—23.
TRAKTORSGRÖFUR
LOFTPRESSUR
SPRENGIVINNA
46297
Auglýsið
Þjóðviljanum
GEYSIR
Bílaleiga____________
Car rental________________
BORGARTÚNI 24- 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
LIPUR ÞJ0NUSTA
VIÐ LANDSBYGGÐINA
PÖNTUM - PÖKKUM
SENDUM - SÆKJUM
TRYGGJUM
Leyfiö okkur að létta ykkur sporin og losa
ykkur við kvabb á vinum og vandamönnum.
• •••
Ekkert er auðveldara en slá á þráðinn
og afla upplýsinga.
MM
Opið frá kl. 9-19 alla virka daga.
Símsvari opinn allan sólarhringinn.
JLandsþjonustan s.f.
Suðavogi 18. S.84490 box 4290
GLUGGAR
0G HURÐIR
| Vönduð vinna á hagstæðu verði\
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9, Hf.
S. 54595.