Þjóðviljinn - 21.10.1983, Qupperneq 3
Málin rædd á ritstjórnarskrifstofum Alþýðubandaiagsins í gær. Guðmundur Arni Stefánsson, Jóhannes
Guðmundsson, Friðrik Þór Guðmundsson og Þráinn Hallgrímsson. (Ljósm. - eik).
Guðmundur Arni Stefánsson ritstjóri Alþýðublaðsins:
Enginn bUbugur
Útgáfan heldur áfram þótt annað form komi til álita
Hér er allt í fullum gangi - og
ekki nokkurn bilbug á aðstand-
endum Alþýðublaðsins að
fínna, sagði Guðmundur Arni
Stefánsson ritstjóri Alþýðu-
blaðsins í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
- Töluverðs misskilnings gætir í
frétt Þjóðviljans um málið í gær.
Vissulega eru erfiðleikar fyrir
hendi en flokksfólk er jafn áfjátt í
að halda málgagni - þó svo gæti
farið að útgáfunni verði breytt.
Mál þetta var tekið upp á flokks-
Ráðstefnan
í Gerðubergi
Kjor
kvenna á
vinnu-
markaði
Konur víðs vegar að hafa undir-
búið ráðstefnu um kjör kvenna á
vinnumarkaðinum. Ráðstefnan
verður á Iaugardaginn 22. október
og hefst kl. 9.30 um morguninn og
er gert ráð fyrir að henni ljúki kl.
18.00.
Fjögur erindi verða flutt á ráð-
stefnunni. Helga Sigurjónsdóttir,
Bjarnfríður Leósdóttir, Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir og Lilja
Ólafsdóttir flytja. Þá starfa umræð-
uhópar. í hádegishléi skemmtir
Kvennaleikhús og vísnasöngvari.
Fundarstjóri verður Guðrún Jóns-
dóttir. Frekari upplýsingar er hægt
að fá í síma 21500 hjá starfsmönn-
um Kvennaframboðs og Kvenna-
lista.
-óg
stjórnarfundi sl. mánudag og þar
var borin upp tillaga frá formanni
um að setja nefnd í útgáfumálin en
segja upp starfsfólki hér 1. nóv-
ember. Þannig að óbreyttu hefði
blaðið hætt að koma út 1. febrúar.
Hins vegar varð niðurstaðan sú að
fundurinn sendi framkvæmda-
stjórn málið til ýtarlegri umfjöllun-
Undanfarna mánuði höfum við
verið að íhuga ýmsa valkosti í út-
gáfumálum. A næsta flokks-
stjórnarfundi verður gerð grein
fyrir núverandi stöðu mála og þeim
valkostum sem fyrir hendi eru. Á
mánudaginn næsta verður tekin af-
staða til hvaða kostur verður ofan
á.
ar.
Það hefur því engin ákvörðun
verið tekin um að hætta útgáfu Al-
þýðublaðsins sem dagblaðs - og
mikill hugur í flokksfólki að efla
útgáfuna í víðum grundvelli.
Höfuðatriði málsins er það, að
ekki verður tekin ákvörðun um að
leggja það litla sem er niður, nema
fyrir liggi að þróttmikil útgáfustarf-
semi taki við.
-óg
Guðrún Jónsdóttir borgarfulltrúi með auglýsingaplakat um ráðstefnuna.
(Ljósmynd-Magnús).
___Föstudagur 21. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Bílamál forsætisráðherra
Blazer-
fríðindi
skattskyld
Löggiltir endur-
skoðendur mót-
mæla túlkun
ríkisskattstjóra
Löggiltir endurskoðendur
sem Þjóðviljinn hefur rætt við,
telja að Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra eigi
skilyrðislaust að telja niðurfell-
ingu aðflutningsgjalda af Blaz-
er bifreið sinni fram til skatts.
Hér sé um kaupauka að ræða,
sem beri að tíunda og slík fríð-
indi hljóti að vera skattskyld.
Ríkisskattstjóri hefur hins veg-
ar látið svo ummælt í fjölmiðí-
um að eftirgjöf aðflutnings-
gjaldanna hafí hingað til ekki
verið talin til skattsskyldra
tekna. Endurskoðendurnir
benda þá á breytingu sem gerð
var á skattalögunum fyrir
tveimur árum.
í lögum um tekjuskatt og eignar-
skatt nr. 75/1981, er ekki sérstak-
lega kveðið á um niðurfellingar af
aðflutningsgjöldum bifreiða en
sérfræðingar sem Þjóðviljinn
leitaði til telja aftur á móti að ekki
sé þar heldur að finna ákvæði sem
gefi tilefni til undanþágu frá því að
telja niðurfellinguna fram, þvert á
móti sé í 7. grein skattalaganna sér-
staklega kveðið á um að ökutækj-
astyrki beri skilyrðislaust að tí-
unda.
stjóri sendir árlega til framteljenda
er m.a. fjallað um hvernig og hvað
eigi að fylla út í reit 22 á skatt-
framtalinu, en þar skulu ökutækj-
astyrkir taldir fram. f leiðbeining-
unum segir: „Hér skal færa öku-
tækjastyrki sem launþegar fá
greidda. Skiptir ekki máli í hvaða
formi ökutækjastyrkurinn er
greiddur, hvort heldur sem föst ár-
leg eða tímaviðmiðuð greiðsla,
sem kílómetragjald fyrir ekna kfló-
metra, eða sem greiðsla eða endur-
greiðsla á rekstrarkostnaði öku-
tækis að fullu eða öllu.“
Þar sem ráðherrar og aðrir þeir
sem fá niðurfellingu á aðflutnings-
gjöldum bifreiða sinna, eru alla
jafna hátekjumenn, lenda þeir í
hæsta skattaflokki og þurfa að
greiða um 64% af niðurfellingunni
til baka í formi skatta til ríkis og
bæjar. Þá er miðað við 50% tekj-
uskatt, 12% útsvar og 2% í sjúkra-
tryggingagjald.
Endurskoðendur og ríkisskatt-
stjóra greinir því á í þessu máli.
Spurningin er því hvort ráðherrar
landsins séu hafnir yfir þau skatta-
lög sem almenningur býr við. Geta
toppembættismenn ákveðið skatt-
leysi ráðherra?
- v.
Alvarlegt slys
Mjög alvarlegt umferðarslys
Ivarð c' - 'Aholtsbraut í gærkveldi
er bifreio •••• •—*--ðareyju
og hafnaö: á ljosastaui. Kranabíla
þurfti til að ná ökumanni útúr bif-
reiðinni. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar var enginn farþegi í
bifreiðim.i
í leiðbeiningum sem ríkisskatt-
Svavar Gestsson spyr forsætisráðherra:
Er verkfalls-
réttur í gíldi?
Beðið svars
á Alþingi eftir
helgina
„Ég vil spyrja hæstvirtan for-
sætisráðherra að því hvort það
sé ekki alveg á hreinu að þessi
lög hrófla á engan hátt við verk-
fallsrétti verkalýðssamtakanna
í landinu?“ spurði Svavar
Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins í umræðum um
bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar á Alþingi. Svör fengust
engin, en umræðunni verður
haldið áfram eftir helgi.
„Ég vil fá afdráttarlaus svör í
þessu efni. í lögunum eins og þau
eru þá er hvergi minnst á rétt
verkafólks til vinnustöðvana. Það
er hvergi á það minnst og hvergi
vísað til laganna um stéttarfélög og
vinnudeilur. Er það ekki alveg ljóst
að verkalýðsfélögin hafa fullan rétt
til vinnustöðvana ef þeim býður
svo við að horfa þrátt fyrir þessi lög
sem hér er verið að ræða?“, spurði
Svavar, en fékk ekki svar. - ekh
Alþýðubandalagið
Miðstjórn í dag
í dag kl. 20.30 kemur miðstjórn Alþýðubandalagsins saman
til fundar að Hverfisgötu 105. Fundinum verður fram haldið
kl. 14 á morgun, laugardag, og þá í Þinghóli, Hamraborg 11,
í Kópavogi.