Þjóðviljinn - 21.10.1983, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 21.10.1983, Qupperneq 7
Föstudagur 21. október 1983 | ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Kjarvalsstaðir: Iðnkynning á Víkur- vörum Átta fyrirtæki í Vík í Mýrdal efna til kynningar á framleiðslu sinni á Kjarvalsstöðum nú um helgina, eða frá föstudegi 21. okt. til sunnu- dagskvölds 23. okt. Hér eru á ferð öll fyrirtæki, sem sinna framleiðslu í Vík í Mýrdal. Hefur það ekki áður skeð að öll fyrirtæki í plássi utan Reykjavíkur kynni þannig fram- leiðslu sína í höfuðborginni. Sýn- ingin er að sjálfsögðu opin hverjum þeim, sem inn vill líta. Fyrirtækin, sem að kynningunni standa, eru: Pjónastofan Katla, sem kynnir peysur og jakka. Trésmiðjan 3K, sem kynnir skrif- stofuhúsgögn og hurðir. Víkur- prjón, sem er stærsta sokkaverk- smiðja landsins. Víkurvagnar, sem kynna sturtuvagna og kerrur. Skálafell sem kynnir rafmagns- töflur. Sláturhúsið í Vík, sem kynnir slátur og sviðasultu. Hrafn- atindur, sem kynnir Telmaster raf- ofna. Einar Sverrisson, Kaldran- anesi, sem kynnir rafhitunarkatla. Sýningin verður opnuð kl. 2 í dag, föstudag. Við opnunina mun sönghópur kvenna að austan, Bláu dísirnar, taka lagið fyrir viðstadda. -mhg Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir sá um uppsetningu sýningarinnar (Ijósm eik). Forstjórastaðan hjá BÚR:_ Sjálfstæðisflokk- urinn réði Brynjólf Bjamason AUir borgarfulltrúar minnihlut- ans greiddu í gær atkvæði gegn ráðningu Brynjólfs Bjarnasonar í forstjórastöðu Bæjarútgerðar Reykjavíkur, ekki til þess að lýsa vantrausti á hann persónulega, heldur til þess að mótmæla þeim vinnubrögðum sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur viðhaft til þcss að bola Einari Sveinssyni og Björgvin Guðmundssyni úr stöðum fram- kvæmdastjóra BUR til að í sæti þeirra „geti sest pólitískt þóknan- legur framkvæmdastjóri bókafé- lags, sem ekki er vitað til að hafi minnstu þekkingu á útgerð eða fiskvinnslu“, eins og segir í sam- eiginlegri bókun frá Alþýðubanda- lagi, Framsóknarflokki og Alþýðu- flokki. Brynjólfur hlaut 12 atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúar Kvennaframboðs lögðu til að Einar Sveinsson yrði ráðinn, hann hefði víðtækan stuðn- ing starfsfólks og 8 ára starfs- reynslu. Tillaga þeirra hlaut aðeins 2 atkvæði en aðrir fulltrúar minni- hlutans sátu hjá. Benti Sigurjón Pétursson á að ekki væri ástæða til þess að gera upp á milli þeirra Ein- ars og Björgvins nú, enda væri greinilegt að meirihlutinn hefði þegar ákveðið að ráða Brynjólf Bjarnason til starfans. í umræðunum sem stóðu í þrjá klukkutíma var hvergi gerð tilraun til að benda á að þeir Einar og Björgvin væru ekki starfi sínu vaxnir. „Þem er ekki sagt upp af neinni tilgreindri ástæðu", sagði Sigurjón Pétursson. „Hér er ein- faldlega verið að víkja úr starfi mönnum sem hafa unnið fyrirtæk- inu vel af trúmennsku og dugnaði vegna þess að meirihlutinn ætlar að ráða sér þóknanlegri mann póli- tískt í þeirra starf. Þetta er nýtt í ráðningarsögu Reykjavíkurborgar og með þessu móti er farið inn á óheppilega og hættulega braut“, sagði Sigurjón Pétursson. Ráðstefna kennara: Gildi verkgreina og listgreina Dagana 21.-22. okt.halda kenn- arafélög í list- og verkgreinum ráð- stefnu undir yfirskriftinni „Gildi list- og verkgreina í uppeldi“. Til- gangurinn með ráðstefnunni er að vekja athygli á stöðu þessara greina í skólum, gildi þeirra almennt í uppeldi og áhrifamátt þeirra í þjóðfélaginu. Jafnframt verður horft fram á við og athugaðir möguleikar á samþættingu hinna ýmsu greina scm kenndar eru. Á ráðstefnunni verða flutt erindi af fróðum mönnum og konum um þessi mál, einnig mun fulltrúi frá hverju kennarafélagi flytja álits- gjörð. f þeim álitsgjörðum verður fjallað um þá þróun sem átt hefur sér stað í hverri grein gegnum tíð- ina, stöðu þeirra í dag og framtíð- arsýn. Eftir flutning erinda og álits- gjörða verða hópumræður, þar sem hin ýmsu mál þessara greina verða rædd. hefst föstudaginn 21. okt. kl. 13.30 Ráðstefnustaður er að Borgartúni Ráðstefnan er öllum opin og með ávarpi menntamálaráðherra. 6 Reykjavík. Stjórn Borgarbókasafnsins: Tæpir þrír mánuðir milli funda! i 80 þús. kr! á ári að ala upp eitt barn: Meðlög aðeins 'U af fram- færslukostnaði í nýafstaðinni könnun Félags einstæðra foreldra á framfærslukostnaði barna við uppeldi 1 barns á hinum ýmsu aldursskeiðum kom í ljós að meðalkostnaður á ári miðað við verðlag í dag er 77.520 kr. Lágmarksmeð- lag cr nú tæpar 20 þúsund krónur á ári, eða rétt um fjórðungur af framfærslukostnaði barnsins. Þessi niðurstaða kom okkur mjög á óvart og mönnum er spurn hvernig hægt sé að framfleyta sjálf- um sér og börnunum við þessar að- stæður. Meðlagsgreiðslur hafa dregist óeðlilega aftur úr á síðustu árum og það má hiklaust draga þá ályktun út frá niðurstöðu þessarar könnunar að börn einstæðra for- eldra líða meiri skort en önnur börn, sögðu forráðamenn félags einstæðra foreldra á fundi með fréttamönnum í gær. Um 6000 einstæðir foreldrar eru í landinu með tæplega 8000 börn á framfæri. Er talið að milli 60-70% þessara einstæðu foreldra teljist til láglaunahópa á vinnumarkaði. f könnun Félags einstæðra for- eldra á framfærslukostnaði barna kemur í ljós að það kostar 76.905 kr!. á ári að framfleyta 2 ára barni ef aðeins er tekið tillit til brýnustu nauðsynja. Ekki er tekinn með kostnaður vegna húsnæðis né fær barið nokkur leikföng. Sambæri- legur kostnaður við uppeldi 6 ára barns eru tæpar 80 þús. kr. á ári og 121.666 kr. fyrir 14 ára barn. A móti þessum útgjöldum koma meðlagsgreiðslur sem nema tæpum 20 þúsund kr. á ári. Sama krónu- tala frá forráðamanni, mæðra/ feðralaun, barnabætur og eldri börnum eru reiknaðar eigin tekjur. Mismunur tekna og gjalda eru í öllum tilvikum yfir helming. Félag einstæðra foreldra hefur boðað til félagsfundar nk. þriðju- dagskvöld þar sem niðurstöður þessarar könnunar verða kynntar. -lg- Ráöstefna „Þessi vinnubrögð eru alger nýlunda og sýna fullkomið virðing- arleysi fyrir störfum stjórnarmanna“, segir ma. í bókun frá Guð- rúnu Helgadóttur og Kristínu Ástgeirsdóttur fulltrúa minnihlutans í stjórn Borgarbóksafns Reykjavíkur. Nýlega var haldinn stjórnar- fundur, sá fyrsti í tæplega 3 mánuði, en síðasti fundur var 28. júlí s.l. „Þetta er með ólíkindum“, sagði Guðrún Helgadóttir í gær. „Á mánudaginn kemur á að skila inn beiðnum til fjárhagsáætlunargerð- ar og stjórnin hefur rétt aðeins fengið að berja frumtillögur augum. Á fundinum á dögunum var einnig verið að fjalla unt mann- aráðningar til Borgarbókasafnsins, en fyrr í sumar voru auglýstar þrjár stöður. Umsóknarfresturinn var löngu útrunninn og vegna hörguls a starfsfólki hafði þegar verið ráðið í eina ritarastöðu, reyndar sam- kvæmt beiðni starfsmannastjóra og heimild borgarstjóra. Við fulltrúar Alþýðubandalags og Kvennafram- boðs tókum ekki þátt í þessari af- greiðslu, enda höfðum við ekki fengið að sjá hinar 17 eða 18 um- sóknirnar,“ sagði Guðrún. í bókun okkar mó'tmæltum við þessum vinnubrögðum, enda teljum við að sú mikilvæga þjónusta sem Borgar- bókasafnið veitir eigi skilið annað en afskiptaleysi af þessu tagi.“ ÁI um kjör kvenna á vinnumarkaðnum, verður haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun laugardaginn 22. október. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 og lýkur kl. 18. Efni ráðstefnunnar er: Orsakir iaunamisréttis kvenna og karla og leiðir til úrbóta Framsögur flytja: Aðalheiöur Bjarnfreðsdóttir Bjarnfríður Leósdóttir Helga Sigurjónsdóttir Lilja Ólafsdóttir og hópumræður. í hádeginu flytur Kvennaleikhúsið Ijóð eftir Nínu Björk Árnadóttur og Stella Hauksdóttir syngur frumsamdar vísur. Fundarstjóri er Guðrún Jónsdóttir. Ráðstefnan er öllum opin. Undirbúningshópurinn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.