Þjóðviljinn - 21.10.1983, Page 10

Þjóðviljinn - 21.10.1983, Page 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. október 1983 BLAÐAUKI FACIT DTC VIPSKIPTATÖLVAN FACIT LEYSIR VANDANN ■\ Við köllum það viðskiptapakka þ.e.a.s., þú færð tölvuna og við- skiptaforritin í hendurnar og byrjar að nota búnaðinn strax Pakkinn inniheldur: • FACIT DTC TÖLVU • BIRGÐABÓKHALD • REIKNINGSÚTSKRIFT • FJÁRHAGSBÓKHALD • VIÐSKIPTAMANNABÓKHALD • RITVINNSLU • LÁNADROTTNABÓKHALD Pakkinn er nú þegar í notkun og hefur reynst afburða vel. íslenskum fyrirtækum Póllinn ísafirði notar nú eingöngu FACIT tölvur til stýringar Póls vogarkerfum sem nú þegar eru í notkun í fjölda íslenskra frystihúsa. . . FLOKKARI SAMVAL KANNIÐ OKKAR LAUSN. IGÍSLI J. JOHNSEN SKRIFSTOFUBÚNAÐUR SF Smiðjuvegur 8 - Kópavogi - Sími: 73111 Umboðsaðilar Skrifstofuval Akureyri s: 96-25004 Póllinn hf. ísafirði s: 94-3092 G00 og áratugs reynsla íkaupbæti í tölvudeild okkar er hópur sér menntaðra starfsmanna sem eingöngu vinnur við gerð, þróun og viðhald forrita fyrir okkar stóra viðskiptamanna- hóp. Þannig getum viö boðið þrautreynd Hafðu samband við okkur, ef þú ætlar að fylgjast með. forrit sem löguð eru að þörfum hvers fyrirtækis. Vel er fylgst með öllum nýjungum og þeim miðlað til viðskiptavinar- ins. i rekstrartækni sf. Tækniþekking og tölvuþjónusta. Síðumúli 37, 105 Reykjavík, sími 85311 Upplýsingabyltingin ’Framhald af bls. 9. ósekúndur í einni sekúndu og sek- úndurnar í 31.700 árum). Talið er að við lok þessa áratugar verði tölvuvinnsla ekki gerð á let- urborði, heldur muni tölvurnar skynja talmál. Þá verður sjónskyn þeirra einnig bætt, þannig að þær munu geta lesið, og það mun hraðar en mannsaugað. Tölvan .mun að miklu leyti leysa ýmis þau tæki af hólmi sem við umgöngumst nú daglega eins og t.d. ritvélar, sjónvarpstæki, kvikmyndir, síma og jafnvel útvarp, segulbandstæki og hljómplötur munu verða sem innbyggður þáttur í möguleikum örtölvunnar. Hugsanlegir notkunarmögu- leikar tölvunnar eru utan ímynd- unarafls okkar, og hún á eftir að breyta framleiðsluháttum á róttæk- ari hátt en okkur grunar. Þannig eru bílaframleiðendur í Bandaríkj- unum t.d. nú með áform um nýjar bílaverksmiðjur þar sem tölvustýrð vélmenni vinna 90% af færibanda- vinnunni. Þá veldur örtölvan einnig gjör- byltingu í öllum fjarskiptum um leið og fjarskiptahnettir eru teknir í notkun í síauknum mæli. Talið er að með þeirri tækni sem nú er fyrir hendi sé hægt að koma fyrir í einum fjarskiptahnetti búnaði er geti gef- ið sérhverjum íbúa Bandaríkjanna og Kanada sambanda á milli heimilistölvu og upplýsingabanka samtímis. Allt virðist benda til þess að einnig fjarskipti og meðhöndlun og miðlun upplýsinga muni fara í einn farveg: Tölvusíminn mun ekki bara nema mannsröddina, heldur mun hann einnig taka við upplýs- ingum og meðhöndla þær á hvern þann hátt sem viðtalandinn óskar. Efnahagsleg þýðing Efnahagsleg þýðing örtölvu- tækninnar er heldur ekki fyrir- sjáanleg, en við getum þegar séð að hún er gífurleg. Talið er að raf- eindaiðnaður eigi á næstunni eftir að skipa 4. sætið á eftir bílaiðnaði, stáliðnaði og efnaiðnaði meðal iðn- ríkjanna. Iðnbyltingin gerði mögulega vir- kjun og nýtingu orku og hráefnis í mun ríkari mæli en áður þekktist, en upplýsingabyltingin er sparsöm bæði á orku og hráefni, og í ljós kemur að sú virkjun þekkingarinn- ar sem felst í upplýsingabylting- unni hefur í för með sér stórfelldan orkusparnað á ýmsum sviðum. Ná- kvæmar rafeindastillingar á vélum auka nýtingu orku og hráefnis. Stórauknir möguleikar fjarskipta valda stórfelldum sparnaði í sam- göngum. Framsýnir menn þykjast eygja það að lykillinn að fram- leiðniaukningu í framtíðinni verði að taka upp tækni er byggi á mikilli upplýsingamiðlun í stað tækni er byggi á mikilli orkunotkun. Bylting í skólakerfinu Á sviði menntamála á tölvan ekki síður eftir að valda gjörbylt- ingu. Þegar örtölvan verður orðin það ódýr að sérhver nemandi geti haft aðgang að eigin tæki skapast óendanlegir möguleikar til sí- menntunar auk þess sem þessi tækni mun setja öllum jöfn og söm skilyrði um nákvæmni og sjálfsaga í vinnubrögðum. Innan fárra ára verður það jafn mikilvægt að kunna forritun og umgangast tölvu eins og það er nú að kunna á ritvél, síma eða bíl. Til þess að gera upplýsingarnar og menntunarmöguleikana að- gengilega fyrir alla þarf að leggja rafeinaþráðvegakerfi um allt landið og þannig væri hægt að veita öllum án tilliti til aldurs, kyns eða stéttar aðgang að hvers konar menntun án verulegs kostnaðar fyrir þjóðfélagið. Á sama hátt og hægt verður að flytja mikið af námi inn á heimilin eða vinnustaðinn verður einnig hægt að flytja mikið af þeirri vinnu sem felst í meðhönd- lun upplýsinga út af miðstýrðum skrifstofum út á heimilin eða minni vinnustaði. Slíkt gæti í mörgum til- fellum sparað ferðalög, og þegar til lengdar lætur gæti það snúið við þeirri þróun að borgir verði stöðugt stærri og stærri. Félagsleg hætta Hér hafa í grófum dráttum verið dregnir upp helstu kostirnir sem upplýsingabyltingin kann að hafa í för með sér. En eins og flestir hlutir á hún sér tvær hliðar. Þótt örtölvu- byltingin geti lagt grundvöll að aukinni framleiðni og aukinni vel- megun, þá er einnig sú hætta fyrir hendi að hún auki bilið á milli ríkra þjóða og fátækra, það er að segja þjóða sem eru ríkar að þekkingu og þjóða sem eru fátækar af þekkingu og upplýsingum. Með upplýsingabyltingunni verða einnig svo róttækar breyting- ar á framleiðsluháttunum að óhjá- kvæmilega mun hún skapa atvinnuleysi meðal ýmissa stétta, sérstaklega þeirra sem vinna ein- hæfustu störfin. Um leið verða til ný störf við framleiðslu og með- höndlun upplýsingatæknibúnaðar. Líklegt er þó talið að upplýsinga- byltingin skapi færri störf en hún gerir óþörf, og allavega ætti hún að geta stytt vinnutímann. Um leið og tilkoma þessarar tækni veitir áður óþekkta möguleika til valddrei- fingar á mörgum sviðum eru þeir möguleikar sem hún gefur til sam- þjöppunar valds á fáar herðar einn- ig ógnvekjandi. Aukning heima- vinnu hefur einnig þann ókost í för með sér að fólk getur einangrast félagslega. Eitt er þó víst, að með því að flytja vinnustaðinn inn á heimilið, þar sem starfsmaður vinnur að mehöndlun upplýsinga á sína heimilisörtölvu sem er í sam- bandi við upplýsingabanka, skapast stórauknir starfsmögu- leikar fyrir þá sem búa við fötlun eða eru hreyfihamlaðir. Hætt er við upplýsingabyltingin muni einnig hafa svæðisbundnar breytingar í för með sér í verka- skiptingu. Örtölvubyltingin gerir kröfur til annars konar sérþjálfun- ar í framleiðslu og þjónustu en hingað til hefur tíðkast. Hætt er við að hefðbundnar iðngreinar sem krefjast mikillar orku og hefð- bundinnar verkmenntunar, eins og t.d. ýmsar greinar vefnaðar, fata- íðnaðar, skógerðar, skipasmíða, stáliðnaðar og ýmis konar fram- leiðsla á nytjahlutum, muni í auknum mæli færast til þeirra þjóða sem bjóða upp á ódýrara vinnuafl á meðan hin háþróaða raf- eindatækni mun fyrst og fremst koma hinum ríku iðnþjóðfélögum til góða. Þetta mun jafnframt skapa atvinnuleysi innan þessara iðngreina meðal ríku iðnaðarþjóð- anna, og er það þegar farið að segja til sín. Um leið verða viðskipti með örtölvubúnað og hugbúnað honum tengdan æ viðameiri hluti heimsviðskiptanna. En þegar á heildina er litið virð- ast hinir jákvæðu möguleikar upp- lýsingabyltingarinnar yfirstíga ókostina. Iðnbyltingin gekk ekki hljóðalaust fyrir sig. Um leið og menn þóttust eygja með henni möguleika mannsins til þess að geta í fyrsta skipti fullnægt þörfinni fyrir neysluvarning skapaði hún einnig atvinnuleysi og nýja stétt- askiptingu með tilkomu öreigast- éttarinnar sem átti ekkert nema vinnuaflið til að selja. Upplýsinga- byltingin ætti með sama hætti að geta veitt manninum áður óþekkta möguleika til að nýta andlega hæfi- leika sína og virkja þá óþekktu stærð sem felst í mannlegu hugviti. Það markmið er ekki eins áþreifan- legt og það að geta framleitt nægan neysluvarning, en kannski er það einmitt þess vegna sem viðfangs- efnið verður enn meira heillandi. (- ólg endursagði)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.