Þjóðviljinn - 25.10.1983, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. október 1983
Kúst-
hestur
Þessi góði leikfélagi er bú-
inn til úr gömlum sokk og kúst-
skafti. Eintaldara getur það
tæpast verið.
Höfuðið
Fyllið sokkinn vel með ein-
hverju góðu fylliefni eða tróði.
Eyrun
Klippið tvö eyrnasnið úr t.d.
rauðu filtefni og tvö snið úr öðr-
um lit, t.d. hvítum. Leggið saman
eítt rautt stykki og eitt hvítt og
saumið saman. Saumið eyrun á
sokkinn.
Beisli
Klippið tvo hringi úr t.d. gulu
filti og límið á sokkinn. Klippið
1,25 cm langar lengjur úr t.d.
grænu filti og límið á sokkinn eins
og sést á myndinni.
Saumið taumana (sterkt bóm-
ullargarn) við hringina.
Andlit
Klippið augun, tennur og nasir
úr hvítu, svörtu og gulu filti og
límið á sinn stað á hausnum.
Kústskaftið
Kústskaftið getið þið málað
marglitt, en lakkið a.m.k. eina
umferð. Ýtið öðrum enda
skaftsins inn í sokkinn. Leggið ca
2 cm inn af sokknum og límið því
næst allan hringinn og festið við
skaftið.
Kryddþáttur
Sviða-
súpa
1 kindahaus
3 smásaxaðir laukar
3 saxaðar gulrætur
2 saxaðir púrrulaukar
2 marðir hvítlauksgeirar
2 saxaðir pimiento-piparávextir
(þetta er sœtur, rauður pipar, sem
fœst hér niðursoðinn)
1 chili-ávöxtur (eða chili-duft á
hnífsoddi)
1 tsk edik
3/4-1 lítri af vatni
sítrónusafi
salt og pipar að smekk
2 msk hveiti hrœrðar út í 2,5 dl
mjólk.
í uppskriftinni er mælt með því
að láta hausinn liggja í vatni í 2
klukkutíma fyrir suðuna. Því
næst er hann látinn í stóran pott
ásamt -vatninu, gulrótunum,
lauknum, púrrunni og pimiento-
piparnum, chili-piparnum, salti
og ediki. Þetta er látið sjóða við
vægan hita í tvo klukkutíma, eða
þartil kjötiðlosnaraf beininu. Þá
er hausinn veiddur uppúr, kjötið
skafið af og skorið í smáa bita og
sett aftur í pottinn. Aðgætið
kryddið í súpunni og bætið pipar
útí. Hrærið hveitiblöndunni hægt
útí og látið súpuna þykkna. Að
síðustu er bætt útí sítrónusafa að
vild. Súpuna á að snæða vel heita.
ast
frá
Júgóslavíu
Þær munu víst fáar þjóöirn-
ar í heiminum sem éta kinda-
hausa eins og viö gerum, eða
svo hefur löngum veriö sagt
og viö höfum tekið trúanleg
orð útlendinga, sem hingað
hafa komið og sett upp við-
bjóðssvip yfir „andlitunum" er
við snæðum af bestu lyst.
Þær þjóðir sem hingað leggja
leið sína koma af þeim svæðum
heimsins þar sem sauðkindin er
ekki í hávegum höfð og því eðli-
legt að fólkinu bregði nokkuð
við. Sauðkindaætur annars stað-
ar í veröldinni hafa hins vegar
nýtt sér það góðgæti, sem haus-
arnir eru, en ekki hef ég spurnir
af því að þær svíði hausana á
sama hátt og við.
Eftirfarandi uppskrift kemur
frá Júgóslavíu, en þar er matar-
gerð að sögn mjög fjölbreytileg
enda byggja landið sex þjóðabrot
og þar eru töluð fjögur tungumál.
Uppskriftin er að kindahausa-
súpu og kallast „Corba od
jagnjece glave“ skv. heimild
minni en ekki veit ég hvaða tung-
umál þetta er. En hér kemur
uppskriftin, sérstæð nokkuð en
bragðgóð.
(Myristica fragrans)
Múskat kallast á ensku nutmeg
og mun upprunnið frá Mólúkka-
eyjum en barst til Evrópu á 16.
öld. Það voru arabískir kaup-
menn, sem færðu Evrópubúum
múskatið í skipum sínum eins og
margt annað matarkyns. Þegar
múskatið kom fyrst á markaðinn
var það feykilega dýrt, en á síð-
ustu öld var farið að rækta það
víðar en á Mólúkkaeyjum.
Ávextir trésins gefa af sér tvær
kryddtegundir: múskat og mace.
Múskatið er kjarni fræsins, en
mace er hörð skel, sem umlykur
kjarnann. Skelin verður appels-
ínugul þegar hún þornar.
Aður fyrr notaði fólk múskat
bæði sem krydd og til að bragð-
bæta bjór og styrkja magann. Nú
er það notað til að bragðbæta
grænmeti, salöt súpur og brauð.
Mace er notað til þess að bragð-
bæta kjötsúpur, pylsur og græn-
meti og einnig er það notað í viss-
ar jurtablöndur.
Múskat er kjarninn í fræinu en
mace harða skelin utan um kjarn-
ann.
Múskat