Þjóðviljinn - 25.10.1983, Síða 9

Þjóðviljinn - 25.10.1983, Síða 9
Þriðjudagur 25. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Vígsluhátíb á Vopnafirði: Hjúkrunar- og elliheimilið Sundabúðir Laugardaginn 15. okt. sl. var haldin vígsluhátíö dvalar- og hjúkrunarheimilis aldraöra, „Sundabúða" í Vopnafirði, umleið og annar áfangi byggingarinnar var tekinn í notkun. Er hér um að ræða stórátak af hálfu sveitarfélagsins, sem gjörbreytir aðstöðu fyrir aldrað fólk til að fá aðhlynningu í heimabyggð sinni. Þórður Pálsson. Upphafið Fyrsta skrefið að þeim áfanga sem nú er náð, var að hreppsnefnd Vopnafjarðar ákvað að koma upp elli- og hjúkrunarheimili heima fyrir í stað þess að standa að slíkri byggingu á Egilsstöðum, með öðr- um sveitarfélögum á Austurlandi. Kvenfélögin í Vopnafirði geng- ust fyrir stofnun Elliheimilissjóðs og hófust þegar handa um fjársöfn- un Við það sat þar til síðla vetrar 1976. Þá ákveður hreppsnefnd, að frumkvæði Ásgeirs Sigurðssonar, að hefja byggingu húss með íbúð- um fyrir aldraða. Byggingarnefnd var skipuð: Ásgeir Sigurðsson, for- maður, Una Einarsdóttir, Sigrún Jakobsdóttir, Eydís Bjarnadóttir og Víglundur Pálsson. Réði nefnd- in Þórð Pálsson á Refstað sem framkvæmdastjóra. Teiknistofan Óðinstorg - arkitektarnir Helgi og Vilhjálmur Hjálmarssynir og verkfræðingarnir Vífill Oddsson og Hilmar Knudsen sáu um teikning- ar. Síðan var húsið tekið í notkun í maí 1978. Byggingarkostnaður þess, með tækjum og búnaði, varð um 6 milj. kr. á núgildandi verðlagi. íbúðar- hæðin er 306 ferm með leiguíbúð- um og aðauki 170 ferm kjallara. Engin framlög frá ríki eða stofnun- um þess fengust til byggingarinnar né heldur tolla- og söluskattsfríð- indi. En fjárframlög og vinna frá ýmsum aðilum námu 1,4 milj. kr. á núgildandi verðlagi. Aftur hafist handa Haustið 1980 var svo ákveðið að hefjast handa við annan áfanga byggingarinnar. Teikningar voru unnar af sömu aðilum og áður. Flatarmál hússins er 920 ferm, báð- ar hæðir. Á efri hæðinni eru 8 leiguíbúðir en á neðri hæðinni leg- udeild fyrir 9 sjúklinga, auk þess borðstofa. Framkvæmdir við bygginguna hófust í maílok 1981. Hlé varð á yfir veturinn en aftur hafist handa í maíbyrjun 1982 og unnið sleitu- laust síðan. Byggingameistari var Róbert Nikulásson. Kostnaðaráætlun var, miðað við 1. okt. sl., um 14,8 milj. kr. en að auki eru svo ýmis tæki og búnaður, sem kosta mikið. Að þessu sinni fékkst fjármagn frá ríki og Trygg- ingastofnun, auk þess sem Vopn- afjarðarhreppur, sýslusjóður Norður-Múlasýslu og fleiri þar ey- stra hafa lagt fram. Og sem áður stóð ekki á gjöfunum. Bygginganefnd skipa nú: Ásgeir Sigurðsson, formaður, Alexander Árnason, og Emil Sigurjónsson, kjörnir af hreppsnefnd, Sigrún Jakobsdóttir frá Kvenfélaginu Lindin og Eydís Bjarnadóttir frá Kvenfélagi Vopnafjarðar. Þórður Pálsson á Refsstað er fram- kvæmdastjóri byggingarnefndar enn sem fyrr. Hefur hann unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu þessa málefnis. Þeir eru og ófáir, sem lagt hafa málinu lið með vinn- uframlagi og fjárgjöfum. Vígsluhátíð Við vígsluhátíðina flutti formað- ur byggingarnefndar, Ásgeir Sig- urðsson ávarp. Þórður Pálsson lýsti byggingarsögunni. Kristján Magn- ússon sveitarstjóri, flutti þakkir sveitarstjórnar og tók við LYFSÖLULEYFI er forseti íslands veitir Lyfsöluleyfi Grindavíkurumdæmis er auglýst laust til umsóknar. Starfsemi væntanlegrar lyfjabúöar skal hafin eigi síöar en 1. júlí 1984. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi sendist heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneytinu fyrir 20. nóvember 1983. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 21. október 1983 Auglýsið í Þjóðviljanum Sundabúðir í Vopnafirði. lyklum að byggingunni. Einnig fluttu þeir ávörp Halldór Ásgríms- son, sjávarútvegsráðherra og Helgi Seljan, alþingismaður. Húsin voru til sýnis almenningi en aldraðir eru nú fluttir inn í fyrsta áfanga og að hluta til í annan áfanga, sem einnig rúmar legudeild og borðstofu. öll er aðstaðan þarna til hreinnar fyrirmyndar. Að vori verður tekið til hendi við fráganglóðar. Ágústa Þorkelsdótt- ir á Refsstað hvatti menn til sjálf- boðaliðsstarfa við lóðina. Brugð- ust menn rösklega við og skráðu sig þegar margir til vinnunnar. I sambandi við vígslu Sundabúða var sett þar upp sýning á málverk- um Helga Jósefssonar, kennara og frístundamálara, - 26 að tölu, - og skreyttu þau ganga og veggi bygg- ingarinnar, viðstöddum til mikils augnayndis. - mhg Allar skrúfur, múrfestingar draghnoð og skotnaglar AWLPLUG SAMBANDIÐ BYGGINGAVORUR SUÐURLANDSBRAUT 32 - SÍMI 82033

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.