Þjóðviljinn - 25.10.1983, Page 15

Þjóðviljinn - 25.10.1983, Page 15
ÞHðjiidagur'l25. öktóbey -1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA '19 7.00 Veðurlregnir. Fréttir. Bæn. A virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Elisabet Ingólfsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að vagnhjóli" eftir Meindert DeJong Guðrún Jónsdóttir les þýðingu sína (18). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagþl. (útdr.). 10.35 „Man ég það sem löngu leið“ Endurtekinn þáttur Ragnheiðar Viggós- dóttur. (Áður útv. 1980). 11.05 Tónleikar 11.15 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og kynnir létta tónlist. (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar 13.30 Lög frá árinu 1968 14.00 „Kallað í Kremlarmur" eftir Agnar Þórðarson Höfundurinn byrjar lesturinn. 14.30 Upptaktur - Guðmundur Benedikts- son. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Skandinaviski- kvartettinn leikur Strengjakvartett op. 111 eftir Vagn Holmboe / Saulesco-kvartett- inn leikur Strengjakvartett op. 83 eftir Dmitri Sjostakovitsj / Borodin-kvartettinn leikur Þrjá stutta þætti fyrir strengjakvart- ett eftir Igor Stravinsky. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Guðlaug M. Bjarna- dóttir og Margrét Ólafsdóttir. 20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Tordý- fillinn flýgur i rökkrinu" eftir Mariu Gripe og Kay Pollak. 3. þáttur: „Þakher- bergið" Leikstjóri: Stefán Baldursson. Leikendur: Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Aðalsteinn Bergdal, Jóhann Sigurðsson, Guðrún S. Gísladóttir og Sigriður Haga- lín. 20.40 Kvöldvaka Umsjón: Helga Ágústs- dóttir. 21.10 Pianóleikur Franski píanóleikarinn Bernard d'Ascoli leikur Sónötu i h-moll eftir Franz Liszt. 21.40 Útvarpssagan: „Hlutskipti manns“ eftir André Malraux. Thor Vilhjálmsson les þýðingu sína (11). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins 22.35 „Kvöldtónleikar a. „Siciliana" eftir Mariu Theresiu Von Paradis. Ruggerio Ricci og Leon Pommers leika á fiðlu og pianó. b. Píanókonsert í D-dúr eftir Leopold Kozeluch. Felicja Blumental og Kammersveitin í Prag leika; Alberto Zedda stj. c. Pianókonsert nr. 18 í B-dúr K456 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Daniel Barenboim og Enska kammer- sveitin leika. - Kynnir: Knútur R. Magnús- son. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV Ruve> 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Snúlli snigill og Alli álfur Teikni- mynd ætluð börnum. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunn- laugsdóttir. 20.45 Tölvurnar 7. þáttur. Breskur fræðslu- myndaflokkur í tíu þáttum um örtölvur, notkun þeirra og áhrif. Þýðandi-Bogi Arnar Finnbogason. 21.10 ísland, land ódýrrar orku - eða hvað?-Upplýsinga- og umræðuþáttur um orkunýtingu, rafmagnsverð til al- mennings og orkusölu til stóriðju. Um- sjónarmenn: Guðjón Einarsson og Ómar Ragnarsson. 22.15 Marlowe einkaspæjari 4. Gildran Breskur sakamálamyndallokkur í fimm þáttum sem gerðir eru eftir smásögu Raymonds Chandlers. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 23.10 Dagskrárlok frá lesendum skák Karpov að tafli - 220 Á Interpolismótinu í Tilburg vann Anat- oly Karpov einn sinn fallegasta og glæs- ilegasta sigur á ferlinum er hann lagði Hollendinginn, fyrrum þegn Sovétríkj- anna, Gennadi Sosonkoaðvelli. Skákin hafði mikla fræðilega þýðingu því Sos- onko beitti Dreka-afbrigðin u í Siklleyjar- vörn, en með því hefur hann unnið marga frækna sigra. Karpov endurbætti taflmennsku eins af andstæðingum Sos- onko og sigraði. Viö skulum sjá hvernig það atvikaðist: Nýstárleg stœrðfrœði Lesandi skrifar: DV er nú aftur byrjað með skoðanakannanirnar, eftir langa hvfld. Sex hundruð manns eru spurðar: „Ertu fylgjandi eða and- vígur ríkisstjórninni?“ Um gildi vona skoðanakannana má enda- laust deila en það er ekki tilgan- gurinn með þessum orðum og skal því sleppt: Niðurstaðan í könnuninni er þessi: Fylgjandi ríkisstjórninni 48.2%. Andvígur ríkisstjórninni 27.7%. Óákveðnir 20.7%. Svara ekki 3.5%. Athyglisvert er, að fast að fjórðungi þeirra sem spurðir eru, skipa sér í hvorugan hópinn, með eða á móti, að svo komnu. Ríkisstjórnin hefur eðlilega til- hneigingu til þess að túlka úrslitin sem sigur fyrir sig. Röksemdir fyrir því sýnast mér þó í hæpnara lagi. Steingrímur segir meirihlut- ann „fylgjandi þeim aðgerðum, sem við höfum gripið til“. Ólafur G. Einarsson kveður fastar að orði en um leið fávíslegar. Hann segir: „Fylgið við stjórnarstefn- una er meira en nam fylgi stjórn- arflokkanna í vor“. Það er rétt, að meiri hluti þeirra sem svara, 48.2%, eru fylgjandi ríkisstjórninni. Og það má ætla, að ef þeir óákveðnu tækju afstöðu þá mundi ríkis- stjórnin fá nægilegt fylgi frá þeim hópi til þess að hún kæmist yfir 50%. Það er að vísu meiri hluti. En hæpið væri nú að telja það sigur þegar þess er gætt, að við alþingiskosningarnar í vor fengu stjórnarflokkarnir 58.2% at- kvæða. Er þá ekki réttmætt að álykta sem svo, - sé eitthvað byggt á niðurstöðum skoðanak- önnunarinnar á annað borð, - að 10% þeirra, sem kusu stjórnarf- lokkana í vor, séu ekki lengur ák- veðnir í fylgi sínu við ríkisstjórn- ina, ef sumir þeirra hafa þá nokk- urntíma verið það, því það lá ekki fyrir við kosningarnar að svona ríkisstjórn yrði mynduð og því síður að vinnubrögð hennar yrðu með þeim hætti, sem raun hefur á orðið. Ummæli þau, sem DV hefur eftir Ólafi G. Einarssyni eru - enda þótt hann sé þingmaður og ofan í kaupið þingflokksformað- ur - tóm vitleysa. „Fylgið við stjórnarstefnuna er meira en nam kjörfylgi tlokkanna í vor“. Hver- skonar „stærðfræði“ er það að telja 48.2% meira en 58.2%? Fróðlegt væri að vita, hvað fylgið má minnka mikið til þess að vera nóg samt sem áður ekki meira en í vor. Kannski má það fara niður í 38.2%? Kannski í28.2%? Kann- ski megum við bráðum eiga von á nýrri reikningsbók frá Ólafi þingflokksformanni, útgefinni af menntamálaráðuneytinu? Þá verður mikil bylting í stærðfræði- kennslu á fslandi. bridge Við sáum í gær hvernig hefði mátt spila vörn í „upplögðu" spili, þannig að sagnhafi misstigi sig í úrspilinu. Hér er fallegt varnardæmi frá 1951 úr leik Itala- Svía á EM það ár: G9862 K6 KG7 D108 ÁKD10 7 93 ÁD2 D1092 K65 543 G108754 54 97 Á863 ÁG432 Austur var sagnhafl í 6 tíglum og útspil Suðurs var hjartagosi. Drottning átii slaginn og nú tók sagnhafi á hjartaás og spilaði þriðja hjartanu og trompaði i borði með tígulníu. Norður henti smá spaða í slaginn, og þar með „vissi" sagnhafi að Suður átti báða tígulhónórana. Hann spilaði því lágum tígli upp á ás og meiri tígli að drottningu-tíu og þar með fór spil- ið einn niður. Norður fékk sina tvo trompslagi. Hefði Norðuryfirtrompaðtíg- ulníuna með gosa, á sagnhafi engan annan kost en „svína" fyrir tígulkóng og einsog lesendur sjá, hefði það dæmi gengið. Málið er, vertu vakandi í vörninni og sofðu á nóttunni, heima hjá þér... Gœtum tungunnar Sagt var: Rúna og ég förum þangað bæði. Þetta virðist hugsað á út- lensku. Rétt væri: Við Rúna förum þangað bæði. Sagt var: Lengi var barist, og kenndu hvorir hinum um upp- tökin. Rétt væri:... og kenndu hvorir öðrum um upptökin. „Þar sem ljóðum mínum var úthýst“. Á fimmtu hœð Magnús frá Hafnarnesi hefur sent okkur þetta Ijóðkorn Ég bjó á fimmtu hæð, með útsýni yfir Hótel Borg og Morgunblaðshöllina þar sem Ijóðum mínum var úthýst sökum raunsæis og afgreiðslustúlkan sett upp hundshaus þegar ég bað um Mogga morgunn einn í þynnku. Pegar kólnaði í veðri og norðangjósturinn ríslaði sér við sælgœtisbréf Strætisins, kom útlagarnir inn í hlýjuna til að drekka dúndrið sitt. Á nóttunni lá ég andvaka og hataðist við slög. Dómkirkjunnar. Sjórtvarp kl. 21.10 Orkumála- umræða Kl. 21.10 í kvöld fer fram í Sjónvarpinu orkumálaumræða, undir stjórn fréttamannanna Guðjóns Einarssonar og Ómars Ragnarssonar. - Guðjón sagði þáttinn vera í tvennu lagi. í fyrri hluta hans verður borið saman rafmagnsverð til heimilisnota á íslandi og í nágrannalöndunum og hver sé orsök þess verðmunar, semþarerá. Þáverðurfjallað urn fjárfestingu í orkumannvirkjum, erlenda skuldabyrði og ávinning af nýtingu innlendra orkugjafa, rafmagnsverð til stóriðju og orkusölumöguleika íslendinga á því sviði. Rætt verður við Jó- hannes Nordal, formann samn- inganefndar um stóriðju og Krist- ján Jónsson, rafmagnsveitu- stjóra. Síðari hluti þáttarins verður í beinni útsendingu. Þar koma þeir fram Sverrir Hermannsson, iðn- aðarráðherra og Hjörleifur Gutt- ormsson, fyrrverandi iðnaðar- ráðherra. Munu þeir ræðast við um orkumálin almennt og hvert stefna skuli í þeim. - mhg Karpov - Sosonko 26. De4! (Glæsilegur leikur! Hvitur hótar 25. Da8 - og mátar.) 26. ... Da6 27. Hd5 Hf6 28. Hxc5 Hxg6 29. Hxh5 d5 (Með hugmyndinni 30. Dxd5 Da1 31. Kd2 Hd6 og drottningin fellur.) 30. Hxd5! - og Sosonko gafst upp enda er staða hans gjörsamlega vonlaus. Lokaniður- staðan í Tilburg varð á þá leiö aö Karpov hlaut 7’/2 vinning, en næstur kom Rom- anishin með 7 v. Neðar á blaði voru menn eins og Portisch, Larsen, Timman, Húbner og fleiri.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.