Þjóðviljinn - 12.11.1983, Side 18

Þjóðviljinn - 12.11.1983, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. nóvember 1983 f ram 09 sried li) Spjallað við 9 ára krakka á Eskifirði eins árs gamalt barn sem var með bumbu eins og hún væri ófrísk. A: Finnst ykkur ekki skrýtið að það komi svona stór bumba á börn sem fá næstum ekkert að borða? - Já,ég veit það.maginn bólgn- ar út af hrísgrjónum. A: En ef þau fá ekki hrís- grjón? - Þau drekka svo mikið og bólgna. - Þau drekka bara vatn. - Stundum er ekki einu sinni til vatn. Þá er þurrkur. - Og ef það kemur rigning þá safna þau í krukkur. - Já, það er sniðugt í nýju gúmmíbátunum nýju, það er svona gat sem hægt er að stinga slöngu upp í gegnum og láta hana svona ofan í fat. A: Já, það er skrýtið úti á sjó að heyra vatnið gutla allt í kring- um sig og geta ekki drukkið það. - Það er svo salt. - Maður verður bara þyrstur af sjó, alltaf meira og meira þyrstur. - Veistu? Mér var sagt að ef maður drekkur salt vatn þá verði maður fullur. A: Því trúi ég nú ekki. - Jú, hann sagðist hafa verið al- veg á skallanum. A: Meinti hann ekkibararugl- aður? Um heima og geima Ég fór í skólann á Eskifiröi og ræddi viö nokkra krakka í 9 ára bekk. Eins og oft vill veröa í góöu spjalli þá bárust um- ræðurnar vítt og breitt um til- veruna. Krakkarnirheita: Drífa, Anna, Halli, Bjössi, Dí: ana, Ása, Friörik og Helga. Ég merkti það sem ég segi meö A, en þaö sem krakkarnir segja er ekki merkt hverjum og einum heldur bara meö bandstriki þegar einhver nýr byrjar aö tala. A: Jæja, krakkar eigum við ekki að byrja á sígildri spurningu. Hvað Jangar ykkur til að gera þegar þið verðið stærri? - Hjúkrunarkona... - Ég ætla kannski að verða læknir. - Maður getur eiginlega ekki ákveðið það þegar maður er svona lítill. - Það er aldrei að vita hvað maður verður. A: En hvað langar ykkur til? - Mig langar mest til að verða hjúkrunarkona. A: Af hverju? Hvað gera hjúkrunarkonur? - Færa sjúklingum mat og svo- leiðis. - Nei, það er aðstoðarkona. - eða ljósmóðir. Hjálpa börn- um að fæðast. A: Hafið þið öll séð nýfætt barn? Hvað heitir hesturinn? Reyndu að fínna hvað hesturinn heitir. Það stendur í ramman- um en er í rugli. - Jú, ekki alveg nýfætt. - Svona klukkutíma gamalt. A: Þið vitið hvernig börn verða til, en hvar eru þau áður en þau koma hingað? - Þau eru inni í einhverjum poka inni í mömmunni. - einhverjum eggjapoka. A: En hugur þeirra, sálin? - Inni í mömmunni. - Hjá Guði. A: Eru þá konur með margar sálir inni í sér ef þær eiga eftir að eignast börn? - Nei, hún verður til í barninu um leið og það sjálft. - f hjartanu kannski. - Veistu? Hjartað slær alltaf. A: Ekki þegar við erum dáin? - Jú, pínulítið. Ég drap einu sinni fisk og þegar ég tók hjartað úr honum þá.sló það. - Ertu með falskar tennur? A: Já, eina. Ég datt á baðker þegar ég var lítil og braut í mér tönnina. - En þú - ert þú handleggsbrot- inn? - Já, ég datt af girðingu. A: Varstu í eltingaleik? - Nei, ég var að ná í kindur. A: Átt þú kindur? - Ég á eina kind, einn gemling og tvo hrúta. Það er bara ekki búið að slátra þeim. A: Eignaðist kindin þín tvö lömb? - Já, í þetta skiptið. Hún átti tvö í fyrra líka en hrúturinn fór í sláturhús. Hitt er gemlingur núna. A: Vitið þið af hverju hrútum er frekar slátrað? - Já, til þess að það verði ekki of mikið af hrútum, þá stanga þeir og drepa hver annan. A: Þeir mega heldur ekki eiga lömb með mömmu sinni, þá geta þau orðið eitthvað veik. - En, það er kisa inni á Eski- firði. Hún átti kettling, hann er strákur. Hann lætur hana alltaf verða ófríska. - Já, svona er það líka hjá hundum. - Hjá köttum og hundum. - Veistu hvað? Eitt ár hjá okk- ur eru sjö ár hjá köttum og líka hundum. A: Þá eruð þið bara eins og rúmlega eins árs gamall köttur. Kettir eignast samt kettlinga þeg- ar þeir eru eins árs, en það gerum við ekki sjö ára. - Veistu? Það var stelpa í Afr- íku, nún átti barn þegar hún var 11 ára... svo dó hún. - Svo var ein stelpa í fátæku löndunum, hún var 9 ára og eignaðist barn. Mamma hennar þurfti að taka það að sér af því hún var svo lítil. - Hann Helgi sagði mér, hann var úti í útlöndum, þá sá hann - Kannski, ég ælla að spyrja. A: Passið þið stundum systkini ykkar? - Stundum. - Ég á bara stóra systur, ég get nú ekki passað hana. - Stórasystirmín, húnernúsvo skapvond og svoleiðis. Þegar mamma er að biðja hana að gera eitthvað, þá ansar hún bara ekki. A: Heldur þú að hún sé komin með unglingaveikina? - En systir mín - hún er sko með unglingaveikina. Hún er svo skapvond að ég bara svitna af hræðslu. - Litlasystirmínernúekkimeð unglingaveikina, hún er samt alltaf að skamma mann og skipa mér að gera hitt og þetta. Hún er samt bara tveggja ára. - Skipar hún líka Pikkólínu fyrir? - Já, húneralltafaðrífaíeyrun á henni. Hún er minnst með stærstu eyrun. Þegar hún var lítil þá dró hún eyrun á eftir sér. A: Hvað segirðu? Hún litla systir þín? - Nei, ertu alveg... Pikkólínaer sko hundurinn okkar. Hann er púddel. (Framhald í næsta blaði) HhíAK MR ík hMx/hR hOlhH 5>MfthK KHirlhM x hhhK x KKhfÍ DK .xrOH fX KtOK xnRMhK KlMn^ffrKk KflPlhn Krakkar! Ég gleymdi að setja ráðn- ingu á rúnastafaþrautinni í síðasta blaði. Vísan er svona: Hver er sá veggur, víður, hár vcenum settur röndum. Gulur, rauður, grœnn og blár gerður af meistara höndum Og Bjössi búálfur er nú lukkulega kominn til Vopna- fjarðar, blessaður karlinn. Jæja, blaðamenn. Hvað finnst ykkur um ritstjórann ykkar? Svo er ég ægilega forvitin um ykkur. Hvað eruð þið að gera og hugsa? Sendið mér fréttir af ykkur og félögum ykkar. Bless í bili. Attí. a> Mundu mig - ég man þig. Utanaskriftin er: Arnlín Óladóttir, Bakka, 510 Hólmavík.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.