Þjóðviljinn - 12.11.1983, Qupperneq 21
Helgin 12.-13. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA21
sHák____________
Skákmótið i Tilburg:
Baráttumaðurinn
Rafael Vaganinan
Fyrir fimmtán árum síðan var
haldið skákmót í smábæ einum í
Júgóslavíu Vinkovci sem vakti
meiri athygli en aðrir skákviðburðir
sem fram fóru um líkt leyti, fyrir
sakir þær að þar var meðal þátttak-
enda bandaríski snillingurinn af
ættkvísl Davíðs, Robert James
Fischer. Fischer var ekki sérlega
tíður gestur á miklum skákmótum,
hann hafði í vonbrigðum sínum
með áskorendakeppnina 1962
dregið mjög úr þátttöku í skák-
mótum og þegar endurkomu hans I
baráttuna um æðstu metorð skák-
listarinnar bar upp á millisvæða-
mótinu í Sousse í Túnis árið 1967
fékk hún heldur dapurlegan endi.
Þrætur við skákstjóra mótsins
neyddu Fischer til þess að hætta
þátttöku eftir að hafa sópað af sér
vinningum. Júgóslavía hafði alltaf
heillað Fischer og þegar hann fékk
boð um að tefla í mótinu í Vinkovci
var hann fljótur að þekkjast það.
Hann var ekkert að tvínóna við
hlutina þegar blaðamenn tóku á
móti honum á flugvellinum í Bel-
grad sem var fyrsti áfangastaður á
leiðinni til Vinkovci. „Þú spyrð um
hverjir munu berjast um 1. verð-
laun í þessu móti,“ ku hann hafa
sagt við einn blaðamanninn, „...en
veistu það ekki að spursmálið í
sambandi við þetta mót snýst um
það hver verður í öðru sæti?“
Skákir hans í Vinkovci voru leikandi
léttir og sterkustu stórmeistarar voru
eins og börn í höndunum á snillingnum.
Jafntefli gaf hann fjögur en ekki fyrr en
eftir harðvítugar baráttuskákir þar sem
hann þrautkannaði allar leiðir til að ná
sigri. Þcgar upp var staðið hafði hann
hlotið 11 vinninga af 13 mögulegum,
næstu menn Tékkinn Hort og Júgóslav-
inn Matulovic hlutu 9 vinninga.
Mér varð hugsað til þessa móts þegar
eitt kvöld í vikunni að ég lenti í þeirri
ógæfu að skoða skákir frá sterkasta
skákmóti ársins, sem haldið var í Til-
burg í Hollandi. Þar í landi hafa menn
áttað sig á því að skáklistin eigi tilkall til
þess að skipa virðingarsess og allar
ábendingar Fischers um aðstæður á
skákstað, sem þá þóttu hinar frekjuleg-
ustu kröfur, þykja nú sjálfsagðar og
eðlilegar. Aðstæður eru þar allar eins
og þær bestar geta orðið. En Fischer
gerði líka aðrar kröfur - til sjálfs sín.
Ekkert fyrirleit hann meir en stór-
meistarajafntefli og hræðslubandalög
skákmanna. f Tilburg gleymdist öllum
keppendum þessi sjónarmið og því er
nú svo komið að þeir sem komu þessu
móti í kring í þeirri góðu trú að það yrði
skáklistinni til framdráttar hafa fengið
bakþanka. Miklar líkur eru á því að
mötið leggist niður.
Einn var sá skákmaður i Tilburg sem
skynjaði gleði baráttunnar, sovéski
Helgi
Ólafsson
skrifar
stórmeistarinn Rafael Vaganian. Ef
undan eru skildar stuttar jafnteflis-
skákir við þá Karpov og Polugajevskí
tefldi Vaganian af slíkum krafti og
hörku að aldrei hafa menn kynst öðru
eins frá þátttakanda í þessu árlega móti.
Hann byrjaði á því að vinna Húbner í 28
leikjum, síðan Van der Wiel í 51 leik,
Rafael Vaganian. Hann er án tvfmæla
kominn í hóp fimm sterkustu skák-
manna Sovétríkjanna.
tapaði þvínæst fyrir Timman í 45
leikjum. Aftur tapaði hann í 4. umferð
nú fyrir Seirawan í skák sem stóð í 76
leikjum, en lét ekki deigan síga og
kreisti fram vinning í maraþonskák við
Spasskí sem stóð í u.þ.b. 13 klst. og 117
leiki! Undir lok mótsins var farið að
draga örlítið af þessum baráttujaxli
ekki síst vegna lengstu skákar sem tefld
hefur verið í sögu Tilburg-mótanna.
gegn Anderson, sem lauk ekki fyrr en
eftir 119 leiki. Hann hlaut að lokum 6
vinninga af 11 mögulegum og deildi 4.
sætinu með Hollendingum Sosonko en
fær áreiðanlega boð á þetta mót aftur,
verði því haldið áfram. Það eru svona
baráttumenn sem gefa skáklistinni
gildi.
Inn á meðal allra þessara marþon-
skáka Vaganian tefldi hann eina stutta
og snaggaralega skák. Hún var tefld í 1.
umferð og andstæðingur Vaganians var
v-þýski stórmeistarinn Robert Húbner:
iroskahjálp
NÓA TÚN117.105 REYKJA VÍK, SÍMI29901
Landsamtökin Þroskahjálp auglýsa stööu
framkvæmdastjóra. Nauðsynlegt er aö viö-
komandi hafi víðtæka þekkingu á málefnum
þroskaheftra/fatlaöra ásamt nokkurri reynslu
af stjórnun og skrifstofustörfum.
Umsókn fylgi greinargóöar upplýsingar um
menntun og fyrri störf. Viðkomandi þarf aö
geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur til 30. nóvember.
Umsókn sendist skrifstofu Þroskahjálpar
Nóatúni 17 Reykjavík. Nánari upplýsingar
gefnar á skrifstofu Þroskahjálpar í síma
29901.
1. umferö:
Hvítt: Rafael Vaganian
(Sovétríkin)
Svart: Robert Hiibner
(V-Þýskaland)
Drottningarbragö
1. d4 d5
2. c4 dxc4
3. Rc3 e5
4. e3
(Þessi leikaðferð hvíts hefur gefið góða
raun uppá síðkastið. Hann tekur á sig
stakt peð en fær frjálst spil fyrir menn
sína.)
4. ... exd4
5. exd4 Rf6
6. Bxc4 Be7
7. Rf3 0-0
8. 0-0 Bbd7
9. He1 Rb6
10. Bb3 C6
11. Bg5 Bg4
12. Dd3 Rxf3
(Nauðsynleg uppskipti. Nái hvítur að
koma riddara sínum til e5 er hætt við að
þrýstingurinn eftir skálínunni a2-g8
verði meiri en góðu hófi gegnir.)
13. Dxf3 Rfd5
14. Bxe7 Rxe7
(Það er út frá stöðum sem þessari sem
hægt er að dæma styrk manna. Hvítur
þarf að finna góða áætlun og margar
leiðir standa til boða. Sú sem Vaganian
velur er best.)
15. He5! Rg6
16. He4
(Hvítur stendur traustum fótum á e-
línunni. En það var ekki eina hugmynd-
in með 15. leiknum. Með því að hrekja
riddarann í g6 fær hvítur ákjósanlegt
skotmark á kóngsvængnum (sjá 20.
leik) og eykur um leið áhrif biskupsins á
b3. Svartur hefur ratað í hartnær óyfir-
stíganlega erfiðleika.)
16. .. Rd7
17. Hd1 Da5
18. He3!
(Annar sterkur hróksleikur. E4-leikur-
inn losnar fyrir riddarann.)
18. .. Had8
19. Re4 Dc7
20. h4!
(Opinberar helstu annmarkana á stöðu
svarts; riddarinn á g6 stendur afar illa.)
.20. .. h6
(Ekki 20. - Rxh4 vegna 21. Dh5 Rg6
22. Hh3 h6 23. Dxg6 og vinnur eða 20. -
Df4 21. Dxf4 Rxf4 22. Rd6! og svartur
er glataður.)
21. Dg4 Kh8
22. h5 Rf4
23. Hg3 g5
24. hxg6 fxg6
25. He1! Hde8
26. Hge3
(Veikleikarnir í kóngstöðu svarts eru of
margir ogstaðahansþvíóverjandi. Hú-
bner átti að auki við aðra erfiðleika að
stríða. Klukkuvísirinn sýndi að ekki
lifðu meira en 3 mínútur af tímanum
fram að takmörkunum við 40. leikinn.)
26. .. Rb6
27. Rc5! Dc8?
(Afleikur í tapaðri stöðu.)
28. Dxf4!
- Snyrtilegur leikur sem gerir alla frek-
ari baráttu vonlausa. Húbner gafst upp.
Þó Vaganian hefði orðið að gera sér að
góðu 4.-5. sætið þá var hann sá skák-
maður sem mest gaf af sér í keppni þess-
ari.
Tilkynning
frá Fiskveiðasjóði
íslands
UMSÓKNIR UM LÁN Á ÁRINU 1984 OG
ENDURNÝJUN ELDRI UMSÓKNA
Um lánveitingar úr Fiskveiöasjóöi íslands á árinu
1984 hefur eftirfarandi verið ákveðið:
1. VEGNA FRAMKVÆMDA í
FISKIÐNAÐI
Engin lán verða veitt til byggingaframkvæmda
nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga,
sem áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé
að ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórn-
ar.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið hag-
ræðingarfé hrekkur til verður lánað til véla, tækja
og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og
aukna framleiðni.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
2. VEGNA FISKISKIPA.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður
lánað til skipta á aflvél og til tækjakaupa og endur-
bóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skuli ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
3. ENDURNÝJUN UMSÓKNA.
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að
endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig
þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur
verið veitt til.
4. UMSÓKNARFRESTUR.
Umsóknarfrestur er til 30. nóvember 1983.
5. ALMENNT.
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum
eyðublöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsing-
um, sem þar er getið, að öðrum kosti verður um-
sókn ekki tekin til greina (Eyðblöðin fást á skrif-
stofu Fiskveiðasjóðs íslands, Austurstræti 19,
Reykjavík, svo og í ýmsum bönkum og sparisjóð-
um utan Reykjavíkur). Umsóknir er berast eftir
tilskilinn umsóknarfrest verða ekki teknar til greina
við lánveitingar á árinu 1984, nema um sé að
ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík, 5. október 1983
FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS
Útboð
Fyrir hönd ÍSÍ er óskaö eftir tilboðum í eftir-
talda verkþætti viö íþróttamiðstöð í Laugar-
dal í Reykjavík.
Númer 1 raflagnir.
Númer 2 hreinlætis- og hitakerfi.
Númer 3 loftræstikerfi.
Útboösgögn eru afhent á Verkfræöistofu
Siguröar Thoroddsen hf, Ármúla 4 Reykja-
vík, gegn 1000 kr. skilatryggingu fyrir hvern
verkþátt.
Tilboðin veröa opnuö á Verkfræöistofu Sig-
urðar Thoroddsen hf, Ármúla 4 Reykjavík,
þriöjudaginn 22. nóvember 1983. Verkþáttur
1 kl. 10 fyrir hádegi. Verkþættir 2 og 3 kl. 11
fyrir hádegi.
ÁRMÚLA 4 REYKJAVIK HF.
VCRKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf
Tilboð óskast í framleiðslu á einkenni: tum, yfir-
höfnum og skyrtum fyrir opinbera start nenn. Út-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, gartúni 7.
Tilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri r kl. 11.00
f.h. föstudaginn 16. desember n.k.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartúni 7, sími 26844.
Auglýsið í Þjóðviljanum