Þjóðviljinn - 12.11.1983, Page 26
26 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.-13. nóvember 1983
ALÞYÐUBANDALAGID
Álþýðubandalagið Akureyri
Opið hÚS
Opið hús verður á sunnudag, 13. nóvember kl. 15 í Lárusarhúsi,
Eiðsvallagötu 18, Akureyri. Kaffiveitingar og skemmtiatriði. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 14. nóvember
kl. 20.30 í Lárusarhúsi. Á fundinum verður fjallað um íþrótta- og
æskulýðsmál og farið yfir dagskrá bæjarstjórnarfundar 15. nóvem-
ber. Fundurinn er opinn öllum félögum og stuðningsmönnum.
Mætið vel og stundvíslega.
Starfshópur framkvæmdastjórnar um
Umhverfismál og auðlindanýtingu
kynnir drög að ályktun landsfundar Alþýðubandalagsins um þau efni
að Hverfisgötu 105 á laugardagsmorgun 12. nóvember kl. 10.30. Allt
áhugafólk velkomið. - Álfheiður Ingadóttir, Hjörleifur Guttorms-
son, Steingrímur J. Sigfússon.
Alþýðubandaiagið í Reykjavík
Viðtalstímar borgarfulltrúa
Næstkomandi laugardag, 12. nóvember, veröur Sigur-
jón Pétursson borgarfulltrúi til viðtals í flokksmiðstöð
Hverfisgötu 105, frá kl. 11-12. Borgarbúar eru eindregið
hvattir til að notfæra sér þessa þjónustu og fá beinan
aðgang að borgarfuiltrúunum. - ABR.
Sigurjón Pétursson
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opinn fundur
um málefni einstæðra foreldra verður haldinn í Pinghóli 13. nóvember
nk. kl. 14.00. Stuttar framsögur flytja Edda Ragnarsdóttir, Friðgeir
Baldursson og Þórunn Friðriksdóttir. - Allirvelkomnir-og börnin líka!
7 ABK
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur bæjarmálaráðs Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður
haldinn í Skálanum, Strandgötu 41, mánudaginn 14. nóvember n.k. kl.
20.30.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Starfsáætlun vetrarins. 3)
Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarfund 15. nóv.
Mikilvægt að allir nefndarmenn mæti. Fundir bæjarmálaráðs eru
opnir öllum félögum ABH. Stjórnin.
Alþýðubandalagsð, Kjósarsýslu
Aðalfundur verður haldinn sunnudaginn 13. nóvember í JC-salnum
Þverholti. Dagskrá: 1) Aðalfundastörf. 2) Geir Gunnarsson segir frá
stjórnmálaviðhorfinu. Allir stuðningsmenn eru hvattir til að mæta á
fundinn.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Fundur einstæðra
foreldra
Edda Ragnarsdóttir
Á morgun, sunnudag heldur Alþýðu-
bandalagið í Kópavogi opinn fund
um málefni einstæðra foreldra í
Þinghóli, Hamraborg 11. Hefst fund-
urinn kl. 14.00. Stuttframsöguerindi:
Framfærslumálin: Edda Ragnars-
dóttir ritari Félags einstæðra for-
eldra. Um feyfi og launagreiðslur
foreldra í veikindum barna: Frið-
geir Baldursson rennismiður. Ein-
stæðar mæður og feður, sömu
möguleikar?: Þórunn Friðriks-
dóttir félagsfræðingur.
Fundarstjóri verður Sigurður Hjart-
arson. Eva Sigurbjörnsdóttir sér um
barnahornið. Lovísa Hannesdóttir
verður með heitt á könnunni. Fjöl-
mennið og takið börnin með!
Stjórn ABK
Friðgreir Baldursson
Þórunn Friðriksdóttir
Kúlunni varpað sam-
fleytt í 18 stundír
Það var ekki þreytu að sjá á nemendum Iþróttakennaraskólans á Laugarvatni er þau komu að íþróttaleik-
vanginum í Laugardal um hádegisbilið í gær. Ljósm. Magnús.
Lengsta kúluvarpi sögunnar lauk í gær
Sérkennilegasta kúluvarpi allra
tima lauk um hádegisbilið í gær er
nemendur íþróttakennaraskólans
á Laugarvatni komu að íþróttaleik-
vanginum í Laugardal eftir að hafa
varpað kúlu sleitulaust í 18 klukk-
utíma alla leið frá Laugarvatni til
Reykjavíkur.
Að sögn Hermanns Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra fþrótta-
sambands íslands gekk ferðin vel
að sögn þeirra 40 neménda skólans
sem tóku þátt í uppátækinu. Þeim
var boðið í hádegisverð að Hótel
Esju eftir afrekið og þakkaði Gísli
Halldórsson formaður íslensku ól-
ympíunefndarinnar nemendum
Iþróttakennaraskólans fyrir að
vekja með þessum einstæða hætti
athygli á starfi íslensku ólympíu-
nefndarinnar.
Nemendurnir hafa að undan-
förnu safnað áheitum og fram-
lögum til að styrkja för íslenskra
íþróttamanna á ólympíuleikana í
Los Angeles á næsta ári.
-v.
Formaður SHÍ um málefni LÍN:
_
„Amælisverð
vinnubrögð
ráðherra”
„Okkur finnst það ámælisverð
vinnubrögð hjá menntamálaráð-
herra að hún skuli ekki hafa haft
samband við fulltrúa stúdenta í
stjórn LÍN um þau úrræði sem hún
ætlar að grípa til svo lánaúthlut-
annir til handa námsmönnum nái
fram að ganga í desembermánuði.
Ragnhildur sagði það 95% öruggt
að þetta fjármagn yrði útvegað en
þrátt fyrir að við margsinnis
gengum á hana með spurningar um
hvaðan það kæmi varð ekkert um
svör. Annað atriði sem við teljum í
hæsta máta alvarlegt er það að fjár-
veitingum til fyrsta árs nema, sem
frestað var í haust með loforðum
um að þeim yrði úthlutað í ársbyrj-
un ’84, virðist hafa verið gleymt.
Svo er einnig um 25% þeirra upp-
hæðar sem átti að verja til að fjár-
magna bókakaup háskólastú-
denta“, sagði Aðalsteinn Steinþórs-
son formaður stúdentaráðs í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Málefni LÍN voru til umræðu á
fundi í Háskóla ísiands sl. fimmtu-
dagskvöld en þar mættu fulltrúar
allra stjórnmálaflokkanna sem
sitja á þingi svo og
menntamálaráðherra Ragnhildur
Helgadóttir. Ragnhildur kvaðst
ætla að útvega það fé sem á vantar
til að stúdentar geti fengið námslán
sín útborguð í desember.
Það vakti nokkra athygli á fund-
inum að Ragnhildur og Friðrik
Sóphusson vörðu löngum tíma í
ræðum sínum til að tala um mis-
notkun nemenda á námslánum.
Þannig sagði Ragnhildur að þess
fyndust dæmi að ferðastyrkir til
handa námsmönnum búsettum er-
lendis væru borgaðar út þó án þess
að þeir væru notaðar til ferðalaga.
Lagði Ragnhildur það til að stú-
dentum væri framvegis gert að
koma með farseðla til þess að fá
ferðastyrkina greidda. Friðrik Sóp-
husson sagði að fólki reyndist erfitt
að skilja, að á meðan lægstu laun í
landinu væru í kringum 11 þúsund
krónur fengu hjón sem stunduðu
nám allt að 26 þúsund krónur í
námslán í hverjum mánuði. Aðal-
steinn var spurður um þetta atriði:
„Þessi umfjöllun sneiðir hjá
kjarna málsins. Það má kannski
finna dæmi þess að hjón í námi fái
26 þúsund krónur í hverjum mán-
uði, en þau eru áreiðanlega sárafá.
Sömu sögu er að segja um ferða-
styrkina. Það sem skiptir máli er
það að það vantar 300 miljón krón-
ur í sjóðinn".
Ragnhildur ininntist á að tími
væri kominn til að beina nemend-
um inn á þær námsbrautir sem gefa
af sér næg atvinnutækifæri að námi
loknu. Hver er skoðun Stúdenta-
ráðs á þeim ummælum?
„Ég held að velflestir vilji eiga
kost á því að velja nám eftir eigin
löngun og hæfileikum. Kannski
vantar eitthvað á ráðgjöf í þessum
efnum og þá er við Alþingi að sak-
ast því ef maður skoðar fjárlögin
sér maður ekki stórar upphæðir til
handa þeim málaflokki sem snertir
námsráðgjöf“.
-hól.
Sigríður Thorlacius, fyrrv.
formaður Kvenfélagasam-
bands Islands, er sjötug
sunnudaginn 13. nóvember.
Kvenfélagasambandið heldur
henni samsæti á Hótel Sögu
um hádegi á afmælisdaginn.
Þjóðviljinn sendir henni árn-
aðaróskir.
Fjármagn til LÍN:
Kemur úr
ýmsum
áttum
Þessar 22.5 miljónir sem reynist
nauðsynlegt að útvega til þess að
hægt sé að greiða námslán til allra
þeirra sem þess þurfa með fæst úr
ýmsum áttum, þetta er einhvers
konar kokkteill”, sagði Sigurður
Skagfjörð Sigurðsson stjómarfor-
maður í LÍN þegar Þjóðviljinn
hafði samband við hann í gær
vegna þeirrar viðbótarupphæðar
sem Ragnheiður Helgadóttir hefur
svo gott sem lofað stúdentum. Af
einhverjum ástæðum hefur
mönnum reynst erfitt að fá uppgef-
ið hvaðan þetta fé kemur og var
Ragnhildur margsinnis innt eftir
því á fundinum í HÍ sl. fimmtudag.
„Mér finnst eðlilegast að gera
grein fyrir þessari fjárútvegun á
fundi hjá stjórn LÍN áður en það er
gert opinberlega”, sagði Sigurður.
-hól.