Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 3
Hallarekstur heimilanna Tvenn mánaðar- laun í mínus Einstaklingur sem hafði 20 þús- und krónur í mánaðarlaun í mars sl. og greiddi 15 þúsund kr. fyrir vöru og þjónustu í þeim mánuði og 5 þúsund kr. í vexti af verðtryggðu láni, hafði 22.464 krónur í mánað- arlaun í október sl., en greiddi 23.721 krónur fyrir vöru og þjón- ustu samkvæmt vísitölu (meira en mánaðarkaupið) og 7.417 kr. í vexti. Hann stóð á sléttu í mars en vantar 8.224 krónur til þess að mánaðarkaupið hrökkvi fyrir sama magni af vöru og þjónustu og vöxt- um af sömu lánsupphæð í október. Á þessu tímabili vantar 36.406 krónur uppá að endar nái saman í Vara og þjónusta Mán. Kaup skv vísitölu Mars ...20.000 15.000 Apríl ,...20.000 15.000 Maj ...20.000 18.148 Júní ...21.600 18.148 Júlí ...21.600 20.864 Agúst.... ...21.600 22.345 Sept ,...21.600 22.530 Okt ....22.464 23.271 þessu hugsaða dæmi sem er síður er svo verra en það sem blasir við fjölda launamanna í dag. í nóvem- ber hefur einstaklingurinn í dæm- inu verið kominn með tvenn mán- aðarlaun í mínus. Þessar upplýsingar komu fram ásamt mörgum öðrum í ræðu er Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins flutti á mið- stjórnarfundi um helgina, en þar lagði hann einnig fram meðfylgj- andi töflu. -ekh Sjá leiðara Verðtr. lán skv. lánskjaravísit. Mismunur 5.000 5.297 - 297 5.641 - 3.789 6.106 - 2.654 6.422 - 5.686 6.766 - 7.511 7.315 - 8.245 7.417 - 8.224 168.864 155.306 49.964 36.406 Aukafjárveiting til byggingarsjóðs ríkisins____________________ 4700 umsóknir um viðbótarlán að upphæð 250-280 miljónir „Þetta frumvarp er orðið allt annað en til var ætlast í upphafi og málsmeðferð ríkisstjórnarinnar öll í skötulíki, en stjórnarandstaðan mun ekki bregða fæti fyrir af- greiðslu þessa máls, þar sem henni hefur tekist með málflutningi sín- um að knýja fram aukafjárveitingu úr ríkissjóði uppá 200 miljónir til Bygginarsjóðs ríkisins“, sagði Svavar Gestsson m.a. þegar hann mælti fyrir áliti minnihluta fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar vegna frumvarps ríkisstjórnarinnar um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs. Upphaflega gerði ríkisstjórnin ráð fyrir að seld yrðu skuldabréf fyrir 200 miljónir á þessu ári til fjár- öflunar fyrir Byggingarsjóð vegna viðbótarlána sjóðsins til húsbyggj- enda. Sala skuldabréfanna hefur hins vegar verið afar dræm. Fjár- málaráðherra hefur lýst því yfir að aukafjárveiting verði veitt svo byggingarsjóður gæti staðið við skuldbindingar sínar. Fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar óskaði eftir skriflegri staðfestingu ráðherra á þessari aukafjárveitingu sem hún og fékk. Svavar Gestsson benti á það í umræðum í gær að aukafjárveiting þýddi beint framlag úr ríkissjóði, hér væri um óendurkræft framlag til byggingarsjóðs að ræða uppá 200 miljónir sem ráðherra hefði lofað en ekki lánveiting. Óskaði hann eftir áliti félagsmálaráðherra á þessum málum. Alexander Stef- ánsson sagði að 4700 umsóknir hefðu borist Húsnæðisstofnun um viðbótarlán og væri búið að af- greiða 1400 þeirra til veðdeildar samtals að upphæð 100 miljónir. Ljóst væri að alls væri um að ræða umsóknir uppá 250-280 miljónir. 200 miljónir kæmu sem aukafjár- veiting en semja yrði um afganginn við fjármálaráðherra, sagði fél- agsmálaráðherra. ->g- Dræm sala á ríkis skuldabréfum Til umræðu er að gefa út ríkisvíxla Sala þeirra ríkisskuldabréfa, sem sett voru á markaðinn í nóvem- ber sl. og ætluð voru til að fjár- magna viðbótarián húsnæðislána- kerflsins, hefur verið mjög dræm til þessa. Þjóðviljinn fékk það stað- fest í Seðlabankanum í gær að í nóvember hefðu aðcins selst bréf fyrir 30 miljónir króna. Á lánsfjárlögum þessa árs var gert ráð fyrir að selja ríkisskulda- bréf fyrir allt að 200 miljónum króna. í mars sl. voru gefin út bréf og seldist fyrir rúmar 60 miljónir króna á tímabilinu mars-júní. Þess vegna var heimild til að selja nú bréf fyrir allt að 140 milj kr. Sem fyrr segir var ákveðið að nota það fé sem fengist fyrir bréfin að þessu sinni til að fjármagna við- bótarlán húsnæðislánakerfisins. Þegar sala þessara bréfa hófst sagði fjármálaráðherra Albert Guð- mundsson að ekki yrði veitt krónu meira til viðbótar húsnæðislána en inn kæmi fyrir bréfin. Fé- lagsmálaráðherra Alexander Stef- ánsson sagði aftur á móti að staðið yrði við loforðið um viðbótarlánin, burtséð frá því hvernig gengi að selja skuldabréfin. Ljóst er nú að fjármagna verður viðbótarlánin með öðrum hætti. - S.dór Þriðjudagur 13. désember 1983 ÞjÓÐ’VfLjlNNSÍÐA 3 EinarOlgeirsson Kranaverk einnar kynslúöar Jón Gu6s Einar Olgeirsson hefur alla tíð verið einn ötulasti leiðtogi íslenskrar alþýðu í baráttu hennar fyrir bættum kjörum og mannréttindum, eldheitur hugsjónamaður og slunginn stjórnmálamaður, sem skildi og skynjaði samtíð sína dýpri og víðari skilningi en flestir aðrir. í þessari bók segir Einar frá stofnun verkalýðsfélaganna hér á landi og átökunum innan Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins og frá stofnun og starfsemi Kommúnistaflokksins og Sósíalistaflokksins. Við sögu kemur fjöldi fólks og á annað hundrað Ijósmyndir prýða bókina. Frásögn Einars lýkur þegar sigur vannst á kjaraskerðingu stjórnvalda með skæruverkföllunum 1942. Hér er skráð örlagasaga íslensks verkafólks á mestu umbrotatímum þessarar aldar, sögð af sjónarhóli manns er alla tíð stóð í fylkingarbrjósti. cjefumcjóðarbœkur og menning Umsóknir um íbúðakaup. Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um 74 íbúðir í Ártúnsholti og 31 íbúð við Neðstaleiti í Reykjavík. íbúðir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og verða fyrstu íbúðirnar væntanlega afhentar síðla árs 1984 en þær síðustu haustið 1985. Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri íbúðir, sem koma til endursölu síðari hluta árs 1984 og fyrri hluta árs 1985. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 51/1980. Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-16. Umsóknum skal skila eigi síðar en 6. jan., 1984. Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.