Þjóðviljinn - 13.12.1983, Page 3
Hallarekstur heimilanna
Tvenn mánaðar-
laun í mínus
Einstaklingur sem hafði 20 þús-
und krónur í mánaðarlaun í mars
sl. og greiddi 15 þúsund kr. fyrir
vöru og þjónustu í þeim mánuði og
5 þúsund kr. í vexti af verðtryggðu
láni, hafði 22.464 krónur í mánað-
arlaun í október sl., en greiddi
23.721 krónur fyrir vöru og þjón-
ustu samkvæmt vísitölu (meira en
mánaðarkaupið) og 7.417 kr. í
vexti. Hann stóð á sléttu í mars en
vantar 8.224 krónur til þess að
mánaðarkaupið hrökkvi fyrir sama
magni af vöru og þjónustu og vöxt-
um af sömu lánsupphæð í október.
Á þessu tímabili vantar 36.406
krónur uppá að endar nái saman í
Vara og þjónusta
Mán. Kaup skv vísitölu
Mars ...20.000 15.000
Apríl ,...20.000 15.000
Maj ...20.000 18.148
Júní ...21.600 18.148
Júlí ...21.600 20.864
Agúst.... ...21.600 22.345
Sept ,...21.600 22.530
Okt ....22.464 23.271
þessu hugsaða dæmi sem er síður er
svo verra en það sem blasir við
fjölda launamanna í dag. í nóvem-
ber hefur einstaklingurinn í dæm-
inu verið kominn með tvenn mán-
aðarlaun í mínus.
Þessar upplýsingar komu fram
ásamt mörgum öðrum í ræðu er
Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins flutti á mið-
stjórnarfundi um helgina, en þar
lagði hann einnig fram meðfylgj-
andi töflu.
-ekh
Sjá leiðara
Verðtr. lán skv.
lánskjaravísit. Mismunur
5.000 5.297 - 297
5.641 - 3.789
6.106 - 2.654
6.422 - 5.686
6.766 - 7.511
7.315 - 8.245
7.417 - 8.224
168.864 155.306 49.964 36.406
Aukafjárveiting til byggingarsjóðs
ríkisins____________________
4700 umsóknir
um viðbótarlán
að upphæð 250-280 miljónir
„Þetta frumvarp er orðið allt
annað en til var ætlast í upphafi og
málsmeðferð ríkisstjórnarinnar öll
í skötulíki, en stjórnarandstaðan
mun ekki bregða fæti fyrir af-
greiðslu þessa máls, þar sem henni
hefur tekist með málflutningi sín-
um að knýja fram aukafjárveitingu
úr ríkissjóði uppá 200 miljónir til
Bygginarsjóðs ríkisins“, sagði
Svavar Gestsson m.a. þegar hann
mælti fyrir áliti minnihluta
fjárhags- og viðskiptanefndar
neðri deildar vegna frumvarps
ríkisstjórnarinnar um innlenda
lánsfjáröflun ríkissjóðs.
Upphaflega gerði ríkisstjórnin
ráð fyrir að seld yrðu skuldabréf
fyrir 200 miljónir á þessu ári til fjár-
öflunar fyrir Byggingarsjóð vegna
viðbótarlána sjóðsins til húsbyggj-
enda. Sala skuldabréfanna hefur
hins vegar verið afar dræm. Fjár-
málaráðherra hefur lýst því yfir að
aukafjárveiting verði veitt svo
byggingarsjóður gæti staðið við
skuldbindingar sínar. Fjárhags- og
viðskiptanefnd neðri deildar
óskaði eftir skriflegri staðfestingu
ráðherra á þessari aukafjárveitingu
sem hún og fékk.
Svavar Gestsson benti á það í
umræðum í gær að aukafjárveiting
þýddi beint framlag úr ríkissjóði,
hér væri um óendurkræft framlag
til byggingarsjóðs að ræða uppá
200 miljónir sem ráðherra hefði
lofað en ekki lánveiting. Óskaði
hann eftir áliti félagsmálaráðherra
á þessum málum. Alexander Stef-
ánsson sagði að 4700 umsóknir
hefðu borist Húsnæðisstofnun um
viðbótarlán og væri búið að af-
greiða 1400 þeirra til veðdeildar
samtals að upphæð 100 miljónir.
Ljóst væri að alls væri um að ræða
umsóknir uppá 250-280 miljónir.
200 miljónir kæmu sem aukafjár-
veiting en semja yrði um afganginn
við fjármálaráðherra, sagði fél-
agsmálaráðherra.
->g-
Dræm sala á ríkis
skuldabréfum
Til umræðu er að gefa út ríkisvíxla
Sala þeirra ríkisskuldabréfa,
sem sett voru á markaðinn í nóvem-
ber sl. og ætluð voru til að fjár-
magna viðbótarián húsnæðislána-
kerflsins, hefur verið mjög dræm
til þessa. Þjóðviljinn fékk það stað-
fest í Seðlabankanum í gær að í
nóvember hefðu aðcins selst bréf
fyrir 30 miljónir króna.
Á lánsfjárlögum þessa árs var
gert ráð fyrir að selja ríkisskulda-
bréf fyrir allt að 200 miljónum
króna. í mars sl. voru gefin út bréf
og seldist fyrir rúmar 60 miljónir
króna á tímabilinu mars-júní. Þess
vegna var heimild til að selja nú
bréf fyrir allt að 140 milj kr.
Sem fyrr segir var ákveðið að
nota það fé sem fengist fyrir bréfin
að þessu sinni til að fjármagna við-
bótarlán húsnæðislánakerfisins.
Þegar sala þessara bréfa hófst sagði
fjármálaráðherra Albert Guð-
mundsson að ekki yrði veitt krónu
meira til viðbótar húsnæðislána en
inn kæmi fyrir bréfin. Fé-
lagsmálaráðherra Alexander Stef-
ánsson sagði aftur á móti að staðið
yrði við loforðið um viðbótarlánin,
burtséð frá því hvernig gengi að
selja skuldabréfin. Ljóst er nú að
fjármagna verður viðbótarlánin
með öðrum hætti.
- S.dór
Þriðjudagur 13. désember 1983 ÞjÓÐ’VfLjlNNSÍÐA 3
EinarOlgeirsson
Kranaverk einnar
kynslúöar Jón Gu6s
Einar Olgeirsson hefur alla tíð verið einn ötulasti leiðtogi íslenskrar alþýðu í
baráttu hennar fyrir bættum kjörum og mannréttindum, eldheitur
hugsjónamaður og slunginn stjórnmálamaður, sem skildi og skynjaði samtíð
sína dýpri og víðari skilningi en flestir aðrir.
í þessari bók segir Einar frá stofnun verkalýðsfélaganna hér á landi og
átökunum innan Alþýðusambandsins og Alþýðuflokksins og frá stofnun og
starfsemi Kommúnistaflokksins og Sósíalistaflokksins. Við sögu kemur fjöldi
fólks og á annað hundrað Ijósmyndir prýða bókina. Frásögn Einars lýkur þegar
sigur vannst á kjaraskerðingu stjórnvalda með skæruverkföllunum 1942.
Hér er skráð örlagasaga íslensks verkafólks á mestu umbrotatímum þessarar
aldar, sögð af sjónarhóli manns er alla tíð stóð í fylkingarbrjósti.
cjefumcjóðarbœkur
og menning
Umsóknir um íbúðakaup.
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um 74 íbúðir í Ártúnsholti og 31
íbúð við Neðstaleiti í Reykjavík.
íbúðir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og verða fyrstu íbúðirnar væntanlega afhentar
síðla árs 1984 en þær síðustu haustið 1985.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri íbúðir, sem koma til endursölu síðari hluta árs 1984
og fyrri hluta árs 1985. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr.
51/1980.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig
veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 6. jan., 1984.
Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi.