Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 7
 »i /» i ) •* Þriðjudagur 13. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Mest, best eða verst á Islandi Þegar rætt er um íslandsmet dettur víst flestum í hug íþróttaaf- rek. En það eru til íslandsmet á mörgum öðrum sviðum og um það fjallar bók sem Bókaútgáfan Orn og Örlygur hefur sent á markaðinn eftir Steinar J. Lúðvíksson. Bókin nefnist lslandsmetabók Arnar og Örlygs. Bókin er hliðstæðan við Heimsmetabók Guinness en er ein- göngu helguð íslensku efni. I bók- inni er svarað spurningum um hvað var eða er fyrst - síðast, stærst - minnst, hæst - lægst, breiðast - mjóst, elst - yngst, best - verst, dýpst-grynnst, lengst-styst o.s.frv. í íslandsmetabókinni er mikill fjöldi Ijósmynda af mönnum, dýr- um, munum, jurtum og landslagi. Fjallað er um ýmislegt sem telja má íslandsmet á mörgum sviðum, bæði í mannlífinu, dýra- og jurta- ríkinu íslenska og einnig er fjallað um landið sjálft. í bókinni er að finna svör við ýmsu því sem kemur upp í hugann og gaman er að fá svör við: Landnám og búseta; Há- vöxnustu íslendingar; Aldur og langlífi; Frjósemi og fæðingar; Hjúskapur; Blóðflokkar; Sjúkra- hús; Læknar og lækningar; Kaup- staðir og kauptún; Býli og jarðir; Þjóðhöfðingjar og tignarfólk; Lög- gjöf og þing; Ráðherrar og stjórn- ir; Bardagar og óeirðir; Sakamál; Fjármál og peningar; Verkalýðs- mál; Póstur og sími; Skóla- og menningarmál; Trúarbrögð og málefni kirkjunnar; Slysfarir, óár- an og bjarganir; Draugar og skrímsli og margt fleira. Konan og hinn þroskahefti Skáldsagan Tim eftir Collen McCullogh er komin út hjá fsafold- arprentsmiðju. Collen McCullogh er fædd í Astralíu og starfaði á sjúkrahúsum áður en hún helgaði sig ritstörfum. Tim fjallar um „lítt þekkta þætti tilfinningalífsins með indælum ferskleika" að því er segir í umsögn í New York Times. Bókin lýsir ást- um fertugrar konu og tvítugs manns, sem er þroskaheftur. Bókin er 323 blaðsíður að stærð. Tónlist á hverju heimili umjólin VANTAR ÞIG JÓLAGJÖF? ÞAÐERU4750 BÓKATITLAR í MARKAÐSHÚSI BÓKHLÖÐ UNNAR Laugavegi 39 Sími 16180 OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 8. SENDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND í< = OKHLAOAN L JL 1 11 ÍSLANDS, \AtWBOK íslandsmetabók Arnar og Ör- lygs er 200 bls. í stóru broti og eins og áður segir með gífurlegum fjölda ljósmynda. 6. bindi Jarðarbókarinnar komið: Dala- og Barða- strandarsýslur Út er kumið 6. bindi af Jarðabók Arna Magnússonar og Páls Vída- líns í Ijósprentaðri útgáfu Fræða- félagsins í Kaupmannahöfn. Þetta bindi er um Daía- og Barðastrand- arsýslur, og kom það fyrst út 1938 í útgáfu Björns K. Þórólfssonar. Jarðarbók þessi er samin á árunum 1703-1705 og 1710. Fræðafélagið hóf endurútgáfu Jarðabókarinnar árið 1980 og er það verk nú hálfnað. Áætlað er að tvö bindi komi út á næsta ári, en í 12. og síðasta bindi verða ýmis jarðabókaskjöl sem ekki hafa verið birt áður, auk atriðisorðaskrár um öll bindin. Bókin er 425 blaðsíður og er verð til áskrifenda kr. 690.- Um- boð fyrir Fræðafélagið hér á landi hefur Sögufélag, Garðastræti 13b, 101 R, og geta áskrifendur vitjað bókarinnar þar. Paul Banrrtster ÆVAR R. KVARAN Wet»l«ð(ÖOtit3ðl wrmála Ókunn öfl heitir bók sem Prent- húsið hefur gefið út. Höfundur bókarinnar heitir Paul Banister en Ævar Kvaran hefur íslenskað. í bókinni er varpað fram spurn- ingunni: Er heimur handan skiin- ingarvita okkar?, og telur höfund- ur að það sé eina skýringin á mörg- um sönnum en dularfullum atburð- um sem frá segir í bókinni. VISA INNANIANDS SEM UTAN! A,b*°^nkinn Nú eru VISA-kortin gild í innlendum viðskiptum. Eitt og sama kortið er gjaldgengt hjá 4 milljónum verslunar- og þjónustu- fyrirtækjum um allan heim. Úttektir í reiðufé Unnt er, gegn framvísun VISA-kortsins, að fá sérprentað tékkaeyðublað til úttektar á reiðufé af tékkareikningi korthafa í öllum VISA-bönkum og sparisjóðum hér innanlands. Úttektartímabil VISA er frá 18. hvers mánaðar til 17. næsta mánaðar, með eindaga 15 dögum síðar, þ.e. 2. hvers mánaðar. Fyrsta úttektartímabilið er þó viku lengra, eða frá 10. desember til 17. janúar, með greiðslufresti til 2. febrúar 1984! VERIÐ VELKOMIN IVISA-VIÐSKIPTI Alþýðubankinn hf. Búnaðarbanki (slands lðnaðarbankj íslands hf. Landsbanki íslands Samvinnubanki íslands hf. Eyrasparisjóður, Patreksfirði Sparisjóður Bolungarvíkur Sparisjóður Hafnarfjarðar Sparisjóðurinn í Keflavík Sparisjóður Kópavogs Sparisjóður Mýrasýslu Sparisjóður Norðfjarðar Sparisjóður Ólafsfjarðar Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis Sparisjóður Siglufjarðar Sparisjóður Svarfdæla Sparisjóður Vestmannaeyja Sparisjóður V-Húnavatnssýslu - Eitt kort um allan heim.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.