Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.12.1983, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 13. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Helgi Ólafsson skrifar um skákeinvígin RibK og Smysiov að tafli í London. Fátt getur nú komið í veg fyrir sigur Smysiovs í einvíginu enda hefur hann haft yfirburði á flestum sviðum skáklist- annnar. Smyslov hefur alla þræði í hendi sér þarf ekki nema einn vinning í þrem skákum til að tryggja sér sigur í einvíginu við Ribli Fótt virðist nú geta komið í veg fyrir sigur Vasily Smyslovs í ein- vígi hans við Zoltan Ribii. Eftir ní- undu skák einvígisins sem leidd var tii lykta á sunnudaginn heldur hann enn tveggja vinninga for- skoti og þarf ekki nema tvö jafn- tefli til viðbótar til þess að tryggja sér sigur. Taflmennska Riblis í ein- víginu gefur mönnum ekki tilefni til þess að halda að einhverrar breytingar sé að vænta. Virðist sem röng einvígistaktík ætli að verða honum að falli. í stað þess að sækjast eftir flóknum og óljós- um stöðum hefur hann teflt upp stöður sem Smyslov unir sér manna best í. Þar við bætist að Ri- bli hefur verið fádæma taugaó- styrkur í einvíginu og hvað eftir annað gert sig sekan um yfirsjónir af einföldustu tegund. í dag tefla þeirfélagar 10. einvígisskákina og takist Ribli ekki að ná sigri má telja sigur Smyslovs vísan. Níunda skák þessa einvígis tók svipaða stefnu og fimmta og sjöunda skákin. Ribli beitti Tarrasch- afbrigðinu með nokkrum breytingum þó, en taflmennska Smyslovs miðað- ist öll að því að halda áhættu niðri: 9. einvígisskák: Hvítt: Vasily Smyslov Svart: Zoltan Ribli Tarrasch-vörn 1. d4 Rf6 2. e4 e6 3. Rf3 c5 4. e3 („Með tveggja vinninga forskot fer maður nú ekki að gefa leyfi fyrir ein- hverri ólátabyrjun", gæti Smyslov hafa hugsað með sér áður en hann lék þessum leik. Benony-byrjunin hefur um langt skeið þótt tilvalinn þegar mikið er í húfi og það veit Smyslov. Hann velurþví rólegri leið.). 4. .. d5 5. Rc3 Rc6 6. cxd5 exd5 (Ribli er búinn að fá sig fullsaddan af umræðunni um stöðuna sem kemur upp eftir 6. - Rxd5 Sjá 5. og 7. skák.). 7. Be2 cxd4 8. exd4 (Með hliðsjón af stöðunni í einvíginu er skynsamlega að málum staðið Smyslov reynir að fá samhverfa stöðu með jafnteflisívafi.). 8. .. Bd6 9. Bg5 Be6 10. 0-0 h6 11. Bh4 g5! (Nú er að duga eða drepast. Ribli verður að fá fram flækjur.). 12. Bg3 Re4 13. Bxd6 Dxd6 14. Rd2 0-0-0 15. Hc1 Kb8 16. Rb3 Bc8 17. f3 Rxc3 18. Hxc3 b6 19. Bb5 Bb7 20. De1 (Stefnir að einföldun stöðunnar með 21. Dg3. Þrátt fyrir mikla tilburði hefur Ribli ekki tekist að rugla Smyslóv í ríminu. Hvítur stendur nú talsvert bet- ur að vígi og á góðum degi hefði Smyslov unnið stöðu sem þessa. Það vill Ribli hinsvegar til happs að „gamli maðurinn'' er mjög sáttur við jafntefli.). 20. ..Re7 21. Dg3 Rf5 22. Dxd6+ Rxd6 23. Bd3 Rd4 24. Hb1 (24. Bxc4 dxc4 25. Hxc4 strandar á 25. - Ba6.) 24. .. Hhe8 25. Kf2 Ba6 26. Rc1 Bb5 27. Re2 Rd6 28. Hbc1 Bxd3 - hér bauð Ribli jafntefli sem Smyslov þáði. Staðan: Vasily Smyslov 5Vz - Zolt- an Ribli 3'h. Kasparov jók forskot sitt stefnir í einvígi Smyslovs og Kasparovs Úrslit níundu einvígisskákar Garrí Kasparovs og Viktors Kortsnoj í Lundúnum í gærkveldi þarsem Kasparov náði sigri taka endanlega af öll tvímæli um úrslit einvfgisins. Svo viröist sem Kortsnoj hafi alls ekki náö aö jafna sig eftir tapið í 6. einvígis- skákinni og í síðustu skákum hef- ur hann verið gjörsamlega ó- þekkjanlegur frá því sem var í fyrstu skákunum er hann tefldi af mikilli grimmd og gaf hvergi höggstað á sér. í aðeins 30 leikjum tókst Kasp- arov að yfirbuga andstæðing sinn. Eftir örfáa leiki var hann bú- inn að ná slíkum yfirburðatökum á stöðunni að úrslitin gátu ekki orðið á annan veg. Eina ferðina enn beitti Kasparov katalónskri byrjun, en Kortsnoj brást við á heldur klaufalegan hátt, lenti í miklum erfiðleikum með hrók sinn og þegar hann skundaði með drottningu sína á vettvang til bjargar hróknum, flækti það mál- in aðeins enn meira enda fór svo að hrókurinn varð ofurseldur riddurum Kasparovs sem dönsu- ðu um allt borð af mikilli fimi. Þó Kortsnoj hafi teygt skákina upp í 30 leiki var nokkru áður orðið Ijóst um úrslit. 8. einvígisskák þeirra félaga vartefld sl. laugardag og þá lagði Kasparov mikla áherslu á frið- sama lausn mála. Hann varðist öllum atlögum Kortsnojs af ör- yggi og jafnteflisúrslitin voru rök- rétt afleiðing óaðfinnanlegrar taflmennsku beggja. Kasparov gegn Smyslov Nú þykir sýnt að Kasparov mæti Smyslov í næsta og um leið síðasta áfanga áskorendakepp- ninnar. Þó Smyslov hafi komið rækilega á óvart á hann vart mikla möguleika gegn pilti. Þeir hafa teflt nokkrum sinnum og hefur Kasparov haft í fullu tré við hinn reynda andstæðing sinn. 8. einvígisskák: Hvítt: Viktor Kortsnoj Svart: Garrí Kasparov Katalónsk byrjun 1. d4 d5 2. c4 e6 3. Rf3 Rf6 4. g3 dxc4 5. Bg2 c5 6. Da4+ Bd7 7. Dxc4 Bc6 8. dxc5 Rbd7 9. Be3 Bd5 10. Da4 Bc6 11. Dc4 Bd5 12. Db4 Dc8! (Ekki 12. - b6 13. Da4! Bxc5 14. Bxc5 bxc5 og svartur situr uppi með stakt peð.) 13. Rc3 Bxc5 14. Bxc5 Dxc5 15. Rxd5 Rxd5 16. Dd2 (Hugsanlega var betra að leika 16. Dxc5 Rxc5 17. Rd4 en svartur virðist þó hafa allt á hreinu eftir 17. - Hd8.) 16. .. Hc8 17. 0-0 0-0 18. Hac1 Db6 19. Dd4 Hfd8 20. Hfd1 Dxd4 21. Rxd4 R7b6 (Svo sem oft vill verða, hefur afskap- lega litlaus taflmennska af beggja hálfu leitt til jafnteflislegrar stöðu. Kortsnoj ætti e.t.v. einhverja mögu- leika á að vinna þessa stöðu gegn sér lakari andstæðingi, en Kasparov gef- ur hvergi höggstað á sér og nær ör- ugglega jöfnu.) 22. Rb3 Hxc1 23. Hxc1 Hc8 24. Hxc8 Rxc8 25. Bxd5 exd5 26. Rc5 Rd6! (Varúð! Hættu ber að höndum. Marg- ur hefði leikið 26. - b6 en eftir 27. Ra6! f6 28. Rc7! Re7 29. e3! kemst svarti kóngurinn ekki á vettvang.) 27. Kg2 Kf8 28. Kf3 Ke7 29. Kf4 f6 30. h4 g6 31. g4 b6 32. Ra6 Re4 33. f3 Rc5 34. Rc7 d4 35. Rd5+ Ke6 36. Rb4 a5 37. Rd3 Kd5 38. g5 f5 39. Kg3 Rxd3 - og hér bauð Kasparov jafntefli sem Kortsnoj hlaut að þiggja. Peðsenda- taflið gefur enga möguleika til áfram- haldandi taflmennsku. Staða eftir átta skákir: Garrí Kasparov 472- Vikt- or Kortsnoj 372. 9. einvígisskák: Hvitt: Garrí Kasparov Svart: Viktor Kortsnoj Katalónsk byjrnun 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. g3 d5 4. Bg2 dxc4 5. Rf3 Rbd7 6. 0-0 Hb8 (Óvæntur leikur sem gefur til kynna að Kortsnoj hafi ekki fundið haldgott vopn gegn katalónsku byrjuninni. Kortsnoj hyggst koma valdi á c4- peðið með b7 - b5, en Kasparov á auðvelt með að fyrirbyggja þær áætl- anir.). 7. a4 b6 8. Rfd2 e5 9. Rxc4 exd4 10. Dxd4 Bc5 11. Dd3 0-0 12. Rc3! (Ótrúlegt en satt. Svartur á við stór- kostlegan vanda að etja eftir þennan leik. Hótun hvíts er 13. Rb5 a6 14. Ra7! með yfirburðastöðu. Kortsnoj velur leik sem leysir einn vanda en skapar annan. Sennilega er best að leika 12. - a6, en sá leikur hefur ekki bein áhrif á gang mála.). 12... Bb7?! (12. - Ba6 strandar á 13. Rb5!) 13. Bxb7 Hxb7 14. Df3! Da8? (Ömurlegur leikur. Kortsnoj hyggst bjóða fram drottningaruppskipti með 15. - Hbb8, en sú áætlun kemst aldrei í framkvæmd.). 15. Bf4! a6 16. e4 Ha7 17. Rd5! (Svarta staðan er allt að því töpuð eftir þennan geysisterka leik. Ef nú 17. - Rxd5 18. exd5 og veikleikarnir í stöðu svarts drottningarmegin eru yfirþyrmandi.) 17. ,.b5? (Ekki bætir þessi leikur úr skák. Kortsnoj er gjörsamlega heillum horf- inn.) 18. Ra5 bxa4 19. Hfc1 Bd4 20. Hxa4 Bxb2 21. Re7+ Kh8 22. Hc2! abcdefgh (Hér hefði Kortsnoj getað gefist upp! Hann tapar skiptamun án þess aö fá nokkrar bætur, t.d. 21. - Be5 22. Rec6. En það er ekki gott til afspurnar að tapa í 21. leik svo Kortsnoj heldur baráttunni áfram um stund. Hvílík umskipti frá fyrstu skákum einvígis- ins. Á vissan hátt minna síðustu skákir á viðureign Bobby Fischers og Tigran Petrosjan í Argentínu 1971. Petrosjan tefldi af miklu öryggi í fimm fyrstu skákunum, en síðan gaf hann aðeins eftir í sjöttu skák og þá missti hann móðinn og tapaði öllum þeim skákum sem eftir voru.) 22. .. De8 23. Hxb2 Dxe7 24. Rc6 (Og þar féll hrókurinn ólánsami.) 24. .. Dc5 25. Rxa7 Dxa7 26. e5 Rg8 27. Be3 Da8 28. Dxa8 Hxa8 29. f4 Re7 30. Hd2 - og Kortsnoj lagði niður vopnin. Staðan eftir níu skákir: Garrí Kasparov 57z - Viktor Korts- noj 37j. Næsta skák verður tefld á morgun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.