Þjóðviljinn - 13.12.1983, Page 16
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. desember 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Úlfar
Jón
Einar O.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Opið hús
veröur í kvöld þriðjudaginn 13. desember kl. 20.30 í Flokksmiðstöð Alþýðu-
bandalagsins. - Guðrún Helgadóttir les úr bók sinni Sitji guðs englar. Einar
Kárason les úr bók sinni Þar sem djöflaeyjan rís. Úlfar Þormóðsson les úr
óbirtri bók sinni Bréf til Þórðar frænda, Elísabet Þorgeirsdóttir les úr bók
þeirra Einars Olgeirssonar og Jóns Guðnasonar, Kraftaverk einnar kyn-
slóðar. - Allir velkomnir. Kaffiveitingar! Fjölmennið! - ABR III. deild.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Árshátíð og þorrablót
Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsirrs í Reykjavík verður laugardaginn
28. janúar 1984. Þegar eru bókanir farnar að berast og eru menn hvattir til
. ,að skrá sig fyrir miðum sem allra fyrst. í fyrra komust færri að en vildu.
Dagskrá og skemmtiatriði auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Jólaglögg
ÆFAB heldur jólaglögg laugardaginn 17. desember kl. 20.30 í flokks-
miðstöðinni. Meðal skemmtiatriða verður Graham Smith sem kynnir
nýútkomna plötu sína, Kalinka. Honum til aðstoðar verður Sigurgeir
Sigmundsson gítarleikari. Ýmsar aðrar uppákomur verða og að sjálf-
sögðu er á boðstólum jólaglögg og piparkökur á vægu verði.
Mætum stundvíslega og fjölmennum. - Skemmtinefnd ÆFAB.
Skrifstofan opin
Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar-
innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105.
Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500.
Stjórnin.
Sláið tvær flugur í
einu höggi!
Hreinsum og bónum bíla.
Erum við Sölvhólsgötu,
næst Klapparstíg, móttaka
bíla frá kl. 10-22 mánudaga
- laugardaga.
Eigendur geta skilið bílinn eftir meðan þeir versla eða fara í
bíó, leikhús o.fl.
Barnauppeldis-
sjóður Thorvald-
sensfélagsins
Jólamerki
Jólamerki Barnauppeldissjóðs
Thorvaldsensfélagsins 1983 er að
þessu sinni teiknað af Guðnýju
Harðardóttur. Á þessu ári eru liðin
70 ár síðan fyrsta jólamerki sjóðs-
ins var gefið út. Markmið Barn-
auppeldissjóðsins hefur verið frá
upphafi að leggja lið börnum sem
vegna veikinda eða annarra á-
stæðna hafa þurft aðstoðar við.
Jólamerkið er til sölu á pósthúsum,
Thorvaldsensbasar, Austurstræti 4
og hjá félagskonum í Thorvald-
sensfélaginu.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
Gefur úr jólakort
Jólakort Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna (UNICEF) eru enn
á ný komin á markaðinn. Það er
Kvenstúdentafélag íslands sem
hefur séð um sölu kortanna í rúm-
lega þrjátíu ár hér á íslandi. Kortin
eru prýdd myndum eftir þekkta
listamenn. Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna starfar eingöngu fyrir
frjáls framlög. Stærstu framlögin
koma frá einstökum ríkjum, auk
þess sem tekjur af sölu jólakorta
hafa verið um 10-12% af fram-
kvæmdapeningum. Tekjur af sölu
jólakortanna á fslandi hafa verið
2/5 hlutar af framlagi íslands til
Barnahjálparinnar. Kortin eru til
sölu í bókaverslunum og á skrif-
stofu Kvenstúdentafélagsins á
Hallveigarstöðum.
Jólakort Styrktarfélags vangefinna eru í ár eftir myndum Sólveigar Eggerz
Pétursdóttur. Allur ágóði af sölu kortanna rennur í byggingu fjögurra
raðhúsa, sem starfrækt verða sem heimili fyrir þroskahefta. Sölufólk mun
bjóða kortin til sölu, en þau fást einnig í versluninni Kúnst, Laugavegi 40
og á skrifstofu félagsins að Háteigsvegi 6.
Fjölskyldu-
bók um
meðgöngu
og fæðingu
Bókaútgáfan Salt hf. hefur sent
frá sér bókina „Þú og ég og litla
barnið okkar“. Er þetta eins konar
fjölskyldubók og fjallar um með-
göngu og fæðingu. Höfundar eru
danskir, Marlee og Benny Alex og
er greint frá. því hvernig tvö
systkin, María og Tómas, fylgjast
með meðgöngu móður sinnar. Þau
spyrja spurninga um kynlíf og
þungun og foreldrar þeirra greina
frá því hvernig barn verður til - allt
frá getnaði til fæðingar. Síðan
fylgjumst við með fyrstu mánuðun-
um í lífi barnsins. Með einföldum
orðum og litmyndum útskýra höf-
undar þannig „leyndardóm“ lífs-
ins. Bókin, sem er í stóru broti og
alls 44 bls., hefur verið þýdd á fjöl-
da tungumála og vakið athygli fyrir
það hvernig hún getur hjálpað for-
eldrum og börnum að ræða saman
um þessi mál. Þýðandi er Gunnar
J. Gunnarsson kennari. Textinn er
settur hjá Prentverki Akraness, en
bókin að öðru leyti unnin í Eng-
landi.
Cl/ Á T pt
SOGIJR
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
IÐUNN
Skáldsögur
Steinunnar
Iðunn hefur gefið út Skáldsögur
eftir Steinunni Sigurðardóttur, en
það er safn smásagna höfundar,
annað í röðinni. Hið fyrra, Sögur
til næsta bæjar, kom út fyrir rúm-
um tveimur árum. Þar að auki er
Steinunn löngu kunn sem ljóð-
skáld, og eitt sjónvarpsleikrit hefur
verið sýnt eftir hana.
Skáldsögur eru allmargar, og
blær þeirra er með ýmsu móti. Oft
ræður undirfurðulegur húmor höf-
undar ferðinni, svo sem í „Fjöl-
skyldusögunum", aðrar eru með
alvarlegri svip.
VÉLA- OG TÆKJÁLEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
Sláttuvélaleiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta.
minni háttar múrverk og smíöar.
BORTÆKNI SF.
Vélaleiga, simi 46980 - 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjörn G. Hauksson
Pípulagningameistari
Sími 46720
Ari Gústavsson
Pipulagningam
Simi 71577
Nýlagnir
Jarölagnir
Viögeröir
Breytingar
Hreinsanir
GEYSIR
Bílaleiga____
Car rental
BORGARTÚNI 24-105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015
Hellusteypan
STÉTT
Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211.
Il-t
STEYPUSÖGUN
vegg- og gólfsögun
VÖKVAPRESSA
i múrbrot og tleygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum a<5 okkur verkefni um allt land. — Fljót og góó
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
Verkpantanir
Irá kl. 8—23.
BORTÆKNl S/F
Vélaleiga S: 46980 - 72460.