Þjóðviljinn - 28.12.1983, Síða 3
Miðvikudagur 28. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Friðrik Ólafsson (t.h.) var ekki jafn harðskeyttur á jólamóti Útvegsbankans nú eins og tveimur fyrstu
mótunum. Hann varð í 5-7. sæti, hlaut 12 vinninga. Hér teflir hann við fulltrúa norðurhjarans Áskel Örn
Kárason sem hlaut 7 vinninga. Áhorfendur fylgjast spenntir með skákinni sem lauk með jafntefli.
3. Jólahraðskákmót Útvegsbankans
Helgi og Jóhann efstir
Flestir bestu skákmenn landsins
tóku þátt í þriðja jólahraðskákmóti
Útvegsbankans sem haldið var í
samkomusal bankans á 2. degi jóla.
Keppendur voru alls 20 og tefldu
allir við alla. Var baráttan um efstu
sætin geysihörð og lyktaði með því
að Helgi Ólafsson og Jóhann Hjart-
arson urðu efstir og jafnir hlutu 16
vinninga af 19 mögulegum. í þriðja
sæti varð svo Jón L. Árnason með
15 vinninga.
Keppnin var frá upphafi til enda
afar tvísýn og spennandi. I fyrstu
náði Róbert Harðarson forystunni
og hélt hann fram undir mitt mót
eða þar til hann tapaði fyrir Jóni L.
Árnasyni. Margeir Pétursson stóð
einnig vel að vígi eftir fyrstu um-
ferðirnar en þegar líða tók þótti
sýnt að Jóhann Hjartarson og
Helgi Ólafsson myndu berjast um
efsta sætið. Jón L. Árnason gat
einnig blandað sér í baráttuna.
Lengi vel hafði Jóhann 7: vinning
fram yfir Helga en í einni af lok-
aumferðunum tapaði hann fyrir
Margeiri Péturssyni á sama tíma og
Helgi gerði jafntefli við Jón L.
Jafnaðist þá munurinn.
Lokaniðurstaðan varð þessi: L-
2. Helgi Ólafsson og Jóhann Hjart-
arson 16 v. (af 19 mögulegum). 3.
Jón L. Árnason 15 v. 4. Margeir
Pétursson 127: v. 5.-7. Friðrik Ól-
afsson, Dan Hansson og Bragi
Kristjánsson 12 v. 8. Elvar Guð-
mundsson 11 v. 9.-10. Karl Þor-
steins og Róbert Harðarson 10 v.
11. Sævar Bjarnason 97: v. 12. Ing-
var Ásmundsson 87: v, 13.-15. Jón-
as Þorvaldsson, Benedikt Jónasson
og Áskell Ö. Kárason 7 v. 16. Ás-
geir Þ. Árnason 67: v. 17. Magnús
Sólmundarson 18.-19. Jóhann Þ.
Jónsson og Gunnar Gunnarsson 5
v. 20. Leifur Jósteinsson 27: v.
Mótstjórar voru Ólafur Ás-
grímsson og Ólafur H. Ólafsson og
Adolf Björnsson. í lok mótsins af-
henti Albert Guðmundsson verð-
laun.
- hól.
„Kjötsmyglið“ í fréttum útvarpsins
Óveðrið á annan dag jóla:
Elding
kveikti í
íbúðarhúsi
• Þórdunur í Borgarfirði
• Skruggur hrelldu héraðsbúa
• Eldingavörnum áfátt í landinu
Miklar skemmdir urðu á Val-
bjarnarvöllum í Borgarfirði á ann-
an dag jóla, cftir að cldingu laust
niður í reykháf íbúðarhússins og
kveikti í. Hljóp eldingin í rafmagns-
töflu hússins og varð af mikill hvell-
ur, risið brann mikið og neðri hæð-
in skemmdist einnig töluvert.
Þetta er eina óhappið sem vitað
er til að óveðrið, sem gekk yfir
landið á annan, hafi valdið, en því
fylgdu miklar skruggur um vestan
og suð-vestanvert landið. Mest
voru lætin í Borgarfirði á Mýrum
síðdegis, en þegar leið á kvöldið
varð einnig vart eldinga í Vest-
mannaeyjum, Reykjavík, Suður-
nesjum og nágrenni.
Slæmt veður var í Borgarfirðin-
um í gær, mikil snjókoma og ófærð.
Ekki reyndist unnt að ná sambandi
við Sigurjón Jóhannsson bónda á
Valbjarnarvöllum sem fór snemrna
í gær til að hirða um skepnurnar, en
heimilisfólkið á Valbjarnarvöllum
býr nú í Borgarnesi.
íslendingar hafa lítt sinnt eld-
ingavörnum vegna þeirrar trúar að
þrumur og eldingar væru mjög
sjaldgabfar hér á landi, en erlendis
eru víðast eldingavarar á hverju
húsi og hverjum bíl. Samkvæmt
upplýsingum Veðurstofunnar er
tilkynnt um eldingar tvo til þrjá
daga á ári hverju og tjón af völdum
eldinga er talið verða á tíu ára
fresti.
Bcrgur Jónsson, rafmagnseftir-
litsstjóri sagði í gær að eftir að lín-
ukerfið þandist út, hefðu menn þó
orðið þess varir að eldingar yllu
mun fleiri truflunum en þá hefði
grunað. Hann taldi þó ekki ástæðu
til að kosta miklu til eldingavarna á
húsum almennt, það væri mjög
kostnaðarsamt og kæmi að tak-
mörkuðu gagni og taka yrði mið af
því hvaða tjóni eldingar yllu, sem
væri tiltölulega lítið. „Pað er ekki
til nein örugg vörn gegn elding-
um“, sagði Bergur, „en hins veg-
ar eru til ýmsar leiðir til að minnka
eyðileggingarmátt þeirra." Hann
sagði það misskilning að járna-
bindingar í húsum leystu nokkurn
vanda í þessu sambandi, þvert á
móti þekkti hann dæmi þess að
elding hefði hlaupið í járn og
sprengt steypuna. Pó taldi Bergur
ástæðu til að huga betur að þessum
málurn á afmörkuðum stöðum á
landinu sem eru sérlega útsett fyrir
eldingum, svo sem eins og á Síð-
unni og ennfremur á ýmsurn verð-
mætum mannvirkjum.
í íniacy ðsla að kanna gömul mál
Segir vararann-
sóknarlögreglu-
stjóri ríkisins
Þórir Oddsson vararannsóknar-
lögreglustjóri, sagði í viðtali við út-
varpið fyrir jólahelgina það „ó-
raunhæft að eyða tíma og vinnu í að
rannsaka sjö eða átta ára gamalt
mál“. Útvarpið hafði einnig eftir
Þóri að „nær væri fyrir lögregluna
að vinna að því að koma í veg fyrir
afbrot“.
í sömu útvarpsfregn var haft
eftir Jóni Helgasyni, að „sem
dómsmálaráðherra gæti hann ekki
skipt sér af þessu máli þar sem
Rannsóknarlögreglan og saksókn-
ari væru ekki hluti af dómsmála-
ráðuneytinu". Hann hefði hins
vegar sem landbúnaðarráðherra
áhuga á að komist yrði til botns í
smyglmálinu.
Einsog kunnugt er af fréttum í
Þjóðvilja, fékk Jón Helgason
dómsmálaráðherra og landbúnað-
arráðherra, bréf frá Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins í september sl.
með beiðni um að ráðherrann fylgi
málinu eftir. Landbúnaðarráð-
herra/dómsmálaráðherra hefur
ekki kannast við að hafa fengið
þetta bréf í hendur í viðtölum við
fjölmiðla.
Rannsóknarlögreglan hefur í-
El Salvador-söfnunin
Ttigir þúsunda
söfnuðust
Fjásöfnun E1 Salvadornefndar-
innar á íslandi nú fyrir jólin gekk
afar vel að sögn forráðamanna
hennar og sögðu þeir að um 45.000
krónur hefðu safnast í jólagjöf
handa skólabörnum á frelsuðu
svæðunum í EI Salvador.
Á Þorláksmessu söfnuðust
40.000 krónur en laugardaginn þar
á undan höfðu safnast 5000 krónur.
Ætlunin er að gefa þessa upphæð
skólabörnum í E1 Salvador eins og
áður sagði. Formaður nefndarinn-
ar, Björk Gísladóttir bað Þjóðvilj-
ann koma þakklæti á framfæri við
þann fjölda manna sem hefði lagt
þessari söfnun lið. Hún benti þeim
sem enn hefði ekki gefist kostur á
að gefa í söfnunina að enn væri
hægt að leggja peninga á gíró 303-
25-59957. "
- v.
trekað fengið beiðni um að rann- Fyrst í apríl á síðasta ári, ér Pálmi
saka meint kjötsmygl til landsins. Jónsson þáverandi landbúnaðar -
Sigríður Ella og Kristinn Sigmundsson hafa í ýmsu að snúast þessa dag-
ana.
ráðherra fór fram á slíka rannsókn.
-óg
Óperan œfir
af fullum krafti
Rakarinn
s
1
Sevilla
Um þessar mundir standa yfir
hjá íslensku óperunni æfingar á
gamanóperunni Rakarinn í Sevilla
eftir Rossini. Verður hún frumsýnd
þann 6. janúar næstkomandi. Það
er Marc Tarudue sem annast
hljómsvcitarstjórn og er jafnframt
æfingastjóri. Lcikstjóri er Fra-
nsesca Zambello og um leikmynd,
lýsingu og búninga sjá Michael De-
egan og Sarah Conly. Aðstoðarl-
eikstjóri er Kristín S. Kristjáns-
dóttir.
Einsöngvarar eru: Kristinn Sig-
mundsson, Sigríður Ella Magnús-
dóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson,
Kristinn Hallsson, Jón Sigur-
björnsson, Elísabet F. Eiríksdóttir
og Guðmundur Jónsson. Auk
þeirra eru í sýningunni kór og
hljómsveit íslensku óperunnar.